ágúst 26, 2003

Eninga meninga peninga:-)

Vorum að sjá að Jobbi fékk úthlutun úr styrk sem hann sótti um áður en við fórum út:-) Verður gott að fá aðeins meiri pening til að eyða:-) Eða kannski bara láta hann borga e-ð af því sem við erum nú þegar búin að borga, eins og t.d. flutninginn og farseðlana. Rétt í þessu er Jobbi að koma inn með Borvél/skrúfvél sem hann fór og keypti á tilboði (við erum strax farin að eltast við tilboðin;)). Ætlum að fara og kíkja aftur í ILVA og IKEA, það er SVOOOOO gaman að versla hérna:-) Fórum t.d. í morgun með Fjólu og Ingólfi að versla (fórum á bíl) og keyptum alveg stútfulla körfu, kostaði svipað og svona tæplega hálf karfa heima OG við vorum með 3 vínflöskur og 2 kippur af Carlsberg bjór! Núna getum við loksins farið að elda e-ð af viti.


--------

Skrifaði eyrunl þann 26.08.03 13:07
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?