september 25, 2003
Bíll, bíll, ég þrái bíl!!!
Það er bara eitt sem mér finnst vanta hérna í Danaveldi og það er bíll! Hann þyrfti ekki að vera glænýr, aðallega bara að komast á milli a og b og getað tekið það sem ég versla með líka. Ég var sem sagt að koma úr Nettó en það er í Vedbæk sem er í ca 2-3 km fjarlægð. Ekkert mál að hjóla þangað en heim manni minn, ég var bara ein þ.a. ég var bara með einn bakpoka og ég var svo sniðug að versla gos, sykur, jógúrt og e-ð af svona þungu drasli. Jú það má alveg spyrja af hverju ég er ekki með körfu á hjólinu, svarið við því er einfalt: "framtaksleysi og óákveðni". Verkjar núna upp eftir öllu bakinu þ.a. þetta var nú ekki alveg nógu sniðugt.
Ætli það sé nú ekki best að fara að ganga frá þessu dóti, en á meðan ég man þá langar mig að láta mömmu vita (veit hún les bloggið oftar en hún talar við mig á msn) að pakkinn kom í dag. Takk fyrir pottaleppana!!! Er alveg búin að gleyma að þú hafir lofað þeim fyrir löngu, er bara ánægð að vera búin að fá svoleiðis:-) Svo af því að þú ert svona dugleg, verð ég þá ekki að láta þig líka vita hvað ég er dugleg, ég skúraði allt í gær OG réðst inn á yfirráðasvæði Jobba og þreif klósettið!!!!
-------- Skrifaði eyrunl þann 25.09.03 15:53