febrúar 28, 2005

Nýjar myndir

Létum inn nýjar myndir í kvöld í albúmið. Bæði sónarmyndir frá því í dag, sem reyndar eru frekar óskýrar, og svo líka nokkrar bumbumyndir sem voru teknar í gærkveldi. Ég er eiginlega í sjokki yfir því hvað mér finnst mikill munur á myndunum frá því fyrir viku síðan, mér fannst bumban ekki hafa stækkað neitt að ráði þessa vikuna fyrr en ég bar saman myndirnar...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:25 EH | 0 Ummæli

febrúar 27, 2005

Skellti mér í bíó í gær

Var ekki lengi að segja já þegar Guðbjörg hringdi í mig og spurði hvort ég vildi koma með henni og Vigni í bíó í gær. Skelltum okkur á National Treasure, alveg þrusugóð þó við Guðbjörg höfum stundum verið við það að pissa í okkur af hræðslu. Hehe, ekki að þetta sé neitt það svakalegt, en maður er bara soddan chicken;) Töluðum um að fara á rómantíska gamanmynd næst:) Jiii minn eini hvað það á eftir að þýða mikill grátur!! Ég sem grenja yfir öðrum hverjum friends þætti!

Annars keypti ég mér popp og gos sem er svo sem ekkert merkilegt, nema fyrir það að ég ætlaði bara að fá mér lítið gos og lítinn popp. Kostaði sama að fá miðstærð af bæði, þ.a. jújú ég fékk mér þannig. Þetta var sko engin venjuleg miðstærð, þetta var JÚMBÓ stærð af gosi og DÚMBÓ stærð af poppi. Stór popp og stórt gos á Íslandi bliknar bara í samanburðinum;) Það sást heldur varla að ég hefði borðað neitt af poppinu þó mér hafi fundist ég borða heilan helling.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:59 FH | 0 Ummæli

febrúar 26, 2005

Hreingerningaræði

Stundum held ég að ég gæti bara verið komin miklu lengra á leið og alveg að fara að eiga. Ég er nefnilega búin að vera með e-ð svaka tiltektar- og hreingerningaræði hérna undanfarið (hef lesið að konur fái oft e-ð svoleiðis kast rétt fyrir fæðingu). Í dag er ég búin að þurrka af öllu og taka til inn í litla herbergi (reyndar e-ð smá eftir). Myndi helst vilja fara núna og skúra og þrífa baðherbergið, en ég er að reyna að hemja mig því ég er komin með e-ð asnalegt tak neðarlega í bumbunni. Bunkinn sem þarf að fara í blaðagáminn er líka að fara með mig hérna, en ég ætla ekki að fara að gera e-n óskunda og burðast með tonn af blöðum út í gám! Þá er nú hægt að spyrja sig af hverju ég sendi ekki Jobba út, jújú ég er nú búin að minnast nokkuð pent á það undanfarið en núna er hann bara ekki heima núna til að ég geti grátbeðið hann. Hann stakk mig af til Svíþjóðar í morgun! Kemur reyndar sem betur fer aftur í kvöld.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:26 EH | 0 Ummæli

febrúar 24, 2005

Svunta í eldhúsið, nauðsynleg fyrir feitubollur

Ég komst að því í gær, hvað þessi blessaða bumba er fyrir manni þegar maður er að baka brauð. Ég hef aldrei vanið mig á að nota svuntu, og þrátt fyrir að vera ótrúlega klaufsk á tíðum þá hefur það aldrei verið neitt vandamál. Bumban mín núna var hins vegar mjög fljótlega í gær öll í hveiti þar sem ég virtist bara ekkert fatta að hún væri þarna þegar ég var að hnoða. Hef því komist að því að ég "neyðist" til að nota svuntur þegar ég voga mér inn í eldhúsið. Við erum líka nýbúin að fá nýja fína svuntu með íslenska skjaldarmerkinu, um að gera að nota hana:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:44 EH | 0 Ummæli

febrúar 22, 2005

Nokkrar nýjar myndir

Lét inn nokkrar nýjar myndir í myndaalbúmið í gær. Bæði frá því að Jobbi kom til mín í Svíþjóð og svo örfáar bumbumyndir. Bumban hefur nú eiginlega ekkert stækkað finnst mér síðan síðustu myndir komu inn, þ.a. það er kannski helst til lítið að sjá.

Fór í skólann í gær og var þar nú frekar stutt... allt í einu eftir hádegi fannst mér eins og ég hefði orðið fyrir valtara og átti bara erfitt með að keyra heim sökum þreytu. Lá bara upp í sófa eða rúmi til skiptis og svaf meirihlutann af restinni af deginum og svo alla nóttina!! Ég var í svo miklu stuði um helgina að ég svaf ekki alveg jafn mikið og ég hefði þurft og var svo alveg á fullu. Ótrúlegt hvað ég er allt í einu farin að finna miklu meira fyrir þessari óléttu núna heldur en bara fyrir örfáum vikum. Finnst bara verst hvað það er ennþá langt eftir!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:02 FH | 0 Ummæli

febrúar 18, 2005

Komin heim nokkrum kílóum þyngri en ég fór:-)

Þá er maður komin heim til sín, búin að leggja mig og borða í ca 5. skipti í dag. Þegar við vorum komin heim af flugvellinum í morgun var ég alveg glorsoltin og óskaði eftir e-u að borða. Jobbi bauð mér ekkert nema e-ð alveg vitavonlaust sem maður verður ekkert saddur af, eins og agúrku, vínber o.þ.h. Ískápurinn var eiginlega tómur. Hann var því sendur með frekar harðri hendi út í búð. Þreytt, svöng ólétt kona er ekkert grín að kljást við;)

Þegar ég fékk ferðatöskuna mína til baka á færibandinu, sá ég í bleiku náttfötin mín... Taskan hafði fengið e-a harða meðhöndlun og var rifa eftir einni hliðinni og sem betur fer held ég að það hafi ekkert týnst úr henni. Fékk bara nýja tösku á staðnum, þurfti að koma farangrinum mínum úr gömlu töskunni í þá nýju og skilja svo hina eftir. Það gekk nú bara þokkalega. Á núna eftir að klára að ganga frá úr ferðatöskunni, er alveg að fara að gera það:-) Planið er nefnilega að baka vatnsdeigsbollur í dag eða á morgun, og ég ætla að vera búin að ganga frá öllu fyrst. Dríf þetta því bara af.

Annað í fréttum, er það að ég fór í mat á fimmtudaginn til Írisar og Óla (Íris er að vinna hjá ABB). Eldaði Óli dýrindis lax handa óléttu konunum sem komu frekar dasaðar heim úr smá verslunarleiðangri eftir vinnu. Í eftirrétt fengum við svo eplaköku með vanillusósu, sem endaði í bara vanillusósu þegar kakan var búin!!! Þarf að athuga hvort ég finni svona sósu hérna út í búð.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:15 EH | 0 Ummæli

febrúar 15, 2005

Styttist í heimferð

Eftir að óhemju mikil þreyta hefur hrjáð mig síðustu 2 daga, þá get ég ekki annað sagt en að ég bíði frekar spennt eftir því að komast heim og fá þá almennilega hvíld. Svaf frekar illa í nótt, og hlakka því mikið til að fá að sofa í rúminu mínu. Hrökk upp e-n tímann í nótt og var kallandi á Jobba þegar ég fattaði að hann var nú bara alls ekkert hjá mér. Tveggja tíma andvaka, er heldur ekki ideal, sérstaklega ekki þegar maður nær loksins að sofna ca hálftíma áður en klukkan byrjar að reyna að koma manni á fætur!!! Ég snúsaði líka í klukkutíma í morgun, var bara ekki að meika það að fara á fætur. Spurning hvort litlu krílin séu e-ð að reyna að venja mig við að vaka... ætla rétt að vona ekki.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:43 EH | 0 Ummæli

febrúar 11, 2005

Komin í helgarfrí

Þá er komið að síðustu helginni minni hérna í Svíaríki. Er nú ekki búin að ákveða hvað ég geri um helgina, spurning hvort ég athugi hvort ég komist í klippingu, kannski ég fari í sund og spurning hvort maður rölti e-ð í búðir. Annars er það bara að liggja í leti og safna kröftum fyrir síðustu vinnuvikuna. Fer heim næsta föstudagsmorgun, og ég hlakka ótrúlega mikið til að komast heim og hafa Jobba minn hjá mér. Eins og þetta er nú ekki búið að vera eins erfitt og ég bjóst við, þá hef ég síðustu daga e-ð verið voða mikið upptekin af því að hann sé að gera svo mikið og ég að missa af öllu og blebleble. Þýðir lítið að segja við mig að ég sé nú ekki búin að missa neitt af svakalega miklu, því heilinn hann virkar bara eins og hann vill virka, oft ekkert alveg lógik í honum;)

Núna er ég að spá í að skella mér á Pizza Hut á leiðinni heim og fara EIN út að borða;) Hef nú ekki gert neitt af því ef frá er talið McDonalds, þar sem ég er nánast daglegur gestur... oft er það nú reyndar "bara" einn jarðaberjasjeik, sem ég ELSKA!!! Mér finnst bara eiginlega verst, að þegar ég verð komin til Danmerkur aftur, er næsta McDonalds niðrí Gentofte;)

Af verkefninu er annars loksins allt fínt að frétta, var búin að vera að lenda í alls konar vandræðum, en ég held (og vona) að ég sé komin framhjá þeim öllum. Enda ekki seinna vænna þar sem ég fer að fara héðan;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:39 EH | 0 Ummæli

febrúar 09, 2005

Er að sofna

Það mætti halda að ég hefði ekki sofið í marga daga, ég er svo þreytt. Ég var líka svona í gær, en samt náði ég hátt í 10 tímum báðar næturnar!!! Svaf reyndar aðeins of lítið aðfararnótt mánudags, þegar Jobbi fór heim um nóttina, en ég ætti að vera búin að ná því upp núna. Er að reyna að halda einbeitingunni til að komast e-ð áfram með verkefnið, loksins þegar ég og forritið erum búin að sættast;) en það gengur frekar illa þegar ég þyrfti helst að nota tannstöngla til að halda augnlokunum opnum!!! Hvað er málið?!?!?!?


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:46 EH | 0 Ummæli

febrúar 07, 2005

Framhaldssaga síðan síðast...

Í síðustu færslu viðurkenndi ég að ég væri subbulína, svo sem ekkert nýtt. Á föstudeginum toppaði ég það all verulega!! Fór á McDonalds á leiðinni heim til að kaupa mér einn lítinn sjeik (já ég er hooked á sjeik þessa dagana!!) Tókst að fá sjeik yfir kápuna mína, og á vettlingana og að sjálfsögðu fullt á gólfið líka sem ég nennti nú ekki að hafa áhyggjur af. Í þokkabót reif ég síðan eina tölu af nýja jakkanum mínum þegar ég var að að ná mér í pappír til að þurrka upp allan sóðaskapinn!!!

Annars var helgin alveg meiriháttar!! Löbbuðum um miðbæ Västerås, fórum á kaffihús, borðuðum sænskar bolludagsbollur (Jobbi var eiginlega ekki á því að smakka, þar sem það er engin sulta á þeim!;)), fórum út að borða og skelltum okkur svo í bíó í gærkveldi. Jobbi náði að finna eitt spark hjá tvíbura 1, tvíburi 2 er öllu rólegri í tíðinni og finn ég miklu minna fyrir honum, en ég fann samt í bíó í gær fyrsta sparkið frá tvíbura 2 utanfrá.

Hvað er annars málið með tilfinningarússíbanann sem ég virðist vera í þessa dagana? Horfði á lokaþáttinn af Friends í 7. seríunni þegar Chandler og Monica gifta sig, og Rachel er orðin ólétt. Ég hef OFT séð þennan þátt áður, en manni minn, ég grét næstum úr mér augun!!!! Fór líka að gráta í endann á Meet the Fockers í bíó í gær.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:46 EH | 0 Ummæli

febrúar 03, 2005

Subbulína

Það verður víst seint tekið af mér að vera klaufi. Undir það flokkast líka að vera yfir meðallagi duglegur að hella niður. Hverjum öðrum en mér tekst t.d. að hella TVISVAR niður á sig jógúrt úr EINNI jógúrtdós?!?!?! Þessi jógúrt var btw borðuð í morgun ekki löngu eftir að ég mætti í vinnuna, þ.a. ég er búin að vera að bögga mig á þessum blettum í ALLAN dag!!

Í danska systeminu heitir Jobbi ekki Þeyr eins og á Íslandi, því við vorum svo ógáfuð að skrifa Þ en ekki TH, að hann heitir Jósef Peyr. Þegar við föttuðum mistökin, fórum við strax og ætluðum að láta breyta þessu í Theyr, en too bad, ekkert hægt að breyta. Þar sem ég er búin að vera í miklu stuði í dag, þá datt mér í hug hvort að það væri ekki hægt að nefna Peyr ef við fengjum strák. Það nafn er víst ekki leyft, en það ætti samt bara að beygjast alveg eins og Þeyr, hefur íslenska stafsetningu og allt, þ.a. við hefðum rökin með okkur ef við myndum sækja um leyfi;) Jobba fannst þetta ekki alveg jafn fyndið og mér. Thíhíhíhí

Svona rétt í lokin, þá langar mig að minnast á ANSI gleðilegan atburð sem verður í lífi mínu á morgun, já Jobbi kemur loksins!!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:29 EH | 0 Ummæli

febrúar 02, 2005

Nýjasti boxpúðinn

Ég held stundum að krílin haldi að þvagblaðran sé boxpúði!! Sem betur fer eru þessar elskur svo litlar ennþá að ég þarf nú ekkert að hendast á klósettið þó ég fái spark í þvagblöðruna, en það er samt oft frekar fyndið að finna þetta. Annars eru hreyfingarnar, heyra hjartsláttinn hjá ljósunni og fara í sónar svona uþb það eina æðislega við meðgönguna, annað er ekki alveg jafn mikið að gera sig. Er reyndar aðeins skárri í dag, en annars búin að vera að drepast í bakinu, og grindin e-ð að plaga mig þegar ég er búin að sitja heilan dag, sem svo stigvesnar eftir því sem líður á vikuna. Þegar ég sé mig í spegli, finnst mér bumban vera pínulítil, en þegar ég sit, finn ég svo fyrir henni að ég held alltaf að hún sé orðin alveg risa stór;) Finnst bara verst hvað það er langt í að krílin láti sjá sig, væri til í að fara að fá þau bara;)

Annars er ég alveg að fara að fá Jobba minn til mín:) Hann kemur á föstudagskvöldið og fer aftur á mánudagsmorgun. Vona að ég verði ekki að drepast í bossanum eða bakinu þ.a. við getum nú gert e-ð sniðugt og skemmtilegt.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:19 EH | 0 Ummæli