mars 30, 2005

Misheppnuð mæðraskoðun

Í morgun lögðum við Jobbi leið okkar enn einu sinni niðrá Gentofte spítala og núna til að mæta í mæðraskoðun ásamt fjórum öðrum tvíburabumbum. Eftir ca hálftíma var mér farið að líða hálf illa sem versnaði bara og sem endaði með að það leið yfir mig sitjandi í stól og þegar ég rankaði við mér aftur var ég búin að æla bæði yfir mig og gólfið!! Smekklegt!! Jakk!!! Eyddi því öllum deginum í sjúkrahúsrúmi og fá að komast að því að allar prufur og öll test voru í fínasta lagi og engin skýring á þessu yfirliði mínu. Komst heim um kvöldmatarleytið og var mjög svo fegin að komast loksins heim.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:55 EH | 0 Ummæli

mars 17, 2005

Krílin fóru í fýlu út í hvort annað;)

Njaa eða kannski ekki alveg:) Ég ligg upp í rúmi eins og ég er búin að gera í nánast allan dag út af fáránlegum svima og flökurleika í morgun. Áðan tók ég eftir því að bumban varð eiginlega að tveimur bumbum og niður í miðjunni, næstum eins og rass;) Okkur fannst þá tilvalið að segja að krílin hefðu farið í sitthvort hornið í fýlu, en greinilega jafnað sig fljótlega því bumban varð fljótt aftur að einni bumbu:) Annars breytist lögunin á bumbunni ansi fljótt, fæ ótrúlegustu horn og bungur á hana núna, skemmti mér konunglega við að fylgjast með henni á milli þess sem ég horfi á tölvuskjáinn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:21 EH | 0 Ummæli

Nýjar myndir

Var að henda inn nokkrum myndum í myndaalbúmið. Bæði feitubollumyndir og myndir frá Íslandi.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:06 EH | 0 Ummæli

Allt að gerast...

Það er ekkert smá langt síðan að ég hef skrifað e-ð hingað inn. Var svo hrikalega upptekin í viku á Íslandi við það að liggja í leti að ég komst bara hreinlega ekki í það að blogga;) Höfðum það að sjálfsögðu svaka fínt, hlóðum batteríin og ótrúlegt en satt þá svaf ég betur í 120cm gamla rúminu mínu heldur en í okkar rúmi hérna úti. Langaði helst bara að vera lengur á Íslandi en núna er maður nú alveg sáttur við að vera komin heim til sín aftur.

Hvernig er með þessar óléttur, er þetta að ganga? Nei bara að spá, var nefnilega að frétta af nýrri óléttu í gær... ætla ekki að uppljóstra hver það er því það eru víst ekki endilega allir sem lesa síðuna og þekkja til búnir að frétta af þessu;) Er ég núna búin að gera alla sem lesa ótrúlega forvitna? Þá er tilgangnum náð;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:43 FH | 0 Ummæli