apríl 28, 2005

Eyrún sauður

Í dag var ég með eitt verkefni og merkilegt nokk þá er ég búin með það. Þetta verkefni var s.s. að baka eina betty crocker fyrir prjónaklúbbinn í kvöld. Held hún hafi líka heppnast bara ágætlega þó ég sé nú ekki búin að smakka (bragðið getur nú varla klikkað...). En til að baka betty, þá þurfti að bæta við vatni, olíu og eggjum. Vatnið og eggið gekk alveg ljómandi vel, en þegar ég var að hella olíunni úr mæliglasinu þá var ég e-ð svo svakalega ógáfuð að hella ekki inn að miðju, heldur út að kanti!! Þið getið kannski giskað ykkur til um rest... jújú auðvitað fór slatti af olíunni þá ÚTFYRIR skálina!!!! Matarolía því ÚTUM ALLT!!!! JAKK!!!


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:19 EH | 0 Ummæli

apríl 26, 2005

Nokkuð öflug...

Eftir að hafa sofið næstum fram að hádegi þá þurfti ég að drífa mig út því við Jobbi vorum búin að ákveða að borða saman hádegismat. Í framhaldi af því, fór ég á pósthúsið með fullt af bréfum og pökkum, keypti e-n mat í Nettó og eins og það væri ekki nóg fyrir mig, þá þvoði ég 2 vélar!! Annar eins dugnaður hefur ekki sést á mínu heimili ANSI lengi, en ég er líka frekar þreytt núna... Jobbi fer líka vonandi alveg að koma heim til að dekra við mig:-)
Annars hef ég það bara nokkuð fínt, finnst samt vera að teygjast frekar mikið á bumbunni núna að mér líður eins og skinnið sé að rifna í vinstri hliðinni:/ Ekki er það af því að húðin er e-ð þurr, því ég er svo rosalega dugleg að bera olíu og krem á bumbuna. Þó svo að maður heyri reglulega að það geri ekkert gagn fyrir slit þá getur það ekki gert neitt slæmt og ef ég gerði ekkert og myndi svo slitna geðveikt mikið þá myndi ég alltaf naga mig í handabökin, hvað ef ég hefði borið á mig. Hingað til hefur ekki enn komið eitt einasta slit, efast reyndar stórlega um að ég nái að ganga fulla meðgöngu án þess að slitna nokkuð en með hverri vikunni sem líður án þess að það komi slit er ég ánægð:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:14 EH | 0 Ummæli

apríl 25, 2005

Dugnaðardagur endaði í letidegi...

Var alveg búin að plana að vera ótrúlega dugleg (á minn mælikvarða) í dag, þvo 2 vélar, taka til og skrifa bréf. Ég er ekki búin að neinu af þessu, jú ég er búin að flokka þvott fyrir 2 vélar og ég er ca hálfnuð að skrifa bréfið! Ástæðan fyrir því að ég þvoði ekki þvottinn var að Jobbi er með þvottakortið í veskinu sínu uppí skóla!! Ég hef ekki dröslast sjálf með þvott uppí þvottahús ansi lengi þ.a. ég hef ekki þurft að nota þvottakortið ansi lengi en nú var eiginlega orðið nauðsyn að setja óléttufötin mín í þvott því ég er búin að vera nokkuð "dugleg" að skíta þau út núna um helgina! Í einn svarta bolinn minn fékk ég tannkrem á laugardaginn þ.a. hann í þvottakörfuna og ég í nýjan bol. Í kvöldmatnum missti ég svo mat niður á mig á bolinn sem ég var nýfarin í!!! Í gærkveldi þegar ég fékk mér vatnsmelónu, skipti ég svo bara aftur í skítugan bol, svona til vonar og vara því það eru ansi miklar líkur á að það sullist niður á mig þegar ég borða melónu;)

Í dag hef ég svo fengið fullt af óléttufréttum, aðallega af danska og norska kóngafólkinu en líka enn eina sem ég ætla ekki að kjafta frá alveg strax. Það varð hvort eð er enginn forvitinn þegar ég minntist á óléttuna um daginn (Gunni og Nína á kollegíinu sem er sett í ágúst), þ.a. það gerir ekkert til þó ég minnist ogguponsulítið á þessa nýju óléttu hérna:-)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:49 EH | 0 Ummæli

apríl 23, 2005

Tvíburavagn kominn í hús

Ótrúlegt en satt þá gátum við Jobbi tekið ákvörðun um vagn. Keyptum notaðan vagn sem er eins árs gamall og sér sama og ekkert á. Þetta er Odder vagn sem börnin geta vonandi sofið nokkuð lengi í. Erum ekki alveg búin að fá barnavagnskassann til að passa ofan í skottið á bílnum okkar, reyndum ekkert alltof mikið og erum ekki búin að gefa upp alla von ennþá;) Vagninn kemst ekki inn um hurðina að framan (áttum ekki von á því, þar sem hún er frekar mjó), en eigum eftir að athuga með svalahurðina sem er 10cm breiðari en útihurðin og á því að vera nógu breið.

Lét inn 2 myndir af bumbunni í albúmið okkar í gær. Get ekki sagt að mér finnist hún e-ð mikið stærri en myndirnar á undan þó mér finnist hún heldur betur mikið þyngri og meira fyrir mér;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:56 EH | 0 Ummæli

apríl 21, 2005

Endalaust upprak...

Mikið voðalega ætla ég að vera treg að prjóna þessa sumargalla sem ég er að gera á litlu krílin. Prjónaði aðra skálmina, rakti hana upp, byrjaði á annari skálm og var langt komin með hana þegar ég fattaði að ég hafði gleymt að auka út eina lykkju töluvert neðar þ.a. ég rakti niður í það. Samtals er ég búin að prjóna tæpar 2 skálmar en rekja upp ca eina og hálfa!! Sem betur fer eru þetta svona stuttbuxna skálmar þ.a. skálm er ca 9cm á lengd. Hefði verið ennþá meira svekkjandi ef þetta hefðu verið síðbuxur... Þá hefði ég kannski bara leyft vitleysunum að vera, veit ekki.

Í gær var annars mæðraskoðun, og ég gekk bara nokkuð fersk þaðan út:) Var ekkert að láta líða yfir mig eins og seinast;) Í næsta tíma á að fara nánar í deyfingar og þá fáum við vonandi að sjá fæðingarstofu nr. 4 (það er stærsta stofan og allar tvíburafæðingar fara víst þar fram út af fjölda starfsfólks sem er inni). Ef tvíbura 1 þóknast ekki að snúa sér aftur í höfuðstöðu þá þarf ég víst ekki að hafa áhyggjur af deyfingum eða þannig því þá verð ég víst send í keisara:( Var frekar afbrýðissöm í gær þegar allavega 3 af hinum tvíburaóléttunum eru með krílin sín bæði lóðrétt og nánast engar líkur á að þau snúi sér úr þeirri stöðu héðan af.

Að lokum óska ég öllum á Íslandi gleðilegs sumars!! Enginn sumardagur fyrsti í dag hérna í Danmörku en það er hins vegar frídagur á morgun, stóri biðjudagurinn. Þar sem það er löng helgi þá er Hólmar að koma til okkar yfir helgina frá Jótlandi þar sem hann er í lýðháskóla.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:45 FH | 0 Ummæli

apríl 19, 2005

Þverir erfingjar á leiðinni;)

Það er ekki lítið sem litlu krílin okkar voru þversum í dag. Fyrir það fyrsta liggja þau núna bæði þversum í maganum, en ég vona að tvíburi 1 muni allavega snúa sér aftur í höfuðstöðu þ.a. ég fái nú allavega að reyna að koma þeim út án þess að til keisara komi. Í öðru lagi ætlaði tvíburi 1 bara ekki að leyfa neinar mælingar á sér, sem var til þess að við vorum HEILLENGI í sónarnum og fengum bara enn ónákvæmari mælingar fyrir tvíbura 1 en venjulega. Þau voru nú samt bæði búin að stækka ágætlega, og voru mæld sem 1630gr og 1804gr (1287gr og 1236gr fyrir 3 vikum). Hér eftir fer ég núna til læknis og þ.a.l. í sónar á tveggja vikna fresti alveg fram að fæðingu, verður forvitnilegt að sjá hvernig þau láta í næsta sónar.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:15 EH | 0 Ummæli

apríl 18, 2005

Dagur heimsókna

Eftir "smá" morgunfýlu eldsnemma í morgun vaknaði ég hress og kát þegar fór að nálgast hádegið. Í staðin fyrir að hanga heima í sófanum, ákvað ég að heimsækja Guðnýju sem er nýkomin frá Íslandi og hanga í hennar sófa í staðin:) Þegar ég var nýkomin heim aftur var ég beðin um að koma til Fjólu svo ég gæti lesið yfir þýsku leiðbeiningarnar með nýju uppþvottavélinni þeirra og að sjálfsögðu gerði ég það. Eftir mat fékk ég svo Guðbjörgu í heimsókn í smá stund þar sem nokkrar umferðir bættust við prjónadótið okkar. Sem sagt bara fullt af heimsóknum í dag, ekki leiðinlegt:)

Á morgun er svo læknisheimsókn sem þýðir sónar:) Fáum þá nýja stærð á krílin og verður forvitnilegt að sjá hve stór þau eru orðin núna. Svo erum við að spá í að kíkja á enn eina vagnabúðina eftir lækninn til að athuga hvort við finnum e-n vagn sem við getum orðið sátt við. Fann nefnilega búð á netinu sem heldur því fram að sé "Danmarks største" í vögnum og barnavörum.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:57 EH | 0 Ummæli

apríl 17, 2005

Ofáreynsla í búðarleiðangri...

Komst að því í gær að ferð í Babysam upp í Hillerød, leiðangur í Fields og svo Fiskitorgið þar á eftir er OF mikið af því góða fyrir mig þessa dagana. Komst varla inn úr bílnum þegar við komum heim því mér var svo illt í grindinni eftir allt labbið. Var síðan eins og mörgæs hérna í gærkveldi og rétt gat staulast á klósettið í nótt fyrir verkjum. Með algjörri afslöppun í dag er ég öll að koma til þ.a. ég ætti nú með góðu móti að geta rölt yfir til Guðbjargar á eftir með bol í þvottavélina þeirra. Fröken subbulína (aka Eyrún) var komin með matseðilinn eftir gærkvöldið framan á hvíta bolinn sinn og þar sem að við gleymdum að nota biotex á blettina í dag áður en við (eða meira Jobbi) létum í þvottavélarnar þá fór ekki allt úr. Í gærkveldi mættu s.s. Fjóla, Ingólfur, Guðbjörg og Vignir til okkar og við grilluðum saman. Ótrúlega næs og mikið borðað. Grillaður ananas með ís setti síðan alveg punktinn yfir i-ið:) Strákarnir sáu um að stúta rauðvínsflöskum í fleirtölu á meðan við stelpurnar vorum stillar og prúðar. Heyrðust líka ótrúlegustu hljóð úr líkömum þeirra þegar þeir spiluðu fótboltaleik í xbox allt eftir því hvernig þeim gekk, þeir (aðallega Vignir) vildu nú ekki kannast við að vera fullir, þeir væru bara aðeins kenndir;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:17 EH

apríl 16, 2005

Farðu út með hendina!

Í fyrrasumar fórum við til Oslo til að sjá Norah Jones á tónleikum. Við gátum nú ekki verið þekkt fyrir að keyra alla leiðina þarna uppeftir án þess að skoða sig aðeins um þ.a. við fórum í siglingu um fjörðinn á svona túristabát. Jobbi sat við borðstokkinn og ég þar við hliðina. Eitt skiptið tók ég eftir því að konan fyrir aftan, sem ásamt hóp sínum var af einhverjum ástæðum búin að fara frekar mikið í taugarnar á mér (langt síðan, man ekki alveg af hverju;)), var að taka video út um bátinn. Fannst mér þá ægilega sniðugt að athuga hvort ég gæti látið Jobba stinga hendinni út úr bátnum fyrir myndavélina og sagði því við hann "farðu út með hendina". Jobbi er greinilega vel upp alinn drengur því hann gerði eins og skot það sem ég sagði honum að gera og spurði svo af hverju!!! Konan fyrir aftan hefði getað myrt okkur (og þá sérstaklega Jobba) með augnarráðinu!! Við áttum óheyrilega bágt með okkur þarna og hlógum mikið að þessu eftir á. Í gærkveldi sá ég í sjónvarpinu svona túristabát og mundi þá eftir þessu atviki og við hlógum því enn og aftur óheyrilega mikið af þessu!!

Annars er ég LÖNGU vöknuð hérna. Þurfti á klósettið rúmlega 6 og náði ekkert að sofna aftur. Var rekin á fætur áðan þegar ég var búin að pirra Jobba frekar mikið með því að kitla hann í nefinu endalaust oft!! Mér leiddist bara og fannst ekkert að því að Jobbi myndi halda mér félagsskap... hann var bara því miður ekki alveg sammála mér:/

Síðan er ég búin að fá samþykkta ferð upp í Hillerød í dag til að kíkja í Babysam ENN eina ferðina. Að velja tvíburavagn/kerru er meira en að segja það. Finnst ég ekki vera fullkomnlega sátt við neitt.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:39 FH | 0 Ummæli

apríl 15, 2005

Hárnæring, gagn eða ógagn?

Yfirleitt nota ég hárnæringu í hárið mitt, en síðasta mánuðinn hefur ekki verið til hárnæring og ég því ekki notað svoleiðis. Í gær var ég síðan búin að kaupa nýjan brúsa og ætlaði svoleiðis að dekra við hárið á mér. Eftir sturtuna nennti ég ekki að gera neitt við hárið og lét það bara í tagl, og ég get svo svarið það að hárið hefur ekki verið svona mikið úfið LENGI!!! Kannski bara betra að sleppa hárnæringunni, allavega virtist það ekki vera að virka neitt betur á hárið þegar það fór að þorna.

Annars skellti ég mér í strikkeklub í gærkveldi. Hef ekki mætt HEILLENGI eða í 6 vikur og þá af ýmsum ástæðum. Þar var ein lítil nokkra mánaða, það fékk mig sko til að hlakka til! Heyrðist ekki í henni nema einstaka hjal og annars var hún bara róleg á teppinu sínu á gólfinu. Er ansi merkilegt að það er bara lítið lengra þar til börnin verða pottþétt komin eins og er langt síðan að ég mætti síðast í prjónaklúbbinn. Það þýðir nú samt ekki að mér finnist stutt eftir, ónei! Mér hefur ALDREI fundist jafn langt eftir eins og núna!! Alveg sama þó það hafi aldrei verið jafn stutt;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:42 FH | 0 Ummæli

apríl 14, 2005

Símadama hjá Netgrúppunni

Eftir að margir úr netgrúppunni hérna á kollegíinu fluttu út þá er Jobbi núna orðinn sá eini sem fer niður í kjallarana að laga netið þegar rekkarnir verða netlausir. Í einum rekkanum var netið lagað í gærkveldi en það vildi ekki betur til að það fór út aftur snemma í dag. Síðan seinnipartinn er ég búin að taka á móti ansi mörgum símtölum þar sem verið er að spyrja eftir Jobba út af netleysinu en hann er bara ennþá í skólanum. Sagði við Jobba að ef þetta job yrði launuð þá ætti ég sko skilið hluta af þeim pening fyrir fyrirhöfnina;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 06:09 EH | 0 Ummæli

Giskað á kynin

Jæja folks, þið sem ekki eruð búin að giska á kynin megið nú alveg láta ljós ykkar skína:) Mamma, það er engin afsökun að þú sért ekki alveg viss hvaða kyn komi!;)

Annars í framhaldi af blogginu áðan þegar ég sagðist hafa vaknað þegar Jobbi vaknaði, þá gerðist sá stórmerkilegi atburður eftir að ég var búin í tölvunni að ég steinrotaðist aftur og svaf til HÁDEGIS!!! Ótrúlega ljúft:-) Ég sofna nefnilega næstum aldrei aftur, og sofna næstum aldrei á daginn þó ég sé að leka niður úr þreytu.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 02:49 EH | 0 Ummæli

Þreytt feitubollan á þessum bænum

Jæja, það er víst e-ð farið að kvarta yfir fréttaleysi héðan þ.a. það er kannski eins gott að drífa sig (haha Vignir, stundum er það bara nauðsynlegt;)) í að pára nokkrar línur niður á "blað".
Gerist ekki mikið í mínu lífi þessa dagana... var reyndar alveg svakalega öflug í gær, fór í skólann fyrir hádegi, hitti kennara og spjallaði við nemendaskrifstofuna út af seinkun á verkefninu. Mætti svo AFTUR eftir hádegi, hlustaði á nokkra fyrirlestra og þar á meðal frá grínistanum Anders Lund Madsen í tilefni af vígslu CET og fór svo í buffet á eftir. Ég var ekkert smá fegin að Jobbi vildi koma á sama tíma heim, því ég var svo þreytt að ég nennti ekki að keyra. Var svo bara í sófanum í allt gærkvöld, sofnaði snemma og ætlaði svoleiðis að sofa út. En eins og alltaf þá vaknaði ég þegar klukkan hans Jobba var að reyna að vekja hann og gafst svo upp á að reyna að sofna aftur stuttu eftir að hann fór.

Í kvöld er stefnan sett á prjónaklúbb en það þýðir að ég má helst ekki gera nokkurn skapaðan hlut í dag til að hafa orku í það. Jobbi var allavega feginn, þá mátti hann fara á bílnum í skólann:) En núna er bakið farið að kvarta yfir of langri setu við tölvuna (ca 20mín) þ.a. ég ætla bara að hlamma mér inn í rúm aftur:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:52 FH | 0 Ummæli

apríl 06, 2005

Klúður

Núna undanfarið hef ég verið hálfgerð súkkulaðikleina hérna heima, bara haft það rólegt og látið stjana við mig. Verð að passa mig extra vel þar sem mig svimar svo oft mikið og fæ höfuðverk og mig langar helst ekki að láta líða yfir mig aftur. En allavega, í gær kom Jobbi heim úr skólanum og þykist hafa snúið sig á fætinum í fótbolta í hádeginu. Þetta þýðir að ég er ekki lengur með einkaþjón hérna heima og þarf sjálf að standa í heimilisverkunum;) Vaskaði upp í morgun alveg heilan helling en ég var líka með frekar mikinn hausverk á eftir og er því bara búin að spila snilldar kúluleikinn sem ég fann í gær uppí rúmi. Þessi leikur er algjör timekiller og eins og Guðbjörg sagði í gærkveldi, "nú er ég ENDANLEGA búin að tapa prjóna veðmálinu við mömmu!"

Í dag eru akkúrat 2 mánuðir þar til ég verð gengin 38 vikur, og ef ég verð ekki búin að eiga á þeim tímapunkti, þá verður leigusamningnum sagt upp og leigendurnir verða reknir út;) Við munum hins vegar ekki standa í brottrekstri 6. og 7. júní því við viljum helst eiga okkar afmælisdaga í friði og leyfa þeim líka að eiga sinn dag í friði. Svo er bara aldrei að vita nema krílin ákveði að koma sjálf e-ð áður, en ef ég get e-ð miðað við mömmu reynslu þá munu þau ekkert vera að flýta sér neitt of mikið;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:11 EH | 0 Ummæli

apríl 04, 2005

Leti eða dugnaður?

Það sem af er degi hef ég eytt á náttfötunum og meira að segja í bælinu. Mætti því segja að ég sé letihaugur... eða bara ólétt sem leyfi mér að liggja í bælinu hálfu dagana;) Hins vegar hef ég alveg komið svolitlu í verk hérna í morgun, aðallega er ég búin að vera að browsa netið og drepa tímann þannig en einnig losaði ég mig við google auglýsingaborðann sem hefur verið efst á síðunni ansi lengi. Var bara nokkuð stolt af mér fyrir þá frammistöðu, þó ég sé alltaf á leiðinni að losa mig við blogger/blogspot;) Það er samt búið að vera á leiðinni svo lengi að ég er farin að efast um að ég komi því nokkuð í verk á næstunni;) Svo að auki lét ég líka inn nokkrar myndir í albúmið okkar:)
Ætli það sé ekki kominn tími til að fara á fætur og reyna að koma því í verk sem ég ætla mér að gera í dag...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 12:53 EH | 0 Ummæli

apríl 03, 2005

Í sól og sumaryl

Síðustu daga hefur hlýnað það mikið hérna hjá okkur að við höfum getað setið útí garði. Hádegismaturinn í dag (sem voru btw snilldar amerískar pönnukökur sem Jobbi galdraði fram) var borðaður úti, ég sat úti í dag og prjónaði og svo var grillað eins og reyndar síðustu tvö kvöld líka. Í fyrrakvöld grilluðum við með Guðbjörgu og Vigni heima hjá þeim og í gær grilluðum við aftur með þeim en í gær heima hjá okkur.

Annars vorum við að setja upp síðu þar sem hægt er að giska á kynin, stærð barnanna, fæðingardag þeirra og nöfnin sem þau munu fá.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:23 EH