ágúst 31, 2004
Í stuði með Stuðmönnum
Veit fátt skemmtilegra en að setja íslenska tónlist í spilarann og dilla mér með. Man reyndar ekkert alltof oft eftir því, en núna er ég búin að vera með Tvöfalda bítið með Stuðmönnum í gangi og er þvílíkt að fíla mig í tætlur. Minnir mig á frábæru tónleikana í tívolíinu, væri til í e-ð svoleiðis aftur. Er annars að reyna að taka aðeins til, gengur ekkert alltof vel þegar tölvan er með þennan segul... vona samt að Jobbi sjái e-n mun þegar hann kemur heim:)
--------
Skólinn byrjaður
Í gær var fyrsti skóladagurinn þessa önnina, sem er einnig síðasta önnin fyrir lokaverkefni. Var frekar erfiður fyrsti dagurinn, frá 8-4. Leyst samt asskoti vel á kúrsana sem voru í gær, og er bara orðin nokkuð spennt fyrir önninni. En eftir kröftuglega byrjun í gær, er náttlega þörf á smá hvíld, og því er ég í fríi bæði í dag og á morgun:-)
--------
ágúst 28, 2004
Hópferð í tívolíið
Í gær fórum við í rigningunni 8 saman í tívolíið. Allir fengu sér turpas sem voru svo sannarlega vel nýttir. Fórum tvisvar í dímoninn og fallturninn, Jobbi lét sig hafa það að fara í strákaferð í Dragen, en í það tæki hefur hann aldrei vogað sér áður og fullt af fleiri tækjum. Mælum hiklaust með því að fara í svona veðri, því við þurftum eiginlega aldrei að bíða neitt m.v. hvernig raðirnar geta orðið á góðum sumardögum.
--------
ágúst 25, 2004
Smiður, málari eða bifvélavirki, ég get þetta sko allt saman;)
Í gær vorum við að rífa niður úr eldhúsinu og smíða upp í loftið. Í dag skiptum við um bremsuklossa, olíu og e-ð sem kallast "bærkugle" á "gør det selv" verkstæði og síðan er bara málningin sem bíður ennþá.
Það var alveg ótrúlega lítið mál að laga bílinn, nú þyrftum við bara að fara á logsuðunámskeið þ.a. við gætum lagað pústið sem er svona farið að byrja að bila. Þó mér finnist ekkert svakalega spennandi að vera drulluskítug og með skít undir nöglunum þá er það samt soldið gaman þegar ég veit að það er af því að ég er búin að vera geðveikt dugleg að gera e-ð sem mér hefði aldrei dottið í hug að ég gæti gert.
Ennþá eru myndir að bætast inn í albúmið, setti inn 2 nýja flokka í morgun og aldrei að vita nema það komi meira í kvöld.
--------
Kíttað upp í götin
Þó ég hafi aldrei kíttað áður og vissi ekki hvernig ég kæmi túpunni inn í sprautuna þegar ég fékk hana lánaða þá hafðist þetta allt saman og meira að segja nokkuð vel þó ég segi sjálf frá. Þá eigum við bara eftir að mála og það verður gert á eftir, en Jobbi fór í morgun að ná í málningu. Áður en við málum ætlum við hins vegar að reyna að skipta um bremsuklossa á bílnum okkar. Tekið skal fram að við höfum aldrei gert neitt því um líkt áður og ætlum því að koma við á bókasafninu og ná í handbók til að hjálpa okkur!
--------
ágúst 23, 2004
Myndir farnar að berast í albúmið
Er byrjuð að setja inn myndir úr ferðalaginu okkar í myndaalbúmið. Á eftir að koma miklu fleira en ég set þetta inn eins og ég nenni.
--------
Bíllykill í þvottavélina
Rétt áður en við fórum að þvo í vikunni fundum við ekki annan bíllykilinn okkar. Það er í sjálfu sér ekkert óvanalegt en lyklarnir hérna týnast mjög svo reglulega en hafa hingað til alltaf komið í leitirnar stuttu seinna. Svo var einnig í þetta skiptið, nema hann fannst þegar við tókum þvott út úr þvottavélinni. Ekki kannski alveg besta meðferðin sem hægt er að hugsa sér fyrir svona fjarstýringarlykil. Eru lífgunartilraunir í gangi og við vonum bara það besta.
--------
ágúst 20, 2004
Dugnaður á heimilinu
Jobbi þó meira áþreifanlega en ég, þar sem hann fór með Ingólfi í Silvan í morgun að kaupa efni í hillur í skápana og inn á baði. Hann er síðan búin að koma þeim upp, búinn að setja öryggisjárn á eldhúsgluggann og er núna e-ð að baksa við að tengja hátalara í stofunni. Ég hins vegar er búin að pikka ferðasöguna inn í tölvu og telur það heilar 14 blaðsíður!! Þvotturinn frá því í gær er orðinn þurr, en á ennþá eftir að brjóta e-ð af honum saman. Var ekki alveg nógu gáfulegt að þvo 7 þvottavélar í gær þar sem það fór að rigna og við eiginlega engan veginn með nóg pláss til að þurrka fötin þó við hefðum látið í 2 stútfulla þurrkara.
--------
ágúst 18, 2004
Komin heim
Það er nú ósköp gott að vera komin heim til sín, en öllu leiðinlegra að ganga frá öllu dótinu. Við komum s.s. heim í gærkveldi/nótt eftir langa keyrslu frá Sviss.
Reynslan og upplifunin að vera í mánaðar tjaldferðalagi, skoða FULLT af hlutum og hitta gamla vini var alveg ólýsanleg og ógleymanleg. Vorum með grófa hugmynd um hvernig við ætluðum að haga ferðinni en eftir því sem tíminn leið þá breyttist hún og við erum mjög sátt við útkomuna.
Fyrstu 4 næturnar vorum við í Þýskalandi. Þar keyrðum við um Svartaskóg og fórum til Strasbourg í Frakklandi með Ingunni, Halldóri, Hafdísi, Helenu og Viktori (frændi þeirra sem Hafdís var að passa), fórum í Europa Park með fjölskyldunni, slöppuðum af við Rín og fórum í mat til Jennýar og Árna.
Frá Þýskalandi lá leið okkar til Sviss, fékk næstum víðáttubrjálæði í matvörubúðunum því mig langaði svo að prófa allt sem ég mundi að mér hafði þótt gott hérna áður fyrr. Vorum 2 nætur í Basel, 2 nætur við Bielersee og síðan 2 nætur í Zürich. Í Zürich hittum við Robba, Judith og Júlíu, en Robbi er vinur hans Jobba. Vorum hjá Friedu (kona sem ég var soldið hjá þegar ég var skiptinemi) í 3 nætur og fögnuðum þar 1. ágúst (þjóðhátíðardagur Svisslendinga). Fórum yfir í ítalska hluta Sviss og vorum í 4 nætur þar með Vroni í húsi sem Ammann fjölskyldan (sem ég átti heima hjá) á þar.
Fórum til Ítalíu og vorum á tjaldsvæði við ströndina nálægt Feneyjum í viku. Skoðuðum að sjálfsögðu Feneyjar en lágum annars í leti á ströndinni eða lékum okkur þar (ég átti frekar erfitt með að liggja bara lengi).
Þegar þarna er komið við sögu, vorum við búin að vera á ferðalagi í 24 nætur og mig farið að langa ansi mikið að komast heim til mín. Fórum aftur til Sviss, vorum í 2 nætur á tjaldsvæði í Lungern (milli Luzern og Brienz ef það hjálpar e-ð). Vorum að keyra þarna í gegn þegar við sáum auglýst tjaldsvæði og staðurinn var svo æðislegur (og við nenntum ekki að keyra lengur) að við breyttum bara planinu. Fórum upp á Schönbüel (2011m hátt fjall alveg við bæinn) og sáum yfir til alpanna. Síðustu 2 næturnar vorum við síðan aftur í Madiswil en nú hjá Ammann fjölskyldunni, lágum bara í leti til að safna kröftum fyrir heimferðina. Lögðum af stað heim fyrir 8 þ.a. við yrðum nú komin heim á skikkanlegum tíma. Stoppuðum í búð til að kaupa hátalara fyrir frænda Jobba sem var ekki langt frá hraðbrautinni og ætluðum að vera eldsnögg þar. Það breyttist líka heldur betur því við lögðum ekki aftur af stað fyrr en eftir 4 klukkutíma!!! Af hverju?? Jú, því við sáum 32" sjónvarp á svo svaka fínu tilboði og við þurftum góðan tíma til að hugsa um það og síðan ekki minna mál að endurraða í bílinn til að koma sjónvarpinu og hátölurunum fyrir í næstum fullan bílinn.
Þetta er ferðin í grófum dráttum, erum núna búin að vera að ganga frá dótinu okkar, og merkilegt nokk, þá er íbúðin farin að líta út eins og mannabústaður aftur:)
--------
ágúst 16, 2004
Styttist i heimkomu
Eftir taeplega manadarferdalag styttist i ad vid komum aftur heim til okkar. Eg get ordid ekki bedid eftir ad geta sofid i minu rumi, med mina saeng, farid a manns eigins klosett og chillad upp i sofa.
Erum nuna i Madiswil hja fjölskyldunni sem eg var hja tegar eg var skiptinemi her i Sviss og aetlum ad leggja af stad heim a morgun. Planid er ad keyra alla leidina (1200km + 45min ferja + bidtimi fyrir ferju) i einum rykk og vid sjaum svo til hvort okkur tekst tad.
--------
ágúst 08, 2004
A ìtalìu Komum à föstud
A ìtalìu Komum à föstud til ìtalìu og erum bùin ad hafa tad svaka gott à tjaldsvædi rétt hjà Feneyjum. Liggjum à sandströndinni à daginn næstum hvort sem sòlin skìn eda ekki. Bùin ad kaupa partìtjald til ad geta setid ùti ì kvöldrigningunni sem virdist ætla ad vera vaninn hjà okkur. Ciao!Póstblogg sendi Eyrún
--------
ágúst 03, 2004
Italski hluti Sviss
Komum i gaer yfir alpana og aetlum ekki ad fara aftur nordur fyrir tha fyrr en eftir nokkura strandlegu a Italiu og nanari skodun a Tessin sem er italski hluti Sviss. Erum buin ad vera i brjalaedislega miklum hita herna undanfarid og okkur dreymir stödugt um loftkaelingu i bilinn tvi tegar dökkblar billinn er buinn ad vera e-n tima i sol verdur heldur obaerilegt inni i honum. Annars er altjodalega kvikmyndahatidin i Locarno ad hefjast a morgun og aetlum vid ad kikja adeins a tad.
--------