október 31, 2003

Lambakjöt á diskinn minn!

Vá hvað það var gaman í gær að fá sendinguna frá Íslandi, nánar tiltekið frá Akureyri. Þegar taskan var opnuð kom í ljós að Inga hafði pakkað öllu inn í pakka og sett slaufu á! Við fengum því að opna ca 7 pakka í gær!!! Var nú alveg með því skemmtilegra:-) Fengum alveg RISA læri, lamb islandia krydd svo við gætum nú eldað það almennilega og síðan hníf og kjötgaffal til að við gætum almennilega borið það fram! Eins og þetta hefði ekki verið nóg þá fengum við nú samt ennþá meira, við höfðum óskað eftir siríus súkkulaði með hnetum (bjuggumst við max 2-3 plötum) en neinei, við fengum HEILAN kassa!!! (thíhíhí e-ð fyrir súkkulaðigrísinn mig:-)) Við fengum líka HEILAN kassa af ROSA draumi (sem er ennþá stærri en risa draumur!). Fengum við síðan FULLT af harðfisk og Jobbi fékk Smjörva.
Enn og aftur, TAKK FYRIR OKKUR!!!

Þar sem lærið er nú töluvert of stórt fyrir okkur tvö þá býst ég við að Fjóla og Ingólfur fái að njóta góðs af. Hvenær svo sem það verður á boðstólnum, kannski eftir viku...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:30 FH

október 30, 2003

Jafnréttissinni og feminismi

Er það sami hluturinn??

Nei ég held ekki alveg, ég er allavega harður jafnréttissinni en ég er ekki ennþá búin að gera það upp við mig hvort ég eigi samleið með feministum. Líklegast þó, þrátt fyrir að ég sé ekki alveg að fíla þetta bleika þema hjá þeim.
Stundum argast ég yfir því að hafa fæðst sem stelpa, það virðist vera á brattann að sækja á flestum vígstöðvum. "Eina" jákvæða við að vera kona er að fá að upplifa meðgöngu, fæðingu og brjóstagjöf, en það er engin smá fórn fyrir það því í staðin fara konur á túr einu sinni í mánuði í ca 30 ár!!!!! Er þetta sanngjarnt?!?!?

Af hverju er ég ekki með typpi?!?
Ég óskaði þess svo heitt þegar ég var lítil að ég tók upp á því að pissa standandi eins og frændur mínir! Vakti ekki mikla lukku hjá foreldrunum þar sem kynfæri kvenna henta ekki neitt svakalega vel til að pissa standandi fyrir framan klósettið.
Ekki nóg með að strákar geti pissað standandi og þar af leiðandi næstum hvar sem er og hvenær sem er, sem er algjör lúxus, þá fá þeir hærri laun fyrir að vera með typpi, fá frekar stjórnunarstöður og eru oft taldir "hæfari" starfskraftar því þeir "þurfa ekki" að sjá um heimili eins og konan!! Á femin í vikunni (já ég viðurkenni að lesa femin) kom t.d. fram kona sem lenti í því í atvinnuviðtali að sett var út á það að hún væri ekki með ráðskonu!!! Ég leyfi mér að stórlega efast um að það yrði sett út á það hjá karlmanni þó hann ætti útivinnandi konu, hún myndi að sjálfsögðu sjá um heimilið og börnin þegar hann þyrfti að ferðast á vegum vinnunnar!

Sem betur fer er ég í mjög góðu sambandi að þessu leiti (að öllu heldur að flestu ef ekki öllu leiti en það er kannski ekki málið hérna), er nokkuð mikið jafnvægi á öllu innan veggja heimilisins. En hversu oft hef ég fengið að heyra að þetta sé svona áður en það koma börn, eftir það breytist allt! Er það þess virði þá að eignast börn??

Eins mikið og mig langar að eignast barn, þá get ég líka sveiflast algjörlega yfir á hinn pólinn á ákveðið að ég vilji aldrei nokkurn tímann eignast barn því um leið minnki jafnréttið inn á heimilinu svo mikið. Að sjálfsögðu þarf það ekki að gerast en reynslan sýnir víst að það sé tilhneygingin.

Annað sem angrar mig við að vera kona (já það er sko margt sem angrar mig) er krafan um að kona sé "alltaf" tip top fín og máluð, með bæði strípur og lit og ég veit ekki hvað og hvað. Ef karlmaður er hreinn og í hreinum fötum þá er hann flottur! Svo ég tali nú ekki um spariföt kynjanna, karlar þurfa í raun ekki að eiga nema bara ein jakkaföt og þau geta dugað honum í nokkur ár. Það heyrist nú e-ð ef kona mætir í sama dressinu í bæði brúðkaupin þetta sumarið og skírnina! Fyrir það fyrsta "passar" náttlega ekki sömu föt í skírninni og brúðkaupunum og því er nauðsynlegt að eiga mismunandi fín föt. Síðan ef það eru sömu gestirnir í brúðkaupunum þá er náttúrulega alveg vonlaust að mæta í sama dressinu í bæði brúðkaupin og þá þarf að strunsa aftur í fatabúðir. Mér finnst bara ekkert gaman í fatabúðum!!! (nema H&M hérna úti... þar fæ ég svo mikið af hversdagsfötum sem passa á mig, á góðu verði)

Talandi um fatabúðir, þá eru stærðirnar á fötunum oft e-ð óskiljanlegar (enn og aftur fyrir utan H&M), ég nota yfirleitt (alltaf í H&M) nr. 40 eða Medium, en mér finnst t.d. í orðinu medium liggja að það sé meðalstærð. Hvernig stendur þá á því að ef ég leita mér að gallabuxum þá á ég oft í mestum erfiðleikum að finna buxur sem eru nógu stórar?!?!? Ég veit að ég er ekki í yfirvigt og engin svakaleg feitubolla (þó ég sé nú enginn tannstöngull heldur). Gott dæmi, er þegar ég keypti mér gallabuxur í Vero Moda heima í fyrra. Ég fann stærstu buxurnar á borðinu og viti menn akkúrat mín stærð, máta og þær smellpassa nema þær eru of stuttar. Ég kalla því í afgreiðsludömuna sem ég kannaðist vel við síðan í Flensborg og þegar hún kemur þá spyr hún mig: "Eru þær of litlar, ég get náð í stærri inn á lager!!". Þá spurði ég hana aðeins út í þetta, þá sagði hún að stærri númerin (líklegast 30+) seldust alltaf eins og skot þegar farið væri með það fram. Ætli málið sé þá að hafa það bakvið svo það fari ekki of mikið út af stóru númerunum og þess vegna þurfi ekki að panta eins mikið af því næst?? Þetta er mér alveg hulin ráðgáta.

Ætli þetta sé ekki orðið með því lengsta sem ég hef skrifað hérna, ég býst við að ég gæti haldið lengi áfram en ætla samt að hætta þessu núna.

Eitt í lokin alveg óháð þessu hér að ofan, er jákvætt:-) Við fáum tösku á eftir frá Íslandi með íslensku nammi og lambalæri:-) Ekki lítið sem ég er búin að hlakka til síðan Inga mamma hans Jobba sagðist ætla að senda okkur pakka!! Þúsund þakkir Inga!!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:59 EH

október 29, 2003

Heimsóknir

Nú höfum við ekki fengið neinar heimsóknir í nokkurn tíma þ.a. það er alveg kominn tími til að bæta úr því. Á morgun kemur Ollý til Kaupmannahafnar, hún mun reyndar gista hjá annari vinkonu sinni hérna en ætlar að heimsækja okkur í sveitina á sunnudaginn. Er mikið að velta því fyrir mér hvað eigi að bjóða henni uppá... hvað ætli henni finnist gott að fá... þarf að spá betur í því.

Næsta heimsókn verður síðan eftir 2 vikur, en þá koma mamma og pabbi í helgarferð!!! Get hreinlega ekki beðið eftir að fá mömmu mína, en það er sú manneskja sem ég sakna mest. Fékk hreinlega fráhvarfseinkenni þegar ég flutti og hætti að tala við hana á hverjum degi. Verður því ljúft að fá þau hingað.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:19 EH

október 28, 2003

Nammigerð

Nú er ég að bíða eftir að Fjóla komi niður í skóla því við ætlum að fara að búa til nammi í nammiklúbbnum hérna. Mmmm, hentar fínt fyrir nammigrís eins og mig:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:40 EH

Langur skóladagur

Í gær var ég þvílíkt lengi í skólanum. Var alveg frá 8-16:15! Hef aldrei verið svona lengi í skólanum áður. Kvarta svo sem ekki, var minnstan hluta í fyrirlestrum, heldur var ég í tilraun og í tölvulab tíma. Til að toppa daginn ennþá meira þá lærði ég í allt gærkvöld líka:-) Finnst ég alveg svakalega dugleg:-) Er núna að spá hvort ég eigi ekki að hjóla í skólann... þoli nefnilega ekki að vera í klukkutíma á leiðinni í strætó og þurfa að skipta og alles!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:22 FH | 0 Ummæli

október 26, 2003

Skíðaferð í viku 5

Við erum mikið að skoða skíðaferðir sem við gætum hugsanlega farið í í viku 5. Í viku 5 er nefnilega frí í skólanum, en þetta er vikan á eftir janúar kúrsunum og áður en vorönnin byrjar. Hér er alveg nauðsynlegt að vita hvaða vika er, því ef þú færð að vita t.d. í verslunum hvenær e-ð dót kemur þá segja þeir: þetta kemur í viku 47, en ekki þetta kemur í lok nóvember eins og maður er vanur.

Allavega, aftur að skíðaferðinni, þá erum við búin að finna ferð til Tékklands, kostar 1730dkr með 4 nóttum á Hóteli, hálft fæði, skíðapassi í 5 daga og rútuferð með svefnplássi. Þetta er töluvert ódýrara en það sem við höfum áður verið að skoða og líka töluvert styttra ferðalag. T.d. er skólaskíðaferðin ca helmingi lengra í burtu en það þýðir 24klst í rútu í staðin fyrir hugsanlega ca 12 tíma. Munar um minna. Einnig finnst mér Tékkland mjög heillandi, kom til Prag í 2 daga í Evrópuferðinni minni þegar ég var 18 ára og fannst mjög spennandi. Væri líka alveg til í að fara kannski í dagsferð til Prag en skíðasvæðið er ca 140km frá Prag (kannski er e-ð annað nær sem er áhugavert að skoða þar sem maður gæti fundið verlsanir). Mig langar svolítið í e-n kristal... eigum nefnilega engin vínglös þar sem við gleymdum að pakka þeim niður og fóru þau því bara í kassa í bílskúrinn hjá mömmu og pabba.

Ef e-m finnst þetta spennandi þá væri frábært að fara fleiri saman:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:21 EH | 0 Ummæli

Fondue dinner

Í gærkveldi borðuðum við fondue með Fjólu og Ingó. Eiginlega ekki hægt að segja að við höfum boðið þeim því þau mættu með kjötið með sér. Við (eða þá aðallega ég) sáum um allt annað, meðlæti, sósur og fondue pottinn. Önnur eins eldamennska hefur varla sést. Ekki að hún hafi verið e-ð flókin, sem hún einmitt er ekki heldur var ég byrjuð að búa til sósuna klukkan 4!!! Nýtt met hjá mér held ég. Þegar þau fóru þá vorum við búin að innbyrða 3 rauðvínsflöskur, 4 bjóra og 4 glös af Passoa (strákarnir áttu bjórana en við Fjóla passoað). Var alveg svaka stuð hjá okkur og við fórum í Actionary/Pictonary þar sem við Jobbi unnum:-) Byrjuðum á að bruna framúr þeim, síðan fengu þau að gera og náðu næstum að klára spilið áður en komumst næst að. Síðan skeiðuðum við upp völlinn og náðum að sigra!!!

Aðrar fréttir eru þær að núna er sumartíminn búinn svo við erum bara einni klst á undan klukkunni á Íslandi. Var ekki slæmt að græða eina klst í morgun:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:59 FH | 0 Ummæli

október 25, 2003

Vetur genginn í garð

Djöfull er orðið kalt hérna!!! Á morgnana er frost þ.a. það þarf að skafa af bílunum, við eigum náttlega engann bíl þ.a. við sleppum við það (er að reyna að sjá jákvæða hlið á að eiga ekki bíl...) en í staðin þurfum við að labba í strætó og á meðan dettur nefið á manni næstum af!!!! Ef maður opnar útidyrahurðina þá verður eins og inni í frystiklefa inni í íbúðinni!! Ætli gammósínur verði ekki daglegt brauð fljótlega...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:06 FH | 0 Ummæli

október 24, 2003

Tilraunastarfsemi

Er smá tilraunastarfsemi í gangi í eldhúsinu en við erum að steikja heilan kjúkling. Hingað til hefur það verið mjög einhæft, hann kryddaður með kjúllakryddi eða season all en núna er ekkert elsku mamma neitt. Núna bjó ég til kryddsmjör sem ég tróð undir húðina!!! Var með því subbulegra sem ég hef gert í eldhúsinu en kemur í ljós á eftir hvort það heppnist vel. Það sem ég þoli ekki við kjúkling er hvað maður þarf að elda hann lengi, nú er ég alveg að deyja úr hungri og tæpur klukkutími í matinn!!

Annars er ósköp ljúft að vera komin í helgarfrí:-) Markmiðið fyrir þessa helgi er að vera komin á fætur ekki allt of seint. Hvað allt of seint er, er síðan skilgreiningaratriði;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:24 EH | 0 Ummæli

Mogginn í fokki

E-ð hafa þeir á Mogganum verið að fikta núna. Allir íslensku stafirnir eru í tómu tjóni. Það sama hefur oft gerst á íslenskum bloggsíðum þegar fólk velur vitlaust encoding.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:03 EH | 0 Ummæli

október 23, 2003

Nafn á prinsinn

Litli snáðinn þeirra Lindu Rósar og Sigga er komin með nafn! Hann heitir Þorbergur Níels í höfuðið á föðurafa sínum. Til hamingju með nafnið!!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:00 EH | 0 Ummæli

Allsherjar tiltekt

Þegar ég loksins gat drattast á fætur í morgun (varla að það hafi verið morgun lengur) þá ákvað ég að reyna að vera svakalega dugleg áður en Jobbi kæmi heim. Setti í 4 þvottavélar, fór með rusl upp í gám og lét garðstólanum upp á háaloft ásamt því að taka til. Þegar Jobbi kom svo heim héldum við áfram að vera dugleg og erum núna búin að ganga frá svaka miklu dóti, fullt farið upp á loft og herbergið er ekki lengur alveg eins og ruslakista:-) Vei!! Nú er bara að vera þolinmóður þar til við getum keypt annað skrifborð til að klára endanlega þetta herbergi. Annars vantar svolítið mikið ljós hérna, erum bara með 2 lampa en ekki enn búin að kaupa loftljós. Erum að spá hvort við eigum ekki bara að færa ljósið úr svefnherberginu hingað því það er hvort eð er ekkert rafmagn í dósinni í svefnherberginu. Bjánalegt að vera bara með ljós hengt upp í öðru herberginu og akkúrat í því þar sem það virkar ekki!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:38 EH | 0 Ummæli

Gleymdi að taka fram aðalatriðið...

Mér finnst alltaf svaka gaman að leyfa öðrum að vita hvað ég get stundum verið dugleg:-) Áðan sagði ég frá IKEA ferðinni okkar góðu en það sem ég gleymdi alveg að segja var hvernig við komum dótinu okkar heim! Eins og ég hef áður skrifað um þá ferðumst við mikið með almenningssamgöngum hér í Danmörku. Þótti okkur því við hæfi að reyna að dröslast í strætó með borðið (32kg flatur stór kassi), stólinn (13kg aðeins minni kassi) og allt hitt dótið (glerkrukkur, jólakökudallar, jólapappír + fylgihluti, öskjur, brauðbretti o.fl.). Við komumst heim með dótið alveg slysalaust og nokkuð stolt að hafa getað sparað tæpar 300dkr sem hefði annars farið í flutning á dótinu með BIBO :-).

Dem, ég ætlaði að fara að sofa þegar ég hætti að tala við Margréti fyrir miðnætti en núna er klukkan farin að ganga 2 og ég ekki enn farin að sofa! Það er kannski allt í lagi, ég þarf ekkert að mæta í skólann á morgun, ekki frekar en í dag:-) Best að koma sér í háttinn, svo maður vakni hugsanlega fyrir hádegi á morgun.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:13 FH

október 22, 2003

IKEA vei!!!!!!

Í IKEA er gaman, það leika allir saman, leika úti og inni og allir eru með.... trallalallala
Með mikilli tilhlökkun fórum við í IKEA í dag. Ætluðum að reyna að finna okkur skrifborð í litla herbergið sem við gerðum. Ákváðum þá að það væri náttlega svakalega sniðugt að kaupa 2stk þar sem þau kostuðu sama og ekki neitt (399dkr). Það var samt náttlega bara til eitt stk!!! Týpískt við óheppin!!
Þá vantaði okkur líka nýjan skrifborðsstól því Jobbi vildi ekki taka minn gamla með, bara sinn!!! Honum fannst minn ljótur!!!! Haldiði að það sé móðgun, ég sem er búin að eiga þennan stól í tæp 15 ár og búin að ganga í gegnum súrt og sætt með honum! Völdum okkur voða fínan stól sem hægt var að fá með mismunandi áklæði á bakinu. Mér fannst ljóst bak flottast og fékk ég engin mótmæli við því. Á lagernum kom hins vegar í ljós að það þurfti að panta þann stól en hinir voru allir til. Jobbi kom þá alveg með snilldar setningu: "Verðum við þá ekki bara að kaupa svarta?", kom þá í ljós að honum langaði miklu meira í svarta stólinn!!

Nú er bara eftir að setja saman skrifborðið og stólinn og bíða svo bara þangað til annað skrifborð kemur. Verðum þá alveg með nóg pláss til að læra!:-) Annars var ég soldið sniðug í dag í IKEA þegar við vorum að velta þessu fyrir okkur. Sagði við Jobba að það væri náttlega algjör snilld að kaupa 2 eins skrifborð. Hann skildi ekkert af hverju en ég var sko alveg með útskýringu á hreinu. "Sko, þegar við verðum komin með börnin 2 þá geta þau fengið eins borð!!" Þá var akkúrat ein kona að labba framhjá sem brosti soldið mikið akkúrat þegar ég sagði þetta, er að spá hvort hún hafi kannski verið Íslendingur! Annars verða þessi borð nú kannski bara einstaklega hallærisleg loksins þegar við verðum komin með börn þ.a. þetta virkar örugglega ekkert...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:38 EH | 0 Ummæli

október 21, 2003

Trúarumræða

Seint munu allir menn verða sammála þegar kemur að trúarumræðu. Undanfarið hefur verið nokkuð kröftug umræða um trú/trúleysi og síðast en ekki síst trúfrelsi á nokkrum íslenskum bloggsíðum. Á Örvitanum tók ég t.d. aðeins þátt í nokkrum skoðanaskiptum og þá aðallega við Halldór nokkurn sem ég er held ég að öllu leyti ósammála. Hann vill hafa trúboð á leikskólunum og alls ekki aðskilnað ríkis og kirkju. Hvað er sanngjarnt við að aðskilja EKKI ríki og kirkju??? Í 65. grein í 6. kafla stjórnarskrárinnar stendur orðrétt:

Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Ég get ekki skilið hvernig það stenst að allir séu jafnir fyrir lögum án tillits til trúarbragða þegar þjóðkirkjan fær miklu meiri pening en öll önnur trúfélög. Hins vegar get ég vel skilið að biskupinn vilji ekki aðskilnað því það myndi þýða minni pening fyrir kirkjuna og hver vill sjálfviljugur minni pening í vasann?? Nei, í staðinn vill hann rýmka kirkjulagaramman til að tryggja tekjustofninn eins og hann sagði á kirkjuþinginu:


?Ég er ekki hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju og þjóðkirkjan er ekki að biðja um hann. Ég er þeirrar skoðunar að auka skuli enn frekar frelsi þjóðkirkjunnar með því að rýmka ramma kirkjulaganna, og ljúka samningum milli ríkis og kirkju til að tryggja tekjustofna hennar svo hún geti brugðist við kröfum tímans og sinnt betur skyldum sínum við þjóðina, sem biðjandi, boðandi, þjónandi kirkja.?

Fyrir kosningarnar í vor gleymdi ég alveg að athuga hvaða stjórnmálaflokkar styðja aðskilnað ríkis og kirkju! Ég sem vil aðskilnað ekki seinna en í gær!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:04 EH | 0 Ummæli

október 19, 2003

Movable Type í Operu eða Mozilla

Arrrrgg!!! Þegar ég opna nýju síðuna mína í annað hvort Operu eða Mozilla þá er eins og síðan finni ekki CSS skjalið! Virkar fínt í IE. Ekki sátt!!:(


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:01 EH

Niðursokkin í MT

Ekkert smá sem ég er búin að liggja í tölvunni undanfarna dag. Það sem meira er, þá er ég varla búin að browsa netið neitt. Ég er nefnilega búin að vera svo upptekin að koma mér upp nýrri síðu í Movable Type, það gengur líka bara þokkanlega. Er búin að vera að búa mér til gestabók í dag og er hún tilbúin. Á hins vegar eftir að þýða villumeldingar, er nú ekki alveg sú brattasta í þýðingunum. Svo er bara spurning hvenær ný síða fer í loftið, fer allt eftir því hvenær við munum eftir því að fara og tala við Netværksudvalget til að gefa okkur heimasvæði hérna á kollegíinu.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:38 EH

október 18, 2003

Popplagt stofugólf

Já gólfið var ekki teppalagt í gær, það var popplagt. Fjóla og Ingólfur voru í heimsókn hjá okkur í gærkveldi til að geta horft á Stjerne for en aften og var ég alveg svakalega dugleg að poppa handa okkur. Þegar ég kem með 2 skálar inn í stofu þá sleppi ég annari áður en hún er komin á borðið og *splass* hún fer í gólfið (sem betur fer plastskál). Var ekki lítið hlegið að mér þarna!! Næstum því jafn mikið og að einum þátttakandanum í sjónvarpsþættinum. Það var karlmaður sem söng eins og kona!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:38 EH | 0 Ummæli

október 17, 2003

Nýr fjölskyldumeðlimur

Jújú, nú er ný fjarstýring flutt inn á heimilið og þvílíka hamingjan. Síðan fjarstýringin okkar dó um daginn hefur verið afspyrnu leiðinlegt að hækka/lækka, skipta um stöð og hvað þá að skipta af sjónvarpi yfir á DVD/Video. Í einum auglýsingabæklingi þessa vikuna var auglýst fjarstýring mjög svipuð einni sem við höfðum skoðað á 300dkr nema þessi var auglýst á 59,95dkr þ.a. við skelltum okkur á hana. Þessi fjarstýring virkar á öll tækin okkar sem er nokkuð gott og þó hún geti nú ekki gert allt sem gamla fjarstýringin gat á magnarann þá erum við samt bara sátt:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:46 FH | 0 Ummæli

október 16, 2003

Búin að kaupa far heim!!

Þá erum við búin að kaupa okkur far heim um páskana, komum heim 2. apríl og förum aftur út 12. apríl. Veit það er svolítið langt þangað til en við erum svo miklir nískupúkar að við tímum sko ekki að borga of mikið fyrir farseðlana. Svo finnst mér algjör snilld að frá og með 1. apríl skulu IcelandExpress fljúga 2svar á dag á milli þ.a. við völdum að fara heim á föstudagskvöldinu í staðin fyrir á hádegi á laugardegi.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:39 EH | 0 Ummæli

Dýragarðurinn og Carlsberg safnið

Fórum í gær í Dýragarðinn og í Carlsberg safnið með Ingólfi og Fjólu. Við skemmtum okkur konunglega í Dýragarðinum, hlógum eins og vitleysingar að mörgæsunum, tróðum okkur inn í kanínugöngin og klöppuðum geitunum. Í Carlsberg safninu fengum við 2 miða sem við gátum skipt fyrir drykki á barnum. Ég fékk mér bjór, drakk reyndar ekkert svakalega mikið af honum en drakk samt alveg nokkuð marga sopa, smakkaði minn, Jobba og Fjólu en við fengum okkur öll sitt hvorn bjórinn. Er alveg þvílíkt stollt af mér því þetta var það mesta sem ég hef drukkið af bjór:-) Ég endaði hins vegar á því að fá mér bara Tuborg Squash sem er e.k. appelsínugos. Eftir þetta fórum við enn og aftur í Fiskitorgið, fengum okkur enn og aftur að borða á Pizza Hut (3ja skiptið hjá mér á einni viku!) og fórum svo í bíó. Þetta var fyrsta bíóferð okkar Jobba hér í Danaveldi en við fórum að sjá Bad Boys II.
Í morgun svaf ég síðan bara eins og sveskja næstum fram að hádegi, var alveg rotuð.
Núna er ég að bíða eftir að IcelandExpress byrji að selja farmiða fyrir tímabilið apríl-október því þá ætla ég að panta miða heim um páskana (byrja að selja eftir rúman klukkutíma). Fólki getur hugsanlega þótt það undarlegt að við ætlum að koma heim um páskana en ekki um jólin en þannig er nú bara mál með vexti að Fríða Rakel systir mín er að fara að fermast og okkur langar að vera í veislunni (ég get varla sleppt tilboði um að borða kransaköku!!).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:46 EH | 0 Ummæli

október 14, 2003

Draugur í græjunum

Við erum farin að halda að það sé e-r draugur í græjunum sem eru inni í litla herbergi. Um daginn var ég í tölvunni og þá allt í einu kveiknaði á græjunum og geislaspilarinn fór í gang (græjurnar voru stilltar á VIDEO til að heyra úr tölvunni). Síðan í gærkveldi þegar við fórum til Fjólu og Ingó þá var kveikt á græjunum en ekkert í gangi í þeim. Þegar við komum heim þá var slökkt á græjunum!!!
Reyndar gæti nú líka verið og hugsanlegra líklegra að það sé e-r fjarstýring í næstu íbúð sem nær að fikta svona í græjunum okkar. Talandi um fjarstýringu þá er fjarstýringin okkar að sjónvarpinu og magnaranum dáin þ.a. nú þurfum við að standa upp til að hækka/lækka eða skipta um rás, textavarpið virkar ekki og allt í tómu tjóni:-( Hún hætti bara allt í einu að virka og það sem verra er þá er líka upprunanlega fjarstýringin að sjónvarpinu ónýt (þessi sem var að deyja var forrituð þ.a. hún virkaði fyrir öll tækin) þ.a. ef við fáum okkur nýja svona fjarstýringu þá getum við ekki forritað hana fyrir sjónvarpið okkar. Erum því líka búin að vera að skoða öll stóru sjónvörpin því okkur langar svo mikið í stórt sjónvarp (42" plasma sjónvarp er rosalega flott eeeeeennnn hugsanlega aðeins of dýrt!)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:51 EH | 0 Ummæli

Búðarráp

Í gær vorum við alveg svakalega dugleg, fórum og skoðuðum næstum allar búðir í Fiskitorginu, keyptum ekkert svakalega mikið en er búin að fá einhverjar hugmyndir að jólagjöfum. Svo þar sem að ég vissi að það væri byrjað að selja jólaskraut í IKEA þá fórum við þangað á leiðinni heim og keytpum nokkrar kúlur á jólatréð. Úr því að við vorum komin í Gentofte þá skoðuðum við líka aðeins í Elgiganten (=ELKO). Jobbi var alveg alsæll með þetta búðarráp því við grandskoðuðum næstum hverja eina og einustu raftækjabúð sem við sáum.
Fórum síðan í köku og meira LOTR RISK í gærkveldi hjá Fjólu og Ingólfi, svaka gaman.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:24 EH | 0 Ummæli

október 12, 2003

Reykskynjarauppeldið

Uppeldisaðferðir komu til tals núna áðan hjá okkur Jobba eftir að hann nennti ekki að spila lengur. Hann hótaði mér sem sagt að setja reykskynjarann í gang (hann er ennþá á eldhúsborðinu, ekki kominn í loftið) ef ég hætti ekki að suða um annað spil. Ég sagði að ég væri bara að láta eins og krakki sem hætti ekki að suða, hann sagðist þá ætla að sína mér að krakkinn myndi sko ekki komast upp með neitt suð!! Hann gæti bara sett reykskynjarann í gang í hvert sinn sem krakkinn myndi suða! Sem sagt, við erum hætt að spila þar sem ég gat nú ekki hugsað mér að vekja krakkana í næstu íbúð til að komast svo kannski að því að það myndi ekki einu sinni duga til að fá annað spil...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:06 EH | 0 Ummæli

Ringenes Herre RISK

Þar sem við nenntum ekki að horfa á enn eina bíómyndina í gær þá buðum við okkur bara í heimsókn til Fjólu og Ingólfs til að spila. Var dregið fram Ringenes Herre RISK sem er eins og nafnið gefur til kynna Hringadróttins hættuspilið á dönsku! Þegar þau loksins voru búin að ná að troða leiðbeiningunum á okkur inn í hausinn um hálf ellefu gat spilið loksins byrjað. Við spiluðum því langt fram á nótt og var líka sofið út í morgun. Ingólfur var sigurvegari kvöldsins með fleiri stig en við hin til samans! Munum án efa spila þetta aftur, þetta var svaka fjör.

Nú erum við bara að bíða eftir því að formúlan verði endursýnd og er því svolítið erfitt að vera á netinu því við viljum ekki sjá úrslitin. Þó allar líkur séu á að M. Schumacher vinni enn einu sinni þá heldur maður samt í vonina um að Raikkonen taki þetta. Við vorum með svaka plott í gærkveldi, Coultard myndi keyra Schumacher út úr brautinni, Raikkonen vinna keppnina og BMW Williams myndu vera ofarlega þ.a. Ferrari fengi hvorugan titilinn! Ekki að maður sé neitt mjög bjartsýnn þá má maður alltaf vona, ekki satt? :-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:20 EH | 0 Ummæli

október 11, 2003

Klaufi aldarinnar

Ef ég er ekki MESTI klaufinn þá veit ég ekki hvað!! Ég gleymdi nefnilega alveg að segja frá því þegar við Fjóla vorum að fara í fiskitorgið. Til að komast inn þarf maður að fara í gegnum svona hringhurð eins og er í bæði Smáralindinni og Kringlunni. Við Fjóla erum sem sagt bara í góðu glensi að labba á lúsarhraða þarna í gegn og spjalla saman. Síðan þegar ég held að þetta sé nú loksins búið þá labba ég af stað, nema að við vorum ennþá innilokaðar og ég labbaði því á hurðina!!!!! Það fyndna er samt eiginlega að ég gerði þetta líka í sumar/vor þegar ég fór einu sinni í Smáralindina með Margréti systir. Ég er greinilega ekki að höndla það að tala og labba í gegnum svona hringhurðir!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:20 EH | 0 Ummæli

Kaka helgarinnar

Var svaka dugleg og bakaði eplaköku áðan sem við Jobbi borðuðum með bestu lyst með ísnum sem við áttum í frystinum. Svo verðum við ekkert svakalega frumlega í kvöld því það verða bara hamborgara eins og í gærkveldi...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:13 EH | 0 Ummæli

Afmælisbarn dagsins

Til hamingju með fjórðunginn úr öldinni Ingibjörn!!! Ef Helga Björt væri ekki svona hrikalega upptekin þá hefði verið upplagt að heilsa upp á ykkur!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:19 FH | 0 Ummæli

október 10, 2003

100 atriði um mig

Þar sem ég er komin í haustfrí þá hef ég nægan tíma til að fatta upp á 100 atriðum um mig, spurning hvort ég nái samt að fylla listann??

1. Ég fæddist 7. júní 1979
2. Ég fæddist í Reykjavík
3. Ég breytti um eftirnafn áður en ég fermdist
4. Ég er bæði skírð og fermd
5. Ég trúi samt ekki á guð eða jesú
6. Ég olli usla í fjölskyldunni þegar ég skráði mig úr kirkjunni
7. Ég er Gaflari
8. Ég bjó samt í 2 ár í Reykjavík á Stúdentagörðum, það var samt bara tímabundið og engir lögheimilisflutningar
9. Ég var í 3 grunnskólum (Víðistaðaskóli, Lækjarskóli og Setbergsskóli)
10. Ég tók stúdentinn frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði
11. Ég var skiptinemi í Sviss þegar ég var 17 ára
12. Ég fékk bílpróf þegar ég var 18 ára
13. Ég er með B.Sc. í Rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands
14. Ég bý í Danmörku
15. Ég er í mastersnámi í DTU
16. Ég bý á sama kollegíi og Fjóla
17. Ég á 5 yngri systkini
18. Ég á æðislega foreldra þó mér hafi nú ekki alltaf fundist það þegar ég var á gelgjunni
19. Ég var ÓÞOLANDI á gelgjunni!!
20. Ég á mömmu sem er kennari
21. Ég á pabba sem er tölvunarfræðingur
22. Ég á systir sem flugmaður
23. Ég á tvær ömmur og einn afa á lífi
24. Ég sakna Gísla afa, hann dó 1999
25. Ég er í sambúð með Jobba
26. Ég er erfið í sambúð
27. Ég er samt alveg æðisleg oftast:)
28. Ég er nammigrís
29. Ég gæti borðað heilt súkkulaðifjall
30. Mér finnst líka hlaup svakalega gott
31. Ég poppa rosalega oft, það er ekki eins fitandi.
32. Ég borða helst vanilluís
33. Mér finnst samt frostpinni besti ísinn
34. Ég þoli ekki að vaska upp
35. Mér fer fram í eldamennskunni
36. Mér finnst gaman að baka, sérstaklega að borða það sem ég hef bakað
37. Mér finnst íslenskt lambakjöt með því betra
38. Mér finnst líka pizza með miklu og góðu áleggi góð
39. Ég borða ekki banana
40. Ég drekk ekki mjólk beint úr glasi
41. Ég vil ekki borða slátur
42. Ég vil heldur ekki borða svið
43. Ég er sóði:S
44. Ég er samt duglegri hér í Danmörku að halda hreinu, vil ekki hafa allt í pöddum
45. Ég er hrædd við geitunga
46. Ég er líka hrædd við flugur sem minna á geitunga (eins og hungangsflugur)
47. Ég er ekki hrædd við köngulær
48. Ég skil ekki hvernig er hægt að vera hræddur við köngulær, þær geta ekki einu sinni gert neitt
49. Ég var í kór
50. Ég söng alt en gat það varla og hætti
51. Ég söng síðan tenór og gekk miklu betur
52. Mér finnst gaman að ferðast
53. Ég hef farið til útlanda á hverju ári og stundum oftar síðan ég var í Sviss
54. Mér finnst gaman að prjóna
55. Mér finnst gaman að sauma
56. Mér finnst líka gaman að flestri handavinnu
57. Ég er jafnréttissinni
58. Ég vil ekki að konur fái sérmeðferð af því að þær séu konur
59. Ég vil heldur ekki að kona fái e-ð ekki af því að hún er kona
60. Ég fékk snjóbretti síðasta vetur
61. Ég datt illa og hélt ég væri rófubeinsbrotin
62. Ég er hrædd á snjóbrettinu eftir þetta
63. Ég er algjör klaufi
64. Ég er Bónerfélagi
65. Ég er í nokkuð samheldnum vinkonuhóp
66. Ég er búin að þekkja hina bónerfélagana síðan í grunnskóla
67. Ég er nálægt því að vera netfíkill
68. Ég reyni samt að hemja mig í tölvunni
69. Ég keypti mér fartölvu í febrúar 2001
70. Ég keypti næstum dýrustu tölvuna á markaðinum
71. Ég sé ekki eftir því, hún virkar enn mjög vel
72. Ég er samt oftast í borðtölvunni og Jobbi í fartölvunni
73. Ég er ekki dugleg að hreyfa mig:(
74. Ég er samt duglegri núna, því ég hjóla stundum í skólann
75. Mér finnst gaman að fá útrás í hópíþróttum, fæ bara sjaldnast að vera með því ég er ekki með typpi og það eru oftast strákar sem eru í svona íþróttum.
76. Ég var á fullu í íþróttum þegar ég var yngri
77. Ég æfði sund í nokkur ár með SH
78. Ég æfði síðan handbolta í nokkur ár með FH
79. Ég var í djassballet í eitt ár og í fimleikum í eitt ár þegar ég var enn yngri.
80. Ég fékk byrjunareinkenni af anorexiu þegar ég var að æfa sund
81. Ég hef ekki verið nálægt því að fá átröskunarsjúkdóma síðan
82. Ég á 2 uppáhalds sjónvarpsþætti, þ.e. Friends og 24
83. Ég horfi annars ekki mikið á sjónvarp
84. Ég sofna oftast fyrir framan sjónvarpið
85. Ég sef líka mjög oft í bíl
86. Ég sef aldrei kyrr
87. Ég gæti líklega gefið út bók með fáránlegum draumum sem mig hefur dreymt
88. Ég vil hafa myrkur þegar ég sef
89. Ég er myrkfælin
90. Ég get verið algjör lestrarhestur
91. Ég fer oft inn í bækur þegar ég er að lesa og ekki hægt að ná sambandi við mig
92. Ég er góð í stærðfræði, hef aldrei fengið undir 9.
93. Mér finnst líka gaman í stærðfræði
94. Ég þoli ekki kjaftafög
95. Ég er ekki eins góð í tungumálum
96. Ég kann ekki að teikna
97. Ég er með krullað hár
98. Ég er dökkhærð og lita ekki á mér hárið
99. Ég geng með gleraugu
100. Ég nota skó númer 42

Váá, þetta var nú minna mál en ég hélt það yrði, hefði getað haldið e-ð áfram.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:11 EH | 0 Ummæli

Kartöflufrí... öðru nafni haustfrí

Nú erum við farin í 9 daga frí í skólanum sem á rætur sínar að rekja til þess að börn þurftu að hjálpa foreldrum sínum að ná upp kartöfluuppskerunni. Fyrir okkur er þetta bara afslöppunarfrí og munum við örugglega ekki gera neitt mikið, spurning hvort við förum ekki e-ð að skoða í búðir, væri ágætt ef maður gæti byrjað að finna e-rjar jólagjafir, ætla að reyna að koma þeim heim í nóvember þegar pabbi og kannski mamma koma hingað til okkar.
Annars var ég að panta mér handavinnu á netinu, verst að ég á ekki eftir að fá það fyrr en eftir haustfríið, annars hefði ég getað legið yfir jóladótinu. Ég pantaði dúk undir jólatréð, dúk á stofuborðið og skraut á jólatréð. Allt dótið er felt frá Bucilla sem er alveg soldið mikið maus en líka rosalega flott. Mun samt aldrei ná að klára allt þetta fyrir jól en það koma önnur jól eftir þessi jól:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:29 EH | 0 Ummæli

október 09, 2003

Kjúklingaháls í matnum okkar!!!

Það er nú samt ekki alveg eins slæmt og fuglahausarnir sem voru bornir á borð með gogg og alles í Kína! Ég er samt svo klígjugjörn að ég vil sko ekki sjá háls í matnum mínum þ.a. núna er Jobbi frammi í eldhúsi að reyna að gera kjúklingabitana Eyrúnuhæfa. Ég keypti þennan kjúkling um daginn og var bara nokkuð sátt með að kaupa heilan kjúkling bitaðann í bita og meira að segja kryddaðann. Bitarnir eru eins og í Kína bara höggnir e-n veginn og e-n veginn þ.a. það er ekkert endilega bringa, læri, leggur og vængur, heldur bara hluti af bringu ásamt hluta af læri eða væng!! Ef maður spáir í því, þá er vængur líka alveg viðbjóðslegt, ójjjjj, ekki alveg viss um að ég leggi í að borða svoleiðis á næstunni aftur, fyrir utan að vera náttlega eiginlega alveg matarsnautt.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:17 EH

Ryksugan á fullu, étur alla drullu, trallalallalalla

Dustaði rykið af ryksugunni og leyfði henni að púla smá. Er búin að vera alveg soldið mikið dugleg þó ég hafi nú ekki alveg verið að gera það sem ég ætlaði upphaflega. Ætlaði að læra en það verður bara gert í hreinu íbúðinni í kvöld í staðinn:) Bara litla herbergið eftir en þar er allt á rúi og stúi, skil ekki þetta drasl sem safnast fyrir þar.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:37 EH | 0 Ummæli

Nýjar myndir

Það eru komnar nýjar myndir á myndaalbúmið okkar Jobba frá því í gær. Svaka stuð! Ég náði meira að segja mynd af lásý kossinum sem Mary fékk á handarbakið:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:44 FH | 0 Ummæli

október 08, 2003

Hans Adolfarnir eiga afmæli í dag!!

Til hamingju með daginn elsku besti bróðir minn og frábæri afi minn!!!!! Veit nú ekki alveg hvort afi eigi eftir að sjá þetta en við verðum bara að vona það besta. Hans Adolf litli sæti bróðir minn er 7 ára í dag og gáfum við systkinin honum nokkuð stóra bílabraut í afmælisgjöf sem við Margrét keyptum á meðan hún var hérna hjá okkur. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var sá stutti í skýjunum með gjöfina og flugmóðurskipið sem hann fékk frá mömmu og pabba féll víst alveg í skuggann. Á nú eftir að fá að heyra í afmælisbarninu en mamma ætlar að hringja á eftir, get varla beðið, er svo langt síðan ég heyrði í henni síðast. Væri nú alveg til í að vera heima í afmæliskaffi núna en ég hef nefnilega ekkert svo oft verið í afmæli hjá honum, ég bjó í Sviss þegar hann fæddist, hef tvisvar verið í Englandi þegar hann hefur átt afmæli og er núna í Danmörku og krakkinn er bara orðinn 7 ára!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:27 EH | 0 Ummæli

Konungleg trúlofun og konunglegt veif

Við Fjóla gerðumst algjörir plebbar í dag og fórum að horfa á Friðrik krónprins og Mary Donaldsen veifa á svölum Amalienborgar. Við vorum bara alveg nokkuð nálægt og náðum við alveg sæmilegustu myndum sem koma von bráðar í myndaalbúmið okkar. Þegar þau komu fram á svalirnar vantaði alveg að prinsinn gæfi tilvonandi konu sinni eins og einn koss, þó ekki væri nema bara á kinnina. Hann kyssti hana aðeins einn á handarbakið!
Allt sjónvarpið er núna að sjálfsögðu undirlagt undir þetta og verður örugglega alveg næstu daga líka.

Þegar Friðrik og Mary komu fram á svalirnar til að veifa fólkinu var alveg greinilegt hverjir voru æfðir í konunglegu veifi og hverjir ekki, held það hafi verið það eina sem vantaði smá upp á hjá Mary í dag en hún talaði meira að segja á dönsku á blaðamannafundinum eins og Mogginn er meira að segja búinn að segja frá. Talandi um Moggann þá keypti ég eitt svoleiðis eintak á Hovedbanegård á leiðinni heim:-)

Eftir veifið á Amalienborg fóru Friðrik og Mary til Fredensborg Slot að borða með foreldrum sínum en við Fjóla fórum þá í Fiskitorgið í staðinn úr því að okkur var ekki boðið í matinn með þeim. Gerðum svo sem ósköp fátt merkilegt þar nema bara rétt að skoða okkur um og fá okkur svo að borða á Pizza Hut. Er núna alveg frekar lúin eftir allt labbið í dag, ætla samt að fá mér ís og restina af íssósunni sem við bjuggum til í gær (brætt mars blandað með rjóma ala Inga tengdó, mmmmm).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:01 EH | 0 Ummæli

október 07, 2003

Kaup Elsam á NESA

Tjaaa... ég er nú ekki alveg búin að koma mér nógu vel inn í þessi mál en e-ð hlýtur nú samt að vera bogið við þetta. Í fyrsta lagi er ekki ennþá vitað hvort Elsam fái að kaupa NESA þar sem Elsam er að framleiða rafmagn en NESA að flytja rafmagn og skv. raforkulögunum hér í Danmörku (alveg eins og heima á Íslandi) má framleiðslan og flutningurinn ekki vera undir sama hatti. Það var einmitt þess vegna sem ég vann ekki hjá Landsvirkjun, heldur Landsvirkjun - Flutningssvið síðasta mánuðinn heima. Ef ég skyldi kennarann í dag rétt þá vilja þér fá e-s konar lagabreytingu til þess að þetta gæti gengið!!! E-ð meir en lítið bogið.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:35 EH | 0 Ummæli

Danmarks nye popstjerne

Popstar vikunnar er búinn og var Sara rekin heim núna. Ég segi nú ekki annað en loksins, ég vildi að hún hefði farið heim síðast en það gekk ekki alveg, hún rétt slapp. Annars kom upp tilgáta í síðustu viku hver af þeim sem væri í farezone myndi verða sendur heim. Þannig er nefnilega að kosið er í símakosningu og allir nema 3 efstu komast áfram í næstu viku. Einum af þessum þremur bjarga síðan dómararnir en hinir tveir/tvær/tvö þurfa að syngja aftur og aftur símakosning um þau. Fjóla og Ingólfur sögðu í síðustu viku að sá sem syngi á undan kæmist áfram því það væri meiri tími til að kjósa þann aðila (kosningu líkur strax á eftir að báðir eru búnir að syngja). Í síðustu viku stóðst þetta en núna þá hafðist Önnu-Sophie að komast áfram þó hún væri á eftir að syngja. Húrra fyrir því:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:31 EH | 0 Ummæli

október 06, 2003

Ekki lengur gardínulaust:-)

Nú eru komnar gardínur fyrir alla glugga hjá okkur:-) Þvílíka hamingjan!! Reyndar á e-ð eftir að breyta gardínunum í svefnherberginu, annað hvort fáum við okkur nýja rúllugardínu eða þurfum að stytta þessar sem við erum með. Gengur víst ekki að láta gardínurnar vera yfir ofninum, þá gerir ofninn nú frekar lítið gagn og eins og það eru nú mikil þörf fyrir hann. Nú á "bara" eftir að hengja upp myndir á veggina en við erum meira að segja búin að kaupa ramma utan eina mynd sem við keyptum í Kína í fyrra!! Framtakssemin er bara næstum að fara með okkur;) Annars á ég nú stutt að sækja framtaksleysið... þó gömlu hjónin vilji nú ekki endilega viðurkenna það þá held ég að fjölskyldan á Fagrabergi 22 eigi met í framtaksleysi. Hvaða önnur fjölskylda hefur keypt eldavélaviftu og haft hana í bílskúrnum í 8 ár áður en hún var sett upp!!!! Væri gaman að heyra ef e-r gæti toppað þetta??


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:10 EH | 0 Ummæli

Rafmagnað vandamál og fyrsta gardínan

Uhuuuhuu:'( Við búin að vera rosa dugleg og áorka því að hengja upp ljósið í svefnherberginu en þegar við tókum fram fjölmælinn til að athuga hvernig við ættum að tengja snúruna þá komumst við að því að það kemur bara ekkert rafmagn úr blessaðri dósinni!! Því er mál að senda inspektornum á kollegíinu póst og kvarta yfir þessu og vonast til að það verði gert við þetta áður en við flytjum út. Hér gengur nefnilega allt frekar hægt fyrir sig, það tekur t.d. rúma viku að skipta um eldhúsinnréttingu í hverri íbúð því þeir vinna bara ca 2 tíma á dag í hverri íbúð!!!! Á meðan þarf fólk bara vaska upp inni á baði og svoleiðis skemmtileg heit auk þess að vera með allt á hvolfi í rúma viku!

Við gátum samt komið upp gardínunni í eldhúsinu þ.a. nú erum við ekki til sýnis á kvöldin fyrir fólkið sem labbar framhjá. Eigum ennþá eftir að hengja upp gardínurnar í stofunni en þær koma nú fljótlega:-) Eigum bara eftir að skila einni gardínunni og fá aðeins breiðari... talandi um að skila, ég held að fólkið í skila deildinni í IKEA fari að þekkja mig, ég er næstum búin að skila oftar og meiru heldur en ég hafði á ævi minni gert áður en við fluttum hingað. Sem er einstaklega skemmtilegt í ljósi þess að ég hef alltaf þurft að dröslast til baka með það sem ég ætla að skila í strætó!!!

Víst ég minntist á strætó þá er ekki úr vegi að minnast aðeins á bíla en það er einmitt vegna bílleysis sem við notum strætó svona óskaplega mikið. Við höfum mikið fengið að heyra að bílar séu dýrir í Danmörku og höfum alveg trúað því. Svo fórum við að athuga í dag hversu dýrir bílar væru hérna.
Tókum eitt dæmi, þ.e. nýr VW Passat ódýrasta tegund.
- Heima á Íslandi: 2.200.000iskr
- Í Danmörku: 3.500.000iskr!!!

Það munaði sem sagt 1.300.000iskr á bíl hér úti og heima!!!
Ég svitnaði þegar ég heyrði tölurnar!! Ekki að við séum að fara að kaupa okkur nýjan Passat, langt því frá. Það er reyndar nokkuð flottur bíll sem ég væri alveg til í að eiga ef maður þyrfti ekki að borga svona mikið fyrir hann...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:13 FH

október 05, 2003

Hvor svært kan det være

Lá í þvílíku kasti hérna áðan með Fjólu og Ingólfi yfir þessum þætti sem sýndur er á TV2 rétt fyrir mat á sunnudögum. Þetta er fyrsti danski þátturinn sem ég næ nógu miklu af til að liggja í krampa yfir. Greyið Jobbi var bara inni í herbergi að reyna að klára e-ð skilaverkefni meðan við hlógum okkur máttlaus, hann fær sko að horfa í næstu viku.

Í dag var sko enginn sunnudagsmatur, heldur bara MIKIÐ sunnudagskaffi. Fjóla kom með köku, við áttum rjóma til að hafa með henni, ég bakaði kanilsnúða og svo bökuðum við n.k. súkkulaðibitakökur. Sem sagt algjört SYKURSJOKK!! Til hvers eru sunnudagar ef ekki til að fá e-ð gotterí að borða?? Bara spyr?


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:24 EH | 0 Ummæli

Vegatollur á Trørødkollegíinu

Við lentum í vegatolli á leiðinni úr þvottahúsinu áðan! Voru saman komin ca 5-6 stykki af 5-7 ára krökkum sem ætluðu sko ekki að láta okkur sleppa í gegn nema borga milljón, einn setti meira að segja upp verðið 1 milljón danskar krónur!! Við vorum nú ekki alveg nógu skemmtileg held ég þegar við sögðumst ekki eiga neina peninga og löbbuðum í gegn hjá þeim. hehehe. Börnin hérna leika sér miklu meira úti heldur en börnin sem áttu heima á Eggertsgötunni, þar voru börnin oftast bara látin leika frammi á gangi svo mömmurnar fengju meiri frið til að læra!! (en þar með minnkaði náttlega friður annarra íbúa blokkarinnar því börnin voru ekkert í neinu þagnarbindindi þarna, bara þeim mun meira öskrað og gargað. Óuppalin óargardýr!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:43 EH | 0 Ummæli

Þvottadagur

Nú geta Fjóla og Helga Björt hætt að hneykslast á þvottaaðferðum okkar Jobba því síðan við Jobbi komum út erum við búin að vera svaka dugleg að þvo, þvoum mun oftar en heima á Eggertsgötunni þ.a. eins og í dag dugðu okkur 3 þvottavélar (tókum reyndar frá 4 vélar, skamm skamm). Höfum bara einu sinni þurft að þvo meira en 4 vélar (getum þvegið 4 vélar í einu) og það var þegar við vorum að þvo rúmföt af öllum gestunum okkar + ÖLL handklæðin okkar eftir heimsóknirnar.
Annars er helgin nú bara búin að vera svolítil letihelgi, gerði akkúrat ekki neitt í gær, sofnaði bara yfir Löggulíf um miðjan dag!! Haldiði að það sé leti!! Markmiðið er nú að vera aðeins duglegri í dag, spurning hvort maður reyni ekki að baka e-ð handa okkur, eigum rjóma sem við verðum að nota, bara spurning hvað maður eigi að baka... Einhverjar tillögur??


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:11 EH | 0 Ummæli

október 03, 2003

Stelpur í Köben, HJÁLP!!!

Nú er komið að því að ég þarf NAUÐSYNLEGA að komast í klippingu en þá vandast málið, hvert á ég að fara??? Hvað kostar ca að fara í klippingu (bara klippingu ekki litun eða strípur)? Hvað er hægt að fá það ódýrt og hvað dýrt? Bara svona að spá í verðbilið og hverju ég megi eiga von á. Ég var búin að fara á skrilljón staði heima og var sjaldnast alveg ánægð, það var ekki fyrr en rétt áður en við fluttum út að ég fann klippara sem hentaði mér en þá er ég náttlega akkúrat farin af landi brott.
Vona að e-rjar sem búa hérna í Köben nenna að segja mér hvert þær fara í klippingu (væri best í Lyngby eða þar um kring en ég er samt opin fyrir öllu).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:16 EH | 0 Ummæli

Nýfæddur drengur!!

Innilega til hamingju með nýfædda prinsinn, elsku Linda Rós, Siggi og Baldvin Hrafn!!!! Í morgun kl. 6:45 að íslenskum tíma fæddist þeim pottþétt sætasti strákurinn en upplýsingar um lengd og þyngd liggja ekki fyrir (allavega ekki fyrir okkur hin). Samkvæmt sms-inu sem kom frá Berglindi í morgun heilsast öllum vel og er það fyrir öllu. Var ég því alveg einstaklega glöð í tímanum í morgun og fannst ekkert mál að fara upp á töflu og reikna fyrir bekkinn. Ég hins vegar setti það sem skilyrði að ég þyrfti ekki að útskýra neitt í töluðu máli myndi bara skrifa.
Nú bíðum við bara eftir myndum af prinsinum nýfædda því við munum víst ekki fá að sjá hann fyrr en hann verður orðinn 6 mánaða gamall!!

Update: Skv. nýjasta sms-inu frá Íslandi er nýjasti Bónermeðlimurinn 15 merkur og 50 og e-ð sentímetrar (hvaða ætli mörg börn séu ekki 50 og e-ð cm?? bara spurning)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:05 EH | 0 Ummæli

október 02, 2003

Rís, þú átt það alltaf skilið!

Ég notaði þessa setningu á Jobba alveg þangað til hann gaf eftir og við fengum okkur rísin sem Margrét hafði komið með frá Íslandi. Rís er nú samt ekki uppáhaldssúkkulaðið mitt, Draumarnir eru nefnilega búnir og þýðir víst lítið að væla þá. Hlakka bara til þegar mamma og pabbi (eða bara pabbi) koma í nóvember, þá er aldrei að vita nema ég taki upp á því að reyna að heilla þau upp úr skónum til að flytja íslenskt nammi hingað (á samt örugglega nóg af lakkrís út árið eftir síðustu heimsóknir...). Talandi um íslenskt nammi, þá er annað sem mér finnst algjört nammi og hefur langað svolítið í undanfarna daga og það er íslenskt lambalæri með öllu tilheyrandi!! Grillað innpakkað í álpappír þ.a. það verður alveg hrikalega safaríkt og meyrt... mmmmmm, langar ekki e-m að bjóða mér í svoleiðis???


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:40 EH

Skinka inní fataskáp!!

Ætli skinka eigi undir EINHVERJUM kringumstæðum að geymast inn í fataskáp?? Nei ég held ekki. Samt þurfti ég nú að ganga frá skinku í morgun sem hafði farið inn í fataskáp í gær, Jobbi hafði nefnilega ekki athugað nógu vel í bakpokann sem ég hafði komið með úr búðinni þegar hann gékk frá honum og um leið og ég sá ekki lengur bakpokann þá hugsaði ég ekki meir um það sem ég hafði keypt. Það var síðan ekki fyrr en í morgun þegar ég fann ekki seðlaveskið mitt og panikkaði næstum því að ég fór að leita að bakpokanum. Fann ég þá að sjálfsögðu veskið OG skinkuna ofan í bakpokanum inní fataskáp!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:34 EH | 0 Ummæli

október 01, 2003

Gaman í IKEA

Já það er vissulega mjög gaman í IKEA, sérstaklega hérna því búðin er RISA stór, alveg soldið stærri en búðin heima á Íslandi. Það sem mér finnst hins vegar EKKI gaman þegar farið er í IKEA er að dröslast heim aftur með STÓRA böggla í STRÆTÓ!!! Ekki skánar það síðan þegar maður er einn á ferð eins og í dag en þá keypti ég loksins gardínur fyrir gluggana frammi og hillu á baðið (hillan er svona standandi hilla, með 5 hillum þ.a. hún var alveg soldið stór). Væri rosalega gaman að eiga bíl þegar maður fer í IKEA...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:26 EH | 0 Ummæli

Fermingargræjurnar komnar í gang aftur

Undur og stórmerki eru búin að gerast!! Búið að tengja fermingargræjurnar mínar og þær virka fínt:-) Frá því að við Jobbi fluttum á Hjónagarðana þá var geislaspilarinn í græjunum búinn að vera í viðgerð hjá Halldóri (eða öllu heldur í geymslu upp á háalofti). Þegar ég fór að spyrjast fyrir um þær og athuga hvort þær væru ónýtar eða hvort það væri hægt að laga geislaspilarann þá ákvað Halldór að kíkja á þær. Hann komst þá að því að það var bara alls ekki neitt að þeim, þær virka sem sagt fínt og hafa örugglega alltaf gert (hefur örugglega bara verið e-ð sambandsleysi!!).

Við fengum heimsókn í morgun. Þegar dyrabjallan hringdi um hálf tíu datt mér ekki annað í hug en að þetta væri Fjóla (vissi svo sem ekki hvað erindið gæti verið en það hefði getað verið ýmislegt) en neinei þá var þetta rafvirkjar sem vildu komast upp á háaloft hjá okkur því það væri e-ð að loftræstingunni. Ég gat náttlega ekki annað en hleypt mönnunum inn þó ég hefði komið til dyra á náttfötunum með tannburstann í hendinni (er sem betur fer orðið það kalt að það er nauðsynlegt að sofa í náttfötum).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:19 FH | 0 Ummæli