maí 31, 2004

4 dagar eftir!!

Þetta virðist ætla að hafast, þó hægt gangi!!! Er núna að rembast eins og rjúpa við staur að koma saman fyrirlestri fyrir munnlegt próf sem ég fer í á miðvikudaginn. Þegar því er lokið er þetta næstum bara komið, eitt C++ próf eftir þar sem öll hjálpargögn eru leyfileg og bara gefið bestået/ikke bestået. Skiptir því engu máli hvort ég fæ 6 eða 13 svo lengi sem ég er fyrir ofan 6.

Í dag voru annars bakaðar pönnsur eftir mikla leit að mjólk!! Búðin sem er opin átti ENGA mjólk til, mjólkurkælirinn var gjörsamlega galtómur!! Lítil bensínstöð á höfninni reddaði mér:-) Það var samt alveg þess virði að hafa leitið mikið að mjólkinni þegar við sátum úti í góða veðrinu og borðuðum úti í garði:-) Mmmmm...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:23 EH | 0 Ummæli

maí 30, 2004

Óskalisti

Þar sem við höfum verið að fá soldið af spurningum hvað okkur langi í afmælisgjöf og við munum aldrei neitt þá var soðinn samann listi af hlutum sem okkur vantar og/eða langar í. Listinn finnst hér og er einnig kominn linkur á hann hér til vinstri á síðunni.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:06 EH | 0 Ummæli

maí 29, 2004

Hálfnað verk þá hafið er

Já það er sko alveg á hreinu að prófin eru hafin hér á bænum. 2 búin og 2 eftir. Veit ekki hvað skal segja um prófið í gær, en svo mikið er víst að það endurspeglaði EKKI það sem við höfum lært og reiknað í vetur!!! Þar sem öllum gekk frekar/mjög illa þá er ég ekki á bömmer yfir að vera sú eina sem var ekki alveg með á nótunum. Næsta próf er alveg frekar scary próf, hóp munnlegt próf í frekar MIKLU efni. Tja... það hlýtur að skríða yfir 6... (fellur ef maður er undir því).

Annars er farið að styttast í sumarfrí hér á bænum:-) Ekki nema 6 dagar í próflok og fyrstu heimsókn sumarsins!!! Get ekki beðið!!!!! Ætla samt að reyna að vera dugleg að læra fyrir prófin sem eftir eru.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:30 EH | 0 Ummæli

maí 28, 2004

Varðandi auglýsinguna fyndnu

Þar sem eigandi auglýsingarinnar hefur greinilega viljað fjarlæga hana þá virkar linkurinn hér að neðan ekki eins og ætlunin var. Því miður fyrir eiganda myndarinnar þá er myndin komin inn á húmor.is.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:24 EH | 0 Ummæli

maí 27, 2004

Skemmtileg auglýsing

Rakst á ANSI fyndna mynd sem fylgdi með smáauglýsingu á Barnalandi. Athugið hvort þið sjáið e-ð athugavert við myndina og skoðið hana alla!! Við Jobbi erum búin að liggja í kasti síðan við sáum þetta.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:05 EH

maí 25, 2004

Innbökuð svínalund

Mmmmmm.... það var elduð innbökuð svínalund hér í gærkveldi og afgangurinn verður í kvöld. Alveg satt þá hlakka ég til að fara að borða afgangana. Höfum nokkrum sinnum eldað þessa uppskrift en núna þá var frúin við stjórnvöllinn (já ótrúlegt en satt þá var ég e-ð að troða mér í eldhúsið;)) og hefur lundin aldrei heppnast betur!!! Enda líka ákvað ég að fara núna einu sinni aðeins betur eftir uppskriftinni en áður, kannski það sé bara trixið;) Ekki skemmir fyrir að þetta er hræódýrt hérna, keyptum 3 svínalundir á 100dkr og þessi uppskrift dugar í 2 máltíðir!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:48 EH | 0 Ummæli

Næturhringing

Hvað er fólk að pæla að hringja hálf sjö á þriðjudagsmorgni???? Reyndar fattaði ég ekkert að síminn væri að hringja fyrr en Jobbi var farinn fram úr að ná í símann. Það var síðan búið að skella á loksins þegar Jobbi náði í símann.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:10 FH | 0 Ummæli

maí 23, 2004

Veiiii, M. Schumacher vann ekki!!!

Ég á mér engan uppáhalds ökumann eða lið, er meira svona í því að halda ekki með Schumacher. Var því ekki lítið glöð þegar ég komst að því að hann ræsti ekki nema fjórði. Kveikti nokkrum sinnum á keppninni (var náttlega að læra annars) og ótrúleg tímasetning þá held ég að ég hafi séð öll aðalatriðin. Hápunkturinn var að sjálfsögðu þegar Skógerðarmaðurinn missti annað framhjólið. Við sendum mömmu hans Jobba hins vegar samúðarkveðjur því hún heldur með honum.

Í kvöldmat var síðan alveg eins og í gær, Trørød borgarar eins og ég hef ákveðið að nefna hamborgarana sem við gerðum okkur. Það voru STÓRIR hamborgarar í stóru brauði með ca jafn mikið af sveppum og kjöti. Hvorki í kvöld né í gær gat ég einu sinni klárað einn svona borgara, en venjulega get ég klárað ca einn og hálfan hamborgara (venjulegt brauð og bara venjuleg stærð af hakki). Já ég veit ég er átvagl, but that was not the point;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:22 EH | 0 Ummæli

maí 18, 2004

10 einingar í höfn

Þá eru 10 einingar (af 35 sem ég er í) komnar í höfn og ekki þarf að hugsa meira um það:) Fór í munnlegt próf í morgun, gekk nú svona lala en allavega alveg nóg til að ég náði. Nú þarf bara að fara að huga að næstu prófum, það næsta er þó ekki fyrr en eftir 10 daga.

Eftir prófið hentist ég niðrí bæ því þar sem prófinu seinkaði þá var Helga Björt komin út úr lestinni þegar ég gekk út úr skólanum. Þar beið hún þó nokkuð róleg bara þegar ég kom og náði í hana fyrir skoðunarferðina í Fields. Það er náttlega ekki hægt að Helga Björt hafi aldrei skoðað stærstu verslunarmiðstöð á Norðurlöndunum. Hún er nú samt ekki stærri en það að við vorum búnar að skoða allt sem okkur gat dottið í hug á einum eftirmiðdegi. Leyfðum okkur að dreyma prinsessudrauma þegar við vorum að máta alls konar dót sem minnti okkur á hana Mary krónprinsessu, misstum okkur næstum því (Helga hélt okkur á mottunni...) í barnafötunum og þá sérstaklega þeim bleiku. Hvernig er það Bína, er ekki örugglega stelpa á leiðinni;)

Farin að horfa á 24 timer sem ég tók upp áðan. Nokkuð spennt þar sem þetta er fyrsti þátturinn í 2 vikur!! (ef e-r er að velta fyrir sér af hverju var ekki þáttur í síðustu viku, þá skal minnt á brúðkaupIÐ sem var á föstudaginn!)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:12 EH | 0 Ummæli

maí 15, 2004

BrúðkaupIÐ og svo Grand Prix Melody

Ég lá þokkalega dolfallin yfir brúðkaupinu í gær!! Það var svo æðislegt á allan hátt!! Helstu hápunktarnir fannst mér vera:

  • Þegar Frederik táraðist í kirkjunni áður en Mary mætti

  • Sjá ÆÐISLEGA kjólinn

  • Kossarnir;)

  • Ræðurnar

  • Ræðan hans Frederiks, hún var held ég hápunkturINN
  • Þegar Frederik fór með ræðuna sína sat ég grenjandi í sófanum með tár niður báðar kinnar niður fyrir höku!! Ekki batnaði það síðan þegar þeir á TV2 fóru að endursýna stóra hluta af ræðunni, þá hélt mín bara áfram og grét meira!! En ég var heldur ekkert sú eina, því Mary þurfti líka að snýta sér og þurrka tárin.
    Eftir allt sjónvarpsglápið þá spurði ég Jobba hvort við ættum að gera okkar brúðkaup eins og þeirra, hans sagðist ekki hafa efni á því, ekki einu sinni þó við tækjum 200þús dkr lán sem einn bankinn er að auglýsa fyrir brúðkaup. Lánið myndi kannski hugsanlega ná upp í blómakostnaðinn en ekki meira en það!!!

    Eftir annasaman sjónvarpsdag í gær, er aftur komið að því að setjast fyrir framan kassann. Í þetta skiptið ætlum við að borða læri hjá Fjólu og Ingólfi og setjast svo í sófann þeirra að horfa á Grand Prix Melody eins og júróvision heitir á dönsku. Best að klára að snurfa sig, svo maður verði nú tilbúinn á réttum tíma (eins gott að það klikki ekki úr því að ég er búin að skrifa það hérna;))


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 06:30 EH | 0 Ummæli

    maí 11, 2004

    Drottningin er STÍLBROT!!!!

    Það eru eflaust gamlar fréttir fyrir alla þá sem að e-u ráði fylgjast með dönsku konungsfjölskyldunni, en núna er fínasti galakvöldverður í tilefni af brúðkaupinu og allir í sínu fínasta pússi. Hvernig haldiði að drottningin sé klædd?? Í e-n grænan "fuglakjól", sem eflaust væri fínn ef ekki væri fyrir þessar HRIKALEGU ermar sem eru bara það fáránlegasta af öllu fáránlegu!! Þessar ermar líta næstum út eins og fuglavængir, þ.a. þaðan kemur fuglakjóllinn;)
    Að vanda er Mary Donaldsen ótrúlega flott og núna líka komin með bláan borða eins og hinir meðlimir konungsfjölskyldunnar.

    Það mætti halda að ég fylgdist með kóngafólksfréttum og -slúðri... tja... ég get heldur ekkert neitað því;) Mikið að spá hvort maður gangi ekki í Hið konunglega fjelag þegar heim á frón verður haldið á ný?? Verð að hugleiða það aðeins.


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 10:11 EH | 0 Ummæli

    maí 10, 2004

    Arrrrggg, geitungur!!!!

    Það er geitungur inni í stofu!!! Ég er farin að geta setið úti þó þessi kvikindi séu sveimandi í kring en um leið og þau eru komin inn til mín þá fer allt vit og öll skynsemi til fjandans!! Ég hendist á harðahlaupum inn í litla herbergi (þ.e. sem lengst frá stofuglugganum) og loka mig þar inni þar til Jobbi kemur að bjarga mér. Hann er svo duglegur, er alveg hetjan mín því hann hendir þessum kvikindum alltaf út eins og skot:-)


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 10:37 FH | 0 Ummæli

    maí 09, 2004

    26°C og glampandi sól

    Sit úti að læra á nýja sólbekknum mínum sem ég keypti um daginn og er alveg að grillast. Þetta er sko ekkert bara gluggaveður eins og maður lennti ítrekað í heima á Íslandi í prófunum, þegar maður hélt að það væri snilldarveður en var svo bara rok og kalt. Þetta er ÆÐIIII!!!


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 01:56 EH

    Til hamingju með stórafmælið Bína mín!!!!

    Ég var ekki alveg jafn snemma á fótum og Helga Björt til að senda þér kveðju, en það má nú líka stundum sofa aðeins lengur á sunnudögum, ekki satt??
    En þú færð alveg über super afmæliskveðjur yfir hafið frá okkur Jobba, hafðu það gott í dag og njóttu síðasta afmælisdagsins áður en þú verður mamma. Vildi óska að ég kæmist í brunch til þín á eftir en ég fæ mér bara rúgbrauð með síld í staðinn hérna heima...
    Fullt af kossum og RIIIIIIISAA knús!!!


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 10:23 FH | 0 Ummæli

    maí 07, 2004

    Hele familien kemur í júní:-D

    Ætti kannski að byrja á að afsaka leti mína hér á blogginu, nenni því samt ekki heldur, þ.a. beint að efninu;)
    Ekki nóg með að mamma, pabbi, Ingvar, Fríða Rakel, Agnes og Hans Adolf komi til okkar í júní, heldur ætlar Margrét líka að koma:-D Hún ætlar að koma aðeins á undan hinum og vera síðan aðeins með hinum líka. Hún kemur s.s. nógu snemma til að mæta í afmælið okkar og Gunna sem verður haldið 5. júní og verður síðan með familíunni yfir sjálfa afmælisdagana okkar. Hún mætir s.s. í 3 afmælisdaga í röð eiginlega;) STUÐ, STUÐ, STUÐ:-)


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 09:01 EH | 0 Ummæli

    maí 03, 2004

    Frí, frí, frí, ég get ekki beðið eftir sumarfríinu!!!

    Hinn klassíski skólaleiði rétt fyrir sumarfrí er núna alveg að fara með mig!! Eftir frekar mikla vinnu síðustu daga þá er ég bara komin með nóg, langar bara í frí þ.a. ég geti legið úti í sólinni og slappað af! Eeeeennn, það eru víst ennþá rúmar 4 vikur í sumarfrí þ.a. það er eins gott að vera bara þolinmóð.


    --------

    Skrifaði eyrunl klukkan 03:22 EH | 0 Ummæli