maí 31, 2003

Hrein íbúð og videogláp

Ohhh hvað það er alltaf gaman þegar íbúðin er orðin hrein og fín, hún fékk nefnilega allsherjar andlitslyftingu í dag:-). Væri alveg til í að fá e-n til að koma reglulega til okkar og þrífa íbúðina því það er ekki alveg jafn gaman að þrífa eins og tilfinningin eftir á.
Annars vorum við að klára að horfa á Old School. Ansi skemmtileg bara, mæli alveg hiklaust með henni, hlógum alveg heilmikið.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:36 FH | 0 Ummæli

maí 30, 2003

Long time...

Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði hérna síðast. Er búin að vera ógó mikið í vinnunni eftir að ég flutti af Háaleitisbrautinni upp á Hestháls. Er svo svakalega þægilegt að vinna núna eftir að ég er komin með skrifstofu en er ekki lengur inni á tölvudeildinni. Það var náttlega alltaf mikið um að vera á tölvudeildinni og maður var alltaf að spjalla við fólk en vinnulega séð er skrifstofan mun betri.
Í vikunni erum við líka búin að vera soldið dugleg að fara út eftir vinnu og dagurinn í dag var síðan alveg brilliant. Þegar ég kom heim úr vinnunni (já ég er algjört nörd og fór sjálfviljug í vinnuna í morgun fram að hádegi) þá fórum við Jobbi og Katla María (vorum að passa skvísuna) og löbbuðum niður í bæ. Höfum hreinlega aldrei gert það áður að ganga niður í bæ í góðu veðri og setjast úti og fá okkur að borða. Er náttlega frekar dularfult að maður þurfi barn til þess að nenna því, eins og þetta er nú alveg yndislegt. Fórum síðan líka í Bláa Lónið og vorum þar alveg slatta lengi. Það var ekkert smá troðið þar, voru alveg skriljón útlendingar og fullt af Íslendingum líka. Núna eru allir orðið rjóðir og sællegir:-)
Svo er bara vinna í einn dag á morgun og svo aftur komið frí. Ég fatta ekki alveg svona fimmtudagsfrí, þá er það mikið búið að vinnuvikunni að ég held alltaf að það sé bara laugardagur og er ekki alveg að fatta það að það sé vinna á morgun aftur. Enda er líka klukkan orðin alltof margt núna og ég ætti að vera löngu komin í háttinn...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:19 FH | 0 Ummæli

maí 25, 2003

Íran vs. Ísland

Váá hvað ég er fegin að vera ekki írönsk kona!! Ætti sko ekki vel við mig! Finnst alveg nógu óþolandi sú karlremba sem er við lýði í dag hér á Íslandi...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:27 EH | 0 Ummæli

Dugnaður á sunnudagsmorgni

Þvílíkur og annar eins dugnaður hjá okkur Jobba hefur varla heyrst áður. Við vorum komin út í Kjarnaskóg um hálf níu í morgun, gátum þá leikið okkur að vild í leiktækjunum því það var ekkert annað fólk þarna (Síðast þegar við fórum í Kjarnaskóg var allt fullt af fólki og börnum að leika sér svo við gátum ekkert leikið okkur). Var síðan mjög hressandi að fara í okurbúlluna Sundlaug Akureyrar á eftir, sérstaklega þar sem fólk var greinilega frekar þreytt eftir gærkveldið og voru mjög fáir framan af í lauginni.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:25 EH | 0 Ummæli

Klagað eftir Eurovision

Nú er náttlega farið að spá hvort sigurlagið sé stolið. En fyndnast fannst mér þó að lesa um það sem norsku og sænsku kynnarnir sögðu um lag hvors annars. Sænska lagið með útgeislun eins og IKEA bókahilla og norska lagið eins og reiðhjólapumpa!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:17 EH | 0 Ummæli

maí 24, 2003

Eurovision

Þá er e-ð liðið á kosninguna og við erum ennþá meðal 10 efstu. Birgitta stóð sig nú bara alveg ágætlega en verð ég að segja að ég er nú ekki sátt við að Ísland hafi gefið Austurríki 10 stig! Lagið hefði alveg eins getað verið lag sem leikskólakrakkar sömdu! Einnig var ég nú farin að búast við að Rússastelpurnar myndu gera e-n skandal en þær héldu sér alveg á mottunni, hefði nú verið soldið gaman af því ef þær hefðu gert e-n usla.
Þið sem eruð í Eurovision partýum, skemmtið ykkur konunglega en gangið samt ekki of harkalega inn um gleðinnar dyr... (Bína, þessu var líka beint til þín ;))


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:41 EH | 0 Ummæli

Yndislegt veður!!

Ohhh hvað það er frábært þegar veðrið er svona yndislegt eins og það er búið að vera undanfarna daga. Í gær fórum við Hafrún og Katla María í sund og flatmöguðum alveg heillengi þar til Katla María var búin að fá alveg nóg af því að bursla. Áður en við Jobbi fórum síðan heim keyptum við okkur ís og vorum úti á peysunni að borða ís þegar klukkan var að verða 10!! Alveg meiriháttar að geta það og ekki einu sinni komið júní.

Núna erum við komin norður á Akureyri þar sem við ætlum að vinna og hjálpa litla bróðir Jobba að læra fyrir prófin. Var hins vegar ekki mjög gaman að sitja inni í bíl í góða veðrinu í dag en ég náði þó eins og svo oft áður að sofna seinni hlutann af leiðinni og rétt vaknaði þegar við keyrðum inni í bæinn. Var e-ð að heyra á Stuðmenn minnst núna rétt í þessu, spurning hvort við förum í Sjallann á morgun...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:37 FH

maí 22, 2003

Menn á svölunum

Þegar við loksins vöknuðum í morgun þá voru menn að byrja að brölta inn á svalirnar okkar!! Sem betur fer var ég nú komin með nógu mikla rænu til að muna að við höfðum fengið blað í póstkassann um daginn þar sem sagði að mála ætti gluggana að utan næstu vikurnar. Spurning hvort þeir þurfi ekki nauðsynlega að þvo gluggana áður en þeir mála karmana?? Væri sko alveg til í það!! Efast reyndar um það og það þýðir bara eitt, við þurfum að fara út og þrífa þá (er kominn tími á það...).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:14 EH | 0 Ummæli

Komin af Esjunni

Já ég fór eins og ætlunin var, við fórum alla leiðina upp á topp (tókum reyndar smá krók þarna efst uppi og KLIFRUÐUM aðeins meira en við þurftum) og var það nú bara ekkert svo mikið mál. Svo þegar við vorum ca hálfnuð niður þá hætti reyndar að vera gaman, mér varð svo illt í HELV*#%"%#$ mjöðminni/lærleggnum að ég átti frekar bágt með að koma mér niður en það hafðist þó að lokum. Er núna alveg að lognast út af en bíð núna bara eftir að baðið verði tilbúið svo ég geti aðeins lagt mig þar ofaní. Tókum örfáar myndir, þær koma væntanlega í myndaalbúmið fljótlega. Vorum reyndar ekki mjög sátt við þokuna sem ákvað að skríða yfir toppinn akkúrat þegar við vorum að komast upp og fór ekki aftur fyrr en við vorum komin áleiðis niður.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:34 FH | 0 Ummæli

maí 21, 2003

Esjan bíður

Við Jobbi ætlum að fara í Esjugöngu í kvöld með Búbbanum. Er að yfirlögðu ráði að skrifa það hérna áður því ég er að reyna að minnka líkurnar á því að ég hætti við rétt áður en við eigum að leggja af stað (mun örugglega reyna að finna e-a lásý afsökun korter fyrir...). Segi ykkur í kvöld eða á morgun hvernig gekk, hvort ég hafi komist upp á topp...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:26 EH | 0 Ummæli

Ný blöndunartæki!!!

Jibbý!!!! Nú er loksins búið að skipta um blöndunartæki í baðkarinu á Hjónagörðunum. Þá getur maður loksins hætt að hendast út úr sturtunni vegna kulda eða hita en gömlu blöndunartækin voru ansi uppátækjasöm svo ekki sé nú meira sagt!! Af því að maður getur nú alltaf fundið e-ð að öllu þá verð ég bara að segja að nýju blöndunartækin eru soldið fáránlega breið, næstum jafn breið og baðkarið (ætli það sé þá kannski baðkarið sem er svona mjótt?!?). Ef ég ætti barn þá gæti ég allavega leyft því að fara í sturtu núna, hefði ekki þorað því áður.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:22 EH | 0 Ummæli

maí 20, 2003

Fear factor

Þvílíka viðbjóðurinn!!!! Fólk er að borða hrossa endaþarm!!!!! let me puke! kúgaðist ekkert smá við það að sjá þetta .


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:37 EH

Friends klikkar seint

Vorum að horfa á lokaþáttinn í 9. seríunni og ég get ekki beðið eftir að 10. serían byrji!!!!! Þó svo að ég hafi ekki kynnst þeim fyrr en í 7. seríu þá er ég sko búin að ná upp öllum seríunum og eigum við Jobbi allar seríurnar á cd. Mér finnst 9. serían í heild hafa verið mjög góð, komu reyndar nokkrir þættir í kringum miðjuna sem voru ekkert spes, alveg ágætir en ekki algjör snilld eins og hinir.
Þar sem við erum búin að liggja fyrir framan sjónvarpið undanfarið þá erum við líka búin að horfa á nokkrar bíómyndir. Í gær var það Just Married og svo áðan þá horfðum við á Legally Blond sem er lengi búin að bíða áhorfs. Báðar voru þær ágætis skemmtun, allavega hlógum við bæði nokkrum sinnum á hvorri mynd:)
Kominn háttatími, góða nótt!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:27 FH | 0 Ummæli

maí 19, 2003

Flýjum land

Nú er farið að styttast í að við Jobbi förum að flýja land, ekki nema 3 mánuðir þangað til. Fórum loksins með umsóknina fyrir DTU í dag og erum við gríðarlega fegin að því sé lokið. Ætlum núna bara að drífa í að sækja um á fleiri kollegíum í Köben til að við fáum nú örugglega inni á e-u þeirra (er reyndar frekar vandlát, vil fá slatta stærri íbúð en við erum í núna og helst ekki í risa blokk...).
Best að drífa sig í búðina og sækja Jobba í vinnuna. Chao!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:05 EH | 0 Ummæli

Vorfílingurinn...

sést sko á mörgu hjá mér. Eitt er að ég er orðin æst í grillmat (sem mér er alveg sama um á veturna) og annað er að við erum farin að skipuleggja þvílíku hreyfinguna í sumar. Gönguferð á Esjuna á miðvikudaginn (ætluðum alltaf líka í fyrra en varð aldrei neitt úr því), út á línuskautana og svo fara sundlaugarferðirnar líka að aukast!!
Í gærkveldi fórum við út, ég á línuskauta og Jobbi að hlaupa, það var alveg ljómandi fínt að fá smá súrefni í kroppinn, svo ég tali nú ekki um hreyfinguna.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:43 EH | 0 Ummæli

maí 17, 2003

Flokkað og skilað

Fékk nýja sýn á þennan áróður Sorpu í gærkveldi þegar við buðum Hafrúnu, Guðmundi og Kötlu Maríu í mat. Katla María er algjört matargat en fannst greinilega sumt betra en annað því sumt af matnum fór upp í hana, öðru var hent á gólfið við hliðina á stólnum og enn annað fór beinustu leið í gólfið á milli borðs og stóls.
Annars heppnaðist maturinn held ég bara alveg ágætlega, við grilluðum lambalæri og fyllta sveppi, bökuðum kartöflur og höfðum annað staðlað meðlæti. Eftirmaturinn heppnaðist síðan líka ágætlega en ég bjó til berjakrap með fína töfrasprotanum mínum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:21 EH | 0 Ummæli

maí 16, 2003

Vopnað rán, aftur

Hvað er að gerast?? Vopnað rán aftur!! Nú er bara alls ekki svo langt síðan það var framið vopnað rán í SPH og þá náðist gaurinn, var það svona mikil hvatning fyrir þennan að athuga hvort hann myndi nást líka eða komast upp með þetta...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:12 EH | 0 Ummæli

maí 15, 2003

Neglur

Af hverju erum við með neglur??? Er e-r tilgangur með þeim? Fór að spá í þetta eftir að ég reif upp eina nöglina mína um ca 1/2 cm. Held að þetta sýni bara hversu mikill klaufi ég er því ég meiddi mig á gallabuxunum mínum!!! já þið lásuð rétt, gallabuxurnar mínar réðust á mig! eða svona næstum því;)
Aftur að tilgang naglanna, hafa þær ekki bara fegrunar (eða lýta) gildi?? Allavega komast margir mjög vel af þó neglurnar þeirra séu klipptar eða nagaðar alveg niður í kviku (þó það sé náttlega herfilega ljótt), svo verða þær bara til vandræða ef þær verða of langar. Ég get allavega ekki séð neinn almennilegan tilgang en óska hér með eftir tillögum!!

Hvernig finnst ykkur að Óli grís og Dorrit séu búin að gifta sig?? Voru einhverjir að velta þessu fyrir sér um daginn og þá héldu einhverjir að þau myndu bara ekkert gifta sig, annað kom nú í ljós, flestum held ég að óvörum, eða hvað?


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:22 EH | 0 Ummæli

maí 14, 2003

Þúsandasti gesturinn

Hver ætli verði þúsundasti gesturinn?!?!? Ekki það að sá verði leystur út með miklum gjöfum, bara smá forvitni...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:36 EH | 0 Ummæli

Þrælkunarbúðir!

Já það mætti halda að ég sé búin að vera í þrælkunarbúðum! Kannski ekki alveg en ég er búin að vera á námskeiði og fundi alla vikuna frá 8-18 og varla að maður hafi fengið kaffipásu (ekki það að ég drekki kaffi...). Ætla því bara að liggja í leti í kvöld og helst ekki gera nokkurn skapaðan hlut. Reyndar er líka freistandi að taka aðeins til, nú er Jobbi að ganga frá skóladótinu sínu þ.a. þá langar mig að hafa hreint... alveg spurning hvort ég nenni...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:33 EH | 0 Ummæli

maí 13, 2003

Sumarfrí komið!

Eða svona næstum því... Allavega er Jobbi búinn í prófum, og enginn skóli aftur fyrr en við flytjum út í haust:-) Er náttlega farið að styttast í það ekki nema 3 mánuðir, fékk annars svar frá Chalmer (skólinn í Gautaborg) í gær og ég komst inn:-) Á reyndar enn eftir að fara með umsóknina fyrir DTU upp í skóla en hef litlar áhyggjur af því, samt spurning um að fara að drífa það af.
Í sambandi við skólamál þá er alveg kominn tími á íslenskunámskeið fyrir mig víst ég skrifaði svona mikla vitleysu þarna um daginn en skv. púkaforritinu sem ég er með er bara ekki til nein beyging af orðinu veður eins og ég skrifaði það!!
Have a nice day!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:48 EH | 0 Ummæli

maí 12, 2003

Reykingarfólk í blokk

Held það séu e-r álög á mér að eignast alltaf reykingarnágranna sem angra mig. Í fyrra vetur reykti konan við hliðina svo mikið í eldhúsinu sínu að lyktin kom yfir í okkar eldhús (dyrasímarnir eru sitt hvorum megin á veggnum og með gat í gegnum vegginn!). Svo loksins þegar hún flutti út og við hættum að finna reykingarstybbuna hennar þá flutti fólk í íbúðina fyrir neðan þar sem maðurinn (og allir gestir hjá þeim held ég) strompreykir úti á svölum svo það er ekki hægt að hafa gluggana opna hjá okkur!! Er algjörlega ÓÞOLANDI að finna alltaf endalaust reykingarstybbu inni í sinni eigin íbúð! Sérstaklega þar sem ég þoli ekki sígarettureyk!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:42 FH | 0 Ummæli

maí 11, 2003

Ríkisstjórnin heldur velli!

Mikið var ég ánægð þegar það var endanlega komið á hreint:-) Ennþá skemmtilegra fannst mér nú að sjá að Ingibjörg Sólrún væri úti og hafi farið endanlega út með allra síðustu tölunum. Reyndar horfði ég ekki á kosningasjónvarpið nema til klukkan 2 í nótt en þá gat ég ekki haldið mér vakandi lengur. Klukkan 6 í morgun hentist ég framúr til að athuga stöðuna og var þá Ríkisstjórnin komin með 5 manna meirihluta (hafði verið 3 menn þegar ég fór að sofa), vakti náttlega Jobba til að segja honum fréttirnar.

Njótið góða veðrisins!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:50 EH | 0 Ummæli

maí 10, 2003

Kosningu lokið

Þá er maður búinn að kjósa þetta skiptið og þarf ég ekki að gera aftur upp hug minn fyrr en eftir 4 ár! Jú ég veit að það koma sveitarstjórnarkosningar eftir 3 ár, en hef nú engar áhyggjur af þeim, kaus ekki einu sinni síðast. Vissi ekki hverjir voru í framboði í Hafnarfirði, var svo í útlöndum og nennti ekki að kjósa utankjörfundar.
Við Jobbi fórum og kíktum á kosningaskrifstofur hjá Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Byrjuðum hjá bláa flokknum í Hjarðarhaga, það sökkaði big time, jú var hoppukastali fyrir krakkana, lásí pylsur og síðan ekkert nema gamalt fólk inni sem rak alla krakka út (fannst það frekar glatað). Á Suðurlandsbrautinni hjá Framsókn var heljarinnar mikið um að vera, fullt af nammi, pulsum sem við smökkuðum ekki og grilluð svínarif. Nú er bara ekki mikið annað eftir en að fylgjast með lottóinu og kosningasjónvarpinu, ætlum að fara yfir til Hafrúnar og Guðmundar og sötra smávegis af áfengi, borða snakk og nammi og fylgjast með tölunum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:40 EH | 0 Ummæli

Langþráð helgarfrí

Váá, þetta var ekkert smá löng vika, ekki einn einasti frídagur! En hún hafðist nú alveg og vel það. Svo var nú bara alls ekki slæmt að vera vakin með því hvort ég vilji tala við Helgu Björt á msn. Hafði ekki heyrt í henni síðan ég keypti heyrnatólin um daginn. Annars verður þetta bara svona ósköp venjuleg og róleg helgi býst ég við. Á að reyna að taka til (eins og alltaf!), fara að kjósa þegar ég hef ákveðið mig og liggja svo bara hæfilega mikið í leti. Vorum að spá í að þræða kosningaskrifstofurnar og sníkja kosningakaffi (aðallega kökurnar þó). Kemur í ljós hvort maður eigi eftir að nenna því.
Fórum út að borða í gær á Galileo með Bínu, Loga, Berglindi og Nonna í tilefni af næstum kvartaldar afmæli Bínu. Fengum ljómandi góðan mat og held að allir hafi verið mjög ánægðir.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:20 EH | 0 Ummæli

maí 09, 2003

Klaufi!

Ég hef nú lengi verið þekkt fyrir að vera klaufi og er nú engin undantekning á! Mér tókst að setjast á stólinn þegar hann var aðeins aftar en ég hélt þannig að mín fór beinustu leið í gólfið og mappan sem ég hafði verið að ná í flaug líka í gólfið! En sem betur fer hef ég húmor fyrir klaufaskap mínum þ.a. ég hló eins og vitleysingur, held að strákarnir á tölvudeildinni hafi ekki þorað að hlægja að óförum mínum því þeir voru alveg grafalvarlegir á meðan ég sprakk úr hlátri!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:25 EH | 0 Ummæli

Bína afmæli

Til hamingju með afmælið elsku Bína mín!!!!! Hvernig er það nú að vera ekki í prófum á afmælisdaginn?? Ekki ljúft?? Hafðu það gott í dag, verðum svo í bandi!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:32 FH | 0 Ummæli

maí 08, 2003

Fyrsta grill sumarsins

Þá er komið að því! Búið að þrífa grillið eftir veturinn og kveikja upp í kolunum úti á svölum!!:-) Verður sko ekta sumargrill, marinerað svínakjöt, bakaðar kartöflur, kartöflusalat (já bæði) og tilbúin hvítlaukssósa úr dós. Nú er ég farin að hlakka til að fara í útilegu, með öllu tilheyrandi:-) Hvað segið þið folks, eruð þið ekki komin í sumarskapið?? Er búin að vera heldur stúrin yfir veðrinu undanfarið en að finna grill lyktina bætir sko alveg úr því! Þarf ekki mikið til að gleðja mig!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:08 EH | 0 Ummæli

Kosningar 2003

Nei þið skuluð sko ekki látið ykkur detta í hug að ég sé að koma með e-n kosningaáróður! Ég verð bara að segja að ég er komin með nett ógeð af þessari kosningabaráttu, vildi hreinlega að allir væru sammála og það þyrfti ekki að kjósa! Versta með mig er að ég er með nokkra flokka sem ég veit að ég kýs ALDREI (allavega ekki í þessum kosningum) en svo get ég bara ekki ákveðið mig á milli hinna sem eftir eru... Skipti um skoðun mörgum sinnum á dag! Spurning hvort ég verði komin með endanlega niðurstöðu á laugardaginn...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:20 EH | 0 Ummæli

maí 06, 2003

Stelpur og stærðfræði

Rakst á nokkuð athyglisverða grein um stelpur sem vilja ekki reikna. Þar segir höfundurinn að vegna þess að tölvunarfræðin sé komin undir verkfræðideild þá sé verið að minnka stærðfræðina og færa hana aftar til að fá fleiri stelpur í deildina. Skil nú ekki alveg hvernig hann fær þessa niðurstöðu því mér vitanlega hefur EKKI verið minnkað við stærðfræðina í hinum verkfræðiskorunum. Ekki einu sinni eftir ræðu Rósu Erlingsdóttur um að minnka þyrfti stærfræðina og færa hana aftar til að ná fleiri stelpum í verkfræði.

Mín skoðun er sú að það þurfi hreinlega að virkja stærðfræðiáhugann hjá stelpum miklu fyrr, helsta breytingin þurfi að vera hugarfarsbreyting inni á heimilunum! Einnig mætti gera kennsluna áhugaverðari en ALLS EKKI léttari því stelpur geta alveg jafn vel og strákar lært stærðfræði EF áhugi er fyrir hendi.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:13 EH

Martraðir!

Hvernig er það, vex maður aldrei upp úr því að fá martraðir?? Ég vaknaði í morgun, rétt á undan klukkunni, og var að dreyma að ég væri að lenda í flugslysi! Var alveg ótrúlega raunverulegt og óhugnanlegt! Eins og alltaf þá náttlega vakti ég Jobba og fékk að kúra hjá honum, var nú ósköp fegin að hafa hann við hliðina á mér. Einhvern veginn þá hélt ég alltaf þegar ég var yngri að fullorðið fólk fengi aldrei martraðir, en ég virðist bara aldrei ætla að vaxa upp úr þessu. Hef reyndar verið góð í soldið langan tíma en svo koma alveg tímabil hjá mér þar sem ég vakna ansi oft. Er bara smá spekúlasion hjá mér...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:23 FH | 0 Ummæli

Dugnaður í minni...

Mín var sko dugleg í dag!! Langaði orðið að heyra í henni Helgu Björt og þar sem Jobbi er nú ekkert búinn að vera á því að "leyfa" mér að hringja of oft í hana þá pantaði ég mér bara heyrnatól með mæk á Computer.is, dreif mig og sótti það og spjallaði svo HEILLENGI við Helgu Björt!! Vorum báðar með vefmyndavélar svo þetta var ennþá skemmtilegra en að hringja í hana:-) Kostaði heldur ekki neitt:-) Er núna orðið mission hjá mér að láta foreldrana vera búna að koma sér upp svona búnaði áður en við Jobbi förum út.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:20 FH | 0 Ummæli

maí 04, 2003

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Þetta er nú búið að vera hinn ágætasti dagur svo ekki sé meira sagt! Við Katla María fórum í Húsdýragarðinn með Lindu Rós, Sigga, Baldvini Hrafn, Gústafi Bjarna, Gunnhildi og Friðriku Svöfu. Vorum þar í ca 3 og hálfan tíma og vorum við ekki komnar úr bílastæðinu þegar Katla María var sofnuð á leiðinni heim. Tók slatta af myndum í dag og eru þær komnar í myndaabúmið okkar.

Annars er það að frétta af okkur Jobba að Jobbi er á fullu að læra undir próf, hann fer í fyrra prófið næsta þriðjudag svo það þýðir lítið fyrir hann að leika sér með okkur Kötlu Maríu þó mig gruni nú að honum finnist það freistandi... En þetta verður allt saman búið eftir bara 9 daga svo það er um að gera fyrir hann að halda áfram að vera duglegur.

Svo er bara ný vinnuvika á morgun og ekki einn einasti frídagur í þeirri viku!! Verður samt held ég alveg ágætis vika, Landsvirkjun fær lánaðann vetnisbílinn á morgun og má starfsfólk fara og sitja í og prófa. Þar sem bílstjórinn er þýskur og það vantaði túlk fyrir hitt starfsfólkið sem skilur ekki þýsku þá verð ég með honum mestan eftirmiðdaginn á morgun að rúnta um Reykjavík á vetnisbíl! Nokkuð kúl!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:33 EH | 0 Ummæli

maí 03, 2003

Mömmuleikur

Mikið ask.. er ég nú búin að vera dugleg í dag:-) Búin að vera í mömmuleik með Kötlu Maríu (dóttir Hafrúnar) síðan eftir hádegi í dag. Búnar að fara út á róló, labba meðfram Ægissíðunni og svo fórum við í sund!! Heimsótti líka mömmu og pabba og mér sýndist þau bara engu hafa gleymt og vildu bæði alveg ólm halda á henni og gefa henni að borða, efast ekki um að þau séu nú farin að hlakka til að fá ömmu og afa börnin. Meira að segja pabbi sem er búinn að vera að drepast í bakinu vildi nú aðeins fá að prófa að halda á henni;)
Svo hélt ég að ég gæti nú bara gefið henni barnamauk í kvöldmatinn því satt best að segja leist mér ekkert of vel á kjúklingasnitselið sem ég keypti í Nóatúni, en neinei ekki að ræða það, hún vildi alvöru mat eins og við Jobbi! Það er sko ákveðin ung stúlka (14 mán) sem sefur núna inni í rúminu okkar Jobba.

Jæja, ætla að fara að ganga frá þvottinum sem Fjóla og Helga eru búnar að hneykslast mikið á hérna... Take care!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:24 EH | 0 Ummæli

maí 01, 2003

Parallel processing

Þvílíka snilldin sem það er að hafa afnot af 5 þvottavélum og 3 þurrkurum!!! Þá er sem sagt hægt að parallel processa og þvo fullt fullt mikið á stuttum tíma:) Þess vegna erum við líka búin að koma okkur upp stórum lager af nærfötum, sokkum og bolum og þurfum við því bara að þvo á 2ja - 3ja vikna fresti:-) Argasta snilld!!!!!! En í dag var sem sagt þvottadagur hjá mér eftir að ég hafði drattast á lappir... átti frekar erfitt í morgun. Ég fór einmitt að spá, hversu ömurlegt það yrði þegar við myndum flytja í eigin íbúð og hafa bara eina þvottavél!!! Þá væri sko engin parallel hamingja, neinei bara ein í einu, hver tekur örugglega hátt í klukkutíma og eintóm leiðindi... Hvernig fer fólk að?? Eins og t.d. mamma, með reyndar ekki nema 6 í heimili núna og bara eina þvottavél og þurrkarinn er ónýtur!!! En áður en við Margrét stungum af að heiman, þá voru 8 í heimili og ekkert nema krakkar sem komu alltaf skítugir inn!!

Eeeennnn, ætla að halda áfram að vera dugleg og reyna að þrífa upp skítinn eftir okkur Jobba...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:52 EH