desember 31, 2003

Óheppni

Hversu óheppilegt er það, þegar hlýrinn á kjólnum slitnar í miðjum nýársfagnaði?? Sem betur fer er fagnaðurinn haldinn á kollegíinu þ.a. ég er núna komin heim með nál og tvinna í hönd að gera við hlýrann. Vonum svo bara það besta:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:33 EH | 0 Ummæli

desember 30, 2003

Nýklippt

Fór í gær í fyrsta skipti í klippingu hérna úti. Frétti af íslenskri stelpu niðrí bæ þar sem það kostaði ekki nema 169kr klippingin þ.a. ég lét mig hafa það að dröslast í klukkutíma hvora leið til að fá íslenska ódýra klippingu. Er því núna hætt að líta út eins og e-ð úfið lukkutröll:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:30 EH | 0 Ummæli

desember 28, 2003

Sorgarfréttir frá Trørød búum

Eins og gleðin var gríðarlega mikil þegar við eignuðumst xbox um jólin þá var sorgin líka rosaleg þegar hún bilaði í gær!!! Jú mikið rétt, hún bilaði eftir 2ja daga notkun!!! Kannski frekar að tala um að hún sé gölluð því venjulegir hlutir eiga ekki að bila eftir 2 daga. Fórum því í erfidrykkju í dag til Ingó og Fjólu og fengum heitt súkkulaði, smákökur, Mackintosh og spiluðum Gettu Betur. Ótrúlegt en satt þá kom ég fyrst í mark en hins vegar var það Fjóla sem fékk flest stigin. Ef við ættum flaggstöng og fána þá hefðum við flaggað í hálfa stöng! Okkur var boðinn fáninn en þá vantaði ennþá flaggstöngina. Erum búin að senda nokkra tölvupósta vegna andlátsins og bíðum spennt eftir svörum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:43 EH | 0 Ummæli

desember 26, 2003

Jólamyndirnar komnar á netið

Var að láta inn myndir í myndaalbúmið frá aðventunni og jólunum. Er frekar svekkt að við tókum reyndar engar myndir í gær þegar við fórum í hangikjöt til frænda Jobba og fjölskyldu hans.
Það var alveg ljómandi fínt að fara til þeirra í gær. Var rosalega jólalegt og notalegt að borða hangikjöt, uppstúf, kartöflur, rauðkál og laufabrauð á jóladag, svona alveg eins og það á að vera:-) Núna erum við hins vegar búin að liggja í xbox tölvunni en ætlum að skipta yfir í Trivial Pursuit þegar Fjóla og Ingólfur banka upp á hjá okkur. Er lítil hætta á að okkur leiðist hérna út þrátt fyrir að vera langt frá fjölskyldum okkar.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:39 EH | 0 Ummæli

desember 25, 2003

Kitchen Aid OG XBOX!!!

Ætla að byrja á að óska öllum gleðilegra jóla!!!!

Þetta voru sko alveg frábær pakkajól hjá okkur Jobba. Held ég hafi sjaldan eða aldrei fengið að opna jafn marga og kom sko alveg fullt af frábærum hlutum úr þeim:-) Hápunktarnir tveir eru nú samt að við erum nú búin að eignast bæði Kitchen Aid hrærivél og XBOX. Ég keypti XBOX á Íslandi og hún var frá okkur til okkar en Jobbi vissi ekkert af henni. Hann vissi heldur ekki af hrærivélinni en ég kom líka með hana frá Íslandi, en hún var jólagjöfin okkar frá foreldrum Jobba:-)
Langar að þakka öllum fyrir frábærar gjafir, 1000 kossar og knús til ykkar allra!!!!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:14 EH | 0 Ummæli

desember 24, 2003

Gleðileg jól!!!

Nú er þetta bara alveg að koma:-) Orðin spennt eins og lítill krakki að bíða eftir að fá að opna pakkana:-) Jobbi er rosalega forvitinn að vita hvað er í báðum pökkunum sem ég lét undir tréð áðan, hann fær samt ekki að kíkja á kortin eða þreifa á þeim fyrr en eftir matinn.
Annars er nú akkúrat EKKERT jólalegt hérna hjá okkur!! Grasið er ennþá grænt og bara svona haustveður!! Mig langar líka í hvít jól!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:04 EH | 0 Ummæli

desember 23, 2003

Jólin alveg að koma:-)

Annað eins stessleysi hef ég varla upplifað áður fyrir jólin, sem er bara af hinu góða. Þarf reyndar aðeins að skreppa niður í Lyngby í dag, en verð vonandi bara eldsnögg að því. Í kvöld er svo stefnan sett á LOTR RISK í 10D hjá Fjólu og Ingó með viðbótarspilinu sem var keypt fyrir þessi jólin.
Algjör lúxus að þurfa ekki að vera að vinna á Þorláksmessu og aðfangadag, hvað þá fram til miðnættis á þorláksmessu og mæta svo aftur eldsnemma morguninn eftir eins og þegar maður var að vinna hjá ÁTVR.

Á jóladag förum við í heimsókn til Ingvars, Fjólu og barna (Ingvar er frændi Jobba) á Øresundskollegíinu niðrá Amager og fáum að borða hangikjöt. Höfum ekki enn hitt þau síðan við fluttum hingað en verður sko bætt úr því núna. Verður ágætt að fara í heimsókn á jóladag í staðin fyrir jólaboðin 2 sem eru alltaf í minni fjölskyldu. Á samt eftir að sakna þess að mæta ekki í hangikjötsjólaboðið hjá ömmu og afa og fara svo beint í kalkún hjá ömmu. Þetta át er náttúrulega algjör geðveiki en samt ótrúlega gaman og alveg merkilegt hvað maður hefur náð að innbyrða miklu magni af mat á þessum degi.

Spurning hvort maður eigi að fara að koma sér framúr? Er ennþá uppí rúmi með ferðatölvuna og þráðlausa netkortið á meðan Jobbi steinsefur við hliðina á mér.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:38 FH | 0 Ummæli

desember 21, 2003

Snjóstormur

Jújú, það á að koma snjóstormur í nótt og verða örugglega alveg 5-10cm af snjó!!!!! Eru núna 5% líkur á hvítum jólum í Danmörku en 80% líkur á hvítum jólum í Kaupmannahöfn:) Veðrið fer nefnilega fyrst yfir Jótland og síðast yfir hjá okkur og mun því snjórinn líka fara síðast hjá okkur:-) Síðan á reyndar að fara að rigna aftur, strax held ég bara á jóladag.
Nóg um veðrið.

Við fórum í kaffi til Fjólu og Ingólfs þar sem næstum öll Íslendingamafían var saman komin. Var drukkið jólaglögg og borðaðar smákökur og konfekt:-) Mmmmm. Fengum við Jobbi síðan líka að borða hjá þeim og erum núna bara nýkomin heim, södd og sæl:-) Annars er nú eiginlega allt að verða tilbúið fyrir jólin núna, búin að þrífa og bara smotterí eftir. Spurning hvort ég saumi ekki bara e-ð í jóladúknum á morgun til að athuga hvort ég nái að klára nógu mikið til að hægt sé að nota hann. Ætla að spá í það.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:00 EH | 0 Ummæli

desember 20, 2003

Jólakveðjur í útvarpinu

Var að lesa bloggsíður áðan og rakst á eina þar sem var talað um jólakveðjur í útvarpinu. Það minnti mig á ansi skemmtilega sögu frá einum jólunum.

Þegar jólakveðjurnar eru lesnar upp eru þær mjög oft frekar væmnar, eins og t.d. hugheilar jóla og nýárskveðjur, blablabla og svo framvegis. Foreldrar Jobba reka kaffihúsið Bláu Könnuna á Akureyri og ákvað pabbi hans að setja jólakveðju í útvarpið eitt árið. Hann Sigmundur ákvað nú bara að hafa það stutt og laggott og var því kveðjan: "Gleðileg jól, Bláakannan". Það er ekki mistök að skrifa Bláakannan í staði fyrir Bláa Kannan, því hann hann samdi meira að segja um að láta segja Bláa Kannan í einu orði! En eins og flestir ættu að vita er borgað eftir orðafjölda í þessum útvarpsauglýsingum.

Nú held ég annars að jólaskapið sé bara alveg að koma, við erum búin að kaupa jólamatinn (eða allavega mest af honum), kaupa jólatréð, baka 2 smákökusortir, búa til ísinn og erum að fara til Fjólu og Ingólfs að skera út piparkökur:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:33 EH

desember 18, 2003

Jólatívolí

Prófin búin og því um að gera að skella sér í jólatívolíið áður en það lokar þetta árið. Fórum eldsnemma niður í bæ (vorum komin hálf 12), kíktum á Nyhavn, þræddum Strikið og fórum svo í tívolíið, aftur á Strikið og enduðum svo á Jensen's Bøfhus. Nokkuð góður dagur, og erum við alveg búin á því núna. Tókum slatta mikið af myndum og koma þær í myndaalbúmið þegar við höfum orku til að ná í myndavélina... Er því frekar slöpp í að reyna að klára að skrifa jólakortin, en þau VERÐA að fara í póst á morgun ef ég vil að fólk fái þau nú örugglega fyrir jól, væri náttlega skemmtilegra. Ég er svo vön að keyra út jólakortin á síðustu stundu. Hef skrifað kort á þorláksmessu en núna er það bara ekki einu sinni möguleiki...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:13 EH | 0 Ummæli

desember 17, 2003

Jólafrí, Askasleikir og afmæli

Jibbý!!!!!!!! Ég er komin í jólafrí
Ég var að koma inn úr seinna prófinu mínu og gekk það bara fínt, gat dólað mér eins og ég vildi en fór samt eins og í hinu prófinu 40 mínútum áður en minn próftími rann út.

Annað skemmtilegt við daginn í dag, er að Askasleikir kom við hjá okkur í nótt og gaf mér U2, Rattle and Hum á DVD. Alls ekki leiðinlegt það!

Síðast en alls ekki síst, þá á Ingvar bróðir afmæli í dag, er orðinn 16 ára gamall. TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN INGVAR!!! Hann ætlar sko greinilega ekki að taka systir sína til fyrirmyndar og fá seint bílprófið því hann ætlar í fyrsta ökutímann strax í dag


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:32 EH | 0 Ummæli

desember 16, 2003

Síðasta prófið þessa önnina...

Já síðasta prófið þessa önnina er á morgun! Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem þessi áfangi er kenndur þá eru ekki til nein gömul próf. Ég er alltaf mjög óörugg fyrir próf þar sem ég annað hvort kann lítið sem ekkert eða þegar ég hef ekki séð nein gömul próf. Fyrir Ljóstækniprófið var ég búin að reikna í gegnum nokkur gömul próf og vissi þar af leiðandi að það var lítið sem gat komið mann á óvart, enda var ég ekki baun í bala stressuð kvöldið fyrir það próf. Nú er ég búin að borða ótæpilega af nammi (já aftur) og er hreinlega farið að líða illa af því

Á meðan ég man, þá voru Sheryl Crow tónleikarnir í gærkveldi. Það var mjög gaman:-) Reyndar varð ég ekki mjög sátt þegar gaurinn sem sat við hliðina á mér reykti næstum ofan í hálsmálið á mér!! Fötin okkar önguðu líka alveg þvílíkt þegar við komum heim. Hvernig getur fólk reykt og lyktað svona ALLA daga?!?!? Kannski ekki alveg að marka mig, held að það sé varla hægt að vera meira á móti reykingum en ég er (hvernig datt mér í hug að flytja til Danmerkur?!?).


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:05 EH | 0 Ummæli

desember 15, 2003

Kominn vetur hjá okkur

Nú er byrjað að snjóa hjá okkur!! Rétt fyrir jólin, alveg fullkomið svo lengi sem hann helst fram yfir jólin:-) Í dag var þvílíkt leiðinlegt veður, rok og rigning en þegar ég ætlaði að leyfa Helgu Björt að heyra í rigningunni þá var það haglél!!! Síðan fór að snjóa og nú er orðið hvítt úti og sjónvarpið orðið frekar "snjóugt" líka.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:39 FH | 1 Ummæli

desember 14, 2003

Skemmtileg fyrirsögn á mbl.is í morgun

Hálkublettur á Hellisheiði og í Þrengslum

Ætli það sé erfitt að finna þennan hálkublett?? Nei bara að spá... eða hvort hann sé stór eða lítill, þ.e. hvort hann sé bara yfir alla Hellisheiðina eða bara á smá blett:) Annars stendur síðan hálkublettir í sjálfri fréttinni þ.a. blaðamaðurinn sem hefur skrifað þetta nær aðeins að klóra í bakkann.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:39 FH | 0 Ummæli

desember 12, 2003

FRIENDS maraþon

Eins og lesendur hafa líklegast tekið eftir, þá er ég ekki alveg að nenna að byrja að læra fyrir seinna prófið mitt þessa önnina. Ég er því búin að vera nokkuð dugleg að horfa á vini mína í FRIENDS. Síðan í gær er ég t.d. búin að horfa á alla 8. seríuna, nokkra þætti úr 4. seríu og nýjasta þáttinn í seríu 10. Næsti þáttur í 10. seríu verður ekki sýndur úti fyrr en í janúar og ég á örugglega ekki eftir að fá hann fyrr en við komum heim í apríl:( Finnst eiginlega allt of langt í það...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:15 EH | 0 Ummæli

Heimilisfangið okkar

Nú er ég búin að bæta við heimilsfanginu okkar Jobba hér á síðuna til að allir þeir sem vilja senda okkur jólakort geti nú sent þau á réttan stað:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:26 EH | 0 Ummæli

desember 11, 2003

Jólabúningur

Þar sem ég er komin með algjört æði fyrir brosköllum eins og lesendur hafa væntanlega tekið eftir, og er að komast í jólaskap þá er síðan komin í jólabúninginn:-) Reyndar verður það bara þessi jólabroskall, nenni nú ekki að standa í neinum stórræðum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:31 EH | 0 Ummæli

Próflestur

Ég ætlaði að byrja að lesa undir seinna prófið í dag en er nú ekki komin lengra en að skipuleggja glósurnar mínar. Í dag skrapp ég líka niður í Lyngby með Fjólu (sem btw er komin í jólafrí ), keypti nú ekki mikið en verslaði mér þó eins og eitt stykki ísform. Ekki alveg eins og ég hafði hugsað mér en virkar samt örugglega fínt. Nú þarf bara að búa til jólaísinn í formið


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:20 EH | 0 Ummæli

desember 10, 2003

Sheryl Crow og Sting

Keyptum miða í gær á bæði Sheryl Crow núna 15. desember og svo Sting 2. maí. Um að gera að nýta tímann á meðan maður býr hérna úti

Uppfært 12:15: Vorum núna að klára að kaupa okkur miða á Eric Clapton í Parken 17. apríl Svo er líka spurning hvort við skellum okkur ekki líka á Hróarskeldu!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:40 FH | 0 Ummæli

desember 09, 2003

Flysja eða skræla?

Hvort segir maður að flysja kartöflur eða skræla kartöflur?
Við Jobbi erum alin upp á sitthvorum endanum á landinu og því nokkur atriði sem okkur finnast skondin í málfari hvors annars. Ég hef t.d. alltaf skrælt kartöflur á meðan Jobbi flysjar kartöflur. Núna rúmum tveimur árum eftir að við byrjuðum að búa þá eru bæði hugtökin orðin töm og talaði ég t.d. um flus um daginn!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:54 EH | 0 Ummæli

Fyrsta og næstsíðasta prófið búið...

Það þýðir bara eitt... nú er bara EITT próf eftir

Það er hins vegar ekki fyrr en eftir rúma viku!!! Væri ég sko frekar til í að fara í það á föstudaginn eða mánudaginn og vera komin í jólafrí þá. Maður getur samt víst ekki fengið allt sem maður vill.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:11 EH | 0 Ummæli

desember 08, 2003

Orðin skrýtin!!!

eða var það kannski bara alltaf?!?!? Allavega verð ég alveg stórskrýtin í próflestri, borða ótæpilega af sælgæti og þá er líka gott að eiga fulla skápa af nammi. Þetta þýðir bara eitt, nammibann frá og með morgundeginum og e-ð fram að næsta prófi og . Er nú reyndar ekki sú allra duglegast að hreyfa mig... er meira fyrir það að liggja upp í sófa og yfir sjónvarpinu


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:08 EH | 0 Ummæli

desember 07, 2003

Próflestur

Í dag erum við skötuhjú búin að vera á fullu í próflestrinum. Ég er nú reyndar aðallega búin að vera að reikna, mér finnst það nú öllu skárra en að lesa. Á morgun verður síðan maraþon fyrir prófið sem verður á þriðjudaginn. Síðan vonar maður bara það besta


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:08 EH | 0 Ummæli

desember 06, 2003

Stormur í Danmörku

Eins og kom fram á mbl.is í morgun þá var óveður hérna á Norðurlöndunum í nótt. Má nú deila um það hversu mikið óveður þetta var svona í íslenskan mælikvarða en það var samt alveg nóg til þess að ég vaknaði í nótt/snemma í morgun við læti í veðrinu. Þess má nú reyndar geta að ég sef eiginlega upp í gluggakistu og er orðin vön algjörri þögn á meðan ég sef. Nú er veðrið hins vegar orðið hið besta, sjást engin ský út um gluggann sem ég sit við og bara smá gola.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:42 EH | 0 Ummæli

Myndir úr Íslandsferðinni minni

Var að láta inn myndir frá því á Íslandi í myndaalbúmið okkar ásamt nokkrum eldri myndum sem hafði alltaf gleymst að láta inn. Þar sem myndaalbúmið okkar er nú loksins flutt með okkur hingað upp á kollegie og orðið auðveldara að setja inn myndir heldur en varð eftir að við fluttum út þá verðum við vonandi duglegri að setja inn nýjar myndir.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:27 FH | 0 Ummæli

desember 05, 2003

Síðasti kennsludagurinn

Í dag var síðasti kennsludagurinn þessa önnuna. Eftir eru einn spurningartími og svo bara 2 próf!!! Það fyrra er næsta þriðjudag en það síðara er á afmælisdaginn hans Ingvars bróðir 17.des akkúrat viku fyrir jól. Jobbi er reyndar búinn 12. eða 13. des, hefði líka alveg verið til í það, sérstaklega þar sem ég á ekki eftir að nýta næstum allan tímann sem ég hef fyrir síðara prófið.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:14 EH | 0 Ummæli

desember 04, 2003

3+2=4!!

Já þetta fullyrti Fjóla hérna áðan hjá mér!!

"Þær fóru fjórar saman, 3 íslenskar og 2 amerískar!"

Ég skemmti mér konunglega yfir þessu því ég hélt alltaf að Fjóla væri búin að læra að leggja saman;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:56 EH | 0 Ummæli

Grænt og blátt sprite!

Það var nú alveg skemmtileg tilbreyting þegar við fluttum hingað út að kaupa grænt og blátt sprite. Hins vegar þegar maður hefur ekki getað keypt venjulegt glært sprite síðan þá, þá fer þetta að verða aðeins þreytt. Hefði kannski bara átt að versla mér nokkrar sprite-flöskur heima og flytja út... NEI djók, er nú ekki það biluð!! Eða ég vona allavega ekki;) Annars kom ég nú aðallega með sælgæti frá Íslandi og það er eitt sem allt nammið á sameiginlegt, það er að vera súkkulaði í e-i mynd:-) Kemur á óvart? Nei ætti held ég ekki að gera það...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:38 EH | 0 Ummæli

desember 03, 2003

Þreytt og lúin eftir Íslandsferðina...

Þá er maður kominn aftur heim eftir góða ferð til Íslands. Hef því miður ekki enn hitt Jobba því hann er í skólanum og verður örugglega e-ð frameftir:( Búin að ganga frá jólagjöfunum upp á loft en restin af dótinu mínu liggur á gólfinu. Finnst nú alveg ótrúlegt að ég geti pikkað á tölvuna m.v. hvað ég er þreytt. Markmiðið núna er því að fá sér e-ð að borða og reyna svo að leggja sig áður en Jobbi kemur heim. Efast um að ég sé mjög skemmtileg, svona eins og draugur...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:43 EH | 0 Ummæli

desember 02, 2003

Síðasti dagurinn...

Þá er um að gera að nýta daginn vel, hefði átt að vera komin út fyrir löngu en svona er maður bara latur...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:24 FH | 0 Ummæli

desember 01, 2003

Rok og rigning!!!!

Hvað á þetta að þýða?!?!? Örugglega eitt af fáu sem ég sakna EKKI frá Íslandi það er rok og rigning ofan í snjó!!! Alveg glerhált og ómögulegt!!!!

Annars er dagurinn alls ekki búinn að vera ömurlegur, þvert á móti bara nóg að gera, fór í sund í morgun, kíkti í Íslandsbanka til Önnu Maríu, fór aðeins í bæinn með mömmu og heimsótti Bínu og Loga í nýju íbúðina þeirra. Frábært að sjá hvað þau gerðu íbúðin æðislega sæta!!!!! Til lukku með vel heppnaða íbúð!!! Í mat eru svo amma og afi og á eftir ætla Margrét og Ingunn að koma í heimsókn. Dagarnir eru því nýttir til hins ítrasta!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:43 EH | 0 Ummæli

Mmmmm, í sund...

Er á leiðinni í sund núna, get ekki beðið eftir að krassa aðeins í heitapottinum:-) Hef hvorki farið í sund né baðkar í þrjá og hálfan mánuð og hefur þess verið sárt saknað. Tekið skal þó fram að ég hef farið í sturtu:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:51 FH | 0 Ummæli

Nóg að gerast í dag

Eins og við var að búast er búið að vera nóg að gera og ég ætti að vera löngu sofnuð.

Kíkti í heimsókn í morgun til Hafrúnar, Guðmundar og Kötlu Maríu. Algjör dúlla og ekkert smá sem hún hefur stækkað og þroskast á þessum þremur og hálfum mánuði. Sagði mér hvað litirnir hétu og hvað dýrin segja og bræddi mig alveg upp úr skónum. Eftir allt of stutta heimsókn á Hjallaveginum fór ég að fljúga með Margréti á Unnari-Pétri-Sigurði (TF-UPS). Lentum í ýmsum hremmingum svo ekki sé meira sagt áður en við loksins komumst í loftið. Þegar ég mætti þá ætlaði Margrét að vera búin að gera vélina klára, setja bensín á hana þ.a. við gætum bara farið beint í loftið. Þegar ég kom þá var vélin hins vegar bara ennþá fyrir utan skýlið og Margrét gat ekki ýtt henni úr snjónum þ.a. þá urðum við bara að gjöra svo vel að ýta aðeins fastar. Náðum því svo. Enn eitt klúðrið var þegar við fórum að taka bensín því þegar Margrét "straujaði" bensínkortið þá straujaði hún alltaf uppþrykktu stafina en ekki segulröndina og skildi síðan ekkert í því að ekkert bensín kæmi úr slöngunni!!! Fannst okkur núna eiginlega vera nóg komið, en ekki voru erfiðleikarnir að baki því þegar við vorum að reyna að ná sambandi við GRUND (til að fá leyfi til að keyra inn á flugbrautina) þá heyrum við ekkert í þeim en þeir heyra alltaf þegar Margrét reynir að kalla á þá. Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir ákveðum við að keyra aftur upp að flugskýli og sjá til hvort við gætum reddað málunum. Getum loks heyrt í þeim þ.a. við leggjum aftur af stað en lendum í því að krassa í snjó og þurftum að gefa allt í botn til að komast úr því. Þegar við lentum eftir flugferðina þurftum við að drífa okkur af brautinni því það var önnur vél að fara að lenda þ.a. við keyrum rösklega eftir brautinni og svo þegar við "neglum niður" til að fara út af þá skrönsuðum við næstum út af!! Náðum þá að halda okkur inni á brautinni sem betur fer.

Þar sem ég var hvort eð er farin að treysta Margréti fyrir lífi mínu þá ákvað ég að fara með henni og kennara á tveggja hreyfla vél eftir hinn flugtúrinn. Fékk að finna fyrir þegar vélin missti annan mótorinn og missti alveg afl! Ég varð bara að vona að bæði hún og kennarinn væru ekki með mikinn lífsleiða. Lentum nokkrum sinnum í Keflavík og fékk að sjá "jólaseríuna" við einn brautarendann:-) Var kveikt á því fyrir okkur:-)

Það er nú alveg töluvert öðruvísi að fara í svona vélar heldur en þotunum í millilandafluginu. Maður finnur svo vel fyrir öllum smá hristingi sem maður veit ekki af í hinum, en á móti kemur að þetta er miklu skemmtilegra en að sitja innilokaður í vél þar sem sætin eru eins og L og rétt hægt að halla örlítið.

Best að koma sér í háttinn svo ég vakni nú e-n tímann í morgun og komist í sund, get ekki beðið eftir að komast í heitu pottana:-) Kannski maður syndi eins og 2-3 ferðir, aldrei að vita;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:54 FH | 0 Ummæli