ágúst 31, 2003
Dugnaður
Ekkert smá sem ég var dugleg í dag! Þar sem það höfðu verið sólþurrkaðir tómatar í e-m rétti um daginn þá ákvað ég að baka brauð með sólþurrkuðum tómötum áður en þeir myndu eyðileggjast. Úr því að ég var byrjuð þá gat ég nú alveg eins haldið áfram, bakaði því 2 Gyðingabrauð, fullt af kanilsnúðum og svo að lokum líka pönnslur en Fjóla og Ingólfur komu í kaffi til okkar. Mamma heldur að ég hafi fengið e-u auka orku við það að flytja út því ég hef hingað til ekki verið svona dugleg í eldhúsinu. Núna reynum við líka mikið meira að hafa mat heldur en heima á Íslandi því núna getum við ekki skroppið í mat til mömmu nokkrum sinnum í viku.
-------- Skrifaði eyrunl þann 31.08.03 19:20
Ummæli
Skráðu ummæli