júlí 04, 2003

Dúfnahólar 10

Hver kannast ekki við þennan alræmda partýstað?? Held annars að það sé alveg hrikalega þreyttur brandari fyrir þá sem eiga heima í Dúfnahólum. Þar búa núna einmitt Linda Rós, Siggi og Baldvin Hrafn en Linda Rós kláraði stúdentinn núna í vikunni TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ELSKU LINDA RÓS!!! Hefði varla getað verið betri tímasetning, nú á hún rétt um 3 mánuði eftir eftir af meðgöngunni og gott að þurfa ekki að eiga neitt eftir þegar króinn kemur. Mér finnst bara verst núna þegar maður sér bumbuna stækka næstum milli daga að ég verði farin út þegar barnið kemur, á eftir að vilja koma strax heim að kíkja á það. Eeeen, þó það sé orðið ódýrt að fljúga á milli þá vaxa peningarnir víst ekki á trjánum (hvernig væri annars að fara að finna upp peningatréð??).


--------

Skrifaði eyrunl þann 04.07.03 12:24
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?