apríl 18, 2005
Dagur heimsókna
Eftir "smá" morgunfýlu eldsnemma í morgun vaknaði ég hress og kát þegar fór að nálgast hádegið. Í staðin fyrir að hanga heima í sófanum, ákvað ég að heimsækja Guðnýju sem er nýkomin frá Íslandi og hanga í hennar sófa í staðin:) Þegar ég var nýkomin heim aftur var ég beðin um að koma til Fjólu svo ég gæti lesið yfir þýsku leiðbeiningarnar með nýju uppþvottavélinni þeirra og að sjálfsögðu gerði ég það. Eftir mat fékk ég svo Guðbjörgu í heimsókn í smá stund þar sem nokkrar umferðir bættust við prjónadótið okkar. Sem sagt bara fullt af heimsóknum í dag, ekki leiðinlegt:)
Á morgun er svo læknisheimsókn sem þýðir sónar:) Fáum þá nýja stærð á krílin og verður forvitnilegt að sjá hve stór þau eru orðin núna. Svo erum við að spá í að kíkja á enn eina vagnabúðina eftir lækninn til að athuga hvort við finnum e-n vagn sem við getum orðið sátt við. Fann nefnilega búð á netinu sem heldur því fram að sé "Danmarks største" í vögnum og barnavörum.
-------- Skrifaði eyrunl þann 18.04.05 22:57