september 16, 2003

Helvítis beyglan!

Mig vantar að kunna að bölva meira á dönsku!!! Var nefnilega kellingarbeygla á lestarstöðinni í gær þegar ég var að kaupa mér klipkort. Eins og ég hef tekið eftir þarna inni þá eru nokkrir afgreiðslubásar og fólk fer í röð í e-m ákveðnum bás eins og fólk gerir í verslunum (mér finnst þó gáfulegra þegar það er svona miða system og allir fari í réttri röð en skítt með það). Allavega þá var kona sem var komin inn á undan mér sem var í annari röð en ég, síðan þegar röðin er komin að mér þá ákveður hún að þar sem hún hafi komið inn á undan mér þá fari hún fram fyrir mig í minni röð!! Ég var samt ekki í bestu röðinni því maður sem hafði komið inn á eftir mér hafði fengið afgreiðslu áður en þetta var því hann hafði verið heppinn með röð. Ég varð svo reið að ég held að það hafi sést langar leiðir, að maðurinn sem var fyrir aftan mig fór til hennar og lét hana vita að hún væri nú að troðast. Hún bara sagði "já en ég var sko komin hingað inn á undan!". Öll blótsyrði á dönsku eru því þegin með þökkum, ætla að læra þau utan að svo ég geti nú muldrað vel valin orð næst þegar e-r ætlar að vera með e-r leiðindi.


--------

Skrifaði eyrunl þann 16.09.03 11:21
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?