júlí 27, 2003
Þjófnaðir
Í dag er búið að ræna okkur tvisvar!!! Fyrst var mogginn tekinn úr póstkassanum og eftir að við hengdum upp auglýsingu í stigaganginum þá hefur viðkomandi ekki þorað öðru en að skila honum þ.a. við gátum lesið hann. Seinni þjófnaðurinn var nú hins vegar öllu verri en nýja úrinu hans Jobba sem ég gaf honum í útskriftargjöf var stolið í kvöld. Við fórum í ljós og hann gleymdi úrinu inni í ljósaklefanum en fattaði það í sturtunni. Þegar hann var búinn að þvo svitann af sér var annar strákur farinn inn í klefann og við ákváðum að biðja stúlkuna um að ná í úrið þegar hann væri búinn. Það sem okkur datt hins vegar ekki í hug var að þegar hann kom út úr ljósunum var hann orðinn úrinu ríkari og hljóp út þrátt fyrir að starfsstúlkan hafi ítrekað kallað á eftir honum og hlaupið á eftir honum út. Frekar fúlt að tapa glænýju úri en hann fékk það fyrir tæpum tveimur vikum því það var ekki til þegar hann útskrifaðist.
-------- Skrifaði eyrunl þann 27.07.03 01:28