desember 11, 2004

Sting rokkaði í Forum í gær

Eftir "smá" seinkun á tónleikunum hjá Sting var loksins komið að þeim í gær. Við keyptum miðana fyrir örugglega ca ári síðan á tónleika sem planaðir voru 2.maí. Kallinn veiktist og tónleikunum frestað um 7 mánuði. Tónleikarnir voru meiriháttar og við skemmtum okkur konunglega!! Hins vegar get ég pirrað mig ENDALAUST á reykingarmenningu Dananna. Eftir að hafa keypt miða í númeruð sæti og uppselt á tónleikana, þá varð maður takk fyrir að sætta sig við að anga eins og öskubakki eftir 3 tíma þarna inni.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:07 FH

desember 07, 2004

Fótanuddtæki í öðrum hvorum auglýsingabæklingi

Á þessu heimili er það bara annað hvort í ökla eða eyra, annað hvort heyrist ekki frá mér heillengi eða ég fæ munnræpu;)

Ég hef verið að fletta auglýsingabæklingunum sem gjörsamlega FLÆÐA í póstkassann hjá okkur. Venjulega er magnið mikið en frá því í nóvember hefur magnið aukist með hverri vikunni sem líður og nær hámarki rétt fyrir jólin. Með öðrum heimilistækjaauglýsingum, eins og ristavélar, kaffikönnur og þ.h. er nær undantekningarlaust líka hið margfræga fótanuddtæki eins og til er/var á öðru hverju heimili á Íslandi. Auglýsingarnar eru örugglega svipaðar og þegar þetta æði var á Íslandi, "æðislegt að láta þreytuna líða úr fótunum í vatnsfótanuddtæki, blablabla". Ef maður vissi ekki að þessi tæki væru til á jafn mörgum heimilum á Íslandi og raun ber vitni og hafa eflaust flest þeirra safnað ryki í geimslunni, þá gæti maður jafnvel haldið að þetta væri sniðugt:) Annars veit ég að mamma og pabbi áttu aldrei fótanuddtæki, ekki frekar en við áttum ekki videotæki, soda stream eða önnur vinsæl tæki á uppvaxtarárum mínum, þ.a. kannski er bara kominn tími til að mamma og pabbi eignist svona fótanuddtæki;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:56 EH

Hljóp yfir 3 daga í gær:)

Vegna ofurmikillar óþolinmæði og skemmtilegra atburða á Íslandi rétt áður en ég átti pantað flug heim um jólin, ákvað ég að breyta farmiðanum mínum heim úr 18. des í 15. des. Reyndar er bara einn galli, og það er að Jobbi þarf að kynna verkefni þann 17. desember og verður hann því skilinn eftir. En fyrir mig, þýðir þetta að nú eru ekki nema 8 dagar þar til ég kem heim:):) Víííííííííííí!!!
Skemmtilegu atburðirnir sem ég missi núna ekki af eru nokkrir, þar á meðal að verða vitni að því þegar litli bróðir fær bílpróf (allir að vara sig í umferðinni frá og með 17. des;)) og svo var ég að heyra af tvöföldu 25 ára afmæli þann 17. des. Ekki hægt að sleppa því, eða hvað?? Kannski aðeins að fá sér í aðra tána í góðra vina hópi:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:59 EH | 0 Ummæli

desember 05, 2004

19 dagar til jóla!!!

Tíminn flýgur áfram, sem betur fer eiginlega, því þá verð ég fyrr komin í jólafrí heima á Íslandi!!! Hef nú svo sem ekki frá neinu spennandi að segja, allir keppast við að segja mér hvað þeir eru búnir að vera duglegir að skreyta, en á okkar heimili verður sko ekkert skreytt! Skilaði verkefni á fimmtudaginn og er núna að kíkja á önnur verkefni sem þarf víst að skila áður en ég fer heim. Allavega til þess að ég fái einingar fyrir áfangana;) Er einmitt að fara að hitta Frikka og Tue á morgun, og Tue vill sko ekki sóa deginum, ekki séns að fá hann til að samþykkja að hittast seinna en 8:30!!!! Hvaða heilvita manni dettur í hug að hittast svona snemma þegar maður getur alveg eins byrjað ca klukkutíma seinna?!?!? Vona nú að ég þurfi ekki að hitta þá marga daga, því ég þarf nú að fá minn beauty blund;) Well, well, best að skoða aðeins Power System, Analysis and Design bókina fyrir morgundaginn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:33 EH | 0 Ummæli