apríl 16, 2005

Farðu út með hendina!

Í fyrrasumar fórum við til Oslo til að sjá Norah Jones á tónleikum. Við gátum nú ekki verið þekkt fyrir að keyra alla leiðina þarna uppeftir án þess að skoða sig aðeins um þ.a. við fórum í siglingu um fjörðinn á svona túristabát. Jobbi sat við borðstokkinn og ég þar við hliðina. Eitt skiptið tók ég eftir því að konan fyrir aftan, sem ásamt hóp sínum var af einhverjum ástæðum búin að fara frekar mikið í taugarnar á mér (langt síðan, man ekki alveg af hverju;)), var að taka video út um bátinn. Fannst mér þá ægilega sniðugt að athuga hvort ég gæti látið Jobba stinga hendinni út úr bátnum fyrir myndavélina og sagði því við hann "farðu út með hendina". Jobbi er greinilega vel upp alinn drengur því hann gerði eins og skot það sem ég sagði honum að gera og spurði svo af hverju!!! Konan fyrir aftan hefði getað myrt okkur (og þá sérstaklega Jobba) með augnarráðinu!! Við áttum óheyrilega bágt með okkur þarna og hlógum mikið að þessu eftir á. Í gærkveldi sá ég í sjónvarpinu svona túristabát og mundi þá eftir þessu atviki og við hlógum því enn og aftur óheyrilega mikið af þessu!!

Annars er ég LÖNGU vöknuð hérna. Þurfti á klósettið rúmlega 6 og náði ekkert að sofna aftur. Var rekin á fætur áðan þegar ég var búin að pirra Jobba frekar mikið með því að kitla hann í nefinu endalaust oft!! Mér leiddist bara og fannst ekkert að því að Jobbi myndi halda mér félagsskap... hann var bara því miður ekki alveg sammála mér:/

Síðan er ég búin að fá samþykkta ferð upp í Hillerød í dag til að kíkja í Babysam ENN eina ferðina. Að velja tvíburavagn/kerru er meira en að segja það. Finnst ég ekki vera fullkomnlega sátt við neitt.


--------

Skrifaði eyrunl þann 16.04.05 07:39
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?