september 29, 2004

"Rétti" árstíminn

Hér í Danmörku fæst yfirleitt ekkert sem ekki passar til líðandi árstíðar. Samt helst þ.a. maður þarf að vera RÉTT á undan árstíðinni til að fá það sem maður vantar. Sumarfötin eru t.d. helst á vorin, því strax um mitt sumar fara þau á útsölu til að rýma fyrir haustvörunum. Í lok ágúst þegar oft er hið besta sumarveður hérna, er því sjaldnast hægt að fá neinar sumarvörur af e-u viti. Í dag fórum við að athuga með nagladekk undir hjól fyrir Halldór og þegar við spurðum í fyrstu hjólabúðinni var þetta svarið sem við fengum: "Það er ekki rétti árstíminn!!". Þetta svar kom okkur svo sem ekkert mikið á óvart, en við hlógum samt að Dananum enn einu sinni.

Svona úr því að ég er byrjuð, þá get ég alveg eins haldið aðeins áfram. Danir þurfa að skipuleggja allt með LÖNGUM fyrirvara. Það var ekki hægt að halda indflyttermøde hérna á kollegíinu um næstu helgi eins og búið var að plana þar sem það var ekki búið að senda út boðsbréfin 9 dögum áður!!! Þessi fundur er til þess að kynna nýfluttum íbúum kollegíssins fyrir gagnlegum ráðum fyrir dvölina hérna. Íslendingarnir á kollegíinu eru öllu lausari í skipulagningu, sjaldgæft að ákvörðun um hitting náist að vera tekin með viku fyrirvara. Einu sinni bauð Anna Karen öllum í mat kl 5 eftir að gestir í matarboð boðuðu forföll á síðustu stundu og það mættu ALLIR!! Hún hefði ekki getað fengið betri mætingu þó hún hefði planlagt þetta með mánaðarfyrirvara.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:21 EH | 0 Ummæli

september 27, 2004

Árleg hægri eyrnaskoðun

Áðan fékk ég eftirfarandi vottorð frá Jobba mínum:

Árleg hægri eyrnaskoðun hefur farið fram og var lokið með 0 athugasemdum.
Eyrað telst því löglegt í umferðinni.
Eyrnaeftirlitið
Jósef


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:59 EH | 0 Ummæli

september 22, 2004

Geðveikur GSM sími

Símarnir sem ég hef átt um ævina hafa farið ófáar byltur í gólfið í gegnum tíðina. Í dag missti ég símann í gólfið og ótrúlegt en satt þá datt batteríið ekki úr honum og allt virtist í lagi (síminn er þeim "eiginleika" gæddur að ef hann fær smá högg þá dettur hann allur í sundur og á víst að vera þannig). Stuttu seinna reyndi ég að hringja í Jobba og á skjánum sást að ég væri að hringja, en EKKERT heyrðist í símanum. Jobbi fékk ekkert símtal og eftir ansi langan tíma þar sem ég gat EKKERT gert nema horfa á símann vera að hringja, þá varð ég að slökkva á símanum með að taka batteríið úr. Virkaði ekki að reyna að slökkva á honum venjulega.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:51 EH | 0 Ummæli

september 20, 2004

Áfram FH, áfram FH!!!

Í fyrsta skipti í sögu félagsins varð FH loksins íslandsmeistari í fótbolta!! Miðað við þann fjölda úr fjölskyldunni minni sem fór norður á leikinn, þá efast ég ekki um að það hafi verið fjölmennt af FH-ingum á FH-KA leiknum. Pabbi fór meira að segja með Agnesi og Hans Adolf norður í rútu og heim aftur strax eftir leikinn!! Verst að KA menn þurftu að falla við sigur FH-inga, Jobbi var því ekki alveg jafn ánægður og ég með úrslit gærkvöldsins.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:07 FH | 0 Ummæli

september 15, 2004

Jólin nálgast

Það mætti allavega halda það;) Ég er nefnilega búin að taka upp jóladúkinn sem ég keypti í fyrra og ætla mér að reyna að komast e-ð áfram með hann. Sama þó ég hefði endalausan tíma í sumar, þá gat ég e-n veginn ekki komið mér í jólaföndrið um mitt sumar!! Eins og það hefði nú verið upplagt.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:02 EH | 0 Ummæli

september 13, 2004

Letibloggari, ha ég? nei getur ekki verið;)

Nenni ekki að koma með allar heimsins afsakanir fyrir því af hverju ég er ekki búin að blogga svona lengi... gæti eflaust grafið þær nokkrar upp;) Einhvern veginn eftir að lengra leið, og meira hafði gerst átti ég erfiðara með að koma mér af stað. Er t.d. búin að vera með blogger opinn hjá mér í næstum allan dag, en ekki fyrr en núna fyrst sem ég drattast til að skrifa (eftir að ég var farin að fá "skammir" frá Margréti).
Hvað er svo búið að vera að gerast undanfarið, jú Hólmar var í heimsókn hjá okkur í rúma viku. Hann var aðallega að slappa af áður en skólinn byrjaði aftur hjá honum í dag. Ég held hann hafi skemmt sér ágætlega með okkur, eins gott fyrir hann að viðurkenna ekkert annað;)
Um helgina fór ég síðan yfir til Århus til að hitta Helgu Björt, Berglindi og Lindu Rós. Föstudagurinn var síðan alls herjar saumódagur! Við fórum allar með Gústafi Bjarna, Emil Gauta og Baldvini Hrafni og foreldrum Berglindar í Legoland og allir skemmtu sér konunglega. Ég hafði aldrei farið áður í Legoland og hlakka bara til að fara aftur. Vel hægt að eyða heil löngum tíma í viðbót að skoða allar byggingarnar og hverfin. Tækin voru flest ætluð börnum, og því ennþá skemmtilegra að fara með strákunum í tækin og upplifa gleðina með þeim. Við Berglind vorum síðan þær einu sem þorðu í fyrstu tilraun í Power Builder, en það er tæki sem maður forritar sjálft hvernig maður vill hafa sína ferð og við vorum svo hugaðar að við völdum það "versta og mesta". Var nú ekki eins slæmt og maður gat ímyndað sér þar sem við urðum ekki ringlaðar, vorum í staðinn á hvolfi meiri hlutann af tímanum!!

Í gær prófaði ég eitt sem ég er búin að halda fram að ég geti, og það merkilega var, þá tókst það. Ég fór í sturtu í auglýsingahléi á bíómyndinni í gærkveldi á Þremur. Það segir sitt um lengt þessara auglýsingahléa, sem geta auðveldlega gert mann geðveikan.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:29 EH | 0 Ummæli

september 04, 2004

Íslendingagrill og heimsókn

Í gærkveldi hittust Íslendingarnir á kollegíinu (og tvö rétt óflutt) upp í Center og grilluðu saman. Eins og venja er, var ótrúlega gaman að hitta krakkana aftur. Ótrúlegt en satt, þá var veðrið svo gott að við gátum borðað úti á meðan krakkarnir hlupu um svæðið og léku sér.

Í dag kemur svo Hólmar bróðir hans Jobba í heimsókn til okkar, og verður hjá okkur í rúma viku. Munum pottþétt fara með hann í tívolíið og svo á restin bara eftir að koma í ljós.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:02 FH | 0 Ummæli