júlí 27, 2004

Slappad af à ströndinni.?Erum ì


Slappad af à ströndinni.?Erum ì mjög svo vidràdanlegum hita à strönd vid Bielersee (Sviss). Eftir mikid sud nàdi ég ad draga Jobba ùtì vatnid, sem var ekkert svo kalt tegar ùtì var komid:-). Annars er vindsængin byrjud ad leka, vid munum reyna ad finna orsökin svo ekki turfi ad kaupa nyja. Tschuss!
Póstblogg sendi Eyrún
Powered by Hexia

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 07:16 EH | 0 Ummæli

júlí 25, 2004

Strìpalingur!?A leid okkar um midbæ


Strìpalingur!?A leid okkar um midbæ Karlsruhe ì gær mættum vid ca. fimmtugum strìpalingi skokkandi um bæinn. Skiljanlega vakti hann mikla athygli medal bæjarbùa. Skodudum Basel ì dag og grilludum svo svìn a ridgada ferdagrillinu. Hrafnhildur eignadist stràk 20. jùlì, TIL HAMINGJU!!!
Póstblogg sendi Eyrún
Powered by Hexia

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 11:05 EH | 0 Ummæli

júlí 24, 2004

Loksins aftur ì elsku Sviss!


Loksins aftur ì elsku Sviss! Erum nù komin yfir til Sviss eftir gòda daga ì Karlsruhe. Bùin ad koma upp skakka tjaldinu à tjaldsvædi vid Basel og erum ad grilla bratwurst. Ætlum a jòdlhàtìd à eftir hérna rétt hjà. Tyskan er sem betur fer ca komin aftur:-) Margrét, ég vona ad tù hafir tad gott!
Póstblogg sendi Jobbi
Powered by Hexia

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 09:29 EH

júlí 20, 2004

Komin a tjaldsvædi ì Karlsruhe.

Komin a tjaldsvædi ì Karlsruhe. Eftir keyrslu i MESTU rigningu EVER erum vid nu komin ì Freizeitcenter rétt sunnan vid Karlsruhe. Mikla rigningin var svo mikil ad hradinn hrundi a hradbrautinni tvì tad sàst varla ùt ùr bìlnum. Hef lìtid turft ad tala tyskuna, en gat tò pantad gistinguna a tysku:-)
Póstblogg sendi Jobbi
Powered by Hexia

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 11:40 EH | 0 Ummæli

Erum nùna ì Rødby ad


Erum nùna ì Rødby ad bìda eftir næstu ferju sem flytur okkur yfir til Tyskalands. Vedrid er mjög gott, næstum of gott fyrir bìl med engri loftkælingu:) Næsta mission er ad reyna ad rifja upp tyskuna;) Bless Danmörk
Póstblogg sendi Jobbi
Powered by Hexia

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 12:36 EH

Á leið í frííííí!!

Þá er loksins liðin upp sú stund að við erum alveg að fara að leggja í tjaldútilegu okkar um Evrópu. Reyndar verður Evrópa tekin bara að hluta þar sem planið er að skoða Þýskaland, Sviss (já einu sinni aftur) og Ítalíu. Erum búin að koma upp moblog á síðuna þ.a. e-rjar fréttir munu berast á meðan ferð okkar stendur. Ciao!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:00 FH | 0 Ummæli

júlí 18, 2004

Blogger suckar svo BIG time!!!!!!

 
Þetta nýja edit mode er alveg að fara með mig og mína þolinmæði (sem getur verið að afar skornum skammti þegar tölvur og net eru annars vegar). Þoli ekki þegar tölvan vill hafa vit fyrir mér og ég get ekki ráðið sjálf hvað og hvernig ég geri hlutina!! Núna get ég t.d. af e-m undarlegum ástæðum ekki breytt færslum sem ég hef áður skrifað og linkar verða að vera af einföldustu gerð, ekki möguleiki að opna í nýjum glugga eða neitt því Edit HTML virkar ekki hjá mér!!! ARRGG og GARRRGG!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:44 EH | 0 Ummæli

Myndaalbúmið komið upp aftur með

Myndaalbúmið komið upp aftur með fullt af nýjum myndum:-)

Loksins, loksins, loksins!! Eftir einn og hálfan mánuð er myndaalbúmið loksins komið upp aftur. Ástæðan var einföld, það var skipt um server í byrjun júní og netgrúppunni (sem Jobbi er einmitt aðili að) fannst ekkert svo áríðandi að koma heimasvæðum notanda upp aftur. En einmitt af því að ég er með svo góð sambönd inn í þessa grúppu þá gat ég suðað nógu mikið til að hann kæmi þessu upp aftur. Ef ekki væri fyrir hann, hefði myndaalbúmið örugglega ekki komið upp aftur fyrr en í haust eða jafnvel bara um jólin, því þessir gaurar er sko ekkert að flýta sér neitt of mikið.

--------
Skrifaði eyrunl klukkan 10:33 EH | 0 Ummæli

Óboðinn gestur á milli brjóstanna

 
Ég hélt að það væri nú alveg skýrt að það þyrfti að fá leyfi áður en vaðið væri á kvenkyns brjóst. Það hefur greinilega e-ð farið fram hjá þeim sem ég þurfti að ná í á hægra brjóstinu mínu í gær. Þessi græna fluga sem trítlaði upp eftir brjóstinu fékk því að enda líf sitt á milli puttanna minna úr því að hún kunni ekki betri mannasiði;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:20 EH | 0 Ummæli

júlí 14, 2004

Á leið til Svíþjóðar... aftur:-)

Af því að það er svo gaman að geta illa talað við annað fólk þá erum við strax farin að hlakka til að fara með bílinn á verkstæðið þar sem enginn virðist tala ensku. Það þýðir aðeins eitt, við verðum að tala við þá dönsku sem er ekkert mál, en öllu verra um að skilja sænskuna!!! Ekki nóg með það heldur snýst þetta um bíl og bílamál! Vonum bara að við fáum ekki of háan reikning þegar við sækjum bílinn sökum tungumálamisskilnings.

Þar sem ég var svo hrikalega mikið utan við mig í gær og var engan veginn inn í hvaða dagsetning var, þá STEINgleymdi ég að óska Lindu Rós til hamingju með afmælið í gær!! Hún varð 25 ára skvísan og fær af því tilefni innilegustu hamingjuóskir frá íbúum Trørød Kollegís 20c.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:29 EH | 0 Ummæli

júlí 13, 2004

Humarveisla

Gestirnir okkar, Ingunn, Halldór og Helena, komu með fullan kassa af Humri handa okkur. Meirihlutinn var grillaður í gærkveldi á nýja grillinu okkar og var grillið þar með formlega tekið í notkun. Grillið stóðst fyrstu prófraun sína með prýði og smakkaðist humarinn alveg snilldarvel.
Maturinn var þó ekki fyrr en seint í gærkveldi eða um 10 leytið því við vorum svo upptekin á Strikinu þar til allar búðir lokuðu. Í dag er svo stefnan sett á rölt í Christianiu og Tívolíið:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:29 FH | 0 Ummæli

júlí 09, 2004

Dugnaður, eða hvað?

Í byrjun dags, leit hann út fyrir að ætla að verða einn af þessum dögum sem maður gerir akkúrat ekki neitt nema hanga á netinu. Úti var MÍGANDI rigning og ótrúlega óspennandi að fara út fyrir hússins dyr. Þegar leið á daginn stytti upp og sólinn lét meira að segja sjá sig. Við drifum okkur þá út og Jobbi (já þið lásuð rétt) fór að hreinsa upp á milli hellna og úr beðunum. Á meðan fór ég í að klippa aðeins til tréð sem hefur verið aðeins of stórt í þessum litla garði. Nú virkar garðurinn miklu miklu stærri og á vonandi eftir að nýtast okkur vel í næstu viku þegar sólin á að fara að sjást meira og við verðum með góða gesti í heimsókn.
Eftir alla þessa vinnu nenntum við nú ekki mikið að elda þ.a. það var bara pöntuð pizza á þessu heimili.
Að lokum var svo gasgrillið sett saman og er núna komið út á stétt. Bíður eftir tilvonandi sambýlismanni (þ.e. gaskútnum) og að fá loksins að elda ofan í okkur dýrindis máltíðir.

Þetta kalla ég að vera dugleg:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:12 EH | 0 Ummæli

júlí 08, 2004

Gasgrillseigendur

Nú gátum við loksins ákveðið okkur, eftir mikla umhugsun. Við keyptum okkur í afmælisgjöf frá tengdó og ömmu og afa Jobba Char-Broil grill í Elgiganten í Fields. Byrjuðum á að fara í "okkar" Elgiganten sem er ekki svo langt í burtu, og þá var bara útstillingseintakið til sölu og átti að vera 500dkr afsláttur fyrir að kaupa þetta ákveðna eintak. Sem betur fer var ég búin að skoða í Fields, og sjá að þar var nákvæmlega þetta grill á sama verði, þ.e. líka með þessum 500dkr afslætti. Lét því ekki plata mig til að kaupa jafndýrt grill sem er búið að standa heillengi í búðinni og fólk búið að þjösnast á. Hins vegar varð ferðin í Fields til þess að rugla okkur ennþá meira í þessum grillpælingum, því við sáum svaka flott, miklu stærra grill sem var líka næstum helmingi dýrara. Það var ótrúlega töff og lokið eldrautt, en við ákváðum samt að vera skynsöm og fá okkur ekki svo stórt grill fyrr en við eigum allavega eigin íbúð eða hús.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:03 EH | 0 Ummæli

Önnur grillveisla sumarsins

Í þetta skiptið var það reyndar bara veisla fyrir okkur tvö. Í staðinn höfðum við líka pláss á grillinu til að grilla ferskan ananas og grænmetisspjót. Við erum alveg á fullu að leita okkur að fínu gasgrilli þar sem maður getur grillað aðeins meira magn í einu, heldur en á ferðagrillinu okkar. Ekki nóg með að það var svaka fínn grillmatur, þá borðuðum við úti í sólinni:-). Það á hins vegar að fara að rigna aftur í kvöld, þ.a. ég efast um að við náum þessum lúxus aftur strax.
Svo til að toppa allan lúxusinn þá svaf ég eins og rotuð sveskja til hálf 12:-) mmmm það er svo notalegt að sofa:-) Kannski betra að taka það fram að ég fór seint að sofa;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:17 EH

júlí 06, 2004

Tekin í rassgatið

Við fórum út að borða í kvöld á Vesuvio, sem er alveg ágætis ítalskur veitingastaður niðrá ráðhústorgi. Við hliðina á okkur voru enskumælandi útlendingar. Þegar þau voru að borga voru þau greinilega að velta fyrir sér hvort þjónustan væri innifalin í verðinu og spurðu því þjóninn. Hann svaraði NEI, en skv. minni vitneskju er sama fyrirkomulag á tipsi hér og heima, sem þýðir að þjónustan er innifalin í verðinu en fólki er meir en velkomið að gefa þjónunum þjórfé ef það langar til. Við vorum mikið að spá hvort við ættum að segja þeim það, en ákváðum bara að láta þetta okkur að kenningu verða og aldrei spyrja á sjálfum staðnum, því þá myndi maður pottþétt fá sama svarið hvort sem það væri síðan rétt eða ekki.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:54 EH | 0 Ummæli

júlí 05, 2004

Línuskautarnir vígðir

Í gær voru "nýju" línuskautarnir okkar vígðir. Nýju er innan gæsalappa því þeir voru keyptir í fyrra!! Maður verður náttlega alltaf að kenna e-m öðrum en sjálfum sér um, og hjá mér er það að Jobbi vildi ekki fara á þá fyrr en hann væri búinn að kaupa hlífar. Þær voru svo keyptar í vor og ég beið spennt eftir að klára prófin til að geta farið á línuskautana, en þá fór að rigna eins og ég hef víst margoft áður sagt. Við fórum samt ekki langt, Jobbi þarf aðeins að venjast þeim betur áður en við getum farið í lengri ferðir;) Best að gera samt ekkert of mikið grín af honum, því einu sinni var ég líka nýbyrjuð á línuskautum og endaði inni í húsgarði þegar ég gat ekki stoppað mig á leið niður Fagrabergið.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:13 EH | 0 Ummæli

Rigning fyrir lífstíð

Kannski ekki alveg, en fyrr má nú aldeilis vera. Samkvæmt veðurfréttum fyrir nokkrum dögum, átti sumarið að koma á morgun, jújú, spáin segir það ennþá, en bara í 2 daga!!!!! Hvernig er hægt að láta mann upplifa jafn leiðinlegt sumarveður??? Á milli rigninganna kemur oft mjög gott veður og þá verður maður bjartsýnn og vill endilega komast út, en oft áður en maður er kominn út um dyrnar er farið að rigna aftur!! Spurning hvort maður verði að láta senda sér gúmmístígvélin og láta versla á mann 66°N regngalla?? Neinei, þetta getur nú varla orðið mikið verra en það er búið að vera, það hlýtur að fara að skána... ég var allavega búin að lofa Ingunni að það yrði sumarveður þegar hún kæmi og hún er að koma um næstu helgi:-)

Jobbi vildi endilega að ég léti öppdeit á síðasta bloggið mitt, því ég fór út og sló grasið seinnipartinn:-) Var ekkert svo lengi að því og það er allt annað að sjá garðinn núna. Nú er hins vegar allt hitt illgresið eftir, en næ vonandi að klára það fljótlega. Komst að því að nágranna kettirnir (þeir eru nokkuð margir) hafa notað beðin okkar sem klósett, og það var allt fullt af kattaskít!!! Ójjjjjj!! Jobbi er svo mikil hetja að hann hreinsaði þetta fyrir mig:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:58 EH

júlí 04, 2004

Enginn á netinu!

Það er alveg greinilegt að fólkið sem ég þekki á Íslandi er ekki að nenna að hanga á netinu um helgar! Ég er reyndar búin að vera óvenju dugleg að gera annað en að vera á netinu, en það virðist bara vera frekar dautt þegar ég fer á það. Næstum enginn á msn og mest lítið að gerast á bloggsíðunum.
Annars er kannski bara ágætt að það sé lítið sem ekkert um að vera á netinu, ég geri þá hugsanlega e-ð gáfulegt í staðin fyrir netrápið. Eins og þegar sólin skín í gegnum holurnar á skýjunum þá dauðlangar mig til að fara út í garð að slá og hreinsa illgresið í stéttinni, en það er bara því miður allt blautt ennþá eftir rigninguna áðan og maður bíður bara eftir næstu gusu.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:26 EH | 0 Ummæli

Ferskur fiskur í fyrsta sinn

Við Jobbi erum frekar léleg í að elda fisk, það verður að segjast alveg eins og er. Nokkrum sinnum höfum við eldað sjávarréttarsúpu með frosnum sjávarréttum og fisk en í gær fórum við í fyrsta skipti í fiskbílinn sem kemur einu sinni í viku og versluðum okkur ferskan þorsk. Það má spyrja sig af hverju Íslendingarnir hafi keypt sér þorsk og ástæðan fyrir því er einföld. Við mundum ekki hvað neinn annar fiskur hét á dönsku!!
Þegar heim var kominn, elduðum við dýrindis fisk sem ég fann uppskrift að á netinu (hvar annars staðar?;)).
Þrátt fyrir að vera lélegir fiskeldunarmenn, þá erum við samt að skána, því á þessum rúmum 10 mánuðum sem við höfum búið hér, hefur oftar e-s konar fiskmeti verið á eldhúsborði okkar heldur en 2 árin á undan á Eggertsgötunni. Þá nenntum við líka alveg sjaldnast að elda og ef það var farið að líða of langt frá almennilegum mat, þá skelltum við okkur í Fagrabergið. Nú er ekkert hótel mamma sem hægt er að stóla á.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:36 FH | 0 Ummæli

júlí 02, 2004

Beiluðum á Hróarskeldu þetta árið

Já við seldum miðana okkar á Hróarskeldu í gær. Fyrir því lágu 2 ástæður, David Bowie hætti við að koma, en upphaflega var hann aðal ástæðan að við ákváðum að fara og úrhellis mígandi rigning og drullusvað á svæðinu. Við eigum jú sitthvorn vindjakkann en okkur fannst þetta ekki mjög svo spennandi. Við sáum myndir í gær í fréttunum af svæðinu, og ég var á því augnabliki MJÖG fegin að við hefðum selt miðana. Mörgum tjöldunum var eiginlega tjaldað á "stöðuvatni" og fólk var vaðandi í drulluvatni. Við erum líklegast ekki nógu mikil partýljón til að fara bara og láta okkur hafa þetta.

Í öðrum fréttum er það að frétta að við erum orðin einu Íslendingarnir á kollegíinu, þar sem allir hinir eru farnir til Íslands og enginn kemur aftur fyrr en í byrjun ágúst. Ég væri nú alveg til í að skreppa aðeins heim, en er samt ekkert að deyja úr heimþrá neitt. Veit líka að ég er að koma í október. Held ég hafi einmitt ekki verið búin að minnast á að við erum búin að kaupa okkur miða heim. Erum skrópistar því við ætlum að vera í 2 vikur á Íslandi í viku haustfríi;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:15 EH | 0 Ummæli

júlí 01, 2004

Gulrætur og brjóstastærð

Þegar ég var unglingur og var að byrja að fá brjóst sem ég nennti engan vegin að fá (þau voru fyrir mér í sundinu;)) þá heyrði ég e-n tímann að ef maður borðaði gulrætur þá stækkuðu á manni brjóstin!! Þessar upplýsingar urðu til þess að ég borðaði ekki gulrætur í lengri tíma! Í dag er þessi óttatrú mín hins vegar horfin og ég borða gulrætur með bestu lyst.
Ég man ekkert hvernig ég fékk þessa "vitneskju", eflaust hefur e-r verið að grínast og ég tekið þessu svona hrikalega alvarlega án þess að þora að spyrja neitt nánar út í þetta. Fannst bara "better to be save than sorry" og borðaði því alveg helst ekki gulrætur (máttu nú alveg vera í mat, en ég sleppti gulrótarsalati og heilum gulrótum).
Datt þetta í hug núna áðan þegar ég fékk mér gulrót sem við fengum úr grænmetiskassanum sem Fjóla fékk en gat ekki nýtt sér þar sem þau eru á leið til Íslands á morgun.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:03 EH | 0 Ummæli