ágúst 25, 2003
Æbleskiver på Bakken
Ég ætla sko að taka þessa Danmerkurdvöl með trompi. Um leið og ég sá æbleskiver auglýstar á Bakken í dag, þá varð ég náttlega að smakka!! Þær voru líka alveg þrusugóður, enda auglýstar fyrir að vera eins og mamma gerir þær. Reyndar hef ég ALDREI fengið svona frá mömmu minni, eeennn það eru örugglega fullt af mömmum sem gera svona;)
Annars var veðrið náttlega bara alveg ideal til að vera á Bakken í dag, mættum bara um leið og það opnaði en í dag er síðasti opnunardagurinn þetta árið. Fram eftir degi vorum við því næstum ein þarna og við þurftum ALDREI að bíða í röð og það var sko alveg geðveikt fjör að vera bara 2 ein í svona kappakstri:-) Annars lét ég Jobba vinna mig í svona bílaspilakassa:S Eeeenn hann var nú samt bara rétt á undan og ég var oft á undan honum:-)
Jæja, þá er rekkemøde alveg að fara að byrja og best að koma sér þangað og athuga hvort maður skilji ekki bara kökurnar en e-ð minna þegar ákv. á hver á að gera hvað í garðinum hérna:S
Chao!!
-------- Skrifaði eyrunl þann 25.08.03 19:58