janúar 28, 2005

Myndir úr 19vikna sónar komnar í myndaalbúmið

Þá er Jobbi búinn að skanna inn myndirnar úr sónarnum frá því á mánudaginn og setja þær inn í albúmið.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:20 FH | 0 Ummæli

janúar 27, 2005

19vikna sónarinn búin og komin aftur til Svíþjóðar

Jújú, ég er aftur orðin ein í Svíþjóð eftir 2 daga heima um síðustu helgi. Toppurinn á helginni var að sjálfsögðu sónarinn, þar sem krílin sprikluðu fyrir okkur. Tvíburi 1 spriklaði þó öllu meira, og stoppaði varla allan tímann, á meðan tvíburi 2 var meiri ljósmyndafyrirsæta og var voða rólegur e-ð. Meira að segja þegar það var verið að mæla tvíbura 2, þá sparkaði tvíburi 1 alltaf í skilvegginn á milli þeirra þ.a. tvíburi 2 kipptist til. Þrátt fyrir að ég hafi verið að DREPAST úr forvitni á bekknum að fá að vita kynin, þá var Jobbi stöðugi aðilinn í sambandinu og hélt okkur við það að fá ekki að vita. Þó það hefði auðvitað verið gaman, þá held ég núna (nokkrum dögum seinna) að ég sé bara fegin, það verður örugglega alveg MAGNAÐ að fá 2 börn og vita ekkert hvaða kyn kemur. Kannski ekki alveg það praktíska, sérstaklega þegar ég er að skoða ungbarnaföt því þau eru eiginlega aldrei til í alveg hlutlausu heldur alltaf annað hvort stelpu- eða strákaföt.
Ég ætlaði svoleiðis að reyna að sjá sjálf kynin í sónarnum víst ég mátti ekki spyrja, en hjálpi mér allir heilagir hvað ég er léleg í þessum myndum!! Jújú, ég þekki hjartað sem slær og útlínurnar á barni og svo þegar beinin í tánum eða fingrum sjást, en einu sinni hélt ég að hún væri að skoða höfuðið og augun en neinei þá var hún að skoða NÝRUN!!!! Þá fattaði ég að ég sökkaði í að lesa úr þessum myndum;)

Farin heim í dag, elda mér e-ð í örbylgjuofninum, horfa á Friends og borða nammi;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:14 EH | 0 Ummæli

janúar 20, 2005

Kveðja frá Svíþjóð

Örstutt þar sem matarhléið er nú eiginlega að verða búið.
Ég er núna búin að vera hérna í Västerås í 3 daga, gengur ágætlega það sem viðkemur verkefninu allavega ennþá. Herbergið er alveg ágætt þó ég sé nú eiginlega með langan lista yfir það sem mér finnst vanta eða er skrítið!! Enginn sími í þessu herbergi (er svona "hótel" þar sem herbergin eru leigð út í lengri tíma), en ég get látið hringja í mig (nú eða hringt sjálf) í tíkallasíma sem er í NÆSTA húsi!! Lyktin inn á baðherberginu gæti stundum drepið mig, þvílíka skítalyktin!! Annað er bara svona smotteríssmáatriði.
Annars fer ég heim á laugardagsmorgun og kem aftur á mánudagskvöld, því það er sónar á mánudeginum. Við ætlum ekki að fá að vita kynin, þ.a. þið getið alveg sparað spurningarnar um það eftir sónarinn;) hehe. Hlakka þvílíkt til að komast aðeins heim og geta knúsað hann Jobba minn, sofið í 2 nætur í almennilegu rúmi og ekki látið mér leiðast á kvöldin.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:27 EH

janúar 17, 2005

Myndaalbúmið lifnað við

Í gær var ég alveg þvílíkt dugleg að setja inn myndir í myndaalbúmið. Kláraði LOKSINS að setja inn myndir úr Evrópuferðalaginu okkar í sumar, auk þess sem ég lét inn eiginlega allar þær myndir sem áttu eftir að fara inn eftir sumarið. Við erum kannski ekki búin að vera duglegustu myndasmiðirnir, en samt alltaf e-ð.

Í kvöld fer ég til Svíþjóðar til að vinna að lokaverkefninu mínu. Kem endanlega til baka aftur 18. febrúar en ég mun samt koma í heimsókn um næstu helgi því ég á tíma í sónar á mánudeginum. Í gærkveldi var ég alveg frekar mikið lítil í mér yfir því að þurfa að yfirgefa Jobba og vera ALEIN lengst í burtu. Maður á nú samt alveg eftir að lifa þetta af, Jobbi ætlar líka að hringja í mig ógó oft:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:17 FH

janúar 16, 2005

Fyrstu hreyfingarnar!!

Í fyrrakvöld þegar ég lá í sófanum var ég mikið að spá hvort ég hefði fundið e-a hreyfingu í mallanum. Var nú frekar óviss og spáði ekki meira í það. Í gærmorgun var ég í leti með tölvuna í kjöltunni upp í rúmi og var ég aðeins vissari en kvöldið áður að ég hefði verið að finna e-a hreyfingu en samt mjög óviss.
Áðan lá ég uppí sófa á meðan ég beið eftir að Jobbi yrði búinn að laga í myndaalbúminu og þá var ég í fyrsta skipti VISS um að ég væri að finna hreyfingar!!! Fann nokkrum sinnum, alltaf sömu megin og alveg nokkuð greinilegt!! Jobbi vildi að sjálfsögðu strax reyna að finna líka, en hann verður víst að bíða e-ð lengur eftir að finna hreyfingar utan frá.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:37 EH | 0 Ummæli

janúar 12, 2005

Fyrsta mæðraskoðunin

Í morgun mættum við í fyrsta skipti í mæðraskoðun. Var alveg yndislegt að heyra hjartsláttinn í báðum krílunum, sérstaklega þar sem mér fannst svo langt síðan ég fór í hnakkaþykktarmælinguna og sá þau spriklandi, ég hef nefnilega átt til að taka ýmis paranoju köst síðasta mánuðinn. T.d. þegar ég ældi endalaust einn daginn milli jóla og nýárs, þá minnkaði maginn (nokkuð lógískt), þá hélt ég að ég væri bara ekkert lengur ólétt!! Kommon, ég var þvílíkt ælandi út af þessu óléttustandi!!! Hausinn ekki alveg að virka rétt.
Í dag fór ég síðan líka í bankann niðrí Lyngby að fá greiddan styrk sem ég átti þar liggjandi. Þar sem ég ætlaði bara í bankann lagði ég við Hovedgade þar sem má leggja í 30mín. Ég stillti klukkuna í glugganum alveg samviskusamlega, leit á úrið og stillti eftir því. Þegar ég kem út eftir ca 20mín þá kemur "stöðumælavörður" (ekki stöðumælar þarna, en fylgst með því að maður sé ekki lengur en tíminn í glugganum segir til um) og segir við mig að ég megi nú bara leggja í hálftíma, ég bara frekar hissa, já en ég var styttra en það. En þá voru mistökin mín að ég hélt að klukkan væri korter í 3, en ekki korter í 4 þegar ég las af úrinu mínu!!! Spurning hvort DTU bjóði upp á kúrs í að læra á klukku?


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:50 EH | 0 Ummæli

janúar 11, 2005

Komin heim eftir jólafrí og styttist í Svíþjóð

Það hafðist að koma sér til Danmerkur aftur eftir næstum mánaðar jólafrí. Eftir raunir mínar þegar við fórum norður eftir aðeins sex tíma svefn var ég ansi stressuð þegar ég fékk bara tæplega það í fyrri nótt. Gékk þó öllu betur þó ég hefði nú einu sinni heilsað upp á postulínsskálina (sem er held ég bara úr plasti í flugvélum;)). Þreytan fór samt ansi illa í skapið og viðkvæmnina í mér, sem nógu mikil er fyrir!! Jobbi hafði sett á sig uppblásna hálskragann þegar ég kom af klósettinu einu sinni og ég fór næstum því að grenja!!! Hversu mikill aumingi getur maður eiginlega verið??

Núna eru ekki nema 6 dagar þar til ég held á vit ævintýranna í Svíþjóð og fer að vinna í lokaverkefninu mínu í 5 vikur og reyni að lifa af án Jobba. Ég kem samt heim í helgarferð til að fara í 19 vikna sónarinn og svo ætlum við að reyna að láta Jobba koma í helgarferð til mín einu sinni. Svona þ.a. þetta verði ekki alveg jafn lengi að líða:)

Að lokum óska ég eftir bumbu sem hefur greinilega flúið að heiman, ég er komin rúmar 17 vikur af tvíburum og það sést anskotans ekki neitt á mér!!!! Ég hef alveg fengið að heyra að ég eigi nú bara að vera ánægð, því ég verði eins og hvalur fyrr en varir, en ég er að verða bráðum hálfnuð og væri alveg til í að sjást pínu meira.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:42 EH | 0 Ummæli

janúar 05, 2005

Draumórarnir um óléttutímann

Áður en ég varð ólétt, sá ég óléttuna fyrir mér á e-u bleiku rómantísku skýji held ég. Ef svo ólíklega vildi til að maður fengi morgunógleði, þá væri það nú e-ð sem væri nú ekki erfitt að yfirstíga því þetta væri jú fyrir fóstrið inní manni og væri bara á morgnana. Spáði ekkert í neina aðra kvilla sem mögulegir voru. Fyrstu 2 vikurnar af óléttunni voru eftir þessu, og eftir að mamma sagði mér að hún hefði aldrei fengið neina ógleði af neinu tagi með öll börnin sín 6, þá var ég alveg nokkuð fullviss að ég myndi nú bara sleppa alveg. Það var nú öðru nær, eftir viku sólarhringsógleði og 6kg þyngdartap á þeirri viku hótaði ég að þetta barn yrði sko einkabarn á okkar heimili, ég myndi sko ekki leggja þetta á mig aftur. Eftir þetta komu 6 vikur í ömurlegheitum þar sem blessuð postulínsskálin var minn "besti" vinur. Komin 13 vikur, fór þetta loksins að minnka og þegar ég kom til Íslands sá mamma um að ég borðaði oft og mikið á hverjum degi bæði til að reyna að fitna aðeins aftur og til að halda þessari ógleði í skefjum. Hver fann annars eiginlega upp orðið MORGUNógleði??? Þvílíka rangnefnið!!! Aðrir kvillar hingað til hafa verið smávægilegir og fylgja víst bara. "Varð" t.d að fá pylsu með öllu á nýársdag, eftir að hafa séð auglýsingu um þannig í sjónvarpinu, eftir að geðvonskan hafði magnast (þar sem ég var ekki búin að fá pylsuna mína) fór Jobbi með mig í bíltúr í leit að opinni sjoppu um Akureyri. Fundum eina en hún seldi ekki pylsur!! Enduðum á Dominos og ég fékk brauðstangir, lét það duga.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:06 EH | 0 Ummæli

Í takt við tímann

Fórum í fyrra kvöld í bíó í fyrsta skipti í LANGAN tíma og sáum Í takt við tímann. Vorum eiginlega að renna út á tíma til að ná að sjá hana áður en við förum aftur út þ.a. við skelltum okkur á hana fyrir norðan. Þetta var alveg með minnstu bíóum sem ég hef farið í, frekar fyndið allt saman. Mamma og pabbi vorum búin að fara og sjá hana og mömmu fannst hún mjög skemmtileg en samt frekar samhengislaus. Fórum því ekki með væntingarnar í botni, og skemmtum okkur alveg konunglega!! Hittum Benna og Írisi í bíóinu, ég fór fyrst og settist og kom svo í ljós eftir á að við sátum beint fyrir aftan þau!! Ein ferlega utan við sig og tók ekkert eftir fólkinu á næsta bekk.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:50 EH | 0 Ummæli

janúar 02, 2005

Leyndarmálin, sem ekki eru lengur leyndarmál;)

Þar sem flestir vita orðið öll mín leyndarmál, þá geta þau ekki talist leyndarmál lengur, eða hvað?? Við Jobbi teljumst brátt í fullorðinna manna tölu, með 2 ungabörn á heimilinu okkar næsta sumar ef allt gengur að óskum.
Síðast þegar ég skrifaði var áður en ég kom til landsins og núna erum við búin að vera hérna í næstum 3 vikur (eða Jobbi í rúmar 2 vikur og ég næstum 3). Höfum haft það ótrúlega gott, fyrst heima í Hafnarfirðinum og núna á Akureyri. Jobbi er í fjallinu á brettinu, en mín er í brettabanni allavega fram á næsta vetur, maður vill ekki taka neina sénsa með þessar rækjur sem eru að vaxa inní manni. Ég er því ennþá bara á náttfötunum og skoða netið á meðan Hólmar rekur mig ekki úr tölvunni sinni (fartölvan okkar er ónothæf, þar sem hleðslutækið virkar ekki). Spurning hvort maður haldi síðan e-ð áfram að prjóna teppið sem ég hef varla snert síðustu mánuði.

Breytti síðan líka aðeins síðunni, henti þessari drasl skilaboðaskjóðu út sem höndlaði ekki íslenska stafi nema ég breytti charsettinu fyrir alla síðuna og það myndi þýða að allt sem hefur áður verið skrifað á síðuna væri óleshæft!!

Jú á meðan ég man, þá óska ég öllum gleðilegs nýs árs og vona að allir hafi haft það ljómandi gott yfir jólin og borðað vel og mikið;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:21 EH | 0 Ummæli