ágúst 28, 2003
Kennitala og heimilslæknir
Þá er maður nú orðinn að almennilegum Bauna en við fengum cpr. númerin okkar í dag. Cpr. númerin eru sem sagt dönsku kennitölurnar og gátum við ekki einu sinni pantað okkur símkort á netinu nema vera búin að fá cpr. nr. Drifum við okkur því líka í því að fá okkur símnúmer en þar sem við fáum þau ekki fyrr en eftir helgina þá verða númerin ekkert gefin upp fyrr en þá. Annað sem bættist við með cpr. númerunum er að við þurfum að velja okkur heimilislækni. Gæti næstum alveg eins gert bara ugla sat á kvisti því nöfnin á blaðinu segja mér mest lítið. Er aðeins búin að spyrjast fyrir og ætla að reyna að grafa ofan í viskubrunn íbúanna hér á kollegíinu til að ákveða mig.
-------- Skrifaði eyrunl þann 28.08.03 20:37
Ummæli
Skráðu ummæli