apríl 30, 2004

Sólarhringur í skólanum...

Nú fer alveg að líða að því að það sé komin sólarhringsvera hérna í tölvuveri í DTU. Ég mætti í morgun (gærmorgun) fyrir hálf tíu og er varla búin að fara héðan út. Verðum alveg pottþétt e-ð hérna áfram og svo er tími eftir ca 4 1/2 tíma og eftir hádegi á ég að hitta Friðrik og Vigni út af verkefni í Netbelastning sem er alveg að koma deadline á. Spurning hvenær ég detti niður...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:49 FH | 0 Ummæli

apríl 25, 2004

Copenhagen Motor show og meira

Á föstudaginn, skelltum við okkur á Copenhagen Motor show niðrí Bella Center. Skoðuðum venjulega bíla, gamla bíla, DÝRA bíla, trukka og bara allar tegundir af bílum. Mátuðum nokkra bíla sem við munum ekki hafa efni á neitt á næstu árum en það var bara þeim mun skemmtilegra að setjast upp í þá:-) Enduðum sýninguna í Toyota básnum og þar var Landcruiser 100, hækkaður upp á 38 tommu dekk af Arctic truck. Þótti það ekki leiðinlegt, samt bara verst að hann var læstur, ég gat ekki mátað hann líka.

Eftir bílasýninguna skelltum við okkur svo í tívolíið á Fredagsrock, Grand Avenue sem er dönsk hljómsveit var að spila.

Í gær var svo reynt að læra frameftir degi en síðan fengum við Fjólu og Ingólf í Skeldýrafondue. Það var alveg akkúrat fyrir mig, ég er svo hrikalega hrifin af bæði skel- og sjávardýrum og fondue er síðan eiginlega toppurinn á tilverunni:-) Eldamennskan heppnaðist líka töluvert betur en síðast þegar við vorum með fondue og reyndum að nota lampaolíu í staðinn fyrir spritt. Þá þurftum við að halda olíunni heitri með kertum og það virkaði engan veginn. Nú vorum við hins vegar ekki með alveg nógu mikið spritt þ.a. loginn sótaði frekar mikið og því er potturinn ekki lengur stállitaður heldur kolsvartur. Er ekki líka talað um að allt er þegar þrennt er?? Spurning hvort þetta verði ekki ideal í næsta skipti.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:23 EH | 0 Ummæli

apríl 24, 2004

Afmælisbarn dagsins

Í dag á Berglind afmæli og er það stórafmæli, hún er hvorki meira né minna en 25 ára
Samkvæmt áræðanlegum heimildum verður svaka veisla hjá henni og er ég mjög svo svekkt að geta ekki komist þangað. Í venjulegu afmæli eru yfirleitt veitingar eins og í stórafmæli þ.a. það er spurning hvernig stórafmælisveitingarnar verða? Pottþétt svaðalega góðar:-)
Verð bara að vera með í veislunni í anda, allavega get ég látið mig dreyma um að komast...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:33 FH | 0 Ummæli

apríl 22, 2004

Sumarið víst komið á Íslandi

Til lukku með það, þið sem eruð heima á klakanum. Það var nú ekki mikil breyting hjá okkur þó það væri sumardagurinn fyrsti á íslensku almanaki. Við eigum alltaf frí á fimmtudögum, þ.a. þetta var bara ósköp venjulegur fimmtudagur hjá okkur. Keyptum okkur reyndar SVAKALEGA girnilega jarðaberjaköku í bakaríinu í dag, getum alveg sagt að það sé í tilefni sumardagsins. En sannleikurinn er samt sá að við stóðumst bara ekki freistinguna þegar kakan grátbað okkur um að kaupa sig í borðinu þegar við gengum inn í bakaríið til að kaupa okkur brauð;)

Ekki meira í bili, Jobbi fer líka alveg að koma heim af dönskunámskeiðinu.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:27 EH | 0 Ummæli

apríl 19, 2004

Meira um fyndin nöfn

Eftir að hafa lesið hjá kríli Bínu og Loga um svipaðar pælingar sem einnig voru skrifaðar í dag, þá komst ég að því að mjög skondið nafn fór framhjá mér í dag.
Það er:
Smiður

Hvernig væri að heita t.d. Siggi Smiður og vera svo t.d. málari eða pípari??

Já góðan dag, ég heiti Jón Smiður málari.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:33 EH | 0 Ummæli

Mannanöfn

Ég var að skoða í Íslendingabók í morgun, og þegar ég var búin að rekja ættir mínar aftur til ca. árið 1000 þá gátu nöfnin verið ansi kostuleg. Það hefur það sér þó til málsbóta að það er svo langt síðan. Þegar ég hins vegar skoða listana hjá Mannanafnanefnd yfir leyfð stúlku- og drengjanöfn þá komst ég að því að stór hluti nafnanna sem leyfilegt er að nefna íslensk börn eru bara alveg út í hróa!!

Sem dæmi um leyfileg strákanöfn eru:
Bótólfur
Dufgus
Dósóþeus
Dufþakur
Kolskeggur
Mensalder
Skíði

Svipað er hægt að finna í stelpunöfnunum, en svo þegar við erum komin í samsetningu á 2 nöfnum þá koma fram nýjir möguleikar. T.d. má nefna stelpu
Ríta Lín

Ætti að passa vel inn í umræðuna við ofnotkun á þessu lyfi;)

Það væri ekki mikið mál að gera barninu manns lífið leitt ef maður hefði áhuga á því.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:59 EH | 0 Ummæli

apríl 17, 2004

Garðurinn að skána og Clapton í kvöld

Eftir einmuna veðurblíðu og mikinn garðvinnuáhuga, er ég búin að breyta garðinum í að vera órækt í það að líta út fyrir að vera garður:-) Á reyndar eftir að rífa aðeins meira upp og planta einhverjum blómum í beðin til að ég verði ánægð. Til að bæta þetta ennþá meira þá fórum við í dag að kaupa sólbekk eins og eru oft í sundlaugunum heima svo ég geti nú legið eins og mig lystir í sólbaði.

Á eftir förum við síðan á Clapton á Parken. Missum við af Tour de Rækkehus 8 í staðinn en ég efast um að við verðum fyrir vonbrigðum með skiptin.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:55 EH | 0 Ummæli

apríl 13, 2004

Komin heim í sól og sumaryl

Alltaf gott að koma aftur heim þó maður sakni þess auðvitað að geta ekki hitt alla vini og ættingja á Íslandi. Náðum ekki að hitta alla þá sem við hefðum gjarnan vilja hitta á þessum 10 dögum heima, til þess þurfa dagarnir að vera töluvert fleiri.
Þegar við komum heim í gær um hádegið vorum við eldsnögg að ganga frá öllu dótinu úr ferðatöskunum, gengum frá töskunum upp á loft og náðum í garðhúsgögnin!! Ekki seinna vænna því veðrið er orðið bara þokkalega gott, í dag var vel hægt að sitja úti á stuttermabol á meðan sólin skein en vissara að fara í peysu ef ský dró fyrir sólu. Síðan á hitastigið bara að batna með hverjum deginum fram að helgi:-) Ekki hægt að kvarta yfir því, ónei. Næst á dagskrá er síðan að reyna að lappa aðeins upp á garðinn, þ.a. við verðum ekki eina fólkið með garðinn sinn í algjörri órækt:/


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:29 EH | 0 Ummæli

apríl 11, 2004

Gráðugt átvagl

Held að ofangreind lýsing eigi best við mig... búin að borða næstum stanslaust síðan ég vaknaði í morgun, brauð, skinkuhorn, brauðrúlla, rjómaterta, páskaegg ásamt fleiru hefur farið upp í munn og ofan í maga. Verð að hætta núna í bili svo ég hafi e-a lyst á lambalærinu sem verður í kvöld.
Nú er farið að styttast í annan endann á dvölinni okkar hér á Fróni, förum heim í fyrramálið og við því búin að kveðja flesta nú þegar (reyndar var nú yfirleitt bara heilsað og kvatt sama daginn þar sem ferðin er nú ekki það löng hjá okkur). Nenni nú bara varla að pakka ofan í tösku einu sinni enn... tekur samt sem betur fer ekki langan tíma þar sem við komum með töluvert meira dót með okkur en við förum með aftur til baka sem þýðir engin troðningur í töskunni.

Að lokum langar mig að óska ykkur gleðilegrar súkkulaðihátíðar!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:09 EH | 0 Ummæli

apríl 08, 2004

Eldað með Elvis

Okkur bauðst að fara á Eldað með Elvis í kvöld og mæli ég hiklaust með þessu verki. Ég var komin með verki í kinnarnar því ég hló svo hrikalega mikið!! Vissi sama og ekkert um þetta leikrit áður en við fórum og kom það mér því mjög svo skemmtilega á óvart.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:47 FH | 0 Ummæli

apríl 07, 2004

Komin á klakann og farin norður

Já, það er nú búið að vera svo mikið um að vera að ég hef bara ekkert skrifað í heila viku hérna. Við komum sem sagt til landsins s.l. föstudagskvöld eins og vinir og ættingjar vita nú flestir. Fórum í þrítugsafmæli á laugardeginum og fram á kvöld og svo fermdist Fríða Rakel á sunnudeginum. Fengum síðan köku í gærkvöldi þegar við kíktum í heimsókn til Möggu og Gumma. Erum því búin að vera á meltunni næstum því síðan við komum til landsins;) Ekki að við kvörtum neitt... hehe.
Í dag keyrðum við norður með foreldrum Jobba og ætlum að vera hérna fram á föstudag. Engin brettin komu með okkur norður því það er sama og enginn snjór í Hlíðarfjalli þó þeir auglýsi grimmt. Bara opið í strýtunni og færið er Unnið harðfenni!! Jakk, ekki fyrir mig, nei takk! Langar ekki að detta aftur eins og í fyrra.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:18 FH | 0 Ummæli