ágúst 31, 2003

Spakmæli Jobba

Toilet only flushes when button is pressed

Djííí, ég sem hélt að maður ætti bara að horfa á takkann?!?!? Hehehehe, það sem hann sem sagt meinti var að það sturtast bara niður á meðan takkanum er haldið niðri (ekki nóg að ýta á hann stutt). Við erum sem sagt að fara að skila blaði um það sem er bilað eða ekki í góðu ásigkomulagi í íbúðinni. Þó íbúðin sé að mestu leiti mjög fín þá dugar varla plássið sem við fengum til að skrifa niður það sem er að. Hvernig ætli þetta sé þá í íbúðum sem líta ekki vel út??


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:10 EH | 0 Ummæli

Dugnaður

Ekkert smá sem ég var dugleg í dag! Þar sem það höfðu verið sólþurrkaðir tómatar í e-m rétti um daginn þá ákvað ég að baka brauð með sólþurrkuðum tómötum áður en þeir myndu eyðileggjast. Úr því að ég var byrjuð þá gat ég nú alveg eins haldið áfram, bakaði því 2 Gyðingabrauð, fullt af kanilsnúðum og svo að lokum líka pönnslur en Fjóla og Ingólfur komu í kaffi til okkar. Mamma heldur að ég hafi fengið e-u auka orku við það að flytja út því ég hef hingað til ekki verið svona dugleg í eldhúsinu. Núna reynum við líka mikið meira að hafa mat heldur en heima á Íslandi því núna getum við ekki skroppið í mat til mömmu nokkrum sinnum í viku.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:20 EH | 0 Ummæli

ágúst 30, 2003

Froskur úti á tröppum!

Já alveg ótrúlegt en satt þá var lítill froskur úti á tröppum núna rétt áðan þegar Fjóla var að fara. Hann var ekkert smá krúttilegur og við náðum meira að segja mynd af honum, hún kemur í myndaalbúmið með öðrum myndum. Erum núna að horfa á 24 seríu 2 og við því aðeins of busy til að koma myndunum inn...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:47 EH | 0 Ummæli

Danskt gsm-númer

Þetta er nú meir en lítið furðulegt. Ég pantaði gsm númer fyrir bæði mig og Jobba á fimmtudaginn með 3ja mínútna millibili (16:21 og 16:24) en ég fékk mitt símkort með póstinum í dag en ekki Jobbi! Eins og gefur að skilja er hann soldið svekktur.

Annars er ég nú bara hálf fegin að vera búin að setja íslenska gsm númerið mitt ofan í kassa því það var hringt í það í nótt alveg tvisvar sinnum og virtist vera bara til að vera með leiðindi. Var nefnilega bara andað/hvíslað (e-ð sem ég skildi allavega ekki) í símann og svo þegar ég skellti á þá var hringt strax aftur. Var þetta klukkan hálf 6 í morgun en þá hefur klukkan verið hálf 4 heima á Íslandi. Síðan var þetta leyninúmer þ.a. ég get ekki flett því upp hvaða fífl þetta var. Var alveg frekar pirruð.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:34 FH | 0 Ummæli

ágúst 29, 2003

Þyrftum að fara í búðina...

...eeeennn það er rigning og við nennum ekki að hjóla út í búð í rigningu. Hvernig ætli þetta verði þá í vetur?? Shit og við ætlum að vera bíllaus í allan vetur!! Þetta venst örugglega. Annars er núna bara letidagur, búin að vera að horfa á video og reyna að klára bókina sem ég er að lesa.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:09 EH | 0 Ummæli

ágúst 28, 2003

Kennitala og heimilslæknir

Þá er maður nú orðinn að almennilegum Bauna en við fengum cpr. númerin okkar í dag. Cpr. númerin eru sem sagt dönsku kennitölurnar og gátum við ekki einu sinni pantað okkur símkort á netinu nema vera búin að fá cpr. nr. Drifum við okkur því líka í því að fá okkur símnúmer en þar sem við fáum þau ekki fyrr en eftir helgina þá verða númerin ekkert gefin upp fyrr en þá. Annað sem bættist við með cpr. númerunum er að við þurfum að velja okkur heimilislækni. Gæti næstum alveg eins gert bara ugla sat á kvisti því nöfnin á blaðinu segja mér mest lítið. Er aðeins búin að spyrjast fyrir og ætla að reyna að grafa ofan í viskubrunn íbúanna hér á kollegíinu til að ákveða mig.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:37 EH | 0 Ummæli

ágúst 27, 2003

90 mínútna eldamennska

Hversu dugleg haldið þið að ég hafi verið?? Ég eldaði kalkúnabringu í e-u svaka gumsi og tók eldamennskan alveg einn og hálfan tíma! Er líklegast met fyrir utan kannski jólamatinn. Við skiptum verkum þ.a. ég myndi elda en Jobbi ganga frá dótinu sem fór upp á háaloft (það var örugglega hundleiðinlegt, pakka öllu draslinu inn í plast svo það eyðileggist ekki) og hann myndi svo vaska upp. Virtust vera góð skipti í upphafi eða þangað til ég fór að skera rauðlaukinn. Heima hef ég ekki tárast við að skera lauk í nokkur ár en áðan hreinlega grenjaði ég yfir lauknum og meira að segja heil lengi eftir að ég var búin að skera laukinn!! Jobbi gat varla komið inn í eldhúsið á þessu tímabili, fór því að velta fyrir mér hvort laukurinn hérna sé e-ð mikið öðruvísi en heima?
Annars kom svolítið skemmtilegt upp á í sambandi við þessa eldamennsku, Jobbi fór sem sagt út í búð með innkaupalista og kom heldur hróðugur heim og sýndi mér RISA eggaldinið sem hann hafði keypt (það var í poka þá). Þegar ég síðan opna pokann og ætla að skera eggaldin þá kom í ljós að þetta var bara alls ekkert eggaldin, þetta var AGÚRKA!!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:59 EH | 0 Ummæli

Haglél!!!

Hvað á þetta að þýða?? Við flytjum til Danmerkur og viljum þá náttlega fá gott veður eins og Íslendingar vilja nú oft fá í útlöndum. Eeennn, neinei, búið að vera rigning og rok af og til í morgun og svo núna er komið HAGLÉL!!!! Shit maður, og það er ekki einu sinni komið september... hvernig ætli þetta endi?
Annars er nú ekki alslæmt að hafa vont veður núna, höfum alveg nóg að ganga frá. Talandi um að við höfum fengið kaupæði á föstudaginn, það var sko bara pínöts miðað við verslunina í gær. Vorum alveg í 8 klst að versla í gær og náðum líka að kaupa næstum allt sem okkur vantaði. Hættum við að kaupa e-r gestarúm sem ég hafði séð í IKEA bæklingnum, fannst það heldur mikið drasl en keyptum frekar bara 2 springdýnur fyrir gestina þ.a. núna getum við bara farið að taka almennilega á móti gestum en von er á fyrstu gestunum í næstu viku. Þá koma foreldrar Jobba til okkar í 2 daga á leiðinni frá Rússlandi.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:02 EH | 0 Ummæli

ágúst 26, 2003

Eninga meninga peninga:-)

Vorum að sjá að Jobbi fékk úthlutun úr styrk sem hann sótti um áður en við fórum út:-) Verður gott að fá aðeins meiri pening til að eyða:-) Eða kannski bara láta hann borga e-ð af því sem við erum nú þegar búin að borga, eins og t.d. flutninginn og farseðlana. Rétt í þessu er Jobbi að koma inn með Borvél/skrúfvél sem hann fór og keypti á tilboði (við erum strax farin að eltast við tilboðin;)). Ætlum að fara og kíkja aftur í ILVA og IKEA, það er SVOOOOO gaman að versla hérna:-) Fórum t.d. í morgun með Fjólu og Ingólfi að versla (fórum á bíl) og keyptum alveg stútfulla körfu, kostaði svipað og svona tæplega hálf karfa heima OG við vorum með 3 vínflöskur og 2 kippur af Carlsberg bjór! Núna getum við loksins farið að elda e-ð af viti.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:07 EH | 0 Ummæli

ágúst 25, 2003

Æbleskiver på Bakken

Ég ætla sko að taka þessa Danmerkurdvöl með trompi. Um leið og ég sá æbleskiver auglýstar á Bakken í dag, þá varð ég náttlega að smakka!! Þær voru líka alveg þrusugóður, enda auglýstar fyrir að vera eins og mamma gerir þær. Reyndar hef ég ALDREI fengið svona frá mömmu minni, eeennn það eru örugglega fullt af mömmum sem gera svona;)
Annars var veðrið náttlega bara alveg ideal til að vera á Bakken í dag, mættum bara um leið og það opnaði en í dag er síðasti opnunardagurinn þetta árið. Fram eftir degi vorum við því næstum ein þarna og við þurftum ALDREI að bíða í röð og það var sko alveg geðveikt fjör að vera bara 2 ein í svona kappakstri:-) Annars lét ég Jobba vinna mig í svona bílaspilakassa:S Eeeenn hann var nú samt bara rétt á undan og ég var oft á undan honum:-)
Jæja, þá er rekkemøde alveg að fara að byrja og best að koma sér þangað og athuga hvort maður skilji ekki bara kökurnar en e-ð minna þegar ákv. á hver á að gera hvað í garðinum hérna:S
Chao!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:58 EH | 0 Ummæli

Ennþá bongóblíða:-)

Þvílíka blíðan hérna:-) Er bara verst að það á ekki að standa yfir neitt lengi, en þá getum við kannski bara klárað að koma okkur almennilega fyrir. Það er líka fínt að eyða ekki of góðu veðri í búðarrápið, talandi um búðarráp þá á fataskápurinn okkar að koma núna hvað á hverju:-) Verður brilliant að losna við fataHRÚGUNA af gólfinu sem stækkar með hverjum deginum við það að við leitum að e-u í hrúgunni.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:09 FH | 0 Ummæli

ágúst 24, 2003

Fyrsti hjólatúrinn

Eftir smá uppörvun þá vogaði ég mér aftur út í sólina:-) Ákváðum síðan að hjóla niður í Vedbæk, kíkja aðeins í búðina og skoða svo ströndina og snekkjuhöfnina. Var allt morandi í fínum og flottum snekkjum, væri ekki leiðinlegt að eiga eitt slíkt stykki.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:41 EH | 0 Ummæli

RISA padda inni

Vá shit maður, alveg ca 7 cm kvikindi ráfaði inn í íbúðina okkar og réðst þvílíkt á gluggann til að reyna að komast út. Ég með mitt litla hjarta fyrir svona kvikindum hentist á fætur og lokaði mig frammi í anddyri!!! Jobbi hetja náði síðan að koma kvikindinu út:-) Núna eru allir gluggar og svalahurðin lokuð og ég veit bara ekki hvort ég fari aftur út í dag:S Þessi kvikindi virðast nefnilega bara vera hérna fyrir ofan garðinn okkar. T.d. var eitt svona að klessa á svalahurðina rétt í þessu!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:18 EH

Formúlan á sænsku!!

Fundum formúluna á sænskri sjónvarpsrás og er það algjör snilld að heyra formúlunni líst á sænsku sem töluð er á MET hraða. Talandi um að ég tali hratt... ég kemst ekki einu sinni nálægt þeim!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:15 EH | 0 Ummæli

Loksins bongóblíða:-)

Ekkert smá gott að sitja úti í blíðunni og lesa! Finnst bara verst að ég get ekki fundið stuttbuxurnar mínar í RISA fatahrúgunni:-( Stakk bara aðeins af inn því ég er bara ekki vön þessum hita (er orðið aðeins of langt síðan við vorum í Kína).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:50 EH | 0 Ummæli

ágúst 23, 2003

Kaupæði

Vááá hvað það var gaman að versla og versla í gær. Var kannski ekki alveg jafn gaman að skrölta heim í strætó með risa bakpoka og risapoka með líka risagati þ.a. gestasængurnar voru hálfar út úr pokanum!!! Í gær keyptum við sem sagt ýmsar nauðsynjavörur í IKEA, gestasængur, fataskáp og síðast en ekki síst sófa sem við fengum meira að segja sendan heim í dag!!:-) Svo núna er íbúðin farin að skríða saman og ætti að verða fín vonandi mjög fljótlega:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:12 EH | 0 Ummæli

ágúst 22, 2003

Út í glugga

Shit maður!! Við sofum eiginlega upp í gluggakistu!!! Svefnherbergið okkar er svona frekar lítið og eiginlega eina leiðin til að hafa rúmið þ.a. plássið nýtist almennilega er að hafa það undir glugganum en þar sem rúmið er frekar hátt þá er það í sömu hæð og gluggakistan!!! Eins gott að það séu ekki margir gluggagæjar hér á kollegíinu;)

Annars erum við flutt í íbúðina okkar og erum svona að reyna að taka upp úr öllum kössunum og koma dótinu fyrir. Erum núna á leiðinni í IKEA og ætlum að skoða svona ýmislegt þar:-) Það sem mér finnst vanta alveg mest af öllu núna er fataskápur!! Erum núna með RISA hrúgu af fötum, í pappakössum, ofan í ferðatöskum og svo ofan á þessu öllu saman. Ekki gaman að leita að e-i ákveðinni flík:S


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:47 FH | 0 Ummæli

ágúst 20, 2003

Búin að mála!! Jei!!!

Planið tókst bara alveg fullkomnlega hjá okkur:-) Erum búin að panta að fá dótið okkar sent heim á morgun svo við ættum að getað lúllað í okkar rúmi á morgun:-) Þá vantar hins vegar bara allt það sem við ætlum okkur að kaupa, eins og t.d. fataskáp, sófa, stofuborð, loftljós o.s.frv. Ég er nú samt ósköp fegin að við eigum alveg slatta og tókum mest með okkur út, hefði sko ekki nennt að þurfa að fara að versla alla búslóðina! Mér finnst ekki það gaman að versla.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:51 EH | 0 Ummæli

ágúst 19, 2003

Nýjar myndir í myndaalbúminu

Gleymdi alveg að segja frá því áðan, en það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið okkar. Endilega kíkið og tjáið ykkur:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:52 EH | 0 Ummæli

Dagur 2 í Danmörku

Erum búin að vera alveg svakalega dugleg í dag. Erum komin með lyklana að íbúðinni okkar:-) Jibbý!! Erum búin að mála stærra herbergið og komin ein umferð á hálfa stofuna. Hún þurfti endilega að vera blá á litinn þ.a. við þurfum víst að mála tvær umferðir:( Var alveg frekar heitt til að mála en við létum okkur þó hafa það. Þurfti endilega að koma sól þegar við erum að mála en búið að vera frekar leiðinlegt undanfarið (rigndi t.d. þegar við mættum á svæðið í gær).
Erum búin að hitta næstum alla Íslendingana sem búa á kollegíinu en fólkið í einni íbúðinni er ennþá á Íslandi þ.a. við höfum ekki enn hitt þau. Fyrir ca hálfum mánuði flutti Íslendingur hingað og kom þá í ljós að það er strákur sem var ári á undan okkur Jobba í rafmagninu þ.a. við vitum vel hver hann er. Af 96 íbúðum búa Íslendingar í 6 íbúðum, mér finnst það alveg temmilegt, myndi ekki vilja hafa þá fleiri.
Best að fara að kíkja á hvítlaukskjúllann sem er í ofninum. Take care!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:31 EH | 0 Ummæli

ágúst 18, 2003

Go' da Danmark

Þá er maður mættur til Danaveldis og kominn á netið:-) Erum búin að skoða íbúðina okkar í gegnum gluggana og við getum vonandi byrjað að mála strax á morgun þegar við fáum lyklana. Þeir eru nú reyndar að skipta um eldhúsinnréttingu og er því núna eldavélin úti á miðju gólfi og enginn eldhúsvaskur. Þeir verða vonandi eldsnöggir að redda þessu:-)

Ferðin hingað út gekk bara nokkuð vel, við vorum vel þreytt eins og við var að búast eftir frekar lítinn svefn undanfarið en við þurftum reyndar að skilja eina tösku eftir heima því við týmdum ekki að borga yfirvigt (já við erum sko algjörir nískupúkar!!). Við fengum held ég bara alveg bestu sætin í flugvélin en hún Imba tók frá fyrir okkur sæti 1E og 1F í gærkveldi. Höfðum því sko alveg nóg pláss fyrir fæturnar okkar:-)

Erum ekki enn komin á msn því það þarf að opna eldvegginn og verður það vonandi bara fljótlega.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:09 EH | 0 Ummæli

ágúst 17, 2003

Helv&%$# blogger!!

Var búin að skrifa heil mikið um þyrluflugið sem við Jobbi fórum í í gær með Jóni og Margréti en það hvarf náttlega allt!!! Ég er alveg brjál, því ég er upp í rúmi með fartölvuna og ýtti óvart á músarhnappinn og lokaði explorernum en þá kom upp gluggi sem bauð mér að vista færsluna sem ég var að skrifa, ég tók því náttlega fegins hendi en núna get með engu móti fundið færsluna sem ég var búin að skrifa.

Allavega... við flugum með Jóni og Margréti til Þingvalla í gær þar sem Jón var að fara að fljúga með brúðhjón. Á Þingvöllum biðum við náttlega bara úti en fórum síðan aftur uppí þegar það var búið. Þetta var basicly það sem stóð í hinni færslunni þó hún hafi náttlega verið öllu lengri og ítarlegri, hef bara sjaldan verið þekkt fyrir mikla þolinmæði þ.a. ég nenni bara ENGAN vegin að reyna að pikka allt aftur inn sem ég var búin með!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:53 FH | 0 Ummæli

Síðasti dagurinn á landinu

Eftir 23 klst munum við verða sest upp í flugvél og vera á leiðinni til Kóngsins Köbenhavn og ekki koma aftur fyrr en um páskana líklegast. Jobbi rembist við að sofa lengur hérna við hliðina á mér, en ég er sko alveg LÖNGU vöknuð, vaknaði á slaginu sjö þótt ég hefði ekki farið að sofa fyrr en um tvö leytið í nótt. Býst heldur ekki við miklum svefni næstu nótt þar sem við þurfum að vera mætt út á flugvöll upp úr 6. Við búum nú sem betur fer í Hafnarfirði þ.a. það er mun styttra og fljótlegra út á flugvöll heldur en fyrir t.d. Seltjarnarnesbúa eða "sveitafólkið" í Grafarvogi (nokkuð mikið móðgaður Ingibjörn?? hehehe).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:28 FH | 0 Ummæli

Trúleysingjar vs. trúað fólk

Undanfarið hafa verið gríðarlegar umræður í bloggheiminum um það hvort trúleysingjar eða trúað fólk sé betra og verra og þar fram eftir götunum. Þeir sem mig þekkja ættu að vita að ég er algjörlega trúlaus og sagði mig úr kirkjunni fyrir nokkrum árum því mér finnst kirkjan svo mikil hræsni. Einu skiptin sem ég fer núna inn í kirkju er þegar ég fer í fermingu, skírn eða brúðkaup og reyni ég þá að hugsa bara um fólkið og útiloka neikvæðar hugsanir gagnvart trú og kirkjunni. Anyway... einn af bloggerunum, hann Óli Gneisti, er bara næstum með NÁKVÆMLEGA sömu skoðanir og ég í þessu máli! Allt (held allt, gæti svo sem hafa misst af e-u sem ég er ekki sammála) sem hann hefur skrifað um trúmál er eins og mælt úr mínum munni!! T.d. finnst mér greinin um baráttu trúleysingja fyrir jafnrétti MJÖG góð! Mæli með því að fólk lesi þá grein.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:23 FH

ágúst 16, 2003

Stressið byrjað!!

Vá manni minn, nú er ég sko farin að fá pínu í magann af stressi... veit samt ekki alveg fyrir hverju því það á eiginlega allt að vera ready, gleymdi bara nokkrum smáatriðum sem hefði þurft að gera á virkum degi en það var ekkert sem ekki er hægt að redda. Hefur nefnilega verið gríðarlega þægilegt að hafa Fjólu og Ingó þarna úti til að minna okkur á allt sem við þurfum að vita. Enn þægilegra er náttlega þar sem þau vita líka allt um kollegíið sem við verðum á eftir að hafa búið þar síðast liðið árið.
Sökum mikils álags undanfarið hef ég verið alveg óheyrilega þreytt á kvöldin undanfarið en það þýddi líka að ég var komin á fætur um 7 í morgun því ég var sofnuð klukkan 11 í gær. Sofnaði líka klukkan 11 á fimmtudagskvöldið en sem var verra þá, var að við vorum í matarboði hjá Ingunni og Halldóri og við fórum ekki heim fyrr en um eittleytið. Já ég svaf hjá þeim í 2 klst!!! Alveg SNARbiluð!! Í gær vorum við síðan í mat hjá Hafrúnu og Guðmundi en þá fórum við bara heim þegar ég var farin að geispa golunni, enda sofnaði ég í bílnum og svaf á leiðinni heim, rétt gat skriðið upp í rúm og man svo bara ekki meir fyrr en í morgun. Á því ekki von á neinum stórræðum af minni hálfu í kvöld nema ég geti fundið mér tíma til að leggja mig í dag (sem er reyndar ekki mjög líklegt því það er það mikið eftir).

Við missum síðan bílinn okkar í dag, en mamma og pabbi Jobba koma með flugi núna á eftir til að sækja bílinn. Við verðum bara að vona að við fáum lánaðan bíl hjá mömmu og pabba, það hlýtur að reddast. Svo verður það bara hjól og almenningssamgöngur í Danaveldi, ekkert elsku mamma neitt. Maður verður bara vonandi orðinn fit eftir tímann þarna úti.

Núna er þreytan aðeins farin að segja til sín aftur og er því bara spurning að reyna að skríða aftur uppí og athuga hvort maður nái að sofna e-ð örlítið til að hafa kannski ogguponsu meira úthald í kvöld en til 11.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:05 FH | 0 Ummæli

ágúst 14, 2003

úffffamía!!

Tíminn er búinn að vera ekkert smá fljótur að líða!! Enda líka búið að vera BRJÁLAÐ að gera!!!! Íbúðinni var skilað í dag og vonum við svo bara að þeir fari nú ekki að setja neitt út á fráganginn hjá okkur. Við þrifum hana nú svo vel að ég efast um að þeir geti fundið nokkuð að þrifunum okkar, það er næstum hægt að spegla sig í gólfunum því þau eru svo vel bónuð:-) Svo eru bara öll smáatriðin að smella saman núna en við eigum þó enn eftir að klára að ganga frá dótinu sem verður í geymslu hjá mömmu og pabba og svo bara að pakka ofan í ferðatöskurnar okkar. Best að reyna að klára að gera það sem ég er að gera hérna í vinnunni svo ég geti nú gengið héðan út með góðri samvisku:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:31 EH | 0 Ummæli

ágúst 09, 2003

Til lukku elsku Berglind og Nonni!!!

Erum nú komin aftur til Akureyrar eftir mjög vel heppnað brúðkaup í gærkveldið. Var þetta alveg hin glæsilegasta veisla og svo ég tali nú ekki um athöfnina, hún var mjög hátíðleg og brúðhjónin bæði svo glæsileg. Diskótekið um nóttina var síðan alveg magnað, allir í feiknar stuði og þvílíkt mikið sungið (eða kannski meira öskrað) og dansað frá sér allt vit.
Þar sem við Helga Björt vorum svo seinar að finna okkur til náðu strákarnir ekki að tjalda fyrir brúðkaupið og skiptu þeir því bara um föt inni á klósetti á Hótel Reynihlíð. Sem var svo sem allt í lagi þangað til full rúta af þýskum túristum mætti á svæðið og þeir hálfklæddir inni á klósetti þegar þeir mættu. Einhverjir héldu að Ingibjörn væri sjálfur að fara að gifta sig og hafa örugglega haldið að hann væri e-ð geðbilaður að skipta um för inni á klósetti á hóteli við hliðina á kirkjunni!!! hehehe
Í veislunni fórum við Helga Björt með brag til brúðhjónanna, þó honum hafi þó að mestu verið beint til Nonna. Vakti hann alveg gríðarlukku, verst þykir okkur þó að strákarnir okkar GLEYMDU alveg að taka mynd af okkur!! Ef einhver á mynd af okkur fara með braginn viljum við ENDILEGA fá hana senda!:-)
Í dag erum við svo búin að vera að spóka okkur í góða veðrinu, kíktum aðeins á Húsavík og í Vaglaskóg. Erum ekkert neitt svakalega fersk þar sem enginn fékk neitt of mikinn svefn, þó eru eftirköst eftir gærkveldið e-ð að hrjá suma...
Myndirnar koma svo í myndaalbúmið okkar vonandi fljótlega en þar sem við erum búin að setja tölvuna í gáminn og skjárinn á ferðatölvunni er dauður :'( þá lofa ég ekki að það verði komið strax á mánudaginn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:49 EH | 0 Ummæli

ágúst 06, 2003

Spennufall

Við erum ennþá á lífi þó síðan sé nú búin að vera hálf dauð í næstum viku. Dótinu var sem sagt komið í gám í dag og verður það komið til Kaupmannahafnar um svipað leyti og við komum út:-) Gríðarleg hamingja það. Því fylgir líka að við erum flutt í Hafnarfjörð og sofum núna í gamla rúminu mínu sem er ekki nema 120cm á breidd þ.a. það er nú frekar þröngt um okkur. Nú er bara eftir að ganga frá dótinu sem verður komið fyrir í geymslu hér á Íslandi og ganga frá íbúðinni, skúra, skrúbba og bóna!! Það er nú ekki mjög svo spennandi... nokkur sjálfboðaliði að gera þetta fyrir okkur?!?! Nei ég hélt ekki.
Á morgun leggjum við af stað norður, gistum fyrst í eina nótt á Akureyri og förum svo í brúðkaup í Mývatnssveit hjá Berglindi og Nonna:-) Það verður væntanlega svaka stuð.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:06 EH | 0 Ummæli

ágúst 01, 2003

Velja glösin

Vááá hvað það er erfitt að pakka!!!! Jobbi er alveg frekar strangur að taka ekki of mikið og var því t.d. niðurskurður í glasaskápnum okkar en við eigum alveg óhemju mikið magn af glösum. Einnig erum við að vandræðast með hvernig við eigum að pakka eins og t.d. rauðvínsglösunum... einhverjar hugmyndir??


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:20 FH | 0 Ummæli