ágúst 18, 2003

Go' da Danmark

Þá er maður mættur til Danaveldis og kominn á netið:-) Erum búin að skoða íbúðina okkar í gegnum gluggana og við getum vonandi byrjað að mála strax á morgun þegar við fáum lyklana. Þeir eru nú reyndar að skipta um eldhúsinnréttingu og er því núna eldavélin úti á miðju gólfi og enginn eldhúsvaskur. Þeir verða vonandi eldsnöggir að redda þessu:-)

Ferðin hingað út gekk bara nokkuð vel, við vorum vel þreytt eins og við var að búast eftir frekar lítinn svefn undanfarið en við þurftum reyndar að skilja eina tösku eftir heima því við týmdum ekki að borga yfirvigt (já við erum sko algjörir nískupúkar!!). Við fengum held ég bara alveg bestu sætin í flugvélin en hún Imba tók frá fyrir okkur sæti 1E og 1F í gærkveldi. Höfðum því sko alveg nóg pláss fyrir fæturnar okkar:-)

Erum ekki enn komin á msn því það þarf að opna eldvegginn og verður það vonandi bara fljótlega.


--------

Skrifaði eyrunl þann 18.08.03 21:09
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?