júní 30, 2003

Komin í bæinn

Helginni eyddum við á Vestfjörðum þar sem okkur var boðið í brúðkaup á laugardeginum. Flugum vestur á laugardagsmorgun og til baka í morgun. Var þetta bara hin ágætasta helgi þó veðurspáin hafi nú ekki alveg gengið eftir. Ég get svo sem lítið kvartað því veðrið var þó skárra hjá okkur heldur en í bænum. Gærdeginum var að mestu eytt í að fylgjast með veðrinu til að athuga hvort flugmennirnir gætu komið sér heim á rellunum sínum, ég nýtti hins vegar tímann ekki alveg svona illa og kláraði líka að lesa bókina "Þjóð bjarnarins mikla" eftir Jean M. Auel.

Er alveg himinlifandi að Helga Björt skuli aftur vera komin til lífs síns hérna á netinu. Hún er búin að vera alveg massa dugleg að læra undanfarið og uppskar líka eins og hún sáði og er núna komin yfir á annað ár í tannlækninum í Aarhus Universitet. Held það verði nú alveg ljómandi fínt þarna úti næsta árið, Helga Björt og Ingibjörn í Aarhus og Fjóla og Ingó í Kaupmannahöfn. Er sko alveg farin að hlakka alveg þvílíkt til!!


--------

Skrifaði eyrunl þann 30.06.03 22:35