maí 30, 2005

Gangsetningardagsetning og ný myndavél

Dagurinn í dag hefur verið frekar viðburðarríkur hjá okkur skötuhjúum. Fórum í síðasta skiptið til læknis á þessari meðgöngu þar sem við fengum að skoða litlu krílin okkar í sónar og fá að vita að þau eru núna bæði í höfuðstöðu og tvíburi 2 mældist 3166gr með rúmlega 500gr skekkjumörk. Tvíburi 1 er eins og síðast skorðaður og því ekkert hægt að mæla höfuðið. Útvíkkun er nú þegar komin upp í 2 og fengum við gangsetningardagsetningu næsta fimmtudag ef ég verð ekki þá þegar farin af stað.

Eftir læknisheimsóknina skelltum við okkur í Fotohuset Virum og keyptum okkur nýja myndavél. Fyrir valinu varð Canon EOS 350D sem við erum búin að vera að stúdera undanfarna daga.

Myndavél ríkari og nokkrum krónum fátækari skelltum við okkur smá stund í Lyngby Storcenter og þegar heim var komið og ég búin að stoppa aðeins hjá Guðbjörgu var ég svo þreytt að ég lagðist í sófann og steinsofnaði. Ekki finnst mér neitt voða gott að sofa í sófanum þ.a. fljótlega færði ég mig inn í rúm og hélt áfram að sofa þar. Veitti ekki af, var alveg uppgefin (en mjög svo sátt) eftir daginn.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 09:16 EH

maí 28, 2005

Brunarústir

Það er virkilega hættulegt að fá gott veður úti... Ég sat úti hjá Guðbjörgu í gærdag í ca 3 1/2 tíma og eftir smá tíma ákváðum við að sólarvörn væri nú góður kostur. Guðbjörg átti mest nr. 8 þ.a. það var borið á og þar sem ég vildi nú frekar vera on the save side þá bar ég ansi oft á mig. Það virkaði nú ekkert svakalega vel því hendurnar mínar eru þvílíkt brunnar og mig logsvíður alveg:( Andlitið er líka vel grillað:( Að auki er ég með brenndan hring fyrir ofan hnéð!!! Síðan ég kom inn í gærdag er ég búin að vera ansi öflug með after sun-ið, og fór líka í frekar kalda sturtu fyrir nóttina. Í nótt bar ég svo aftur á mig nokkrum sinnum þegar ég fór á klósettið, vona að þetta fari nú að skána bráðum.

Í dag er svo tiltektar- og þrifnaðardagur, Jobbi ætlar að vera svaka duglegur þ.a. manni líði eins og krílin megi bara fara að láta sjá sig;) Enda er Helga Björt alveg viss um að þau fæðist á morgun. Margrét var nú líka viss um að þau myndu fæðast á fimmtudaginn en þau hafa ennþá ekki látið sjá sig;) Ég giska á þriðjudaginn 31. maí því það hefur enginn giskað á þann dag;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:19 FH

maí 26, 2005

Mæðraskoðun, straujun og matarboð

og það allt á einum degi!! Geri aðrir betur í mínu ástandi;) Ótrúlega stollt af dugnaðinum í mér ef það skyldi fara framhjá einhverjum:-) Þar sem ég hafði líka sofið of lítið nóttina áður (var andvaka og þurfti svo að vakna eldsnemma) þá var ég vel þreytt í gærkveldi og ég svaf eins og sveskja í nótt!! Vaknaði jú tvisvar til að heilsa upp á kamarinn en ég sofnaði í bæði skiptin um leið aftur!! Ekkert smá ljúft, sérstaklega í ljósi þess að ég á oft mjög erfitt með að sofna eftir seinni ferðina þar sem það er aðeins farið að birta þá. Ligg oft í 1-2 klukkutíma andvaka!!

Í dag tekur svo við meiri frágangur á þvotti, langar voða mikið að ná að klára að þvo og strauja allt áður en krílin láta sjá sig.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:59 FH

maí 24, 2005

Þvottadugnaður...

Síðan þvottavélin fór í gang á sunnudaginn hefur hún varla fengið frið. Í gær þvoði ég 3 vélar og er líka búin að þvo 3 vélar í dag. Allt var þetta barnadót sem ég er búin að vera að þvo, ekki bara föt heldur líka sængur, utan um dýnana, utan um brjóstagjafapúðann, kantur í rúmið og þess háttar. Er reyndar bara rétt byrjuð að strauja en ég hef vonandi orku til að komast e-ð áfram með það á morgun eða hinn... Annars bauðst tengdó til að strauja fyrir mig, væri nú algjör snilld bara ef hún væri í sama landi og ég...

Ég fékk heimsókn áðan, Elva Rún kom og spjallaði aðeins við mig og fékk frostpinna sem ég hafði lofað henni fyrir löngu. Hún ætlaði síðan út að leika á leiksvæðinu við hliðina á húsinu okkar og átti að koma aftur inn til mín þar sem Guðný hafði hringt og látið mig vita að þau væru útí gám og enginn heima (eru að pakka í gáminn fyrir flutningana til Íslands). Eftir dálítinn tíma hafði ég ekkert heyrt aftur frá Elvu Rún þ.a. ég fór út á leiksvæði og engin Elva þar. Reyndi að hringja heim til þeirra en enginn svaraði þ.a. ég tók mér smá heilsubótargöngu að rekka 4 en engin Elva Rún fannst. Ég hringdi í Jobba og lét hann vita að ég væri búin að týna barninu sem var í heimsókn hjá mér!!! Ég nennti bara ekki að labba út að gámnum til að athuga hvort hún væri þar:/ Stuttu seinna náði ég í Guðnýju og þá hafði litla skottan farið til þeirra og var því ekki lengur týnd:)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 05:58 EH | 0 Ummæli

maí 23, 2005

36 vikur í dag...

Frá því fyrir löngu síðan hef ég sagt að ég vonaðist til að ganga allavega 36 vikur með þessi kríli mín. Í dag eru þessar 36 vikur liðnar og ekkert bólar á krílunum, sem er nú bara gott. Það væri nefnilega gott að ná 37 vikunum því þá flokkast þessar elskur ekki sem fyrirburar lengur. Enda á ég líka eftir að dunda mér við ýmislegt áður en þau fæðast og vikutími væri fínt fyrir það;) Annars enda ég næstum pottþétt á því að verða sett af stað ca við 38 vikurnar því þeim líður svo vel inní mér;)

Í gær skelltum við Jobbi okkur í sund í næstum fyrsta skipti. Fórum einu sinni í sund í fyrrasumar með fjölskyldu minni rétt hjá sumarhúsinu sem við vorum í. Í gær skelltum við okkur í sund í Bagsværd sem er rétt hjá Lyngby og Guðný mælti með. Þau hafa víst oft farið með börnin þangað en þar er ekki bara ísköld laug, þótt það hafi nú alveg vantað heitu pottana;) Þvílíka athyglin sem ég fékk!!! Ég er orðin nokkuð vön því að fá athygli frá ókunnugum út á götu en í bikiníinu í sundi, vááá maður. Það var eins og fólk hefði aldrei séð ólétta konu áður!! Einn lítill strákur sem ég mætti með pabba sínum snéri sér t.d. heilhring og sagði "vááááá" í leiðinni!!

Annað merkilegt sem gerðist í gær var að þvottavélin okkar var tengd og þvegin fyrsta vélin. Framundan er því meiri þvottur en nú á barnafötum:) Að lokum henti ég inn örfáum bumbumyndum í albúmið okkar í gærkveldi. Greyið Margrét systir fer alltaf næstum að grenja þegar hún sér myndir af mér því henni finnst þetta víst svo hrikalegt og vorkennir mér;) Ég mun minna hana á það þegar hún fær svona bumbu einhvern tímann í framtíðinni;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:47 FH

maí 22, 2005

Sofið yfir júróvision

Ég fer að verða ansi sjóuð í að sofa yfir júróvision;) Á fimmtudaginn hittust nokkrir Íslendingar héðan af kollegíinu uppí centerbyggingu, borðuðu og horfðu svo á forkeppnina. Ég rétt náði að sjá helminginn af lögunum og þá steinsofnaði ég og rétt svo vaknaði þegar var tilkynnt hvaða lönd kæmust áfram. Í gær voru Guðbjörg og Vignir hjá okkur, við grilluðum og horfðum á keppnina. Ég hélt mér nú alveg vakandi yfir öllum lögunum og aðeins lengur en um leið og skemmtiatriðin byrjuðu þá sofnaði ég, en samt ekki fyrr en ég var búin að biðja Jobba um að vekja mig þegar stigagjöfin myndi byrja. Ég rétt rumskaði þegar stigagjöfin byrjaði og aftur þegar Ísland var að gefa stig (þ.e. ég sá hana heilsa og svo ekkert meir...) og svo vaknaði ég ekki fyrr en bara allt sjóvið var búið. Mætti halda að ég ynni e-a erfiðisvinnu, en lægi ekki bara heima allan daginn alla daga;)

Síðast þegar ég skrifaði var ég á leiðinni til læknis og í sónar. Það var nú meiri ferðin. Kom svo sem ekkert merkilegt út úr þeirri ferð, alveg vita vonlaust að mæla tvíbura 1 því höfuðið er komið svo djúpt ofan í grindina. Magamálið var samt e-ð minna en hjá tvíbura 2, en tvíburi 2 mældist 2628gr eða ca 10,5 merkur.
Það sem var svona "merkilegt" við þessa læknisheimsókn var að við áttum tíma hjá "okkar" lækni sem er ein af tveimur sem eru sérstaklega með tvíbura. Neinei, hún var ekki við (veit ekki af hverju) og við fengum e-a beyglu í staðinn sem virtist EKKERT vita og var STÓRSKRÍTIN á alla kanta!! Tvíburi 1 er með höfuðið niður í grindina en tvíburi 2 sitjandi (voru bæði í höfuðstöðu í síðasta sónar...). Hún gat t.d. ekki mælt höfuðið á tvíbura 1 því það var svo djúpt í grindinni, en eftir allar mælingarnar hélt hún því fram að hún hefði getað mælt tvíbura 1 (tók meira að segja fram þann sem var með höfuðið niður!) en ekki tvíbura 2. Samkvæmt skemablaðinu á ég að fara til læknis einu sinni enn, en hún sagði bara nei átt ekki að gera það. Hún hefði getað pantað tíma fyrir mig í gangsetningu en þegar við sögðumst ekki vilja gangsetningu akkúrat við 38 vikur (6.júní, afmælisdagur Jobba) þá fór allt í kerfi og hún gat ekkert gert!!! Hló bara eins og vitleysingur og gat varla skrifað þegar ég sagði henni af hverju við vildum ekki gangsetningu 6. og 7. júní. Hún var s.s. SNAAAAARRRBILUÐ! Eitt sagði hún þó sem ég tók mark á (því það hentaði mér;)), það var að ég mætti alveg fara á fætur ef ég passaði bara að hvíla mig nóg og leggja mig ef ég færi að fá marga samdrætti. Ég er því ekki alveg jafn rúmföst og ég var áður, leyfi mér meira að fara fram og dunda mér aðeins.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 08:30 FH

maí 18, 2005

Leiðist...

Héðan er akkúrat ekkert að frétta... ég hlýði bara nokkuð vel því að liggja og er um það bil að deyja úr leiðindum yfir því... og ég sem er bara búin að liggja núna í 3 daga!! Finn töluvert minna fyrir samdráttum og á ég því ekkert von á að fara að unga út neitt á næstu dögum. Sem er líka bara gott, því þau eru svona helst til lítil ennþá. Fer annars til læknis og í sónar á morgun og á að reyna að mæla stærðina á þeim, verður forvitnilegt að vita hvort tvíburi 1 vill leyfa mælingar á sér í þetta skiptið. Vona að allt líti svo vel út að ég geti leyft mér að fara að horfa á júróvision með hinum Íslendingunum á kollegíinu á morgun. Verður víst bara allt að koma í ljós...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 01:43 EH | 0 Ummæli

maí 16, 2005

Komin aftur heim

Eftir rétt rúmlega sólarhringsdvöl á spítalanum, fékk ég leyfi til að fara aftur heim með því skilyrði að ég myndi liggja í rúminu þar. Er búin að standa alveg við það síðan ég kom heim, en shit hvað þetta fer að verða leiðinlegt... Áður en ég fór heim þá var búið að koma í ljós að samdrættirnir höfðu minnkað aðeins (aukast hins vegar um leið og ég tek mig til og sest eða stend þ.a. það er nú kannski eins gott að hlýða) og þrýstingurinn frá tvíbura 1 hafði líka minnkað til muna. Við erum því öllu bjartsýnni í dag en í gær að ég nái að halda þeim inni töluvert lengur.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:39 EH | 0 Ummæli

maí 15, 2005

Rúmliggjandi

Í morgun ákvað ég að róa mig og mína paranoju og hringja niður á spítala og spyrja út í samdrættina og túrverkina sem ég er búin að vera með undanfarið. Átti nú ekki von á öðru en að ég myndi bara vera send heim með þau skilaboð að þetta væri nú bara alveg eins og það á að vera þegar maður er kominn þetta langt og hvað þá með tvíbura. Ljósmóðirin átti held ég heldur ekki von á öðru. Hins vegar kom í ljós að leghálsinn er alveg orðinn styttur og fullmjúkur og byrjaður að opnast aðeins með höfuðið á tvíbura 1 þar beint fyrir ofan að þrýsta niður. Sýking í þvagi er talin skýringin á þessu og fékk ég því sýklalyf gegn sýkingunni. Ég var því lögð inn og á að liggja sem mest og helst ekki sitja eða standa því það þrýstir meira niður. Það myndi muna miklu fyrir bæði okkur og börnin ef þau haldast inni í viku eða tvær lengur þó ekkert verði gert til að stoppa fæðingu ef hún fer af stað.

Var smá sjokk að átta sig á að þetta gæti farið að gerast því ég hef alltaf gert ráð fyrir að fæða ekki fyrr en ég yrði sett af stað í kringum 38 vikurnar. Vonum nú samt að þetta róist og ég fái að koma fljótlega aftur heim því ég á alveg eftir að dunda mér við að þvo barnafötin;) Sem betur fer erum við þó búin að kaupa næstum allt sem vantar og meira að segja búin að ákveða okkur með þvottavél sem verður keypt í næstu viku.

Annars er nú ekkert alslæmt við að vera hérna (reyndar finnst mér eiginlega það eina slæma vera maturinn, hann er yfirleitt frekar dapur;)) en ég er á einkastofu hérna og Jobbi fær að gista hérna hjá mér.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 10:19 EH | 0 Ummæli

maí 09, 2005

Afmælisbörn dagsins eru tvö:-)

Til hamingju með 26 ára afmælin ykkar bæði Bína og Guðbjörg!! Við fórum í svaka kökuboð heim til Guðbjargar í gærdag og átum allt, allt, allt of mikið!! Eða svona álíka mikið of mikið eins og í afmælinu á laugardaginn hjá Elvu Rún! Ég held ég sé löngu hætt að kunna mér hóf í svona gúmmelaði;)

Svo af því að það er svo gaman að spjalla um veðrið þá verð ég nú aðeins að minnast á þetta furðulega veður sem er búið að vera hérna í dag. Í mest allan dag er búið að vera bara fínasta gluggaveður (ekki enn búin að fara út úr húsi þ.a. ég veit ekki hvort það er jafn gott og það lítur út fyrir að vera;)). Allavega, en inn á milli kemur þetta líka þvílíka haglél að það nötrar allt og skelfur. Það gerðist líka á föstudaginn þegar við Guðbjörg vorum að keyra niður í Lyngby að það byrjaði að rigna í sólskini. Ég hélt að svoleiðis gerðist næstum bara á Íslandi;)

Að lokum, þá lét ég inn örfáar nýjar bumbumyndir í gærkveldi...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 04:44 EH | 0 Ummæli

maí 06, 2005

Fyrsta slitið mætt á bumbuna:-(

Föstudagurinn 6. maí 2005 verður héðan í frá sorgardagur:-( Ég uppgötvaði fyrsta bumbuslitið í morgun og er því búin að vera heldur betur mikið svekkt í allan dag. Allt upp í fjórar og hálfa vikur eftir og því víst nægur tími fyrir bumbuna að gera alls konar óskunda og slitna jafnvel meira.

Við Guðbjörg skelltum okkur örstutt niður í Lyngby til að versla í dag og urðum vitni að þvílíkum mannfjölda samankomnum að við höfum sjaldan orðið vitni að öðru eins. Það var jú frídagur í gær eins og á Íslandi og það er bara eins og Danir fari hamförum og allir þurfi í bæinn til að vinna upp gærdaginn. Fólk er líka með eindæmum óþolinmótt og lenti ég oftar en ekki í því að fólk labbaði hreinlega á mig þar sem ég stóð og var greinilega fyrir þeim. Fékk á mig innkaupakerrur þegar ég stóð við einn kælinn og þar fram eftir götunum. Ekki mjög sátt við fólk í dag, fannst það ekki taka tillit til mín, og ég sem er bæði kasólétt og mjög svo miður mín vegna slæmra frétta fyrr um daginn;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 07:02 EH | 0 Ummæli

maí 05, 2005

Reef'n'Beef

Loksins, loksins, loksins!! Mig er búið að langa til að fara á Reef'n'Beef alveg ótrúlega lengi en aldrei höfum við látið verða að því fyrr en í gærkveldi. Fórum með Guðbjörgu og Vigni og átum á okkur gat! Þríréttað var það hjá okkur Guðbjörgu en strákarnir voru e-ð feimnir við að fá sér eftirrétt;) Eftir að hafa langað mjög lengi að fara að borða þarna þá var smá hætta að ég yrði fyrir vonbrigðum því ég var búin að byggja upp ansi miklar vonir um góðan mat, en ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Reyndar borðaði ég ekkert sér ástralskt eins og planið var, því þegar ég pantaði mér emúa þá sagði þjónninn að emúi væri alltaf borinn fram frekar rear þ.a. það væri kannski ekki sniðugt fyrir feitabollu eins og mig. Ég fékk mér því Tasmaninan Devil í staðin sem var nautalund og váááá hvað hún var góð. Hefði líka eiginlega ekki trúað því fyrirfram að ég gæti borðað alla þrjá réttina og gat staðið upp á eftir!! Var reyndar ekki nógu spræk til að hlaupa út án þess að borga eins og strákarnir voru e-ð að reyna að stinga uppá.

Síðast þegar ég skrifaði minntist ég á að mér væri alltaf illt í bakinu, það á sko alveg við ennþá en eitt hefur bæst við. Ef ég sit lengi á stól þá verður mér ekki bara illt í bakinu heldur í rassinum líka!! Þessi 12kg sem hafa bæst á mig, eru jú eiginlega öll fyrir ofan mitti og það er því aðeins meiri þyngd sem hvílir á rassinum þegar ég sit heldur en venjulega;) Spurning hvort ég þurfi að mæta með púða með mér hér eftir til að sitja á;)


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 03:24 EH

maí 03, 2005

Kvart og kvein er þetta...

Margrét kvartar um leið og ég hætti að blogga daglega næstum því, þ.a. það er eins gott að reyna að standa sig:-) Ástæðan fyrir bloggleysinu undanfarna daga er hreinlega að ég hef eiginlega ekkert verið í tölvunni. Bara rétt kíkt í smá stund þegar ég hef farið í hana. Ástæðan er einföld, ég fæ svo hryllilega illt í bakið á að sitja við tölvuna:( Reyndar fæ ég næstum alltaf illt í bakið, ligg, sit og stend... þ.a. ég sé fram á að vera bara illt í bakinu næstu vikur:(
Fyrir utan þreytu og bakverk og jú oft þreytuverki í grindinni þá er bara ljómandi fínt að frétta af mér. Reyni að láta dagana líða ekkert of hægt, það gengur mjög svo misvel. Í gær gekk það t.d. mjög vel. Fékk heimsókn frá Elvu Rún sem vill held ég bara flytja inn til mín, fór svo í heimsókn til Fjólu, á leiðinni þaðan kom ég líka við hjá Gunna og Nínu og þaðan fór ég örstutt til Guðnýjar og Róberts (og auðvitað Elvu Rúnar líka). Til að toppa allt, þá hitti ég Önnu Karen út á plani. Ég hitti því uþb helminginn af íslendingunum búsettum hérna á einum degi og aldrei fleiri en eina fjölskyldu í einu. Í dag er svo læknisheimsókn og sónar, alltaf jafn gaman að kíkja og sjá hvað þessar elskur eru orðnar stórar:-) Allavega á meðan allt kemur vel út, sem það hefur gert hingað til.
Best að koma sér í sturtu svo ég mæti nú á réttum tíma niður á spítala...


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:30 FH | 0 Ummæli