júlí 23, 2003
Litaval
Nú er borðið okkar alveg næstum tilbúið, eigum aðeins eftir að klára að skrúfa plötuna í grindina og er þá komið að því að bæsa og lakka öll herlegheitin. Til þess þurfum við að velja lit á bæsið... sem er ekki svo auðvelt því eins og flestir ættu að vita þá er bæs mismunandi á litinn eftir því hvernig viður er undir og auðvitað viljum við velja einhvern alveg fullkominn lit, nema hvað. Þessa dagana erum við daglegir gestir í Húsasmiðjunni og Byko því það vantar alltaf e-ð smotterý.
Hvað er það með þessar flugur?!?!? Er ein búin að vera hérna inni á skrifstofunni okkar Möggu síðan í gær og gerir ekkert annað en að bögga mann, fljúga hringinn í kringum hausinn á manni og setjast hér og þar og kitla mann. Ein fluga er nú samt líklegast skárri en RISA köttur eins og sá sem ég mætti í eldhúsinu heima í gær, hann hafði komið inn um glugga og fór sem betur fer fljótt út aftur þegar hann rakst á okkur Jobba (við erum greinilega svona mikil monster!!! hehehe).
-------- Skrifaði eyrunl þann 23.07.03 10:00