nóvember 28, 2004
Styttist í síðustu próftörn
þ.e. ef próftörn er hægt að kalla. Skila þremur verkefnum og eitt próf:-) Get ekki annað sagt en að ég sé himinlifandi að önnin sé að verða búin og í beinu framhaldi af annarlokum þá fljúgum við heim á frón og látum dekra við okkur;) Jú mamma, ég er búin að ákveða að þú munt þurfa að dekra við mig;) Aðeins að slá á létta strengi, þýðir víst lítið annað. Hlakka líka til að geta skoðað jólaþorpið, en ég fékk bara að heyra af því í fyrra.
Annars er bara eitt "vandamál". Í hverju á ég að vera á jólunum... ætli ég fari nú ekki í bæinn áður en við komum heim og reyni að kaupa mér e-r föt svo ég fari nú ekki í jólaköttinn;) Vil helst sleppa því:-)
--------
nóvember 22, 2004
Jújú, ég er á lífi...;)
En ekki mikið að frétta af þessum bænum. Styttist í jólafríið og ekki nema 26 dagar í næstu Íslandsheimsókn:) Hérna er búið að "snjóa", þ.e. kom svona örþunn hvít breiða;) Svo snjóaði jú pínku meira en svo fór að rigna, og úr varð þetta líka fína SLABB!!
Í öðrum fréttum er það helst að stór hluti Bónerhópsins ætlar að mæta til Köben í maí og skella sér á Destinys Child tónleikana. Efast ekki um að það verði hörku stuð og varla að maður geti sleppt því sjálfur;)
Ekki meira í fréttum í bili, verð kannski hugmyndaríkari næst;) hehehe
--------
nóvember 11, 2004
Eplakaka í ofninum, mmmmm
Eftir frekar löng veikindi og frekar einhæft og leiðinlegt fæði var mig VERULEGA farið að langa í e-ð ansi krassandi að borða. Því var ákveðið að baka einfalda og fljótlega eplaköku á þessu heimili. Vonandi bragðast hún ljómandi þó við eigum ekki salthnetur (glætan að ég gæti bara átt salthnetur, væri alltaf búin að borða þær;)).
Á morgun er svo útskriftarveisla fyrir Margréti heima hjá mömmu og alveg vitavonlaust að reyna að hitta á liðið á msn núna. Vildi að ég gæti komið en heimferð í hverjum mánuði er "aðeins" of mikið fyrir bankareikninginn okkar. Enda eru núna ekki nema 37 dagar þar til við mætum til Íslands í rúmlega þriggja vikna jólafrí!!!:-):-)
--------
nóvember 05, 2004
blablabla blebleble
Jájá, ég veit ég er ekkert búin að skrifa heillengi og satt að segja er heldur ekki mikið að segja. Búin að vera lasin í bælinu og veit nákvæmlega hvað er í day TV hérna í DK. Á að vera að tjútta á julefrokost hjá rekkanum en í staðin ligg ég upp í sófa, með fartölvuna á lærunum og vona að Jobbi skemmti sér vel.
Í svona leiðindum er rafmagnsleysi niðrí skóla ekki mitt uppáhald!! Það fór bæði í gær og í hádeginu í dag, en það þýðir bara eitt, ekkert sjónvarp eða ekkert net!!!
--------