ágúst 18, 2004

Komin heim

Það er nú ósköp gott að vera komin heim til sín, en öllu leiðinlegra að ganga frá öllu dótinu. Við komum s.s. heim í gærkveldi/nótt eftir langa keyrslu frá Sviss.
Reynslan og upplifunin að vera í mánaðar tjaldferðalagi, skoða FULLT af hlutum og hitta gamla vini var alveg ólýsanleg og ógleymanleg. Vorum með grófa hugmynd um hvernig við ætluðum að haga ferðinni en eftir því sem tíminn leið þá breyttist hún og við erum mjög sátt við útkomuna.
Fyrstu 4 næturnar vorum við í Þýskalandi. Þar keyrðum við um Svartaskóg og fórum til Strasbourg í Frakklandi með Ingunni, Halldóri, Hafdísi, Helenu og Viktori (frændi þeirra sem Hafdís var að passa), fórum í Europa Park með fjölskyldunni, slöppuðum af við Rín og fórum í mat til Jennýar og Árna.
Frá Þýskalandi lá leið okkar til Sviss, fékk næstum víðáttubrjálæði í matvörubúðunum því mig langaði svo að prófa allt sem ég mundi að mér hafði þótt gott hérna áður fyrr. Vorum 2 nætur í Basel, 2 nætur við Bielersee og síðan 2 nætur í Zürich. Í Zürich hittum við Robba, Judith og Júlíu, en Robbi er vinur hans Jobba. Vorum hjá Friedu (kona sem ég var soldið hjá þegar ég var skiptinemi) í 3 nætur og fögnuðum þar 1. ágúst (þjóðhátíðardagur Svisslendinga). Fórum yfir í ítalska hluta Sviss og vorum í 4 nætur þar með Vroni í húsi sem Ammann fjölskyldan (sem ég átti heima hjá) á þar.
Fórum til Ítalíu og vorum á tjaldsvæði við ströndina nálægt Feneyjum í viku. Skoðuðum að sjálfsögðu Feneyjar en lágum annars í leti á ströndinni eða lékum okkur þar (ég átti frekar erfitt með að liggja bara lengi).
Þegar þarna er komið við sögu, vorum við búin að vera á ferðalagi í 24 nætur og mig farið að langa ansi mikið að komast heim til mín. Fórum aftur til Sviss, vorum í 2 nætur á tjaldsvæði í Lungern (milli Luzern og Brienz ef það hjálpar e-ð). Vorum að keyra þarna í gegn þegar við sáum auglýst tjaldsvæði og staðurinn var svo æðislegur (og við nenntum ekki að keyra lengur) að við breyttum bara planinu. Fórum upp á Schönbüel (2011m hátt fjall alveg við bæinn) og sáum yfir til alpanna. Síðustu 2 næturnar vorum við síðan aftur í Madiswil en nú hjá Ammann fjölskyldunni, lágum bara í leti til að safna kröftum fyrir heimferðina. Lögðum af stað heim fyrir 8 þ.a. við yrðum nú komin heim á skikkanlegum tíma. Stoppuðum í búð til að kaupa hátalara fyrir frænda Jobba sem var ekki langt frá hraðbrautinni og ætluðum að vera eldsnögg þar. Það breyttist líka heldur betur því við lögðum ekki aftur af stað fyrr en eftir 4 klukkutíma!!! Af hverju?? Jú, því við sáum 32" sjónvarp á svo svaka fínu tilboði og við þurftum góðan tíma til að hugsa um það og síðan ekki minna mál að endurraða í bílinn til að koma sjónvarpinu og hátölurunum fyrir í næstum fullan bílinn.

Þetta er ferðin í grófum dráttum, erum núna búin að vera að ganga frá dótinu okkar, og merkilegt nokk, þá er íbúðin farin að líta út eins og mannabústaður aftur:)


--------

Skrifaði eyrunl þann 18.08.04 18:02
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?