mars 30, 2004

Misskilningur

Oft getur maður skemmt sér yfir misskilningi annara, sérstaklega þegar börn eru að segja öðrum börnum og útkoman verður skrautleg. Á síðunni hjá Gústafi Bjarna var ég að lesa þar sem hann heldur að Aðalsteinn heiti Álfasteinn. Þetta minnti mig all svakalega á atburð sem gerðist fyrir nokkrum árum síðan heima í Fagraberginu. Þá voru 2 ungir strákar að leika sér saman, Ingvar bróðir minn og barnabarn konunnar á móti. Þeir vissu ekki hvað hvor annar hétu þ.a. það var spurt um nafn. Ingvari finnst nafnið á stráknum nú frekar skrýtið og spyr ítrekað, "í alvöru, heitirðu það? heitirðu í alvöru Gúmmí Steinn" Hinn alveg staðfastur á því að hann sé nú ekkert að ljúga. Síðan þegar þeir fara að kallast á og það heyrist "Gúmmí Steinn!!!! Gúmmí Steinn!!!!" þá er nú farið að athuga málið þar sem barnið geti nú bara ekki heitið Gúmmí Steinn. Þá kom nú í ljós að nafnið á drengnum var Búi Steinn en hann svaraði alveg Gúmmí Steinn nafninu og Ingvar trúði alveg að hann héti Gúmmí Steinn úr því að hann "sagði" það.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:25 EH | 0 Ummæli

mars 29, 2004

Sumarið á leiðinni

Nú finnst mér næstum bara vera komið sumar. Kominn sumartími sem þýðir 2ja tíma munur á okkur og Íslandi og sumardekkin komin undir bílinn. Mér finnst samt alveg nokkuð stutt síðan við skiptum yfir í vetrartímann en það var í lok október, ekkert smá sem tíminn er fljótur að líða. Tímanum var seinkað þ.a. að það vantaði í raun einn klukkutíma í 28. mars og við Jobbi getum verið svo glær stundum að við föttuðum ekki neitt fyrr en seinnipartinn í gær þegar Jobbi tók eftir því að klukkan í tölvunni (sem bæ ðí vei er svo gáfuð að skipta sjálf á milli sumar/vetrartíma) var allt annað en allar aðrar klukkur í íbúðinni. Þá var klukkan bara allt í einu 3 en ekki 2 og ég hafði þá ekki sofið til að verða 12 heldur að verða 1!!!!! Gekk líka frekar illa að sofna í gærkvöldi klukkan 11 eftir að hafa bara vakað í 11 klst...

Við vorum annars að koma af rækkemøde þar sem var verið að skipuleggja fínast djamm að mér virtist þann 17. apríl en það er akkúrat daginn sem við eigum miða á Clapton!! Hvað á það að þýða að setja svona atburði þegar Clapton er að spila í bænum??? Skil bara ekkert í þess!!;) Vonum bara að þetta verði að almennilegu fjöri þ.a. við getum bara kíkt á grannana eftir tónleikana og hugsanlega boðið þeim til okkar (spurning um að kaupa eina brennivín á leiðinni út og ath hvernig þeim lýst á þegar allir eru hvort eð er búnir að fá sér aðeins í aðra tána áður, hehehe)

Að lokum, verð ég bara að koma því að, að það eru ekki nema 4 dagar þangað til við komum til Íslands:-) Styttist óðum:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:08 EH | 0 Ummæli

mars 27, 2004

Hor og slím

Já ég veit, frekar ógeðfellt, en þannig er það nú bara víst á mínum bænum . Held að biðröðin í rigningunni á laugardaginn fyrir utan CeBIT hafi bari ekki gert góða hluti fyrir heilsuna... ónei. Annars ætlar þetta að vera farið fyrir föstudaginn, því þá erum við að koma til Íslands . Svo er líka ferming á sunnudaginn eftir viku þ.a. það er þvílíka átveislan framundan:-)

Í öðrum fréttum er það helst að við vorum að kaupa okkur miða á Norah Jones:-) Þegar við loksins heyrðum af miðasölunni á tónleikana hérna í Køben þá gátum við fengið sæti alveg aftast og ekki einu sinni hlið við hlið! Núna erum við búin að kaupa miða í Osló í lok Júní þ.a. við kíkjum aðeins á Osló líka í sumar:-) Ekkert nema gott um það að segja.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:47 EH | 0 Ummæli

mars 25, 2004

3 ár

Tíminn er ekkert smá fljótur að líða. Við Jobbi búin að vera saman í 3 ár í dag. Man svo vel eftir fyrstu dögunum þegar við vorum nýbyrjuð saman, næstum eins og það hafi gerst í gær. Við vorum reyndar ekki lengi á nýbyrjuð saman stiginu því ég var komin með sængina mína til hans eftir ca 3 vikur og við farin að búa á Hjónagörðunum eftir ca 5 mánuði.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:03 EH | 0 Ummæli

mars 23, 2004

CeBIT 2004

Þá er maður kominn aftur heim til Danmerkur eftir nokkuð góða helgaferð til Þýskalands. Eftir nokkra daga var ég farin að geta bablað aftur á þýsku og í morgun átti ég í mestum erfiðleikum með dönskuna, sletti alltaf þýskum orðum inn á milli og vissi varla hvort væri danska eða þýska! Fyrir ferðina vorum við búin að fá upplýsingar frá pabba að CeBIT væri RIIIIIISA stór, þetta væru ca 30 hallir og maður væri lengi að komast endanna á milli á svæðinu. Ég hafði SAMT ekki getað ímyndað mér að þetta væri SVONA HRIKALEGA stórt!!! Á tveimur dögum skoðuðum við stóran hluta af sýningunni þó margt hafi verið á algjörri hraðspólun yfir því ekki þótti okkur allt spennandi sem var í boði. Okkur var orðið illt í iljunum, hnjánum og mjöðmunum eftir allt labbið! Skemmtum okkur samt alveg konunglega að prófa alls konar 3D dót, sýndarveruleika, nýja GSM síma og allt hitt dótið. Svo má náttlega ekki gleyma öllu draslinu sem við sönkuðum að okkur, mest voru reyndar bara e-rjir krappí bæklingar en inn á milli leyndist alls konar sniðugt dót.
Var að heyra útundan mér að fólk hafði áhyggjur af því að við gætum ekki ratað í Þýskalandi þar sem ég náði að láta Jobba beygja svo vitlaust hérna rétt hjá okkur, en það tókst alveg merkilega vel að rata. Jobbi fór reyndar tvisvar inn á rétta hraðbraut en í vitlausa átt en í fyrstu tilraun tókst okkur að koma okkur á rétta leið og þegar þetta gerðist var kortabókin meira að segja í skottinu.
Núna þýðir ekkert annað en harkan sex og vera dugleg að læra áður en við komum í páskafrí heim til Íslands eftir 10 daga. Það verður sko engin meiri leti þangað til!! Hér með er ég líka aftur orðin að fyrirmyndarnemanda:-). Það þýðir líka að ég þarf að hætta þessu blaðri hérna og halda áfram að vinna upp úr Medikotilraunum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:23 EH | 0 Ummæli

mars 18, 2004

Jetzt muss ich wieder auf Deutsch denken

Veit nú ekki alveg hvernig það mun takast í þriggja daga ferð til Þýskalands. Fyrst eftir komuna til Danmerkur þá gat ég í besta falli byrjað að hugsa 1-2 orð á dönsku og svo tók þýskan við, en núna er þetta alveg orðið öfugt. Vona bara að ég geti í það minnsta bjargað mér með það nauðsynlegasta. Svo verður þýskan tekin með trompi í sumar þegar við Jobbi ætlum að ferðast heil mikið um Evrópu.
Við erum s.s. að fara til Þýskalands á morgun, nánar til tekið til Hannover. Þar ku vera hin myndarlegasta tæknisýning sem gengur undir nafninu CeBIT. Þegar vorið kom hjá okkur núna um daginn, þá fannst okkur við alveg upplagt að gista í tjaldi en þar sem spáin er snjókoma á mánudaginn þá ætlum við að láta það eiga sig í þetta skiptið og gista á Farfuglaheimili í staðinn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:07 EH | 2 Ummæli

Áttavillt

Áðan fórum við upp í Hillerød, Jobbi keyrði og ég átti að sjá til þess að hann kæmist á leiðarenda með því að lesa á kortið. Veit ekki hvort ég verði hugsanlega rekin sem leiðsögumaður...??

E: Deeemm, við áttum ekki að beygja þarna!!
J: Nú, eigum við þá að snúa við?
E: Æj, nei, við beygðum rétt, en við hefðum átt að beygja aftur á ljósunum sem við vorum að fara yfir!
J: Ok, sný við (sem hann síðan gerir og beygir á áðurnefndum ljósum)
E: Æj, úps, við áttum bara ekkert að beygja á þessum ljósum, áttum ekki að beygja fyrr en næst:S

Þá snýr Jobbi aftur við, kemst aftur upp á sömu götu og áður og við höldum leiðinni áfram...

Það versta er að þegar Róbert (í 15b) fór með okkur að skoða bíla um daginn, þá átti ég einmitt líka að vera á kortinu (ég sat aftur í) og hann þurfti að snúa þrisvar sinnum við!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:58 EH | 0 Ummæli

mars 17, 2004

Bíleigendur

Jíbbíjei!!! Það hafðist loksins:) Núna erum við búin að kaupa okkur bíl. Tryllitækið er Renault Megane árgerð 1997 með 1,6 l vél og 90 hestöfl. Liturinn er dökkblár. Ég sem vissi næstum bara hvernig bíll væri á dönsku veit nú orðið næstum allt mögulegt og ómögulegt um það sem viðkemur bílum á dönsku því ég var látin tala og spyrja.
Smelltum af nokkrum myndum til að geta sýnt þeim sem sjá vilja...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:10 EH | 0 Ummæli

mars 16, 2004

Ódugleg

Ég er nú búin að vera slöpp í blogginu undanfarið, missti alveg taktinn eftir allan gestaganginn um daginn þegar ég hafði engann tíma til að blogga. Annars erum við líka búin að vera á fullu núna undanfarið við allt annað en skólann en eins og ég komst að orði í dag þá verð ég aftur að fyrirmyndarnemanda frá og með morgundeginum;)
Ferðatölvan, sem við sendum ekki heim um daginn því það heyrðust engin óhljóð eftir nokkura daga dekurmeðferð (=slökkt á henni) þegar við kveiktum á henni kvöldið áður en foreldrar Jobba fóru heim, er nú loksins að fá að fara heim. E-ð er um að kollegíbúarnir hérna séu að skella sér heim til Íslands þó ekkert sé fríið í skólanum... hmmm... þvílíkt og annað kæruleysi;) Vonandi fáum við hana í lagi þegar við sækjum hana um páskana, er orðin frekar þreytt á að hafa hana hálfbilaða. Við það að hún fari þá fáum við Jobbi eitt atriði til að rífast/deila um og það er borðtölvan sem eftir verður!!!

Mæli ekki með súkkulaðiköku, lakkrís og salthnetum í kvöldmat!! Lærið af minni reynslu;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:17 EH | 0 Ummæli

mars 14, 2004

Nýjar myndir á næstu leigu...

Var að láta inn nýjar myndir í myndaalbúmið. Myndir frá 2 heimsóknum, matnum hjá Íslendingunum fyrir viku síðan og svo ýmsar aðrar myndir líka:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:20 FH | 0 Ummæli

mars 11, 2004

Vúhúúú, nýja xbox komin í hús!!!

Ekki lítil gleði á okkar heimili núna. Ekki að það verði neitt mikill munur á að vera búin að eignast þessa xbox þar sem við áttum nú aðra fyrir en við fengum samt annan S stýripinna, 2 nýja leiki með og hljóðlátari vél. Spurning hvort maður verði ekki að halda upp á þetta með aðgangi að nammiskápnum;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:22 EH | 0 Ummæli

mars 10, 2004

Læst úti!!!

Mín reyndist vera læst úti þegar ég kom heim úr skólanum í dag. Sem betur fer var nú ekki nema ca klukkutími þar til Jobbi átti að koma heim þ.a. ég skrapp í heimsókn til Guðnýjar, Elvu Rúnar og Guðna Rafns. Eitthvað gekk mér illa að ná sambandi við Jobba því hann var ekkert að hafa fyrir því að fylgjast nokkuð með símanum sínum og fór að hjálpa Gunna í 13a þar sem ég á endanum fann hann. Varð nú alls ekki meint af þessum hrakförum, var bara nokkuð gaman að kíkja á fjölskylduna í 15b.

Fyrir ekki svo löngu síðan gerðum við samkomulag við Fjólu og Ingólf að skiptast á auka lyklum þ.a. í tilfellum eins og þessum þá gæti maður komið og sótt lykil að sinni íbúð. En þar sem við erum búin að vera með gesti hjá okkur þá vorum við búin að sækja okkar lykil og ekki ennþá búin að fara og skila honum aftur.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:01 EH | 0 Ummæli

mars 09, 2004

Ekkert að gerast?

Það mætti halda að það væri bara ekkert að gerast hjá mér, þar sem ég hef ekki skrifað neitt í 4 daga en það er nú aldeilis ekki rétt! Tengdó búin að vera í heimsókn og þau fóru í morgun. Var alveg mjög gott og gaman að hafa þau hjá okkur í nokkra daga. Borðuðum meira og betri mat en almennt gerist á okkar heimili. Borðuðum 5 rétta með vínmatseðli (þ.e. rétt vín með hverjum rétt) á laugardaginn á Den Lille Fede sem var einmitt valinn besti nýji staðurinn árið 2002. Bæði sunnudag og mánudag sá síðan tengdapabbi um matinn og gerði það alveg frábærlega, ekki slæmt að vera með kokk í heimsókn:-)

Föstudagskvöldið endaði í aðeins meira fjöri en planlagt hafði verið. Ætluðum að reyna að taka aðeins til fyrir heimsóknina, en seinnipartinn var okkur boðið í mat uppi í Center og enduðum á að fara ekki að sofa fyrr en um seint og síðar, eftir að hafa spilað billiard, fótboltaspil og Mr. and Mrs. þar sem við Jobbi rétt töpuðum forustunni á endasprettinum. Slatti af rauðu og þónokkuð af bjór endaði ofan í þessum 10 íslensku mögum þó allt hafi þetta farið mjög pent fram. Næsta "mafíu" skemmtun er síðan eftir rúmar 2 vikur þegar á að endurtaka spilavistina frá því í síðasta mánuði.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:27 EH | 0 Ummæli

mars 05, 2004

Síðbúinn íslenskur bolludagur

Þar sem við fengum engar vatnsdeigsbollur á Fastelavn um daginn þá ákvað ég að baka sjálf vatnsdeigsbollur. Nennti því ekki á sjálfan bolludaginn og síðan þá hefur það dregist aðeins. Í gær langaði mig hins vegar orðið mjög mikið í vatnsdeigsbollur þ.a. það var ekki seinna vænna en malla þeim saman. Buðum Fjólu og Ingólfi í bolludagskaffi og ég held að það hafi verið almenn sátt við bollurnar þó langt væri liðið frá sjálfum bolludeginum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:07 FH | 0 Ummæli

mars 03, 2004

Tölvubögg

Nú fer ég alveg að verða gráhærð á tölvunum okkar!! Fartölvan er með endalaust bögg, búin að fara þrisvar í ábyrgðarviðgerð síðan í haust og er alveg þokkalega mikið biluð núna. Svo var harði diskurinn í hinni tölvunni búinn að vera í tómu tjóni og við loksins búin að kaupa nýjann en þá bara e-ð annað vesen!! Í gær voru því báðar tölvurnar ónothæfar en sem betur fer eigum við þriðju tölvuna, sem er gömul tölva sem keyrir á LINUX, ég komst því á netið í gærkveldi:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:10 EH | 0 Ummæli

mars 01, 2004

Ég vann nýja XBOX!!!!

Hversu mikil snilld er það? Ég tók þátt í e-m leik fyrir jól þar sem vinningurinn var XBOX leikjatölva. Einn daginn í haust sá ég Microsoft auglýsingastand í bóksölunni í skólanum þar sem maður gat tekið miða og sent inn í n.k. happdrætti fyrir að ég held Evrópu. Þar sem það voru ENGAR líkur á vinningi í þessu happdrætti þá spáði ég ekkert meira í það og keypti bara xbx í jólagjöf handa okkur. Þegar ég kom heim í dag beið mín bréf sem var augljóslega frá e-u fyrirtæki og sent frá Bretlandi. Ég gat engan veginn skilið frá hverjum þetta gæti verið því ég mundi ekki eftir því að hafa gefið upp nafn mitt og heimilisfang til e-s fyrirtækis í Bretlandi. Skv. bréfinu á nýja vélin að berast til okkar í lok mars og nú er bara að bíða og vona það besta. Eftir mánuð munum við því vonandi eiga 2 stk xbox!!:-)

Annars er þetta ekki það eina skemmtilega sem á daga mína hefur drifið undanfarið því við höfum haft heimsókn frá Íslandi. Hafrún, Guðmundur og Katla María mættu til Danaveldis síðasta laugardag og fara aftur heim á morgun. Erum búin að eiga mjög góðar stundir með þeim og einnig með Írisi og Kåre sem að sjálfsögðu fengu líka að njóta veru fjölskyldunnar hérna.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:42 EH | 0 Ummæli