apríl 30, 2003

Sybbin!!

Minn er sybbinn í dag!! Fór aðeins of seint að sofa í gær og það þýddi bara eitt, klukkutími á snooze-inu í morgun!!! Hélt ég myndi hreinlega ekki koma mér á lappir!! Verður ósköp gott að geta sofið út á morgun:-) Ennþá meira hlakka ég samt til að Jobbi klári prófin, er alveg frekar þreytt að horfa ein á sjónvarpið með headphones.

Hafið það nú gott elskurnar, ætla að halda áfram að vinna (er nefnilega að gera svaka spennandi verkefni:-))


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:44 EH | 0 Ummæli

apríl 28, 2003

Nafn, páskaegg og fleira

Well well well, þá er litli drengur Berglindar og Nonna kominn með nafn, hann heitir sem sagt Emil Gauti. Verð nú bara að segja það að mér finnst þetta alveg meiriháttar nafn!!!

Þar sem ég gat ekki borðað páskaeggið mitt um sjálfa páskana þá var það opnað í gær og súkkulaði maskínan er sko ekki búin að eiga í vandræðum með að koma því niður. Jobbi er alveg bit yfir því hvað ég er búin að vera fljót með það. Súkkulaði er svo gott að ég gæti nú barasta borðað mörg páskaegg ef ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þynginni:S (ekki að ég sé nú e-ð að velta því fyrir mér hvort ég þurfi að ná þessu eggi af....)

Annars er ég nú bara nokkuð ánægð með mig þessa dagana, tók mig til og saumaði buxur á Emil Gauta í skírnagjöf. Nú langar mig bara mest mikið í saumavél, ef e-r veit um saumavél til sölu fyrir lítinn pening þá má hinn sami alveg endilega láta mig vita:) Langar ógó mikið að vera komin með saumavél þegar við förum út, þá gæti ég dundað mér við að sauma alls konar dót. Ekki að það verði ekki örugglega nóg að gera þegar við verðum farin út í nám.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:51 EH | 0 Ummæli

apríl 26, 2003

Nýjar myndir

Vildi bara láta þá vita sem áhuga hafa að páskamyndirnar voru að koma á myndaalbúmið okkar. Flestar myndirnar eru frá því á Föstudaginn langa en þá fórum við til Siglufjarðar á bretti og í göngu.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:03 FH | 0 Ummæli

Dugnaður í gangi

Ég er ekkert smá ánægð með mig núna:-) Við fórum til Margrétar og Jóns áðan í kaffi og ég fór á línuskautum alla leiðina frá Eggertsgötunni upp á Bárugötu:-) Verð nefnilega að sýna fram á að ég noti þessa gömlu til að ég fái heimild til að kaupa mér nýja... sem er btw næst á dagskrá. Fórum meira að segja í Útilíf í dag og vorum að máta:-)
Annars var nú bara nokkuð hressandi að fara í svona línuskautaferð áðan, en ég hef ekki farið á skautana síðan í fyrrasumar.

Þetta er það sem koma skal:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:43 FH | 0 Ummæli

T310 frá SonyEricsson

T310
Þá er maður kominn með nýjann síma og mun Nokia 5110 síminn verða lagður í geymslu af því tilefni. Er það gríðarlegt svekkelsi að síminn skuli þurfa að vera í skrilljón klukkutíma í hleðslu áður en hægt er að fara að nota hann. Við keyptum okkur sem sagt bæði svona síma og við getum hreinlega ekki beðið eftir að fara að taka myndir með honum og senda á milli en eins og er er nefnilega ókeypis að senda MMS skilaboð:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:25 FH

apríl 24, 2003

Bóner og börn

Úr því að ég er komin á skrið þá er um að gera að halda bara áfram. Hafið þið tekið eftir því að þeir bónarar sem eiga ekki yngri systkini (þ.e. Berglind og Linda Rós) eru þær sem eru komin með börnin en allar hinar sem eiga yngri systkini hafa greinilega upplifað þetta svona hrikalega lífsreynslu að engin eru börnin komin þar;) Mér fannst þetta svolítið merkileg uppgötvun hjá mér!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:00 EH | 0 Ummæli

Elsti bónerinn afmæli!

Til hamingju með afmælið elsku Berglind mín!!! Nú ert þú sko orðin gömul, búin að ná í árin 24 á meðan við unglömbin erum bara ennþá 23 ára!! En don't worry, við náum þér MJÖG fljótlega;) Sjáumst eldhressar í kvöld!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:49 EH | 0 Ummæli

Gleðilegt sumar!!

Þó svo að sumarið hafi nú eiginlega ekkert farið síðan í fyrra þá er nú samt ágætt að vera búin að fá aftur sumarið, svona opinberlega;) Annars fékk ég sumargjöf í gær (já ég veit, smá svindl) en mamma gaf mér sumargjöf í gær þegar hún var að versla sumargjafir handa krökkunum og ég var að hjálpa henni. Síðan fékk ég náttlega að gefa Hans Adolfi sumargjöfina sína sem vakti gríðar lukku, var Harry Potter ugla úr dótabúðinni hans Sigga.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:48 EH | 0 Ummæli

Litla barnið komið í háttinn

Þá er litli kútur loksins sofnaður. Var nú alveg soldið mál fyrir hann að fara að sofa þar sem mamma hafði gleymt að láta bók með í töskuna. Hefur verið lesið fyrir hann á hverju kvöldi (eða hér um bil) síðan hann var 1 árs svo hann var nú ekkert á því að róast sjálfur. Fékk í staðinn bara þessa fínu munnræpu! En hann er samt svo frábær þó ég segi sjálf frá. Er meira að segja ekki frá því að hann sé best heppnaða eintakið frá mömmu og pabba... rólegur, hlýðinn og sætur strákur.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:32 FH | 0 Ummæli

apríl 23, 2003

Óður til Helgu Bjartar...

Jæja, ætli það sé ekki best að lofsyngja Helgu aðeins hérna svo maður haldi henni góðri... ;) Þú ert engin kella, þú ert bara skvísa og meira að segja alveg meiriháttar skvísa :-) Annars veit ég alveg að þú munt fyrirgefa mér þetta, hef ekki minnstu áhyggjur af því...

Í gærkveldi ætlaði ég að vera ógó dugleg í eldhúsinu og elda eggjanúðlur handa okkur Jobba. Ekkert nema gott um það að segja. Eeeennn, þetta var bara e-r sá versti matur sem ég hef nokkurn tímann smakkað, þvílíkur óþverri sem ég bjó til og Jobbi gat ekki einu sinni látið sem honum þætti þetta gott. Ég hélt að þetta gæti ekki orðið svona vont, bara núðlur, fullt af steiktu grænmeti og eggjarhræra. Don't try this at home!! En sem betur fer hef ég nú alveg húmor fyrir slæmri kunnáttu minni í eldhúsinu að ég hlæ bara að þessu núna :-)

Í kvöld verður e-ð öruggara, ætlum að baka pizzu. Hún klikkar aldrei og við verðum líka örugglega gríðar vinsæl hjá Hans Adolfi en hann ætlar að koma til okkar í kvöld og fá að gista.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:44 EH | 0 Ummæli

apríl 22, 2003

Stephanie smefaní

Hvaða húmor er kominn í gestabækurnar frá Alxnet?!?!? Einhver Stephanie (eða ekki Stephanie) búin að skrifa og setja inn link á klámdrasl!! Var ekki lengi að láta það hverfa...

Erum annars komin aftur heim og kom ég heim með heilt páskaegg, þar sem ég hef enn ekki náð að verða betri en sæmileg þá hef ég ekki haft nokkura lyst á súkkulaði undanfarna daga eins skrýtið og það nú kann að hljóma. Er nefnilega hinn mesti súkkulaðigrís, sérstaklega eftir að súkkulaðið varð vinur minn þegar ég var í Sviss. Held að því hafi liðið svona vel á mjöðmunum, rassinum og lærunum á mér...

Næsta vika er síðan bara stutt vinnuvika, ekki nema 3 dagar og ekki einu sinni allir í einni lotu!! Þetta er nú meira letilífið. En ætli það sé ekki bara um að gera að reyna að njóta þess...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:02 FH | 0 Ummæli

apríl 20, 2003

Gleðilega páska!!

Eftir síðasta blogg lagðist ég í rúmið en það tók sem betur fer ekki nema einn dag að verða sæmileg aftur. Hef nú reyndar ekki ennþá lyst á páskaegginu sem ég fékk frá tengdó. Eru þó framför að ég borðaði smá brauð og kjúkling áðan. Aldrei að vita nema ég opni páskaeggið til að lesa málsháttinn.

Hafið það gott og borðið yfir ykkur af súkkulaði ;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:27 EH | 0 Ummæli

apríl 19, 2003

Mallorca veður!!!

Plönin okkar eru nú heldur betur fljót að breytast, við hættum sem sagt við að fara í Hlíðarfjall vegna roks, en fórum í staðin á Siglufjörð. Fékk nú vægt sjokk þegar við vorum komin upp í fjall því engan sá ég snjóinn. Fékk ég mér því bara ágætis fjallgöngu upp á topp á meðan Jobbi renndi sér á brettinu í snjónum sem var bara í felum frá bílastæðinu. Fyrir þá sem ekki hafa heyrt (eflaust enginn..) þá var hitastigið hér fyrir norðan um 20°C, heiðskírt og logn að mestu á Siglufirði. Erum við því orðin nokkuð útitekin og sælleg:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:07 FH | 0 Ummæli

apríl 18, 2003

Föstudagurinn langi

Sem betur fer er nú föstudagurinn langi ekki jafn langur og leiðinlegur og hann var þegar maður var lítill. Við ætlum að kíkja upp í Hlíðarfjall í dag og athuga hvort við getum ekki bara gengið upp á topp. Er reyndar soldið mikill vindur núna þ.a. við ætlum aðeins að sjá til hvernig veðrið er þarna upp frá. Við fórum ekki á bretti í gær, tók nefnilega hálfan daginn að fá gönguskóna senda með flugi hingað norður. Ætlum að reyna að fara bara seinna, síðan er annað mál hvort það verður e-r snjór seinna því það er jú 14°C (á að fara upp í 16°C í dag þ.a. það þýðir lítið fyrir Helgu Björt að monta sig af 18°C í Danmörku!!! hehehe).

Vona að allir séu að njóta þess að eiga frí, þetta er jú líka lengsta frí vinnandi fólks.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:10 EH | 0 Ummæli

apríl 17, 2003

Komin til Akureyrar

Þá erum við búin að skröllta í 4,5 tíma á leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar. Þetta var nú samt ekkert svo slæmt fyrir mig, dundaði mér bara alla leiðina, prjónaði, las og svaf svo síðasta klukkutímann. Nennti sem sagt ekkert að keyra...
Ætlum að athuga með að fara á bretti á Siglufirði á morgun, það var opið þar í dag svo nú er bara að vona að það verði það líka á morgun. Annars fer Jobbi bara einn í Hlíðarfjall, hann þykist vera orðinn nógu góður til að fara í Strýtuna.

Ætli það sé ekki bara best að skríða upp í rúm, er alveg frekar sjúskuð eftir ferðina.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:27 FH | 0 Ummæli

apríl 15, 2003

Survivor Amazon

Gleymdi alveg að minnast á það áðan að ég horfði á Survivor í gær. Það er nú svo sem ekki til frásögu færandi nema fyrir það að Deena var rekin í burtu, ég var orðin svo þreytt á henni að ég varð mjög hamingjusöm þegar ég sá að hún hafði verið rekin heim. Hún var eiginlega OF stjórnsöm og reyna að fá alla til að gera eins og hún vildi til að hún gæti unnið (sem er nú kannski pointið í leiknum, en samt), þetta var bara svo áberandi og þreytandi.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:06 EH | 0 Ummæli

Alveg að koma páskafrí!!

Góðan daginn gott fólk! Nú er farið að styttast í páskafríið, en við ætlum að vera fyrir norðan og förum líklegast þangað á morgun eftir vinnu. Það verður nú örugglega alveg ljómandi fínt, er orðið soldið langt síðan við fórum síðast norður. Ætlum að athuga hvort við komumst kannski á bretti á Siglufirði en það er alveg borin von að fara í Hlíðarfjall, ég er nú bara rétt að komast úr barnabrekkkunni þ.a. þá fer ég sko ekki í Strýtuna, nei takk!

Svo erum við líka að klára að sækja um húsnæði í Köben, er eiginlega bara eftir að ýta á "send" takkann og verður það gert þegar við komum heim í dag. Ætlum að sækja um húsnæði á sama kollegíi og Fjóla og Ingó eru á, það er soldið í burtu frá skólanum en fínustu raðhús í sveitasælunni. Mér finnst samt soldið skrýtið að vera að sækja um húsnæði þarna úti en ekki enn búin að sækja um í skólann, það er reyndar held ég bara formsatriði, förum bara með eitt blað niður í HÍ og þá verður séð um þetta fyrir okkur, ljúft, ekki satt?


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:51 EH | 0 Ummæli

apríl 14, 2003

Aftur komin heim í kotið

Þá eru foreldrarnir komnir aftur heim frá Prag og við því ekki lengur að passa. Þetta var nú ekkert svo hrikalega erfitt, elduðum bara góðan mat handa okkur og krökkunum og dúlluðumst svo með þeim. Ég var nú samt það þreytt í gærkveldi að ég fór bara að sofa á sama tíma og ég kom Hans Adolfi í rúmið. Nú er klukkan líka að slá í ellefu og kominn tími fyrir mig að fara í háttinn, ég held ég sé að verða e-ð rosalega gömul, fer snemma að sofa og vakna snemma (já líka um helgar) :S

Eigið góða vinnuviku!! :-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:00 FH | 0 Ummæli

apríl 12, 2003

Blogspot auglýsingin

Jibbý!! Ég losnaði við Blogspot auglýsinguna :-) Reyndar er hún þarna undir en ég náði bara að troða borðanum sem er efst á síðunni yfir auglýsinguna.
Ætli það sé ekki best að fara að koma sér í Hafnarfjörðinn og kíkja á krakkana, athuga hvort það sé enn í lagi með þau...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:18 EH | 0 Ummæli

Aðalfundur VIR

Jæja þá er hinn árlegi aðalfundur VIR búinn, var ég þar fundarritari og sérlegur aðstoðarmaður fundarstjóra (sagði honum til þegar hann fór að gera einhverjar vitleysur...). Var ákveðið að fara á bílnum upp í Víðidal þar sem fundurinn var haldinn og skilja hann síðan eftir þar. Þ.a. ef e-r er á leiðinni í laugardagsbíltúr upp í Víðidal má hinn sami alveg hafa samband við okkur og kippa okkur með... Það er samt svo skrítið, ég útskrifaðist ekki nema í fyrra en samt þekkti ég minni hlutann af fólkinu þarna, þekkti náttlega engann á fyrsta ári og fæsta á öðru ári, þetta varð samt að hinni ágætustu skemmtun þar til ég var orðin þreytt og pirruð og vildi komast heim en Jobbi vildi bíða eftir að rúta kæmi og ferjaði alla í bæinn. Eins og kom fram hér að neðan þá er ég búin að segja stríð á hendur þynnku og er það að ganga líka bara svona glimrandi vel, eða er það kannski bara að ég er léleg drykkjumanneskja (eða góð í þeim skilningi). Er bara skemmtilegra að skemmta sér og muna eftir öllu daginn eftir og vakna ferskur áður en dagurinn er hálfnaður.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:52 EH | 0 Ummæli

apríl 11, 2003

Húsráðendur í Hafnarfirði

Þar sem mamma og pabbi skruppu til Prag yfir helgina þá vorum við Jobbi í nótt í Hafnarfirði til að sjá um krakkana. Eða öllu heldur var ég í Hafnarfirði að sjá um krakkana og Jobba því greyið er lasinn. Þegar við komum í Hafnarfjörðinn þá var grafinn upp hitamælir því þannig tól er ekki til á okkar heimili og var hann með 39°C hita, ekki skrítið að hann væri slappur.
Annars voru krakkarnir e-ð farnir að væla yfir því að ég væri strangari en mamma og pabbi, þau þyrftu að taka til, vera takmarkað á netinu o.þ.h. Ég kippi mér samt ekkert upp við það:-) Þau losna líka við okkur í kvöld því ég var búin að taka að mér að vera ritari á aðalfundi VIR (félag rafmagns- og tölvuverkfræðinema) og þá verð ég væntanlega ekki í ökuhæfu ástandi eftir það. Þessir aðalfundir hafa oft endað heldur skrautlega, nóg af ókeypis áfengi af öllum gerðum. Maður er samt orðinn svo settlegur og búin að segja stríð á hendur þynnku þ.a. þá veit ég ekki hvort ég nenni nokkuð að drekka e-ð mikið.

Hafið það gott börnin góð!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:12 EH | 0 Ummæli

apríl 09, 2003

Ayurveda nudd

Fór í þetta elsta nudd Indverja í Mecca Spa núna áðan. Fékk gjafabréf í jólagjöf frá Jobba mínum og var sko alveg kominn tími til að nýta það. Var reyndar ekki alveg svona mikill sauður, því ég pantaði tímann fyrir ca. mánuði síðan. Allavegana var þetta alveg himneskt, gæti alveg hugsað mér að fara í svona í hverri viku!! En til þess þyrftu nú víst peningarnir að vaxa á trjánum eða e-ð álíka.
Fór að spá í því hvað það er miklu meira vesen að nudda konu heldur en karl. Á karlmönnum er einfaldlega hægt að nudda alla bringuna en það verður öllu flóknara þegar það eru komin brjóst inní spilið. Annað, hvað ætli það sé sem fær fólk til þess að verða nuddari?? Ég hefði allavega ekki áhuga á því að bera olíu á og nudda hana á nakið hold á annari manneskju.

Jæja, ætli það sé ekki best að fara að ganga frá eftir matinn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:09 EH | 0 Ummæli

Kvenrembubrandari

Þó ég sé almennt MJÖG á móti því að draga fólk í dilka eftir kynferði og þoli ekki kynjamisrétti þá gat ég nú ekki annað en hlegið að þessum (vona að enginn móðgist neitt, en ef svo er endilega látið mig vita og ég tek það til mín).

Once upon a time, there was a female brain cell which, by mistake, happened to end up in a man's head. She looked around nervously, but it was all empty and quiet. "Hello?" she cried... but no answer. "Is there anyone here?" she cried a little louder, but still no answer.... Now the female brain cell started to feel alone and scared and yelled, "HELLO, IS THERE ANYONE HERE?" Then she heard a voice from far, far away...
"Hello - we're all down here...."


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:27 EH | 0 Ummæli

Sviss

Switzerland
Switzerland -
A neutral power for as long as most can remember,
it has avoided war for several centuries.
However, it is still considered highly advanced
and a global power.


Positives:

Judicial.

Neutrality.

World-Renouned.

Powerful without Force.

Makes Excellent Watches, Etc.


Negatives:

Target of Ridicule.

Constant Struggle to Avoid Conflict.

Target of Criminal Bank Accounts.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla

Jibbý, ég er uppáhaldslandið mitt:-) Ekkert smá hamingjusöm yfir því:-) Kannast líklega flestir sem ég þekki við að hafa heyrt e-ð um Sviss út úr mínum munni þ.a. þetta hentar mér MJÖG vel:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:42 EH | 0 Ummæli

Litli kúturinn hennar Berglindar

Var að koma úr heimsókn hjá Berglindi. Hittumst þar flestar úr Bónerhópnum, kjöftuðum og átum FULLT af nammi. MMMmmmm. Annars var að sjálfsögðu smellt af nokkrum myndum og eru þær komnar í Myndaalbúmið okkar.

Er maður ekki sætur??
Sýni hér smjörþefinn af stráknum sem stækkar óðfluga.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:37 FH | 0 Ummæli

apríl 08, 2003

Vekjaraklukkan forrituð

Í morgunsárið þegar ég var að vakna við klukkuna þá gat ég bara engan vegin skilið hvernig í ósköpunum hægt væri að forrita vekjaraklukku með PDF skjali. Í hvert sinn sem klukkan hringdi þá fór ég að spá í þessu. Ég dýrka pælingar sem verða milli svefns og vöku, þær eru svo oft e-ð svona absúrd. Svo er líka ógó fyndið þegar ég er ennþá sannfærð um að þetta sé satt og rétt og fer að útskýra þetta fyrir Jobba. Það skal líka tekið fram að ég átti óhemju erfitt með að vakna í morgun.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:27 EH | 0 Ummæli

Sjónpróf

Fékk þetta snilldar sjónpróf sent. Endilega athugið hvort þið eruð litblind...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:10 EH | 0 Ummæli

What number are you?


I am
p

Everyone loves pi

_

what number are you?

this quiz by orsa

Hversu mikil snilld er að vera pí?? Mér finnst það nú eiginlega bara vera mesta snilldin... :-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:53 FH

Dugnaður

Við Jobbi vorum sko aldeilis dugleg í gær!! Bíllinn okkar sem var orðinn ansi skítugur og ógeðslegur fór í bað:-) Þrifum hann hátt og lágt, að innan og utan auk þess sem hann var bónaður. Held að hann sé nú ánægður í dag:-) Ég var hins vegar ekki alveg jafn ánægð með veðrið eftir þrifin því í svona rigningu og roki verður hann fljótt aftur skítugur af því að keyra aðalgötur bæjarins... Eitt skil ég samt ekki með þennan bíl, nú er hann frekar nýr (kom á götuna í nóvember s.l.) en þvílíka drullan sem sest inn í hurðafölsin, ætli það eigi að vera þannig??
Eftir þvottinn skruppum við síðan í heimsókn til Lindu og Sigga til að lána þeim pabbabókina en Linda er einmitt ólétt og komin með litla sæta kúlu framan á sig.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:48 FH | 0 Ummæli

apríl 07, 2003

Ný vinnuvika

Þá er helgin liðin og minns mættur aftur í vinnuna. Þetta var bara hin ágætasta helgi, legið slatta mikið í leti, ráfuðum um IKEA og fórum í sund. Svo stóð ég nú líka við það að þrífa blessuðu eldhúsinnréttinguna (eða svona mest af henni) því þegar ég var búin að ákveða að fara að sofa í gær datt mér í hug að það væri kominn tími til að þrífa innréttinguna. Þar sem íbúðin er orðin svona fín þá er bara eitt sem bíður, það er geymslan!!! Það er reyndar SVOOOO leiðinlegt að ég veit ekki alveg hvenær við leggjum í hana... Verður ágætt að vera búin að fara í gegnum mest allt dótið áður en við flytjum út, það er nú farið að styttast all svakalega í það, ekki nema ca 4 1/2 mánuður þangað til.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:12 EH | 0 Ummæli

apríl 06, 2003

The Pianist

Horfðum á the Pianist í gærkveldi. Ég var með alveg þónokkrar væntingar gagnvart þessari mynd þar sem ég var búin að heyra að hún væri svo geðveikt góð. Á heildina litið var hún mjög góð en á nokkuð löngum kafla fannst mér hún hreinlega vera langdregin (tekið skal fram að ég sofnaði ekki!!!) en úr rættist þó fyrir lokin þ.a. ég fór nokkuð sátt að sofa.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:16 EH | 0 Ummæli

apríl 05, 2003

Ókeypis matur og drykkur

Það er nú alltaf jafn gaman að fá ókeypis að borða og drekka. Var sem sagt í þessu að koma inn af kvöldverði sem stjórn Landsvirkjunar bauð til. Er orðin nokkuð skökk en það er nú bara gaman... Þessi kvöldverður var í framhaldi af Samráðsfundi þar sem margir merkir menn þjóðfélagsins voru saman komnir og var staða Landsvirkjunar rædd í framhaldi af Aðalfundi Landsvirkjunar.
Annars er nú bara mest lítið að frétta, Jobbi fékk að tölvunördast í friði úr því að ég var ekki í heima, er nú orðið ansi langt síðan að hann fékk að hafa tölvuna alveg út af fyrir sig þar sem ég hef verið mjög svo dugleg að einoka hana við heimasíðugerðina undanfarið. Þetta fer nú samt allt að verða tilbúið þó ég geti nú alltaf fundið e-ð til að laga eða hugsa um. Held það sé nú best að fara að koma sér í háttinn, vona bara að þynnkan ákveði að hitta e-n annan en mig á morgun...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:48 FH | 0 Ummæli

apríl 03, 2003

Helgin nálgast

Vikulegar pælingar farnar að ásækja mig, en það er hvað skuli gert næstu helgi. Erum nú ósköp léleg í djamminu þ.a. það er meira verið að spá hvort að þrífa eigi eldhúsinnréttinguna eða gera e-ð annað og meira skemmtilegt... Síðustu viku hefur jólatiltektin verið í gangi en það var orðið ansi þarft verk því ég nennti því takmarkað fyrir síðustu jól. Inni í jólatiltekt flokkast að ganga frá pappírum og dóti sem leynist í skattholinu en eins og þeir sem þekkja þá mublu þá tekur skottholið við nánast endalaust miklu drasli og þar eiga það til að leynast 2-3ja ára gamlar læknakvittanir og þannig óþarft dót. Einnig væri nú kannski gáfulegt að fara að henda jólatrénu sem hefur legið úti á svölum síðan milli jóla og nýárs... eða hvað??


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:28 EH | 0 Ummæli

Loksins, loksins

Jæja jæja, sælt veri fólkið!!!
Nú er síðan bara loksins tilbúin, eða svona næstum því. Ég held ég sé farin að skilja hvernig Jobbi getur eytt heilu kvöldunum í tölvunni þegar hann er að grúska e-ð. Þar sem ég hafði ekki skrifað stakan kóða í HTML síðan 2000 þá var ég orðin aðeins ryðguð en þetta hafðist allt saman á endanum.
Er víst kominn háttatími þ.a. þetta verður ekki lengra að sinni.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:36 FH | 0 Ummæli