október 17, 2004

Antisportisti skv DV!!

Djísús kræst, eins og ég þoli ekki DV þá lét ég þá plata mig til að svara spurningu dagsins um daginn. Plata mig eða ekki plata, þá er þetta að sjálfsögðu mér að kenna því ég var eiginlega búin að segja já áður en ég fattaði að þetta væri fyrir DV. Var svo alltaf að spá hvort ég gæti ekki bakkað út úr þessu en fékk mig ekki til þess. Auli ég!! Þeir höfðu það nú alveg samviskusamlega eftir mér að mér gæti ekki verið meira sama hvort það ætti að reka landsliðsþjálfarann, og ég sagði líka að ég hefði ekki horft á leikinn. Ýkjurnar komu hins vegar þegar ég sagðist ekki vera neitt brjálæðislega mikið fan en þeir sögðu að ég væri antisportisti sem hefði engan áhuga á fótbolta!! Úr því að ég gat ekki asnast til að neita að svara þá hefði ég átt að taka fram að ég fylgdist alltaf með stöðunni og hlustaði á hluta af honum þó ég hefði ekki horft á hann.
Mér finnst þetta landslið bara alltaf vera frekar lélegt, nema einstaka sinnum þegar þeir grísast til að kría út jafntefli á móti sterkum liðum. Held að þjálfarinn, sama hversu góður hann er, nái ekkert að búa til neitt svaka heimsklassalið með bara slakkfærum leikmönnum og Eið Smára. Maður eldar víst enga veislumáltíð úr úrvalskartöflum á meðan allt annað hráefni er orðið gamalt og slappt. Ekki að hinir séu allir gamlir og slappir, en þeir eru ekkert í heimsklassa eins og Eiður Smári.

Á föstudaginn þegar ég labbaði inn í Hagkaup, fór ég og fletti í gegnum DV í sjoppunni, sá sömu spurningu dagsins aftarlega í blaðinu og þegar ég sá mig ekki, létti mér mikið og var guðs lifandi fegin að hafa ekki komið. Var því ekki skemmt þegar Margrét sagði mér í gærmorgun að ég hefði verið titluð antisportisti í DV deginum áður. Hef nefnilega mikinn áhuga á flestum íþróttum, þó fótbolti í sjónvarpinu og frekar slappt landslið sé ekkert mitt uppáhald.

Erum annars í góðu yfirlæti í nýja húsinu hjá tengdó í snjókomunni hér fyrir norðan, komum beint í áttræðisafmæli hjá afa hans í gær eftir að það var frekar tvísýnt hvort við kæmumst. Margrét gat ekki flogið með okkur á föstudagsmorgun því sá sem átti vélina þá, var svo tregur að skipta við hana. Spáin var samt allt í lagi fyrir laugardaginn þ.a. við veðjuðum á það. Þegar við vorum lögð af stað og ég hringdi í Margréti til að láta hana vita að okkur seinkaði örlítið, þá spurði hún okkur hvort við sæjum ekki þokuna úti. Jú auðvitað, við sáum varla í næsta ljósastaur, þá eru nú ekki góðar líkur á að komast í sjónflugi til Akureyrar!!! Allt stappfullt í áætlun hjá Flugfélaginu og útlitið ekki gott að við kæmumst. Við fórum í loftið þegar þokan var farin og bjuggumst við að komast án vandræða m.v. upplýsingar frá veðurfræðingi, fljótlega eftir flugtak, er sagt í flugturninum að allar leiðir norður fyrir séu lokaðar og við ákveðum að lenda aftur og bíða aðeins, hættum aftur við það og fáum leyfi til að fara yfir álverið og reyna að komast út frá Reykjavík þaðan, það gékk ljómandi vel og allt átti að ganga skv. plani eftir það. Kjölur var skýjalaus skv. upplýsingunum sem við fengum, en þegar þangað var komið var skýjabreiða á milli jöklanna en sem betur fer ekki mjög breið þ.a. við hækkum flugið og ákveðum að fara þarna yfir.
Nokkrum sinnum hvarflaði að manni nauðlendingin hennar frá því í sumar, en hún er svo rosalega pottþétt og greinilegt á öllu að hún vildi alltaf vita hvar hún gæti lent og upplýsti mig vel um allt sem nauðsynlegt væri að vita ef til óhapps kæmi að mér fannst ég ennþá öruggari núna en í fyrri flugum. Núna veit ég hvað hún hefur til að bera ef e-ð kemur uppá og sagði því við hana að ef e-ð kæmi fyrir þá myndi ég halla mér aftur, loka augunum og láta hana sjá um þetta aleina, það myndi auka líkurnar á að við myndum sleppa vel. Ekki að ég hefði haft neinar áhyggjur:-)


--------

Skrifaði eyrunl þann 17.10.04 22:36
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?