júní 30, 2003
Komin í bæinn
Helginni eyddum við á Vestfjörðum þar sem okkur var boðið í brúðkaup á laugardeginum. Flugum vestur á laugardagsmorgun og til baka í morgun. Var þetta bara hin ágætasta helgi þó veðurspáin hafi nú ekki alveg gengið eftir. Ég get svo sem lítið kvartað því veðrið var þó skárra hjá okkur heldur en í bænum. Gærdeginum var að mestu eytt í að fylgjast með veðrinu til að athuga hvort flugmennirnir gætu komið sér heim á rellunum sínum, ég nýtti hins vegar tímann ekki alveg svona illa og kláraði líka að lesa bókina "Þjóð bjarnarins mikla" eftir Jean M. Auel.
Er alveg himinlifandi að Helga Björt skuli aftur vera komin til lífs síns hérna á netinu. Hún er búin að vera alveg massa dugleg að læra undanfarið og uppskar líka eins og hún sáði og er núna komin yfir á annað ár í tannlækninum í Aarhus Universitet. Held það verði nú alveg ljómandi fínt þarna úti næsta árið, Helga Björt og Ingibjörn í Aarhus og Fjóla og Ingó í Kaupmannahöfn. Er sko alveg farin að hlakka alveg þvílíkt til!!
--------
Til hamingju með daginn Margrét!
Nú er Margrét orðin 21. árs, ekkert smá gömul!!;) Var búin að tilkynna komu mína til hennar (þó hún hafi ekki ætlað að halda veislu) en mundi svo að Linda Rós ætlar að kíkja til mín á eftir með stærðfræði- og eðlisfræðibækurnar sínar. Ég mæti þá bara til hennar á morgun, og ég vil þá líka fá gott að borða úr því að ég gaf henni lengri frest til að baka handa mér... hehehe.
--------
júní 27, 2003
Makalaus vinnustaðapartý!!
Djöfull þoli ég ekki svoleiðis fyrirbæri og enn síður þoli ég ekki fyrirtæki eins og Búnaðarsmúnaðarbankann sem stendur aðeins fyrir makalausum vinnustaðaskemmtunum!! Á 16 mánuðum hefur EINU sinni verið skemmtun þar sem mökum var boðið með, og var það "ígildi" árshátíðarinnar (en þetta fyrirtæki er svo leim að það er bara árshátíð annað hvert ár!). Svo ég tala nú ekki um 2 makalaus vinnustaðapartý innan við mánuði fyrir jól!!!!! Á hvaða öld lifir eiginlega þetta fyrirtæki?? Pottþétt ekki á þeirri tuttugustu og fyrstu!!
--------
júní 26, 2003
Þetta er GEÐVEIKT fyndið!!! Verður
Þetta er GEÐVEIKT fyndið!!! Verður samt eiginlega að vera hljóð, ég lofa þetta er ekkert svona bregða dót! --------Bloggerinn
Tók hann nú bara eiginlega alveg í sátt þegar ég sá breytingarnar. Núna get ég stillt á íslenskan tíma en ekki haft klukkuna annað hvort klukkutíma á undan eða eftir!:-) Virðist líka vera öllu þægilegri í umgengni núna.
--------
júní 24, 2003
Danmark, here we come!!
Nú erum við búin að panta flugmiða út til Danmerkur!!:-) Förum sem sagt út, morguninn 23. ágúst sem er eftir ekki nema 60 daga!! Til viðmiðunar þá er lengra síðan ég byrjaði með þessa síðu!!:-) Nú er bara að vona að maður fái húsnæði áður en við förum út, væri betra að geta flutt beint inn í "eigin" íbúð.
--------
Loksins, loksins, loksins!!
Umsóknin okkar fyrir húsnæði í Danmörku virðist LOKSINS vera komin í lag:-) Sóttum um fyrir langa löngu, breyttum svo umsókninni fyrir rúmum mánuði og eftir nokkuð margar tilraunir til að hringja út og nokkur e-mail þá virðist þetta vera komið á hreint:-) Nú er bara að bíða og VONA, VONA, VONA!!! Okkur langar í 3ja herbergja íbúð svo við getum haft sér læri herbergi og herbergi til að bjóða öllum gestunum sem koma að heimsækja okkur upp á gistingu. Því mega allir sem vilja koma að heimsækja okkur hugsa vel og fallega til okkar næsta/næstu mánuð/mánuði til að góðu straumarnir til okkar hjálpi okkur að fá góða íbúð:-) Ætli það virki ekki??
Annars var ég í afmæli í dag hjá Gústafi Bjarna og fékk þessar líka frábæru veitingar svo ég er ennþá alveg pakksödd (var það kannski bara ég sem var svona gráðug:S).
Er víst kominn háttatími... góða nótt!!
--------
júní 22, 2003
Daginn eftir...
Úfff, ég var nú ekki alveg viss hvort ég hefði verið að drekka í gær eða ekki þegar ég vaknaði (eða var vakin í dag). Þurfti Jobbi að draga mig á lappir og klæða mig í föt klukkan 1 þegar mamma hans og pabbi voru að koma í heimsókn. Var svo rotuð og þreytt að ég hefði frekar trúað því að ég hefði verið á fylleríi í gærkveldi en ég var nú svo stillt og prúð og gat keyrt heim eftir kvöldið. Annars erum við búin að hafa það ljómandi fínt í dag, fara í sund, fá okkur Quiznos og ná í allar gjafirnar heim í Hafnarfjörðinn. Reyndar skyggði það aðeins á að mamma þurfti að ná í systir mína út á flugvöll og fara með hana á spítala en hún var í sveitinni en þurfti að koma óvænt heim því hún fékk krampakast í morgun. Við verðum bara að vona það besta.
--------
Langur og góður dagur að kvöldi (eða nóttu) kominn
Þá erum við komin heim aftur í kotið eftir vel heppnaðan útskriftardag hjá Jobba. Athöfnin var nú bara alveg eins og við var að búast, löng og ekkert sérstaklega spennandi. Veislan gekk síðan bara alveg ljómandi vel og við kíktum síðan til Ollýar þegar gestirnir voru farnir en hún var líka að útskrifast úr verkfræði í dag. Og af því að við þekkjum svo marga sem voru að útskrifast í dag þá fórum við í partý heima hjá Bínu en Logi var að útskrifast úr tölvunarfræði í dag. Þar sem ég er nú búin að þylja næstum alla upp sem ég þekki og voru að útskrifast þá var hann Guðmundur hennar Hafrúnar að útskrifast líka úr tölvunarfræði. Til lukku með daginn!!! Að auki var náttlega slatti að útskrifast úr rafmagns- og tölvuverkfræði sem ég þekki og ég óska þeim líka öllum til hamingju!
--------
júní 21, 2003
Útskriftardagur
Nú er þetta bara alveg að gerast, útskriftin byrjar eftir rúman klukkutíma og við orðin ready. Ég náði að klára upphlutinn, veiiii!!! Erum búin að vera þvílíkt dugleg undanfarin kvöld heima í Hafnarfirði, garðurinn orðinn sæmilegur eftir að hafa verið næstum í órækt og búið að þrífa húsið hátt og lágt. Geri ráð fyrir að mamma sé nú ekkert óánægð með það að útskriftarveislan verður haldin heima hjá þeim, því við erum búin að vera svooo dugleg:-) Best að drífa sig í höllina (úfff athöfnin verður örugglega frekar súr, eins og í fyrra...)
--------
júní 20, 2003
Sending á pósthúsinu:-)
Mín bíður sending á pósthúsinu sem ekki var hægt að koma til skila í gærkveldi... grunar nú frá hverjum sú sending er ;) Það fór nefnilega ekki framhjá mér þegar hún Helga Björt var að fara á pósthúsið á þriðjudaginn, hún mundi nefnilega ekki heimilisfangið mitt!! *hnuss* djók!!!
--------
júní 19, 2003
Karlmenn sem nota kvennaklósett
Af hverju geta sumir karlmenn ekki virt kvennaklósett merki og notað karlaklósettin?!? Hér í vinnunni var búið til kvennaklósett úr einu af klósettunum þegar við Magga fluttum hingað upp eftir (eru líka 3 aðrar stelpur að vinna hérna í sumar) en það virðist ekki vera nóg að vera með skilti á hurðinni sem stendur á "Kvennaklósett"! Í morgun voru báðar seturnar uppi og í hádeginu (eða í morgun) hafði e-r losað um ægilega pínu í maganum þarna inni og ekki hreinsað til eftir sig að því loknu!!! Ég hef sem betur fer bara heyrt af því en það dugar til að ég fari ekki inn á klósettið fyrr en í fyrsta lagi eftir þrif. Það vinna náttlega miklu fleiri karlar hérna en konur og þangað til núna í vor þá var bara ein kona hérna, og hún er í eldhúsinu. Spurning hvort þeir hagi sér eins og þriggja ára börn af einhverjum mótþróa... við séum kannski að ráðast inn á þeirra yfirráðasvæði... bara spekúlasion.
--------
Sauma hnappagöt í höndunum
er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri. Það er nú samt nauðsynlegt til að ég geti klárað upphlutinn minn sem er búinn að vera næstum því tilbúinn síðan fyrir jól. Er núna að rembast eins og rjúpa við staur að klára skyrtuna svo ég geti nú kannski e-n tíman notað blessaðan búninginn, gat ekki farið í hann á 17. júní því hann var ekki tilbúinn (ekki að ég hefði tímt að fara í honum út í rigninguna...). Það er því um tvennt að velja hjá mér núna, annað hvort klára ég búninginn og verð í honum á útskriftinni hans Jobba eða ég drullast í bæinn að kaupa mér e-r föt! Af tvennu illu þá finnst mér nú skárra að klára hnappagötin. Hins vegar vantar mig alveg föt til að vera í í brúðkaupinu sem ég fer í eftir rúma viku, hef ekki hugsað mér að fara í upphlutnum þangað þ.a. þá neyðist ég til að fara í bæinn. Hef bara ekki hugmynd um hvað ég ætti nú eiginlega að kaupa... einhverjar hugmyndir???
--------
júní 18, 2003
Wap smap
Nú er öll wap og gprs þjónusta Símans ókeypis svo við höfum aðeins verið að prufa þetta (Jobbi reyndar aðeins meira en ég). Það sem ég þoli ekki er að maður virðist bara stundum og stundum geta tengst wapinu. Ef ég væri að borga fyrir þetta þá myndi ég vilja að þetta virkaði þegar ég vildi að nota þetta! Spurning hvort ég sé of mikið út úr bænum, er samt bara að vinna uppi á Höfða...
--------
Sjálfspíningarhvöt á 17.júní
Hefði betur verið bara heima í gærkveldi í staðin fyrir að dröslast niður í bæ eins og það væri algjört möst. Vorum í klukkutíma í bænum með enga regnhlíf (eigum ekki svoleiðis grip) og við komum svo gegnsósa heim að ég hefði alveg eins getað farið inní sturtu í öllum fötunum, jakkinn var blautur í gegn, sjalið 5 sinnum þyngra en venjulega sökum bleytu og buxurnar bæði blautar og drullugar!! Annars fannst mér alveg full mikið af krökkum á aldrinum 10-15 ára, það var eins og þeim væri alveg sama um veðrið en aðrir væru frekar heima. Er allavega fegin að við vorum bara heima yfir daginn, hefði verið frekar súrt að verða gegnsósa tvisvar á sama deginum.
--------
júní 16, 2003
Spíttbátur á Þingvallavatni
Við Jobbi vorum nú svo dugleg í sunnudagsbíltúrnum að við komum líka við hjá Margréti og Jóni á Þingvöllum og trufluðum Margréti aðeins við lærdóminn. Fórum út á bát og gaf Jón alveg slatta vel í þó hann hafi nú ekki botnað bátinn. Náði báturinn alveg 60 mph sem jafngildir 97 km/klst, þeir sem þekkja hárið á mér geta giskað hvernig það var eftir ferðina en við hina sem eru ekki alveg viss þá get ég sagt að það var blásið vel aftur og var ekkert á leiðinni niður aftur þegar við komum í land...
Ætla ekki að sleppa því að minnast á sundferðina okkar, en við fórum í sund á Selfossi eftir öll herlegheitin. Um daginn skrifaði ég um okurbúlluna Sundlaug Akureyrar en þar kostar 290 kr í sund. Á Selfossi kostar 300 kr fyrir lakari laug (kannski betri rennibrautir fyrir börnin) og MIKLU lélegri búningsaðstaða. Ég sagði líka starfsfólkinu frá því að mér fyndist þetta alltof dýrt, greyið konan sagðist engu ráða sem ég vissi svo sem alveg.
--------
Náttúra orkunnar - Orka náttúrunnar
Fórum í dag og kíktum á sýninguna sem er núna í Ljósafossstöð. Sýningin er ekki alveg jafn flott og sú sem var síðasta (eða þar síðasta) sumar en þá voru gamlir munir til sýnis og það er nú eiginlega uppáhaldið mitt. Hins vegar er alltaf jafn gaman að koma þangað, þetta eru svo flottar virkjanir og flott umhverfið í kring. Fengum svo líka þessar fínu húfur

Las á einhverri bloggsíðu að það hefði verið hún Þórey sem hafi átt hugmyndina að þeim. Held við Jobbi verðum flott í Danmörku í vetur :-)
--------
júní 15, 2003
Gæsafjölskyldur í Vatnsmýrinni
Þegar við erum að keyra fram hjá Íslenskri Erfðagreiningu, sem er mjög oft, þá sjáum við mjög oft gæsirnar á vappi meðfram veginum. Um daginn voru fullorðnir fuglar með nokkra pínuponsulitla unga, ekkert smá krúttilegt. Í kvöld sá ég hins vegar að allavega einn unginn er orðinn mjög stór, ekki orðinn fullþroska en örugglega ca. hálfnaður. Nokkuð gaman að fylgjast með þessum dýrum. Jobba finnst hins vegar ekki alveg jafn skemmtilegt að hlaupa þarna því gangstéttin er víst öll í fuglaskít.
--------
Margt búið að gerast
Síðan á fimmtudaginn er Hans Adolf búinn að vera í pössun hjá okkur Jobba. Hann fékk að koma með mér í vinnuna á föstudagsmorguninn þangað til mamma kom og sótti hann, held honum hafi ekki þótt það svo slæmt. Í dag var Baldvin Hrafn líka í pössun hjá okkur og urðum við Jobbi þá allt í einu tveggja barna "foreldrar". Það var nú ekki mikið mál, þeir voru svo duglegir að leika sér saman á leiksvæðinu að við vissum varla af þeim, þeir komu bara reglulega móðir og sveittir upp til að athuga hvort þær mættu vera lengur. Fórum líka í Árbæjarlaugina og fengu þeir ágæta útrás þar. Mesta hrósið er nú samt eiginlega að Baldvin Hrafn vildi alveg koma aftur í heimsókn til okkar þegar ég spurði hann eftir að mamma og pabbi voru komin heim. Reyndar heldur hann að Hans Adolf sé sonur okkar Jobba, reyndi að útskýra að hann væri nú bara bróðir minn en hann var búinn að ákveða hitt þ.a. hann vildi nú ekki mikið hlusta á þetta rugl í mér.
Í sundlauginni lenti ein stelpan í því að lenda á laugarbakkanum þegar hún var að stökkva út í og fékk hún RISA skurð á nefið, sást inn í kjöt. Var virkilega ógeðfellt og greyið stelpan vissi ekki alveg hvað hefði eiginlega komið fyrir hana. Voru held ég allir í sjokki á eftir sem sáu þetta því allt andlitið var í blóði og þegar ég sá að hún var ekki á leiðinni upp úr, heldur grátandi og snúandi sér í hringi þá dreif ég mig og leiddi hana inn til starfsfólksins.
--------
júní 12, 2003
Svöng
Minns er alveg sársvangur núna!!! Var ekki alveg nógu góður matur í hádeginu til að ég vildi borða hann þ.a. hádegismaturinn minn var eiginlega meira bara meðlæti. Ógó langt í næstu sjoppu, þarf alveg að fara á bíl þangað þ.a. það er ekki mjög raunhæfur kostur...
--------
júní 11, 2003
Er ekki komið nóg af klúðri??
Ég er farin að halda að tunglstaðan sé mér e-ð óhagstæð því þessu ætlar bara aldrei að linna. Reyndar var það nú ekki svo mikið í dag, við sváfum aðeins of lengi (alveg til 9) og þegar við vorum á leiðinni í vinnuna þá gleymdi ég að beygja til að skutla Jobba niður á Hlemm þ.a. við urðum að taka soldinn auka krók og við vorum mjög sein fyrir (eða ekki sein, erum bæði með sveigjanlegan vinnutíma). Núna er ég farin að aka eins og fyrirmyndarökumaður á að gera því miðað við óheppni mína undanfarna daga þá hlýt ég að verða tekin ef ég keyri of hratt eða yfir á bleiku. Ég tými því sko EKKI, allt í lagi að vera stoppuð svo sem, ég lifði það alveg af síðast en það er öllu leiðinlegra að fá sekt.
Langar að óska Baununum mínum góðs gengis í prófunum sem þær eiga eftir og í lærdómnum, Fjóla fer í próf á morgun og Helga Björt á föstudaginn. Ég er strax farin að kvíða fyrir að fara aftur í skóla í haust út af prófunum, það er alveg einstaklega leiðinlegt að vera í prófum en líka þeim mun skemmtilegra þegar þau eru afstaðin. You can do it girls!!
--------
júní 10, 2003
júní 09, 2003
Seinheppin eða sauður?
Annað hvort er það! Fyrir utan allt messið við baksturinn um daginn þá er nú ÝMISLEGT búið að koma fyrir síðan þá. Í fyrsta lagi þá tók ég á móti fyrstu gestunum í gær hálf klædd, ómáluð og með óblásið hárið því þau mættu bara rétt eftir að ég skrifaði í gær. Þegar við vorum komin út á stétt í gærkveldi og vorum að bíða eftir leigubíl niður í bæ þá föttuðum við Jobbi að GSM símarnir okkar höfðu orðið eftir inni, en við gátum ekki náð í þá því lyklarnir af húsinu voru læstir inni!! Í dag dreif ég mig svo með strætó (ótrúlegt en satt því ég hafði ekki farið í strætó í nokkur ár!) til Hafnarfjarðar til að taka til eftir gærkveldið og ná í bílinn, þegar ég var búin að taka allt til þá fattaði ég að ég var bara alls ekkert með bíllykil með mér!!!! Þegar ég loksins var búin að fá far heim til mín aftur þá vorum við aftur komin á byrjunarreit, bíllaus. Við aftur í strætó inn í Hafnarfjörð og náðum þá í allt dótið okkar og þar með talið bílinn! Sem betur fer er frídagur á morgun því dagurinn í dag fór e-ð fyrir lítið.
Allt klúðrið í dag var þar sem við ákváðum að fara í fyrsta sinn í heila eilífð niður í bæ með Sigga, Önnu, Matthildi og Vigdísi. Fyrir utan það að það var e-ð aukaálag á leigubílinn þá lokaði allt klukkan 3 og við að koma niður í bæ rétt fyrir 2, það voru mega langar raðir alls staðar þ.a. eini staðurinn þar sem ekki var röð og kostaði ekki inn var Café Victor og við ákváðum að fara bara þangað. Þvílíkt og annað eins, fer ekki aftur þarna inn. Voru spiluð lög sem voru vinsæl þegar ég fermdist og það eru orðin nokkuð mörg ár síðan það var, ótrúlega furðulegt fólk þarna og ÓGEÐSLEGA sveitt loftið þarna!! Ég var kannski bara ekki nógu drukkin til að fíla þetta því Jobbi virtist alveg skemmta sér konunglega... enda var hann aðeins slappari en ég í dag... wonder why?!?!
Gærkvöldið var samt alls ekki svona slæmt eins og mætti lesa því fyrir utan þessi nokkur klúður þá skemmti ég mér alveg mjög vel og vona að hinir hafi gert það líka, við stelpurnar fengum allar að finna spörk hjá litla barninu þeirra Lindu Rósar og Sigga og var það ekki til að róa eggjahljóðin. Svo skemmti Baldvin Hrafn okkur með ýmsum ráðum, hann var starfsmaður Pizza Hut lengi framan af kvöldi og bakaði handa okkur pizzur í forrétt, hann vildi baka mömmu sína með kökukefli, fékk að fara í Bósa Ljósár búning og margt fleira.
--------
júní 07, 2003
0706
Já nú er dagurinn loksins runninn upp, minns á bara ammæli í dag!!:-) Þakka fyrir allar kveðjurnar sem ég hef fengið í dag og undanfarna daga!
Er allt að verða ready fyrir gestina sem koma í kvöld, ég komin úr sturtu en á bara eftir að klára að finna mig til. Akkúrat þessa stundina hangir þurrt en stéttin er samt e-ð aðeins blaut þ.a. það er MJÖG krítískt hvort það fari að rigna. Jobbi er búinn að segja mér að ég megi fara út að grilla ef það verður rigning!!! Hann nenni því sko ekki!! Ég er náttlega soddan hörkutól að ég kippi mér ekki upp við smáatriði!!!
Annars heyrði ég í Helgu Björt á msn í morgun, var orðið ANSI langt síðan ég heyrði í henni síðast. Hún er í miðjum prófum núna og gengur að sögn alveg þokkalega sem er ekkert skrýtið miðað við hvað hún er dugleg!!
Ætli það sé ekki best að drífa sig svo ég taki ekki á móti gestunum hálf klædd, ómáluð og með óblásið hárið!!
--------
júní 06, 2003
Eldur í bíl!
Forsíðufréttin á mbl.is núna er um gamlan bíl sem kviknaði í. Nú vill svo til að eigandi bílsins sem er að slökkva eldinn á myndinni er Gulli Búi vinur Jobba sem við fórum að heimsækja í Gautaborg í mars s.l. Hann keyrði okkur líka í þessum bíl um alla borgina og var ég alltaf mjög glöð þegar ég var komin heil á leiðarenda. Eru engin öryggisbelti nema fyrir bílstjórann, engir höfuðpúðar eða þannig öryggisbúnaður.
--------
Afmælisbarn dagsins!!
Til hamingju með afmælið elsku Jobbi minn!!!!! Einnig hefði Gísli afi orðið 74 ára í dag ef hann hefði lifað. Ég er alveg glötuð, er ekki búin að kaupa afmælisgjöf handa elskunni minni en hann veit svo sem hvað hann fær (hann fær nefnilega það sama og hann ætlar að gefa mér... línuskauta!)
Held að hann hafi nú e-ð verið abbó í morgun þegar hann fattaði að ég mætti sofa út á mínum afmælisdegi en hann þurfti að rífa sig á lappir, engin miskunn!
--------
Enn meira klúður...
Gat ekki einu sinni klárað kvöldið án þess að klúðra meiru, þóttist vera svaka dugleg að þeyta rjóma með töfrasprotanum svo gleymdi ég mér bara aðeins og skálin fór af stað og rjómi út um ALLT!!! Er nú ósköp fegin að fólkinu verði boðið heim til mömmu og pabba því það þarf sko heldur betur að þrífa íbúðina okkar eftir þessar tilraunir mínar í eldhúsinu... Annars hefur Jobbi svo sem alveg klúðrað líka í eldhúsinu, einu sinni opnaði hann pizzusósuflösku og það spýttist pizzusósa um ALLT eldhús og ALLA stofuna!!! Þá hló ég alveg hrikalega mikið:-) Fannst ekki alveg jafn fyndið þegar ég var að klúðra í dag...
--------
júní 05, 2003
BaksturKLÚÐUR!
Algjört klúður núna rétt áðan, var að baka franska súkkulaðiköku fyrir afmælið á morgun og nei nei ég bakaði hana ekki alveg nógu lengi þ.a. árangurinn er:

Sem sagt FLJÓTANDI kaka!!! Jobbi fékk sér smakk með matskeið enda þurfti að moka upp kökunni...
--------
júní 04, 2003
Lögregluátak
Það er ekkert smá átak í gangi hjá löggunni, ég er búin að mæta lögreglubíl í næstum hverri einustu bílferð sem ég hef farið í s.l. viku. Í morgun mætti ég t.d. 4 löggubílum á leiðinni í vinnuna, þ.e. frá Eggertsgötunni upp á Hestháls (skutlaði reyndar Jobba í vinnuna sína í leiðinni). Hef tekið eftir að þeir eru búnir að vera svaka duglegir að stoppa bíla sem fara yfir á rauðu þegar þeir eru að beygja, þ.e. þegar beygjubiðröðin getur loks lagt af stað yfir ljósin þá fara alltaf (oft) alltof margir bílar yfir. Hef svo sem ekkert nema gott um það að segja að löggan sé sýnileg, held það sé öllum fyrir bestu að fólk fari eftir umferðarreglunum því þá þurfa sumir (kall í vinnunni...) ekki að vera sjálfskipaðir lögregluþjónar og siðapostular í umferðinni (þó þeir séu ekkert fullkomnir ökumenn...). Ef e-r skyldi hafa áhuga á að vita þá er ég að baka, rosa dugleg, fyrir fjölskylduafmælið sem við ætlum að halda á föstudaginn:-)
--------
júní 03, 2003
Vinningshafi í Powerade leik Matrix
Þetta var subject á pósti sem ég fékk í dag. Ég fór upp í Vífilfell að ná í vinninginn og ég var í kasti á eftir, vinningurinn var Matrix hlýrabolur sem ég á ALDREI eftir að nota, nokkuð kúl Matrix póstkort sem ég hef ENGIN not fyrir og svo 6 flöskur af Powerade, get líklega drukkið það við tækifæri. Annars víst ég er að tala um vinning í leik þá unnum við aftur bíómiða á mbl.is og núna á Bringing Down the House, spurning hvort við reynum ekki að skella okkur á hana um næstu helgi en ég held að hún geti verið soldið fyndin, allavega miðað við það sem ég hef séð úr henni.
--------
Tíðir gestir bíóhúsanna
Annað eins hefur varla heyrst, við Jobbi búin að fara tvisvar í bíó á aðeins 3 dögum!! Fengum boðsmiða á City by the sea sem þurfti að nota í þessari viku svo við drifum okkur bara í kvöld. Verðum nefnilega örugglega soldið busy að baka og þess háttar þegar líður að helginni því þá eigum við afmæli!!!! Jibbý jei!!
Þó að Jobbi ætti ekki afmæli daginn á undan mér þá gæti það ALDREI farið framhjá honum að ég ætti afmæli, ég verð eins og lítill krakki þegar líður að afmælinu mínu og er sko búin að tala um það mörgum sinnum á dag í margar vikur á undan!!! Annars vantar mig hugmyndir að afmælisgjöf fyrir hann, allar hugmyndir vel þegnar ég er ALVEG hugmyndasnauð!!!! Hann vill ekki að við gefum hvort öðru saman Kitchen Aid hrærivél, skil ekkert í honum...
--------
júní 02, 2003
Sólardýrkun
Býst samt við að það sé betra að nota sólarvörn á viðkvæma húð þegar maður er úti í svona góðu veðri eins og í dag. Ég er reyndar ekkert brunnin en Jobbi er eldrauður greyið... Var ekki slæmt að liggja á sólbekk á sundlaugarbakkanum í dag í sólbaði. Alveg ótrúlegt hvað Hans Adolf nennti að liggja lengi í sólbaði með okkur Jobba. Vona að sumarið eigi eftir að vera svona gott eins og undanfarin vika, annars bíðum við bara eftir því að fara til Danaveldis í ágúst.
--------
júní 01, 2003
Matrix
Fórum á Matrix Reloaded í Háskólabíó í kvöld. Hringdum áður til að spyrja í hvaða sal hún væri sýnd, Sal 2 var okkur sagt. Ekkert mál, salur 2 er svo stór þó hann sé ekki stærsti. Þegar við mætum í bíó þá allt í einu vorum við minnt á að það er búið að breyta númerunum á sölunum! Salur 2 í dag er gamli salur 3!!!
Allavega átti ég nú von á betri mynd, allavega miðað við fyrri myndina sem ég er einmitt nýbúin að horfa á aftur. Alveg spurning hvernig þriðja myndin verður þá. Kemur allt í ljós.
--------