ágúst 16, 2003

Stressið byrjað!!

Vá manni minn, nú er ég sko farin að fá pínu í magann af stressi... veit samt ekki alveg fyrir hverju því það á eiginlega allt að vera ready, gleymdi bara nokkrum smáatriðum sem hefði þurft að gera á virkum degi en það var ekkert sem ekki er hægt að redda. Hefur nefnilega verið gríðarlega þægilegt að hafa Fjólu og Ingó þarna úti til að minna okkur á allt sem við þurfum að vita. Enn þægilegra er náttlega þar sem þau vita líka allt um kollegíið sem við verðum á eftir að hafa búið þar síðast liðið árið.
Sökum mikils álags undanfarið hef ég verið alveg óheyrilega þreytt á kvöldin undanfarið en það þýddi líka að ég var komin á fætur um 7 í morgun því ég var sofnuð klukkan 11 í gær. Sofnaði líka klukkan 11 á fimmtudagskvöldið en sem var verra þá, var að við vorum í matarboði hjá Ingunni og Halldóri og við fórum ekki heim fyrr en um eittleytið. Já ég svaf hjá þeim í 2 klst!!! Alveg SNARbiluð!! Í gær vorum við síðan í mat hjá Hafrúnu og Guðmundi en þá fórum við bara heim þegar ég var farin að geispa golunni, enda sofnaði ég í bílnum og svaf á leiðinni heim, rétt gat skriðið upp í rúm og man svo bara ekki meir fyrr en í morgun. Á því ekki von á neinum stórræðum af minni hálfu í kvöld nema ég geti fundið mér tíma til að leggja mig í dag (sem er reyndar ekki mjög líklegt því það er það mikið eftir).

Við missum síðan bílinn okkar í dag, en mamma og pabbi Jobba koma með flugi núna á eftir til að sækja bílinn. Við verðum bara að vona að við fáum lánaðan bíl hjá mömmu og pabba, það hlýtur að reddast. Svo verður það bara hjól og almenningssamgöngur í Danaveldi, ekkert elsku mamma neitt. Maður verður bara vonandi orðinn fit eftir tímann þarna úti.

Núna er þreytan aðeins farin að segja til sín aftur og er því bara spurning að reyna að skríða aftur uppí og athuga hvort maður nái að sofna e-ð örlítið til að hafa kannski ogguponsu meira úthald í kvöld en til 11.


--------

Skrifaði eyrunl þann 16.08.03 10:05
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?