október 28, 2004

Hrím á bílnum og engin skafa til

Í gær var viðbjóðslega kalt þegar við vöknuðum, ætlaði ekki að ná að skríða undan sænginni því ofnarnir voru ekki alveg að ná að afkasta nógu miklu fyrir minn smekk. Þegar út í bíl var komið var hrím á bílnum og því nauðsynlegt að skafa af bílnum áður en lagt var í hann. Eftir mikla leit og umhugsun fattaðist það, að þar sem við keyptum bílinn ekki fyrr en seinni partinn í mars þá hefur okkur aldrei vantað sköfu fyrr en núna og því engin svoleiðis gripur til á okkar heimili. Eina ráðið var því að láta bílinn í gang og láta miðstöðina sjá um málið. Ekki alveg umhverfisvænasta lausnin og ég býst við að við verðum að koma við á e-i bensínstöðinni bráðlega til að fjárfesta í svona grip. Í dag er nú sem betur fer skýjað, en þá helst hitinn yfirleitt um 10°C sem er öllu skárra en frost.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:49 EH | 0 Ummæli

október 23, 2004

Ég orðin e-ð rugluð...

Jájá, sumir segja núna, nei ekkert orðin hefur alltaf verið það!! Letibloggarinn ég, lét verða af því að blogga í gær, en kemst svo að því í morgun að ég hafði ekki sett það hingað inn heldur á bónersíðuna.

Við vorum alveg viss um að eiga 2 læri í frystinum og þegar við ætluðum að athuga hversu þung þau væru þá fundum við bara eitt. Jobbi heldur því núna fram að við höfum grillað hitt lærið með Ingunni og co. en ég man akkúrat EKKERT eftir því:/ Það er samt betri niðurstaða en að geimverur hafi fjarlægt það, eða að það sé draugagangur í íbúðinni:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:29 EH | 0 Ummæli

október 17, 2004

Antisportisti skv DV!!

Djísús kræst, eins og ég þoli ekki DV þá lét ég þá plata mig til að svara spurningu dagsins um daginn. Plata mig eða ekki plata, þá er þetta að sjálfsögðu mér að kenna því ég var eiginlega búin að segja já áður en ég fattaði að þetta væri fyrir DV. Var svo alltaf að spá hvort ég gæti ekki bakkað út úr þessu en fékk mig ekki til þess. Auli ég!! Þeir höfðu það nú alveg samviskusamlega eftir mér að mér gæti ekki verið meira sama hvort það ætti að reka landsliðsþjálfarann, og ég sagði líka að ég hefði ekki horft á leikinn. Ýkjurnar komu hins vegar þegar ég sagðist ekki vera neitt brjálæðislega mikið fan en þeir sögðu að ég væri antisportisti sem hefði engan áhuga á fótbolta!! Úr því að ég gat ekki asnast til að neita að svara þá hefði ég átt að taka fram að ég fylgdist alltaf með stöðunni og hlustaði á hluta af honum þó ég hefði ekki horft á hann.
Mér finnst þetta landslið bara alltaf vera frekar lélegt, nema einstaka sinnum þegar þeir grísast til að kría út jafntefli á móti sterkum liðum. Held að þjálfarinn, sama hversu góður hann er, nái ekkert að búa til neitt svaka heimsklassalið með bara slakkfærum leikmönnum og Eið Smára. Maður eldar víst enga veislumáltíð úr úrvalskartöflum á meðan allt annað hráefni er orðið gamalt og slappt. Ekki að hinir séu allir gamlir og slappir, en þeir eru ekkert í heimsklassa eins og Eiður Smári.

Á föstudaginn þegar ég labbaði inn í Hagkaup, fór ég og fletti í gegnum DV í sjoppunni, sá sömu spurningu dagsins aftarlega í blaðinu og þegar ég sá mig ekki, létti mér mikið og var guðs lifandi fegin að hafa ekki komið. Var því ekki skemmt þegar Margrét sagði mér í gærmorgun að ég hefði verið titluð antisportisti í DV deginum áður. Hef nefnilega mikinn áhuga á flestum íþróttum, þó fótbolti í sjónvarpinu og frekar slappt landslið sé ekkert mitt uppáhald.

Erum annars í góðu yfirlæti í nýja húsinu hjá tengdó í snjókomunni hér fyrir norðan, komum beint í áttræðisafmæli hjá afa hans í gær eftir að það var frekar tvísýnt hvort við kæmumst. Margrét gat ekki flogið með okkur á föstudagsmorgun því sá sem átti vélina þá, var svo tregur að skipta við hana. Spáin var samt allt í lagi fyrir laugardaginn þ.a. við veðjuðum á það. Þegar við vorum lögð af stað og ég hringdi í Margréti til að láta hana vita að okkur seinkaði örlítið, þá spurði hún okkur hvort við sæjum ekki þokuna úti. Jú auðvitað, við sáum varla í næsta ljósastaur, þá eru nú ekki góðar líkur á að komast í sjónflugi til Akureyrar!!! Allt stappfullt í áætlun hjá Flugfélaginu og útlitið ekki gott að við kæmumst. Við fórum í loftið þegar þokan var farin og bjuggumst við að komast án vandræða m.v. upplýsingar frá veðurfræðingi, fljótlega eftir flugtak, er sagt í flugturninum að allar leiðir norður fyrir séu lokaðar og við ákveðum að lenda aftur og bíða aðeins, hættum aftur við það og fáum leyfi til að fara yfir álverið og reyna að komast út frá Reykjavík þaðan, það gékk ljómandi vel og allt átti að ganga skv. plani eftir það. Kjölur var skýjalaus skv. upplýsingunum sem við fengum, en þegar þangað var komið var skýjabreiða á milli jöklanna en sem betur fer ekki mjög breið þ.a. við hækkum flugið og ákveðum að fara þarna yfir.
Nokkrum sinnum hvarflaði að manni nauðlendingin hennar frá því í sumar, en hún er svo rosalega pottþétt og greinilegt á öllu að hún vildi alltaf vita hvar hún gæti lent og upplýsti mig vel um allt sem nauðsynlegt væri að vita ef til óhapps kæmi að mér fannst ég ennþá öruggari núna en í fyrri flugum. Núna veit ég hvað hún hefur til að bera ef e-ð kemur uppá og sagði því við hana að ef e-ð kæmi fyrir þá myndi ég halla mér aftur, loka augunum og láta hana sjá um þetta aleina, það myndi auka líkurnar á að við myndum sleppa vel. Ekki að ég hefði haft neinar áhyggjur:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:36 EH | 0 Ummæli

október 14, 2004

Kleinuframleiðsla hérna í dag

Eftir massa leti hjá okkur mömmu í gær, þá ákváðum við í gær að við skyldum baka kleinur í dag. Buðum Margréti í kleinukaffi í fyrramálið þ.a. við gátum ekki skorast undan og hætt við á síðustu stundu. Upphaflega planið var að baka úr 2 kg af hveiti en þar sem þetta skotgekk svona hjá okkur þá skelltum við okkur á eitt kíló í viðbót. Höfum því lítið borðað annað en kleinur í dag.

Það sem við höfum annars verið að gera síðustu daga, er mikil leti á daginn, hitta nýfæddu krílin síðan í sumar og matarboð og út að borða á kvöldin. Gerði mömmu og pabba víst algjöran óleik í nótt þegar ég var búin að vera andvaka í slatta tíma. Ég var orðin svo svöng að ég gat næstum ekki hugsað um það að sofna lengur og ég fór því bara upp og fékk mér að borða. Þegar ég helli morgunmatnum í skálina þá varð ég ansi hrædd um að e-r myndi vakna því það var það eina sem ég náði ekki að gera mjög hljóðlega. Jújú mikið rétt, heyri mömmu og pabba e-ð tala saman og stuttu seinna kemur mamma alveg grútmygluð fram og mér þótti þá víst að taka það fram að ég væri ekki orðin geðveik!! Ég vissi að klukkan var ekki nema korter í sex!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:01 EH | 0 Ummæli

október 09, 2004

Komin á klakann eftir hálfs árs fjarveru

Núna erum við búin að vera hérna í 2 daga í GÓÐU yfirlæti. Hittum alla familíuna í gær á einu bretti í afmælunum hjá Hans Adolfunum tveimur. Litli kútur orðinn 8 ára, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!! *Tíminn líður hratt, á gervihnattaröld.... trallalallala...* Annars er komið nokkuð þétt planið fyrir næstu vikuna hérna en samt ekkert framundan fyrr en annað kvöld, verður því örugglega leti fyrir framan imbann í kvöld. Spurning hvort við skellum okkur ekki bara í sund í dag, er svooooo gott að flatmaga í heitu pottunum:) mmmmm


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:37 EH | 0 Ummæli

október 05, 2004

Aaaaallveg að koma til Íslands:):):):)

Á okkar heimili er búin að vera mikil óþolinmæði og spenningur í gangi síðustu daga. Dagarnir hafa verið taldir og nú er komið niður í AÐEINS 2 daga!!!! Nóg er eftir að gera, og það helst er nú að losna við þessa ansans kvefpest sem er búin að vera að gera út af við mig síðustu daga. Kvíði stórlega fyrir fluginu ef mér verður ekki batnað, því einu sinni flaug ég innanlands með bullandi kvef og ég var með hellu í öðru eyranu næstum allan daginn eftir það.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:33 FH | 0 Ummæli