júní 30, 2004
Loksins sól og við því á ströndina:-)
Búið að vera nóg að gera undanfarið. Við Jobbi fórum til Noregs og Svíþjóðar um helgina þar sem við fórum á æðislega Norah Jones tónleika í Osló. Þar sem veðurspáin var svo slæm fyrir mánudaginn í Osló ákváðum við að keyra til Svíþjóðar, gistum nálægt Gautaborg og skoðuðum okkur um þar á mánudeginum. Þegar við komum aftur heim, voru Helga Björt og Ingibjörn komin til borgarinnar þ.a. við drifum okkur niðrí bæ um leið og við komum heim. Erum síðan búin að hafa það svakalega gott með þeim, borða mikið og slappa vel af.
Í dag var svo fyrsti þurri dagurinn og ekki nóg með það, heldur var sól meira og minna allan daginn:-) Við tókum því bíltúr á Strandvejen, skoðuðum villurnar og horfðum yfir til Svíþjóðar. Enduðum rúntinn svo á Bellevue ströndinni í Klampenborg þar sem við sötruðum öl og flatmöguðum í sólinni.
Ætla að reyna að fylgjast aðeins betur með leiknum það sem eftir er. Þýðir lítið að sitja fyrir framan imbann og vita ekkert um leikinn.
--------
júní 23, 2004
Rigningardrulluveður
Við ákváðum fyrir löngu síðan að við ætluðum ekkert að vinna í sumar, bara hafa það gott, liggja í sólbaði, ferðast og fá gesti. Síðustu daga hefur hins vegar bara verið GLATAÐ rigningar- og rokveður og ég er alveg að KLEPRA á því!!! Samt ekkert búin að leiðast neitt, við Jobbi getum svo auðveldlega haft ofan af fyrir okkur og skemmt okkur yfir engu, en það hefði verið skárra ef maður hefði getað legið eða setið úti í garði líka.
--------
Bakstur og bolti
Þetta ásamt nokkurri tölvunotkun er afrakstur dagsins í dag. Í fyrsta skipti var bökuð Betty Crocker á okkar heimili sem við fengum að gjöf þegar við áttum afmæli. Gulrótarkaka með hvítu frosting kremi gerði alveg þokkalega góða hluti! Pizzan sem við bökuðum í kvöldmat klikkar líka seint, þó lítið hafi verið til af áleggi á hana í þetta skiptið. Að endingu var það svo boltinn þar sem bæði Danmörk og Svíþjóð komust áfram á EM, þokkaleg sæla með það þó það hefði nú verið skemmtilegra ef Svíar hefðu ekki náð að jafna undir lok leiksins.
Að lokum ætla ég að auglýsa eftir týndum hlut, það er SUMARIÐ!!!! Hvað er eiginlega málið með þessa rigningu?? Rigndi nú sem betur fer lítið í dag, en sólin var e-ð treg að láta sjá sig og spáin er ekkert allt of góð næstu daga, sérstaklega ekki í Osló þangað sem við Jobbi erum á leið í útilegu!!
--------
júní 21, 2004
Naglalökkun yfir boltanum
Ég sem er allt of löt við að dúllast og dekra við sjálfa mig, er alveg á fara á kostum núna og ætla svoleiðis að hafa það notalegt í sumar:-) Sjáum svo til hvað það endist lengi;) Ætla samt ekki að fara að leggja agúrkur yfir augun, það er sko meira en ég nenni.
--------
Letilíf
Eins og það er nú gott og gaman að vera í fríi þá er samt eins gott að passa að manni leiðist ekki of mikið. Hingað til hefur ekki verið nein hætta á ferð hjá okkur;) Það eru nú heldur ekki nema 2 dagar síðan fjölskyldan yfirgaf okkur en við erum samt búin að vera nokkuð dugleg við að ganga frá hérna hjá okkur og enn er sko alveg nóg eftir. Þegar mikið lá við og taka þurfti til í flýti í vetur var dótinu oftast bara komið fyrir inni í litla herbergi og það átti svo að ganga frá því síðar. Nú er liðið að þessu síðar.
Einnig erum við farin að undirbúa ferðina okkar til Noregs um næstu helgi. Kaupa það sem okkur vantar og þess háttar og sjá til þess að okkur vanti nú ekkert. Það eina sem skyggir á er blessaða veðurspáin, hún er rigning alveg út vikuna í Osló. Nú erum við að spá hvort við förum kannski bara ekki fyrr en á laugardaginn því ekki nennum við að vera í tjaldi í úrhellisrigningu nema í ÍTRUSTU neyð. Það kemur allt í ljós síðar.
--------
júní 19, 2004
Flugnabit
Það virtust næstum allir nema pabbi ætla að sleppa við flugnabit í sveitinni en í kvöld tókum við Jobbi bæði eftir að við værum komin með sitt hvort bitið. Eitt "venjulegt" bit er nú samt ekki neitt í samanburði við það sem pabbi þurfti að þola. Hann varð svo bólginn í kringum bitinn að það var eiginlega hrikalegt. Eitt sinn var annar úlnliðurinn alveg stokkbólginn, eitt sinn báðir kálfarnir og enn eitt skiptið var eins og hann hefði verið í tanntöku því kjálkinn var svo bólginn.
Það versta við þessi bit er þegar maður hefur einu sinni asnast til að klóra sér í þeim, eftir það getur kláðinn farið með mann!!! Það versta er eins og núna þegar við klóruðum okkur í þessu áður en við föttuðum að þetta væru bit! Það er frekar súrt því það er skárra að sleppa alveg klórinu en að hætta því.
--------
Komin heim úr netlausa fríinu okkar
Þá er fjölskyldan lögð af stað heim til Íslands eftir 2 góðar vikur hérna í Danmörku. Strax farin að sakna þeirra og finnst eiginlega hræðilegt að hitta þau kannski ekki aftur fyrr en í október!!
Vikan í sumarhúsinu var alveg algjör snilld, legið þokkalega mikið í leti, ekkert farið framúr rúminu fyrr en bara frekar seint og nágrennið skoðað. Það eina sem hefði mátt vera öðruvísi var veðrið, fengum gott veður á sunnudeginum en annars var bara frekar kalt, rigning og rok. Ýmist til skiptis eða saman. Ekki fleiri fréttir í bili, ætla að koma mér í bólið sem ég hef saknað soldið ásamt koddans míns.
--------
júní 09, 2004
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar!!!
Vegna mikilla anna og afar slæms netsambands á heimilinu þá kemst ég fyrst núna að þakka fyrir okkur.
Öll systkinin mín fimm eru búin að vera hjá okkur síðan um helgina en ég keyrði Margréti í flug eldsnemma í morgun. Það hefur því verið nokkuð þröngt á þingi í íbúðinni okkar og mikið fjör. Tívolíið og Vísindasafnið hafa verið grandskoðuð og í dag var það svo dýragarðurinn. Á morgun fer svo allt liðið með mömmu og pabba yfir til Jótlands í 2 daga en á meðan verður algjör leti hjá mér og reyna að vinna á þessari þreytu sem nú herjar á mann stöðugt. Á laugardaginn er það svo sumarhús í viku, það verður örugglega algjört æði, húsið er amk helmingi stærra en íbúðin okkar svo það verður ekki næstum eins þröngt um alla.
Síðast þegar ég skrifaði var ég sko alveg út að aka, ég minntist ekkert á nýfæddan son Bínu og Loga sem fæddist laugardaginn 5. júní. Hann er algjört augnayndi og ég er alveg veik að skreppa aðeins upp á Frón til að fá aðeins að máta;)
--------
júní 06, 2004
sjötti sjötti:-) Til hamingju með
sjötti sjötti:-)Til hamingju með 25 ára stórafmælið elsku besti Jobbi minn!!!! Búinn að vera frekar rólegur afmælisdagur eftir frekar erfið átök hjá sumum í afmælisveislunni í gær;) Í dag hefði Gísli afi einnig orðið 75 ára og því var amma með matarboð eins og alltaf heima á Brekkuhvamminum, hefði verið gaman að geta verið þar líka.
Að lokum langar okkur að þakka öllum fyrir þær góðu gjafir sem okkur hafa borist, en þó ég sé ekki enn búin að eiga afmæli þá er ég líka búin að fá jafn marga pakka og Jobbi;) Fengum alla pakkana saman í dag og í gærkveldi og vöktu þeir allir gríðarmikla lukku!!! Takk fyrir okkur!!! Úr því að ég á nú möguleika á að henda þessu inn fyrir miðnætti þá ætla ég að grípa það tækifæri, verður því ekki meira í bili... bíð núna bara spennt eftir morgundeginum (þrátt fyrir það að þá verði jafn langt í þrítugsafmælið og tvítugsafmælið).
--------
júní 03, 2004
Netsambandsleysi yfir afmælishelgina!!
Frá og með hádegi á morgun og allavega fram á sunnudag verðum við ekki tengd við umheiminn með því stórkostlega fyrirbæri sem internet kallast. E-ð verið að breyta og þá vonandi bæta netið hérna og það tekur takk fyrir alla helgina!!
Sem betur fer á samband að vera komið á á mánudaginn þegar minns á afmæli!!! Þ.a. allir geta óskað mér til hamingju en greyið Jobbi lendir í því að afmælisdagurinn hans er netlaus! Að sjálfsögðu verður hægt að tengjast með símalínu og spurning hvort maður láti sig hafa svoleiðis hundakúnstir í þessari neyð okkar.
Talandi um afmæli, þá er alveg merkilegt hvað ég er lítið búin að tala um það undanfarið, spurning hvort að próftíð alveg fram að afmæli hafi þar e-ð um að segja? Þetta gerist ekki aftur ef allt gengur að óskum því síðustu prófin mín ættu að vera í desember, síðan er "bara" lokaverkefnið eftir.
--------
Dugnaður!
Ekki get ég nú sagt að ég hafi verið neitt of dugleg að læra fyrir prófin, en síðustu daga þá er ég búin að skrifa upp á hvern einasta dag á bloggið! Það eru nú framför m.v. hvernig það var núna fyrr í vor!! Annars er nú ekki mikið að frétta, ég er mjög fúl út í framkvæmd prófsins í gær þó ég geti sjálfri mér kennt um miður góða einkunn. Enda ætlaði ég að fara að tala við kennarann og láta vita af því að ég væri ósátt við prófið sjálft þó ég nennti ekki að ræða einkunnina. Hann var bara ekki við áðan, ætli ég reyni ekki að líta við hjá honum aftur á eftir.
Annars er "bara" eitt próf eftir og þá er ég komin í sumarfrí!!!!!! Margrét kemur einmitt annað kvöld og planið er að kíkja kannski í Fields um leið og hún mætir því það er opið til miðnættis og allar búðir lokaðar á laugardeginum!
--------
júní 02, 2004
Blessaða fjölmiðlafrumvarpið
Þetta eru nú meiri skrípalætin heima á Fróni. Að mörgu leiti hefur mér þótt Davíð Oddson fara hamförum undanfarið (í neikvæðum skilningi) en sammála var ég að það þurfi að setja e-s konar lög um fjölmiðlana. Þetta ákveðna frumvarp hef ég hvorki haft tíma né of mikinn áhuga á að lesa þ.a. ég veit ekki hvort ég vildi fá nákvæmlega þetta eða aðeins öðruvísi frumvarp.
Hvernig svo sem frumvarpið hefði verið á meðan það tekur á eignarhaldi fjölmiðla þar sem það skaðar á e-n hátt Norðurljós, þá hefði fjölmiðlaumræðan ALREI getað orðið réttmæt. Það finnst mér bara einmitt sýna ókostinn við það að stór hluti fjölmiðlanna sé í eigu sama einstaklings eða fyrirtækis. Það hefur bara sýnt sig að eigendurnir stjórna mikið til því sem í gegnum fréttastofurnar fer. Eins hefur mér fundist af spjallþráða- og bloggumræðu á netinu að margir eru MJÖG á móti þessu frumvarpi af því að þeir eru á móti Davíð Oddsyni eða e-rjir aðrir eru búnir að segja þeim að vera á móti þessu.
--------
Anda inn, anda út, anda inn...
Það styttist ÍSKYGGILEGA í þetta blessaða munnlega próf sem ég er að fara í!!!!! Því miður kann ég efnið ENGAN vegin nógu vel en ég vona samt að það dugi til að maður slefi yfir sexuna. Svo framarlega sem ég fæ 10 einingar fyrir þennan kúrs þá verð ég ánægð, þó svo að ég kunni ekki efnið eftir hann alveg nógu vel skiptir minna máli því þetta er ekkert tengt mínu aðalsviði. Tók þennan kúrs því mér fannst þetta áhugavert efni, en endaði síðan á að vera alltof mikið efni og alltaf mikil vinna og frekar glataðir fyrirlestrar:/ Þetta er s.s. í sama kúrs og við vorum rúman sólarhring stanslaust í skólanum að gera skýrslu!!
--------