nóvember 11, 2004

Eplakaka í ofninum, mmmmm

Eftir frekar löng veikindi og frekar einhæft og leiðinlegt fæði var mig VERULEGA farið að langa í e-ð ansi krassandi að borða. Því var ákveðið að baka einfalda og fljótlega eplaköku á þessu heimili. Vonandi bragðast hún ljómandi þó við eigum ekki salthnetur (glætan að ég gæti bara átt salthnetur, væri alltaf búin að borða þær;)).

Á morgun er svo útskriftarveisla fyrir Margréti heima hjá mömmu og alveg vitavonlaust að reyna að hitta á liðið á msn núna. Vildi að ég gæti komið en heimferð í hverjum mánuði er "aðeins" of mikið fyrir bankareikninginn okkar. Enda eru núna ekki nema 37 dagar þar til við mætum til Íslands í rúmlega þriggja vikna jólafrí!!!:-):-)


--------

Skrifaði eyrunl þann 11.11.04 20:13
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?