júlí 07, 2003
Folald í umferðinni... og meira
Hefur greinilega gleymst að kenna einu folaldi umferðarreglurnar, því þegar við vorum rétt komin út fyrir Akureyri þá var nokkuð stálpað folald á þjóðveginum og var alveg soldið lengi að átta sig á því að það væri nú betra fyrir það að koma sér af veginum. Sá soldið eftir því að hafa ekki kippt upp myndavélinni og tekið mynd af dýrinu þarna á veginum.
Við heyrðum svolítið skemmtilega sögu frá Hákoni en við heimsóttum hann í sundlauginni að Varmalandi á leiðinni heim. Var einu sinni stelpa að keyra á Fiat Uno niður í Hvalfjarðargöngin. Þar sem það var nokkuð brött brekka niður þá náði hún bílnum upp í 130 km/klst þegar myndavélin í göngunum náði mynd af henni. Hún vildi náttlega helst losna við sektina þannig að hún fór niður á sýslumann/löggustöð og sagði við starfsmennina að hún væri á Fiat Uno og ef þeir vildu reyna að ná bílnum upp í 130km/klst þá mættu þeir endilega reyna, myndavélin hlyti að hafa ætlað að taka mynd af bíl sem hefði tekið fram úr henni eða e-ð álíka. Þeir trúðu því ekki sjálfir að bíllinn kæmist upp í þennan hraða þannig að sektin var felld niður!! Þetta kalla ég að kunna að bjarga sér!
Annars erum við orðin svo ferlega húkkt á þessum 24 þáttum sem við erum með í láni að við erum búin að horfa á 2 þætti síðan við komum heim í kvöld og erum núna búin með 10 þætti, ef ég þyrfti ekki að vakna í vinnu í fyrramálið myndi ég sko horfa á ennþá meira.
-------- Skrifaði eyrunl þann 07.07.03 02:09