júlí 19, 2003
30 dagar...
Nú eru sko ekki nema 30 dagar þar til við förum út:-)
Í gær vorum við ekki dugleg með borðstofuborðið okkar... fórum ekki einu sinni inn í Hafnarfjörð. Í staðinn fórum við til Þingvalla til Margrétar, Jóns og Alex slöppuðum þar af á pallinum, fórum í pottinn og grilluðum pizzu og grænmeti á teini. Það var nú ósköp ljúft að slappa bara af. Nú er hins vegar ekkert meiri afslöppun fyrr en borðið er tilbúið (ég mun reyndar vera stikkfrí í dag en jobbi ætlar að smíða).
-------- Skrifaði eyrunl þann 19.07.03 12:36
Ummæli
Skráðu ummæli