september 29, 2003
Missti af stræto
Deeeeemmm, missti af stræto i fyrsta skipti sidan eg kom hingad:( Hann var minutu a undan aætlun og svo var lika buid ad færa stoppustødina sidan i morgun (hun hafdi timabundid verid i gøtunni nær byggingunni minni i skolanum). Var frekar svekkt, tvi eg hefdi alveg getad nad honum, horfdi a eftir honum en var bara tannig stadsett ad bilstjorinn atti ekki sens i ad sja mig til ad bida ef hann hefdi viljad vera almennilegur (sem teir eru langflestir bilstjorarnir). Best ad koma ser aftur ut og reyna ad missa ekki af næsta vagni lika;)
--------
september 28, 2003
Smá nánar um rafmagnsleysið
Ég veit náttlega ekkert um það hvort aðrir þarna úti hafi nokkurn áhuga á að heyra e-ð nánar um rafmagnsleysið s.l. þriðjudag en eins og gefur að skilja þótti mér nú alveg soldið merkilegt að skoða skjal sem ég fann hjá Elkraft Með því að skoða það þá er hægt að sjá gang mála nokkuð ítarlega. Í þessu rafmagnsleysi fór rafmagnið af suður-Svíþjóð og Sjálandi en ekki af norður-Svíþjóð vegna þess að því var kúplað frá suður-Svíþjóð og keyrði því ótengt suður-Svíþjóð. Það er tenging á milli Danmerkur og Svíþjóðar á norður Sjálandi og má því spyrja sig af hverju Danmörk var ekki kúplað frá Svíþjóð þegar allt var að fara til fjandans þar því allar bilanirnar urðu í Svíþjóð. Þetta er eitt sem má spyrja sig en síðan er það annað eiginlega enn merkilegra. Það er að rúmum klukkutíma eftir að rafmagnið fer fær Danmörk leyfi til að tengjast sænska kerfinu, en þeir megi aðeins nota 200MW?!?!? Það var sænska kerfið sem hafði hrunið og danska kerfið hrundi út af því, síðan tekur það danska kerfið 6 og hálfan tíma að byggja sig upp að nýju! Með því að skoða slides 9-13 á skjalinu sem ég vitnaði í má einnig lesa að þeir hafi ekki getað ræst virkjanirnar fyrr en bara eftir dúk og disk, reyndu, mistókst, reyndu, mistókst o.s.frv. Mætti halda að þeir væru bara með ALLT niðrum sig í þessum efnum hérna.
Get nú samt ekki annað en játað að það er nokkuð gaman að vera í framhaldsnámi í raforkuverkfræði þegar stór kerfi virðast vera að hrynja út um allt:-)
--------
september 25, 2003
Bíll, bíll, ég þrái bíl!!!
Það er bara eitt sem mér finnst vanta hérna í Danaveldi og það er bíll! Hann þyrfti ekki að vera glænýr, aðallega bara að komast á milli a og b og getað tekið það sem ég versla með líka. Ég var sem sagt að koma úr Nettó en það er í Vedbæk sem er í ca 2-3 km fjarlægð. Ekkert mál að hjóla þangað en heim manni minn, ég var bara ein þ.a. ég var bara með einn bakpoka og ég var svo sniðug að versla gos, sykur, jógúrt og e-ð af svona þungu drasli. Jú það má alveg spyrja af hverju ég er ekki með körfu á hjólinu, svarið við því er einfalt: "framtaksleysi og óákveðni". Verkjar núna upp eftir öllu bakinu þ.a. þetta var nú ekki alveg nógu sniðugt.
Ætli það sé nú ekki best að fara að ganga frá þessu dóti, en á meðan ég man þá langar mig að láta mömmu vita (veit hún les bloggið oftar en hún talar við mig á msn) að pakkinn kom í dag. Takk fyrir pottaleppana!!! Er alveg búin að gleyma að þú hafir lofað þeim fyrir löngu, er bara ánægð að vera búin að fá svoleiðis:-) Svo af því að þú ert svona dugleg, verð ég þá ekki að láta þig líka vita hvað ég er dugleg, ég skúraði allt í gær OG réðst inn á yfirráðasvæði Jobba og þreif klósettið!!!!
--------
september 24, 2003
Versti bjór í heimi!!!
Tvær staðreyndir:
1. Ég bý í Danmörku
2. Mér finnst bjór almennt ekki góður
Eeeeennn, ég er búin að lofa að breyta staðreynd nr. 2:-) Þarf bara smá tíma og þolinmæði, hef nóg af því fyrrnefnda en takmarkað af því síðarnefnda þ.a. við sjáum bara til hvernig fer. Áðan kom jobbi með glas af bjór og spurði hvort ég vildi smakka (er nefnilega eiginlega búin að lofa að fá mér alltaf sopa hjá honum þegar hann fær sér bjór til að venja mig við), en þetta var töluvert öðruvísi bjór en hinn venjulegi Carlsberg. Þetta var Carls Porter, en Óli mælti með honum. Annan eins viðbjóð hef ég aldrei lagt inn fyrir mínar varir, bragðið minnti helst á viðbrennt kaffi með alls konar vondu aukabragði(hef svo sem ekki smakkað það en ég ímynda mér að það hafi verið þannig) og þurfti ég alveg heilt vatnsglas bara til að hætta að kúgast!! Jobbi drakk nú líka bara e-a örfáa sopa af þessum bjór en gafst síðan upp og fékk sér bara hinn klassíska venjulega Carlsberg. Held ég píni frekar í mig heilum venjulegum Carlsberg frekar en að taka einn sopa í viðbót af Carls Porter! Það er kannski bara málið, að pína heilan bjór ofan í sig, hmmmm.
--------
PHP reynsluleysi
Hingað til hefur forritun nú ekki verið mín sterkasta hlið og hvað þá í máli sem ég hef bara heyrt um en aldrei notað sjálf. Mín forritunarreynsla samanstendur af Java áfanganum Tölvunarfræði 1a haustið 1999, C/C++ áfanganum Tölvunarfræði 2a vorið 2000 og síðan smá í matlab. Núna er ég hins vegar niður sokkin í PHP og réðst ég ekki alveg á garðinn þar sem hann var lægstur því ég er að reyna að möndla í myndaalbúminu okkar og gekk það bara ekkert svo illa á meðan Jobbi var heima! döööö!! Wonder why?? Annars hlýt ég nú bara að fara að sjá ljósið í vandræðum mínum, annars verð ég bara orðið sköllótt þegar Jobbi kemur heim, eða hugsanlega með 2 hár eins og Hómer Simpson eftir að hafa reytt allt hárið af mér.
--------
Konungleg trúlofun
Það voru nú ekki leiðinlegar fréttir sem biðu mín í tölvunni þegar ég vaknaði. Fjóla hafði sent mér msn tilkynningu um að nú væri LOKSINS komið að því, Friðrik krónprins og Mary Donaldsen eru búin að trúlofa sig. Með tilkynningunni fylgdi einnig að við ættum að kíkja á TV2 sem fær núna að rúlla þar til yfir líkur. Eins og Fjóla sagði þá koma slúðurblöðin út á miðvikudögum þ.a. þeir þurfa að bíða í heila viku með að koma með þessa frétt (sem verður orðið þá frekar old news þá væntanlega). Get samt rétt ímyndað mér að það verði fátt annað í blöðum næstu vikum en fréttir og viðtöl tengd þessari trúlofun.
--------
september 23, 2003
Tupperware í rafmagnsleysinu
Hvað haldiði? Ég fór á Tupperware kynningu í kvöld!! Þetta var mín fyrsta tupperware kynning síðan mamma hélt slíka kynningu fyrir MÖRGUM árum og ég var að sniglast þarna til að geta fengið e-ð gott að borða:-) Og það sem meira er þá verslaði ég líka smá, keypti 2 hluti sem báðir eru mjög gagnlegir. Reyndar virtist hver einn og einasti hlutur vera MJÖG gagnlegur og einstaklega praktískur, en kostaði náttlega morðfúgu í staðinn. Ok, ég veit að þetta er alveg þrusugott og allt það en þegar maður er fátækur námsmaður (reyndar soldið ofnotað hugtak um alla námsmenn því ég held að flestir hafi það nú ekkert svo skítt, námslánin eru ekki eins slæm og af er látið) þá lætur maður nú ódýru dollurnar í IKEA alveg duga sér.
Annars hefur nú sjaldan liðið jafn langur tími á milli blogga hjá mér, en núna er ég aftur komin á skrið eftir að gestahrinunni lauk, tók alveg tíma að jafna sig og ná upp töpuðum svefni og hvíla lúnu beinin eftir að hafa þrammað um allt. Spurning hvort ég nái þá að vakna á skikkanlegum tíma á morgun en ég svaf næstum til hádegis í dag og þurfti þvílíkt að hafa fyrir því að vakna, veit ekki hvað Jobbi kom oft inn að tala við mig. Það var ekki fyrr en hann sagði mér að mamma væri á msn og vildi tala við mig að ég kom mér fram úr.
Má nú heldur ekki gleyma að segja frá rafmagnsleysinu sem var hérna í dag, af því að ég var svo mikill slúbbert að skrópa í skólann eftir hádegi (klukkan orðin allt of margt til að ná að komast í sturtu og ná í strætó, of leiðinlegt veður til að hjóla þ.a. það var bara alveg eins gott að hanga heima...) þá snerti þetta mig ekkert svakalega mikið nema að við komumst ekki í tölvuna (höfum nú svo sem bara gott af því svona stundum). Við vorum líka svakalega heppin með að fá rafmagnið aftur frekar snemma, það var ekki einu sinni farið að dimma, þeir síðustu áttu ekki að fá rafmagnið fyrr en bara seint í kvöld!!
Hefði samt eiginlega viljað að ég hefði farið í skólann, átti nefnilega að vera í Elforsyning (=Raforkukerfi) tíma sem snýst einmitt um þessa hluti, hefur hingað til verið mikið talað um rafmagnsleysið í New York en því verður örugglega ýtt núna til hliður og næstu vikur talað um þetta rafmagnsleysi. Veit annars mest lítið um þetta tilfelli, þyrfti að fara að skoða nokkrar heimasíður og athuga hvort ég finni ekki e-ð sniðugt. Get nú ekki verið þekkt fyrir að vera í framhaldsnámi í raforkuverkfræði og vita síðan ekki af hverju þetta rafmagnsleysi stafaði.
Ætli ég verði ekki að koma mér í háttinn ef ég vil geta vaknað fyrir hádegi á morgun (er sko alltaf í fríi á miðvikudögum, mun því ekki skrópa neitt:-)). Adios!
--------
september 19, 2003
Óli og Valdís sökka...
... í spilinu sem við vorum að spila áðan!!! Þau voru e-ð að reyna að malda í móinn með að þau væru bara svona heppin í ástum í staðinn en blebleble... Við buðum þeim sem sagt í mat í kvöld eftir að hafa þrammað á Strikinu í allan dag og keypt eiginlega ekki neitt (Margrét keypti bara einar buxur og einn bol, frekar slappt). Átti upphaflega að vera kjúlli í matinn en þar sem við gleymdum að taka þá út úr frystinum í morgun og úrvalið í Nettó var frekar dapurlegt rétt fyrir 7 þá var bara elduð pizza. Sem væri kannski ekki til frásögur færandi nema fyrir það að þetta er í fjórða skiptið sem við Jobbi og Margrét borðum pizzu síðan á þriðjudaginn!!!
Langar geðveikt að segja hvað við Margrét keyptum annað en það er afmælisgjöf þ.a. ég verð víst bara að sitja á mér
--------
september 18, 2003
Muuuhhhh, Muuuuhhh!!
Eftir ársdvölina í kusulandinu Sviss þá hafði ég soldið dálæti á beljum. Á því beljubauk, beljubangsa, belju pipar og salt og síðast en ekki síst þá keypti ég handa okkur í dag belju diskamottur!:-) Ég hef samt bara dálæti á skjöldóttum beljum, vil ekki bara einlitar leiðinlegar íslenskar, finnst þær ekki nógu flottar.
Dagurinn í dag var bara nokkuð góður hjá okkur systrunum, við fórum í Lyngby Storcenter og grandskoðuðum H&M búðina. Síðan þegar við nenntum bara engan vegin að skoða meira þá komum við okkur bara út í sólina því það var sko 20°C og sól í dag hjá okkur!! E-ð annað heldur en skítakuldinn sem er heima!!
Erum að fara í kaffi til Óla og Valdísar og kíkja á íbúðina þeirra (þau búa sko innan við 5 km í burtu frá okkur og við höfum aldrei heimsótt þau!)
--------
september 17, 2003
Turpas í Tivolíinu
Fórum aftur í tívolíið í dag en núna með Margréti, Valdísi og Óla. Vorum ansi aktíf í tækjunum til þess að nýta nú sem best turpas-ann okkar. Greyið Margrét var orðin soldið slöpp í maganum undir lokin og varð því sjálfkrafa að töskubera á meðan við hin fórum í tækin. Síðan vissi ég ekki til þess að lestarferð gæti aukið á ógleði en Margrét varð ennþá verri eftir lestina frá Hovedbanegård til Vedbæk. Erum að fara að horfa á The In Laws... best að láta þau ekki bíða mikið lengur.
--------
september 16, 2003
2-2 jafntefli
Nú erum við Jobbi búin að hjóla jafn oft í skólann, hann var nefnilega með einn í plús m.v. við mig síðan hann hjólaði í skólann á föstudaginn. Er svo frískandi að hjóla í skólann, ég var eiginlega búin að gleyma því. Vona bara að ég verði jafn dugleg og ég var í Sviss, þá hjólaði ég ótrúlega mikið. Talandi um Sviss, var að koma upp hugmynd að fara þangað í haustfríinu... ætlum að spá í því, eru reyndar líka að spá í David Bowie tónleikum í Þýskalandi. Annars endum við kannski bara á því að vera heima hjá okkur að gera ekki neitt.
--------
Helvítis beyglan!
Mig vantar að kunna að bölva meira á dönsku!!! Var nefnilega kellingarbeygla á lestarstöðinni í gær þegar ég var að kaupa mér klipkort. Eins og ég hef tekið eftir þarna inni þá eru nokkrir afgreiðslubásar og fólk fer í röð í e-m ákveðnum bás eins og fólk gerir í verslunum (mér finnst þó gáfulegra þegar það er svona miða system og allir fari í réttri röð en skítt með það). Allavega þá var kona sem var komin inn á undan mér sem var í annari röð en ég, síðan þegar röðin er komin að mér þá ákveður hún að þar sem hún hafi komið inn á undan mér þá fari hún fram fyrir mig í minni röð!! Ég var samt ekki í bestu röðinni því maður sem hafði komið inn á eftir mér hafði fengið afgreiðslu áður en þetta var því hann hafði verið heppinn með röð. Ég varð svo reið að ég held að það hafi sést langar leiðir, að maðurinn sem var fyrir aftan mig fór til hennar og lét hana vita að hún væri nú að troðast. Hún bara sagði "já en ég var sko komin hingað inn á undan!". Öll blótsyrði á dönsku eru því þegin með þökkum, ætla að læra þau utan að svo ég geti nú muldrað vel valin orð næst þegar e-r ætlar að vera með e-r leiðindi.
--------
Stutt heimsókn búin
Þá er pabbi farinn aftur. Var ósköp notalegt að hitta hann aftur þó það væri svona stutt heimsókn. Jobbi var bara eiginlega búinn að elda þegar við komum heim og fengum við fylltar svínalundir í matinn, það var MJÖG gott hjá honum! Svo að sjálfsögðu fengum við okkur köku í eftirmat, nema að pabbi vildi ekki kökusneið!! Fékk sér bara ís!
Síðan er líka farið að styttast í næsta gest, Margrét kemur á morgun:-) Hún ætlar að stoppa aðeins lengur en pabbi og verða fram á sunnudag. Sem sagt NÓG að gera við að taka á móti gestunum, er líka farin að þekkja flughöfnina ansi vel.
--------
september 15, 2003
Pabbi á leiðinni
Í þessum töluðum orðum er pabbi í flugvélinni á leiðinni til Kóngsins København. Einnig eru Ingunn og fjölskylda í flugvél núna en bara á hinni leiðinni, þ.e. frá Køben til Íslands. Soldið skondið að þau munu í raun mætast á leiðinni upp í háloftunum:-)
Annars mun pabbi bara stoppa stutt, en hann fer aftur á morgun, verður því í raun bara eitt kvöld hjá okkur. Hann mun þó fá e-ð gott að borða:-) Svo er líka til afgangur af frönsku súkkulaðikökunni sem ég bakaði í gær, aldrei að vita nema hann fái bita af henni. Svo er Fjóla líka velkomin að koma og sníkja sneið því hún á eitt eggið í kökunni OG gaf okkur köku og pylsuhorn í kaffinu í gær.
--------
september 14, 2003
Neyðin kennir naktri konu að spinna
Hverjum hefði dottið það í hug að við myndum bara baka okkar eigin Tortilla kökur úr því að við gátum ekki keypt svoleiðis??? Ætluðum að reyna að sníkja kökur hjá Fjólu og Ingólfi ef þau myndu eiga svoleiðis en þau eru svo hrikalega myndarleg að þau baka alltaf sínar eigin Tortilla kökur. Við ákváðum því að vera engir eftirbátar þeirra og er deigið núna í ískápnum og bíður eftir að verða að pönnukökum.
--------
Stuðmenn í tívolíi í gær
Vááá, hvað það var gaman í gær!! Hefði nú alveg verið til í að skella mér á ballið um nóttina en þar sem við vorum ekki búin að kaupa okkur miða og þar að auki með gesti þá nenntum við ekki að fara niður á strik upp á von og óvon hvort við myndum fá miða. Tókum því bara lestina heim sem passaði við síðasta strætóinn. Var mjög fínt að vera bara í Tívolíinu um daginn og fara svo á tónleikana um kvöldið. Mér leið samt eins og ég væri komin heim til Íslands þar sem það var töluð íslenska alls staðar í kringum mann.
Í dag er svo bara bongóblíða og við búin að fara í nokkuð langan hjólatúr. Við lásum á einum bæklingnum að það væri opið í dag í einni búð sem er soldið í burtu þ.a. við drösluðumst þangað til að kaupa í síðustu kvöldmáltíðina handa Ingunni og co. Þegar við komum þangað var bara bakaríið opið en ekki sjálf búðin! Ok, við skoðuðum bara höfnina þarna og allar snekkjurnar sem eru MIKLU STÆRRI og flottari en snekkjurnar í Vedbæk. Ætluðum svo bara að fara í Fakta sem er í Vedbæk og frekar slöpp búð en er þó alltaf opin á sunnudögum á bakaleiðinni. Sú búð var náttlega akkúrat lokuð í dag!! Fundum þó tvær opnar búllur í Vedbæk en hvorug þeirra seldi Tortilla kökur eins og við vorum búin að ákveða að hafa. Við eigum því núna bara 6 Tortilla kökur en allt í þær... spurning hvort það verði bara bakað í eftirmat... ekki viss hvort maður nenni því en þó aldrei að vita.
Ætla að koma mér út í sólina til Jobba:-)
--------
september 11, 2003
Frönsk súkkulaðikaka
Mmmm, hún er svoooo góð! Ég bakaði eina svoleiðis áðan og bíður hún núna eftir því að Ingunn, Halldór, Hafdís og Helena komi heim úr bænum. Hún heppnaðist nú öllu betur heldur en þegar ég var að baka fyrir afmælin okkar Jobba í sumar, flæddi ekki neitt:-). Þetta er kannski málið... að taka svona vel á móti gestum að það komi bara fleiri og fleiri:-) Nú er það nefnilega komið á hreint að pabbi kemur á mánudaginn og gistir í eina nótt, síðan á miðvikudaginn þá kemur Margrét systir og verður fram á sunnudag. Það lítur því út fyrir 40% nýtingu gistinátta í september!!! Ekki slæmt það. Dýnurnar og sængurnar sem við keyptum væru sko löngu búin að borga sig ef við myndum setja upp verðskrá;) Annars er enginn búinn að panta gistingu neitt meira fyrr en í nóvember þ.a. það ætti að verða nokkuð rólegt hér næstu mánuði.
--------
Díbblaður nebbi
Hvað á það að þýða að láta mann fá kvef og verða alveg ómöguleg þegar ég hef ENGAN tíma til þess??? Er með gesti, það er gott veður og ég á von á miklu fleirum gestum. Hefði þurft að fara niður í Lyngby og athuga hvort ég finni ekki e-a gestabók en ég nennti því bara ENGAN veginn, ekki nógu gott. Verð samt að læra núna á meðan ég hef tíma til þess þ.a. það verður engin miskun.
Þó það sé gott veður í dag þá er ekki þar með sagt að það sé alltaf gott. Það rigndi nefnilega í gær eins og hellt væri úr fötu og við niðrí bæ með gestunum okkar. Var varla þurr þráður á okkur þegar við komum til baka þó við hefðum verið með regnhlífar. Fjóla sagði okkur að það hefði rignt 60 mm í gær!! Sáum líka í fréttunum í gær að slökkviliðið þurfti að ryksuga vatn í e-m íbúðum.
Ég vorkenndi nú smá hestunum sem strætóinn keyrir fram hjá í morgun. Svæðið þeirra var allt í einu með stöðuvatni í miðjunni og restin af svæðinu eitt drullusvað!
--------
september 10, 2003
Blóð sviti og tár...
Kannski ekki alveg en allavega nóg af svita. Við hjóluðum í dag í fyrsta skipti í skólann. Dóluðum okkur niðrí skóla rétt fyrir hádegið og chilluðum þangað til ég fór í tíma (þá alveg búin að jafna mig á hjólaferðinni). Á heimleiðinni tók ég aðeins meira á, þó ég sé algjört letiblóð þá er nú samt soldið gott að láta blóðið aðeins hreyfast og svitna pínulítið. Ætluðum að fara í Spar sem við héldum að væri í Nærum en þegar ég kom á hornið þar sem ég hélt að búðin væri þá var nú bara kirkja þar. Klukkan orðin 17:45 og búðin lokaði að öllum líkindum klukkan 6. Gat nú áttað mig á að Spar væri bara í næsta bæ eða í Gl. Holte þ.a. við settum bara allt í botn og brunuðum þangað. Náðum að vera komin vel fyrir lokun þ.a. við ættum að geta verslað það sem hafði verið á tilboði í bæklingnum fyrir lokun. Þegar inn var komið þá er þetta bara svona Tyrkjabúlla, meira svona kaupmaðurinn á horninu heldur en e-r sparnaðarverslun. Okkur leist ekkert á það sem var á tilboði (það sem leit svo vel út í bæklingnum) þ.a. við fórum bara án þess að versla neitt. Fékk bara ágætis hreyfingu út úr þessu þ.a. þetta var nú ekki alveg til einskis. Það versta er samt að ég er með algjört gullfiskaminni þessa dagana. Mundi ekkert að Fjóla (sem btw er vöknuð til lífs síns í netheimum) hafði sagt mér að þetta væri ALGJÖR búlla og maður ætti ekkert að vera að fara þangað. Mun samt pottþétt ekki gleyma því úr þessu.
Í kvöld lágum við bara síðan upp í sófa heima hjá Fjólu og Ingólfi og horfðum á Popstar og Friends og borðuðum íslenskan lakkrís:-) Sem minnir mig á það að við fáum einmitt íslenskan lakkrís á morgun þegar Ingunn, Halldór, Hafdís og Helena koma í heimsókn. Ingunn er nefnilega búin að kaupa kíló af lakkrís handa okkur:-) Þá fáum við líka restina af dótinu okkar sem við urðum að skilja eftir heima þegar við flugum út... verður ágætt því það eru svona einstaka hlutir þar sem okkur vantar. Sem betur fer er búið að vera nokkuð hlýtt hérna því ég hefði ekki lifað án flíspeysunnar minnar sem er í botninum á töskunni ef það hefði kólnað e-ð.
--------
september 08, 2003
Greining Rása... aftur?
Skráði mig í áfanga sem ég misskildi aðeins og mætti því í annars árs kúrs sem líktist ískyggilega mikið Greiningu Rása sem við tókum hjá Tuma á öðru misseri heima í HÍ. Ætla því að hætta í þeim kúrs, finnst alveg ástæðulaust að sitja e-ð sem ég græði ekkert á. Er því komin í smá bobba því ég veit eiginlega ekkert í hvað ég á þá að fara... gæti farið í Ljóstækni, Aflrafeindatækni, e-n stærðfræðikúrs, tölfræðikúrs eða e-n rekstrargreiningarkúrs. Ætlar e-r að hjálpa mér??? Önnur vikan er byrjuð svo það er eiginlega ekki seinna vænna en að fara að ákveða sig.
--------
september 07, 2003
Sunnudagsmaturinn
Ég er alveg þvílíkt stolt af okkur, hvað við erum búin að vera dugleg í eldhúsinu. Í kvöld verður piparsteik með kartöflum, nýjum maís, belgbaunum og hrásalati:-) Þetta verður önnur tilraun til að elda nautakjöt hérna úti en fyrri tilraunin heppnaðist nú ekkert alltof vel... spurning hvernig fer núna. Mig langar líka að taka fram að við erum búin með 1 poka af kartöflum síðan við fluttum inn í íbúðina okkar og það eru ekki nema rúmar 2 vikur síðan það var. Reyndar var þetta lítill poki en mér er sama. Heima held ég að við höfum soðið svona 2-3 kartöflur á 2 árum!!!!
--------
september 06, 2003
Nýjar myndir
Langaði bara að benda fólki á að við vorum að setja inn fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið okkar.
--------
Vúhúúú
Blogspot virðist vera komið í lag:-) Hlustuðum svo á loka mínúturnar af landsleiknum í netútvarpinu, en við náum engri sjónvarpsstöð sem sýndi leikinn. Ætlum að hlamma okkur í sófann og fara að horfa á video:-) Fátt betra en að liggja upp í sófa undir sæng eða teppi og glápa á imbann.
--------
Laugardagur til leti
Þetta er búinn að vera algjör letidagur. Morgundagurinn verður svo tekinn með trompi, eigum þvottavélar kl. 10 þ.a. það er eins gott að hunskast á lappir á skikkanlegum tíma á morgun.
Í gær voru við annars bara nokkuð dugleg, hjóluðum í 2 hjólabúðir og versluðum okkur bretti á hjólin, böglabera og ljós. Núna vantar bara körfuna svo við komumst með góðu móti í búðina án þess að þurfa að dröslast með allt á bakinu heim. Síðan vorum við nú búin að ákveða að fá okkur hjálma en svoleiðis fyrirbæri höfum við aldrei átt og flestir virðast vera búnir að fá sér heima á Íslandi sem eru að hjóla e-ð af viti. E-ð eru Danirnir tregari því hér finnst mér voða fáir vera með hjálma. Þeir eru líka frekar aftarlega á merinni þessar elskur, reykja eins og strompar og virðast ekkert átta sig á skaðsemi þess.
--------
Sensommerfest
Loksins komst ég inn á Bloggerinn til að gera grein fyrir sensommerfestinu sem við fórum á í gær. Við vorum nú ekkert alveg með á hreinu klukkan hvað þetta væri en ákváðum bara að kíkja þarna um kvöldmatarleytið. Það virkaði líka bara ágætlega og var alveg slatta mikið af fólki þarna. Við þekktum nú ekkert neitt gríðarlega marga en hittum þó nokkra Íslendinga sem við þekkjum og könnumst við. Aðal númer kvöldins voru svo Nik & Jay og vorum við ekki alveg viss hvort Danir væru svona hrifnir af þeim eða hvort þetta væri bara djók. Þetta var síðan bara hin besta skemmtun þó þeir hafi nú tekið vinsælustu lögin nokkuð oft á þessum klukkutíma sem þeir spiluðu. Annar þeirra (Nik skv. heimildum frá Helgu Björt) múnaði á liðið í einu laginu og seinna girti hann niðrum sig buxurnar og stóð á naríunum. Eftir þessa tónleika komum við okkur svo bara heim í strætó (aldrei myndi maður láta hafa sig út í það að fara heim með strætó eftir svona gigg heima á Íslandi...).
--------
september 04, 2003
Kóngulóavefir í myrkrinu
Nógu er nú óþægilegt að ganga í kolniðarmyrki eftir göngustígnum meðfram kollegíinu en að maður þurfi að ganga síðan í gegnum kóngulóavef líka!! Annars var þetta nú bara svona lítill vefur, sem var bara búið að strengja yfir stíginn (ekkert neitt mass net). Ekki eins og vefurinn sem Jobbi labbaði á um daginn. Þá vorum við á leiðinni út í strætó og við bara í góðum fíling þegar ég lít á Jobba og sé akkúrat þegar hann er í þann mun að klessa á þvílíka vefinn. Þó ég hafi reynt að garga e-ð þá náði Jobbi engan vegin skilaboðunum og fór því í gegn. Honum fannst þetta svona frekar ógeðfellt sem mér finnst EKKI skrýtið, ég hefði örugglega farið yfirum.
--------
september 03, 2003
Ecco skór og Ecco veski
Hvað er skemmtilegra en að versla kúl Ecco skó og veski (btw í stíl) og fá síðan skattinn til baka:-) Um að gera að nýta sér það að vera með gesti:-) Talandi um gesti þá koma næstu gestir eftir viku og verða yfir stuðmannatónleika helgina. Þá kemur Ingunn systir hennar mömmu ásamt fjölskyldu.
Er alveg búin á því eftir daginn niðrí miðbæ, ætla að koma mér í rúmið... mmmmm.
--------
Enetation kommentakerfið
Hvað er eiginlega í gangi hjá þeim?? Það er eins og meirihlutinn af nýju kommentunum séu bara horfin (en stendur samt í linknum að það séu komment). Er ekki alveg að fíla það.
Annars er bara allt ljómandi að frétta af okkur. Ég fór í gær í heimsókn með einum áfanganum í skólanum í Avedøreværket sem er nýjasta og stærsta virkjun Energi E2 en hún sér milljón manns fyrir rafmagni og 200þús manns fyrir húshitun. Skildi nú ekkert allt of mikið í manninum sem tók á móti okkur en það var ein stelpa sem reyndi þó að þýða e-ð af því sem mig langaði að vita.
Síðan komu foreldrar Jobba til okkar í gær og við erum að fara með þeim núna niðrí bæ en það er í fyrsta skipti sem ég fer niðrí bæ síðan við komum hingað. Verður örugglega alveg ljómandi fínt.
--------
september 02, 2003
Hvað voru þeir að spá?????
Hvað voru þeir að spá?????
Vááá, það er sko búið að vera 24 maraþon hjá okkur í kvöld (eins og undanfarin kvöld reyndar líka). Endirinn er hreint og beint fáránlegur, þeir geta ekki gert manni þetta!!! Úffamía!!! Ég get sko ekki beðið eftir því að sjá meira, veit ekki hvort ég gæti samt horft á þetta í sjónvarpinu einn þátt í viku, við erum meira fyrir að horfa á 3-5 á einu kvöldi (btw einn þáttur eru rúmar 40 mínútúr). Verst hvað ég verð biluð í sambandi við þessa þætti, mér finnst bara eins og ég sé farin að þekkja þetta fólk og þau heiti bara nöfnunum sínum í þáttunum!! Djííí, ég er nú venjulega ekki svona biluð!!! Eða... ég vona allavega ekki:S
Reyndar komu nú stundum atriði þar sem Jack Bauer var aðeins OF mikil hetja en svo bjargaði hann því bara með því að brosa blítt til Kate Warner (skil ekkert í því að þau hafi ekki verið látin kyssast einu sinni áður en serían endaði...).
Nú er klukkan orðin allt of margt og best að koma sér í háttinn. Þetta reddast reyndar þar sem það er ekki skóli hjá okkur fyrr en eftir hádegi á morgun þ.a. við getum fengið að sofa út:-) Veiii!!
--------
september 01, 2003
Fyrsti skoladagurinn
Jæja, tha er fyrsti skoladagurinn lidinn. Eg for bara i einn fyrirlestur en hann var samt alveg fra 8-11 (adeins lengri en madur a ad venjast i hi). Eg skildi bara alveg merkilega mikid tho eg væri nu ekkert svona mikid ad tala sjalf (eins og mer finnst nu yfirleitt gaman ad tala). Thad verdur thvi bara ad bida betri tima:) Annars var Jobbi ad koma inn i tølvuverid rett i tessu svo eg tarf ekki ad hafa meiri ahyggjur af tvi ad hitta hann ekki aftur (hann er ju ekki buinn ad fa gsm numer).
--------