ágúst 19, 2003
Dagur 2 í Danmörku
Erum búin að vera alveg svakalega dugleg í dag. Erum komin með lyklana að íbúðinni okkar:-) Jibbý!! Erum búin að mála stærra herbergið og komin ein umferð á hálfa stofuna. Hún þurfti endilega að vera blá á litinn þ.a. við þurfum víst að mála tvær umferðir:( Var alveg frekar heitt til að mála en við létum okkur þó hafa það. Þurfti endilega að koma sól þegar við erum að mála en búið að vera frekar leiðinlegt undanfarið (rigndi t.d. þegar við mættum á svæðið í gær).
Erum búin að hitta næstum alla Íslendingana sem búa á kollegíinu en fólkið í einni íbúðinni er ennþá á Íslandi þ.a. við höfum ekki enn hitt þau. Fyrir ca hálfum mánuði flutti Íslendingur hingað og kom þá í ljós að það er strákur sem var ári á undan okkur Jobba í rafmagninu þ.a. við vitum vel hver hann er. Af 96 íbúðum búa Íslendingar í 6 íbúðum, mér finnst það alveg temmilegt, myndi ekki vilja hafa þá fleiri.
Best að fara að kíkja á hvítlaukskjúllann sem er í ofninum. Take care!
-------- Skrifaði eyrunl þann 19.08.03 20:31