janúar 29, 2004

Stórhríð á Akureyri

Kannski engin brjálæðisleg stórhríð en það snjóar allavega asskoti mikið. Við Jobbi skruppum aðeins upp á Karólínu áðan, ætluðum að kíkja hvort Hlynur frændi hans væri að vinna en svo var ekki. Fengum okkur samt heitt súkkulaði og bjór. Á leiðinni uppeftir og aftur til baka (sérstaklega á bakaleiðinni) létum við eins og óðir smákrakkar í snjókasti! Var ótrúlega gaman að láta svona eins og fífl í snjónum. Svo á að snjóa meira á morgun þ.a. ef við komumst ekki í fjallið þá getum við allavega farið út og leikið í snjónum:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:26 EH | 0 Ummæli

Flugslys, snjóbretti og rjómaterta í hádeginu

Er búin að vera gjörsamlega á fullu síðan við mættum á landið! Margrét flaug með okkur norður á þriðjudaginn í alveg BONGÓBLÍÐU!!! Við flugum yfir Sprengisand, framhjá Öskju og Mývatni og maður sá alveg lengst í ALLAR áttir, var algjör snilld. Núna er hins vegar mesti brandarinn að ég hafi lent í flugslysi því þegar það var e-ð aðeins verið að stríða sérstaklega mér þarna aftur í og taka smá dýfu þá slóst hendin á mér upp í loft og ég fékk stórt sár á puttann minn. Jobbi fékk að sitja frammí hjá Margréti þar sem hann hafði aldrei flogið með henni og ég varð bara að sætta mig við að vera afturí, var allt í lagi, sá alveg hellingsmikið þar líka.
Síðan síðast erum við líka búin að fara tvisvar á brettið, er farin að geta rennt mér alveg þokkanlega og ekki séns að ég selji brettið eins og ég var mikið að spá í á sunnudaginn síðasta. Í gær vorum við mætt upp í Hlíðarfjall um leið og það opnaði og fórum svo heim þegar ég gat varla rennt mér lengur vegna þreytu. Ég veit ekki alveg hvað tengdó heldur eiginlega um okkur núna því við erum búin að sofna svo snemma síðan við komum norður. Á þriðjudagskvöldinu steinsofnuðum við klukkan 9 og í gær e-ð aðeins seinna. Á móti kemur að við erum að vakna nokkuð snemma eða um 8 leytið. Eins og ég talaði um þegar við keyptum flugið þá hlakkaði ég til í að komast í kökuborðið á Bláu Könnunni, eftir súpuna í hádeginu í gær skellti ég mér á eina rjómakökusneið. Er vanalega ekki mikið fyrir rjómakökur en ég kláraði næstum alveg svona stóra kaffihúsasneið!!! Fékk enga hjálp frá Jobba því hann borðar ekki kókos og þá er víst marenge með kókosbollum og rjóma á milli ekki mjög vænlegt til vinsælda hjá honum.
Í dag vitum við ekki ennþá hvort það opni í fjallinu en þá er bara spurning hvort maður verði ekki aðeins ferskari í kvöld:-) Annars komum við aftur í bæinn á laugardagsmorguninn, náðum e-u tilboði hjá Flugfélaginu á 2900kr ferðin á manninn, vorum þokkalega sátt við það.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:35 FH | 0 Ummæli

janúar 26, 2004

Á Íslandi...

Ósköp er nú gott að vera komin til Íslands! Við komum síðasta laugardag og ætlum að fara aftur til baka eftir rúma viku.
Markmið ferðarinnar er að fara sem mest á bretti og við fórum í gær upp í Bláfjöll. Snjóbrettið mitt fór næstum á sölu eftir slæmt gengi en í Kóngsgili var engin brekka við mitt hæfi. Var orðin frekar þreytt á að vera í barnalyftunni og renna mér næstum lárétt. En mikið rosalega var gaman að fara yfir í Sólskinsbrekku og í barnabrekkuna þar, hún er töluvert brattari og lengri þ.a. ég hafði smá challenge. Ætlum að reyna að skella okkur aftur í dag, en það á ekki að opna fyrr en kl. 14.
Á morgun ætlum við síðan að reyna að láta einkaflugmanninn okkar fljúga með okkur norður:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:31 FH | 0 Ummæli

janúar 21, 2004

Himinlifandi í frostinu

Get nú ekki annað en verið í góðu skapi núna:) Búin að fá einkunn nr. 2 fyrir síðustu önn og xbox er aftur komin heim:-) Er þá núna búin að fá eina 9 og eina 11!! 11 gefur alltaf ástæðu fyrir útskýringar en 11 er næsthæsta einkunnin, hæsta er 13 sem skv. mínum heimildum (Fjólu) er næstum einungis gefið ef þú getur sýnt fram á meiri kunnáttu en krafist var (nema í reikniprófum fæst náttlega 13 ef allt er rétt og þar sem þetta var að mestum hluta reiknipróf þá var ég ekki svo dugleg...)

Þegar við komum heim úr skólanum í dag og opnuðum við póstkassann vorum við yfir okkur hamingjusöm yfir að vera búin að fá bréf frá UPS (sendingarþjónustan sem sá um xbox-ið), ennþá hamingjusamari þegar við lásum að þar sem við hefðum ekki verið heima þá hefðu þeir skilið hana eftir í næstu íbúð við hliðina þ.a. ég náði bara í hana um leið. Eins gott að vera ekki illa við nágrannana! Jobbi er því núna bara í xbox á meðan ég er að reyna að skrifa Løsningsmetode fyrir verkefnið í janúarkúrsnum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:14 EH | 0 Ummæli

janúar 18, 2004

Bongóblíða

Váá það er alveg yndislegt veðrið hérna hjá okkur núna!! Heiðskýrt og algjör stilla, reyndar fylgir þessu að sjálfsögðu frekar mikill kuldi en þá er bara um að gera að setja á sig húfu og fara í vettlinga:-) Við fórum í göngutúr og skoðuðum aðeins nágrennið meira en við höfum gert áður, Jobbi vildi reyndar hlaupa e-ð þ.a. hann er ennþá úti. Já ég nennti því ekki! Nú ætlum við síðan að fara að baka amerískar pönnukökur! mmmm


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:00 FH | 0 Ummæli

janúar 16, 2004

Komin heim og í helgarfrí

Þá ætti maður að vakna aftur til lífsins hérna á blaðrinu:-) Ferðin gekk bara framar vonum eftir mjög svo misheppnaða byrjun. Þrennt átti að bjarga mér frá öllum mögulegum leiðindum ? ferðinni ef illa færi, þ.e. Friends í ferðatölvunni, sundlaugin á hótelinu og bók. Þegar ég ætlaði að horfa á fyrsta friends þáttinn kom í ljós að tölvan var biluð og ég gat ekki opnað hana. Fattaði á svipuðum tíma að ég hafði gleymt sundfötunum heima. Sem betur fer hafði ég þó ennþá bókina mína þar til ég kláraði hana á miðvikudaginn. Þá var ég nú líka farin að tala við aðeins fleiri af krökkunum í hópnum þa. þetta reddaðist alveg.
Er að fara að horfa á nýjasta friends þáttinn:-) Verið sæl í bili!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:50 EH

janúar 11, 2004

Fer að líða að nýrri skólaviku

Ætla þvílíkt að reyna að njóta þess að vera í fríi í dag því það verður ekkert elsku mamma í næstu viku. Ég fer í 4ja daga ferð um Jótland og Fjón með skólanum sem ég hlakka EKKI til. Jújú það verður svakalega gaman að fá að skoða vindmyllur og svoleiðis en þetta er svona aðeins og mikið þar sem ég þekki nánast engann í þessum hóp. Það er reyndar einn ljós punktur við þessa ferð en það er að við munum borða í Århus á morgun og þá ætla HBI og IP að koma og fá sér að borða á þessum sama stað svo ég geti borðað með þeim:) Hefði verið óskandi ef við hefðum gist í Århus en ekki e-m 50km í burtu frá, því það verða alveg kvöld þarna sem við verðum nákvæmlega ekkert að gera!! Fartölvan verður með í för og ætla ég bara að taka fullt af friends diskum með mér þ.a. ég geti þó allavega alltaf leitað á náðir þeirra:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:20 EH | 0 Ummæli

janúar 08, 2004

Ég er á lífi og við búin að horfa á skaupið!!

En samt bara rétt svo held ég! Ég er í e-m snaróðum janúarkúrs sem tekur sko alla orku úr manni. Ég er sko ekki vön því síðan ég flutti að vera föst upp í skóla í 8-10 tíma á dag og fá varla kaffipásur!! Þegar ég loksins er búin og get farið heim þá er beini strætóinn löngu hættur að ganga og tómt klúður að komast heim:-( Í dag var ég svaka dugleg, tók strætó mest af leiðinni og gekk svo mjög rösklega í 20 mínútur heim, þurfti nefnilega að brenna e-u til að geta með góðri samvisku fengið mér afganga af syndsamlegu súkkulaðikökunni sem ég bakaði í gær.

Eins og Fjóla sagði frá í dag þá komu þau í heimsókn í gær og við horfðum saman á áramótaskaupið. Við skemmtum okkur alveg konunglega yfir því og hlógum eins og vitleysingar. Á hverju ári er alltaf sagt að þetta sé annað hvort lélegasta eða með lélegri skaupum, það hafi sko verið mikið skárra í fyrra!!! Held að aðalmálið séu væntingarnar, þegar sest er fyrir framan imbann á gamlárs á skaupið að vera yfirnáttúrulega fyndið og gera bara grín að þeim sem manni hentar og þar fram eftir götunum. Nú þegar við horfðum á það eftir að hafa heyrt að þetta væri alveg glatað þá kom bara í ljós að þetta var bara algjör snilld!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:48 EH | 0 Ummæli

janúar 05, 2004

Á heimleið

Við Jobbi ætlum að koma í 10 daga heimsókn til Íslands þegar janúarkúrsarnir eru búnir. Vorum svo heppin (eða kannski frekar þrjósk) að ná strax í dag miðum KEF-CPH á 0 kr. þ.a. við ætlum bara að reyna að fara á brettin okkar heima úr því að það var orðið uppselt í Tékklandsferðina. Þó það sé nú frekar stutt síðan ég var á Íslandi síðast þá er ég alveg farin að hlakka til að koma aftur. Þetta verður líka aðeins lengra stopp en síðast en við munum líka fara norður og heilsa upp á fjölskylduna hans Jobba. Margrét ætlar kannski að “skutla” okkur á lítilli rellu norður ef hún getur og það verður flugveður og er ég búin að bjóða henni í súkkulaði og köku á Bláu Könnunni (vona að tengdó verði svo hamingjusöm að sjá okkur að þau hafi ekkert á móti því…). Hlakka til að komast í kökuborðið, mmmm væri líka til í grænmetisböku. Það mætti halda að ég fengi ekkert að borða hérna... tala ekki um annað en mat.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:23 EH | 0 Ummæli

janúar 04, 2004

Skautaferð

Fór í fyrsta skipti í LANGAN tíma á skauta í dag þegar við Fjóla fórum upp í Ryngsted í skautahöllina. Var nú eins og algjör kjáni þarna, kunni rétt svo að renna mér áfram. Skemmti mér þó alveg konunglega og er alveg massa þreytt núna.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:59 EH | 0 Ummæli

janúar 02, 2004

Heimskir Bretar

Mbl.is var að segja frá ansi skemmtilegri könnun sem gerð var í Bretlandi. Þar komu m.a. fram að:

  • 65% Breta veit EKKI í hvaða Bandarísku borg söngleikurinn Chicago á að gerast

  • 57% Breta veit EKKI hvar þættirnir Dallas eiga sér stað

  • 67% Breta veit EKKI um hvað borg er sungið í laginu Streets of London

  • 64% Breta veit EKKI í hvaða landi frönsku alparnir eru
  • Í sömu frétt kom fram að allir sem spurðir hefðu verið hefðu vitað hver höfuðborg Frakklands væri, enda hefði aldrei verið gerð metsölumynd sem héti Paris.

    Hversu vitlaus getur ein þjóð eiginlega verið??? Bara spyr.


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 09:17 EH | 0 Ummæli

    janúar 01, 2004

    Gleðilegt nýtt ár!!!!

    Enn á ný er komið nýtt ár! Þarf alltaf að venjast því í nokkra daga að það sé komið nýtt ár en venjan er nú samt sú að það hafist að lokum;) Í dag var almennt heilsuleysi á okkar heimili og það skánaði allavega ekki mikið þegar kom að þrifum upp í Centerbygning. Það hafði öllu leirtaui ásamt matarleyfum verið skellt inn í eldhús og ekki einu sinni skolað af. Síðan vorum við alltof mörg í frekar litlu eldhúsi að vaska upp því þegar uppþvottavélin var fullt sást varla að það hefði nokkuð verið tekið í burtu!!
    Þegar við fengum lystina aftur þá fengum við okkur hangikjöt, uppstúf og laufabrauð í kvöldmat og drukkum jólaöl með!! Nú er bara málið að reyna að snúa sólarhringnum aftur við þ.a. við getum mætt í skólann á mánudaginn.


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 10:50 EH | 0 Ummæli