júní 28, 2005

Fyrsta sturtan

Í morgun fékk Birkir að koma með mér í sturtu í fyrsta sinn. HOnum fannst það nú bara nokkuð notalegt held ég, allavega kvartaði hann ekki neitt;) Ekki einu sinni þó hann færi með allt höfuðið undir bununa. Líka eins gott því fyrir þau að líka vel við vatn, því við Jobbi elskum að fara í sund og ég get varla beðið eftir að geta mætt með þau í sundlaugarnar.

Dagurinn í dag var annars að mörgu leiti merkilegur. Í fyrsta sinn í langan tíma elduðum við sjálf kvöldmat og borðuðum tvö ein. Reyndar borðaði Jobbi fyrst og svo ég, því eins og svo oft áður þá er byrjað að kvarta um leið og ég ætla að fá mér að borða. Þau voru búin að sofa bæði svo vært nokkuð lengi á undan og rétt áður en maturinn var til spurði Jobbi hvort annað þeirra myndi nú ekki vakna áður en við gætum borðað. Jújú, Ásdís vaknaði með sitt stíflaða nef og átti voða bágt, fékk saltvatnsdropa í nefið og smá mjólkursopa.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:47 EH | 0 Ummæli

júní 26, 2005

Nýjar myndir í albúminu

Vorum að enda við að láta inn nýjar myndir. Bæði frá nafngiftinni á Ásdísi og Birki og svo það sem af er liðið fjórðu viku.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:13 EH | 1 Ummæli

Út að aka...

Á föstudaginn var ég svo upptekin af því að Ásdís og Birkir voru búin að fá nöfn að ég gleymdi alveg að minnast á ekki minna viðburðarríkan atburð. Kristján og Millý eignuðust stúlku 24. júní, 3960gr og 52cm. Til hamingju Kristján og Millý! Sú litla skotta er ennþá stærri en Ásdís og Birkir þó Birkir sé nú líklega komin langleiðina upp í 4 kílóin á meðan við vonum að Ásdís sé komin upp í 3 kílóin. Svo mikill er munurinn á þeim systkinum. Þau verða vigtuð á miðvikudaginn, þá fáum við að vita hve mikið þau hafa þyngst síðustu vikurnar.

Í dag á svo Ingunn afmæli, til hamingju með það!! Nú er hún bæði orðin ömmu- og afasystir, fékk þessa 2 titla á 22 dögum þó hún hafi nú ekki fengið afasystur titilinn í afmælisgjöf eins og upphaflega hafði verið áætlað.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:30 FH | 0 Ummæli

júní 24, 2005

Viðburðarríkur dagur

Dagurinn í dag var heldur betur viðburðarríkur. Byrjaði reyndar í gærkveldi um það leyti þegar ég var að fara að skríða í bólið, þá mættu Margrét, Jón og Alex óvænt inn um dyrnar hjá okkur. Margrét hafði logið því að mér að hún kæmi 16. júlí með Ingvari.

Rétt fyrir hádegi í dag tilkynntum við svo fjölskyldum okkar að nöfnin á börnunum yrðu kynnt í dag. Þá var ég á leiðinni í bæinn til að kaupa ný föt á börnin, íbúðin var í rúst og engar veitingar til. Um 5 leytið var allt tilbúið, búið að skella í 2 kökur, börnin uppábúin og gestirnir mættir. Var þá ekki eftir neinu að bíða en að tilkynna að litlu englarnir okkar heita Ásdís og Birkir.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:32 EH | 4 Ummæli

júní 22, 2005

40 vikur ... rúmlega;)

Á mánudaginn síðasta var áætlaður fæðingardagur barnanna miðað við 40 vikna meðgöngu. Þá voru litlu krílin orðin 18 daga gömul og gjörsamlega búin að bræða okkur LANGT, LANGT upp úr skónum;) Þann dag komu amman og afinn frá Akureyri líka í heimsókn, Simmi, Jobbi og Hólmar fóru þó nánast strax til Þýskalands að ná í húsbíl sem þau voru að kaupa sér. Þeir komu svo aftur í gærkveldi og var ósköp gott að fá pabbann aftur heim:) Merkilegt samt hvað tíminn leið hratt því það var jú alltaf nóg að gera;)
Núna sofa allir nema ég (veit samt ekki alveg með tengdó því þau sváfu í nýja húsbílnum og eru ekki komin inn) og klukkan orðin óheyrilega margt;) Ég held að ég geti nú samt lítið sagt því í gær sofnaði ég aftur með börnunum og fór ekki á fætur fyrr en um eitt leytið! Kannski ég fari að koma mér bara almennilega á fætur á meðan það er enginn að óska eftir mjólk úr mjólkurbúinu mínu;)

Skrifaði eyrunl klukkan 11:23 FH | 1 Ummæli

júní 15, 2005

Nýjar myndir í albúminu

Vorum að setja inn myndir frá annari viku krílanna. Eru reyndar ekki alveg orðin 2ja vikna, þ.a. það eiga örugglega eftir að bætast nokkrar myndir í flokkinn þegar það koma næst inn myndir.

Ennþá gengur allt eins og í sögu, ég er þó mikið fegin að Jobbi er fulltime hérna heima hjá okkur, því þegar hann fór í smá stund í bæinn í gær þá voru þau til skiptis á brjóstinu, grenjuðu og ældu þegar hitt lá á og ég kom þeim ekki báðum á samtímis þar sem ég var ein og vantaði e-n til að rétta mér barnið sem kemur seinna upp á púðann. Voru síðan bæði búin að kúka og þá var Jobbi sem betur fer á leiðinni heim og gat skipt á stráknum en ég hafði þá getað komist í að skipta á stelpunni. Virðist ekkert vera neitt svona mikið mál þegar við erum 2 en ég myndi nú ekki leggja í að hafa eignast tvíbura í gamla daga þegar konur voru alltaf bara einar með börnin strax. Held að þau séu að taka e-n svaka vaxtakipp því þau eru búin að vera endalaust svöng. Sem betur fer eru næturnar þó undanteknar því þau sofa 4tíma í einu yfir nóttina og sofna svo strax aftur eftir gjafir. Það er algjör lúxus:-)

Eins og með börnin þá þarf að halda vel mat að mér því ég er farin að léttast aðeins of mikið. Er komin undir fyrir óléttu þyngdina og eins gott að maður horist ekki of mikið í viðbót.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:04 FH | 2 Ummæli

júní 13, 2005

Út úr húsi

Núna eru litlu ungarnir orðin 11 daga gömul og búin að fara þrisvar sinnum út úr húsi síðan við komum heim af spítalanum. Höfum tvisvar farið yfir í íbúðina hjá mömmu og pabba að borða kvöldmat og svo fórum við í dag í leiðangur niðrá spítala til að athuga hvort þau heyri ekki örugglega eðlilega. Það er boðið upp á það fyrir öll nýfædd börn hérna því það er talið svo mikilvægt að komast að heyrnarskerðingu sem fyrst. Bæði heyra eins og þau eiga að gera á báðum eyrum þ.a. við erum mjög sátt:)
Var frekar mikið mál að fara út úr húsi með þau fyrir lítið verk. Þetta tók að hámarki 10 mínútur og við þurftum að koma með þau södd og helst sofandi. Passaði ekki alveg inní rútínuna þeirra að gefa þeim rétt áður en við fórum en það hafðist samt að koma þeim aðeins á brjóstið;)

Fengum í gær heimsókn frá Helgu Björt og Erlu mömmu hennar en þær eru á leið til Íslands í dag. Fengum ótrúlega flottar gjafir frá þeim, sérstaklega leist mér á bolinn sem litla skvísan fékk. Textinn á honum er nefnilega "If you think I'm cute, you should see my mummy"!;)
Í dag fengum við svo heimsókn frá Kalla og Selmu sem er vinafólk mömmu og pabba og þau eru líka á leiðinni til Íslands í dag. Þau komu líka færandi hendi með snudduklemmu og bangsa handa hvoru barni.
Allir auðvitað dolfallnir yfir litlu krúttunum okkar, ekki skrítið enda svo hrikalega krúttleg börn;) Hverjum þykir sinn fugl fagur á held ég vel við!!;)

Skrifaði eyrunl klukkan 04:21 EH | 2 Ummæli

júní 10, 2005

Komin heim:)

Kærar þakkir fyrir allar þær góðu kveðjur sem okkur hafa borist.

Síðustu 8 dagar hafa verið mjög svo viðburðarríkir hjá okkur fjölskyldunni. Toppurinn var að sjálfsögðu fæðingin á fimmtudaginn í síðustu viku, eftir það tóku við strangar æfingabúðir að koma börnunum almennilega á brjóstið en þau voru ekki alveg að meðtaka það strax. Skvísan tók síðan enn lengri tíma og þarf ennþá nokkurt aðhald á meðan töffarinn drekkur eins og herforingi og gargar um leið og hann vill fá e-ð að borða. Þegar börnin voru 4ra daga gömul héldu þau uppá afmæli pabba síns á spítalanum þar sem við fengum heimsókn frá fjölskyldu minni sem mættu með afmælisköku með sér. 5 daga gömul áttum við að fá að fara heim og leyfa þeim að halda upp á afmæli mömmu sinnar, en þau vilja greinilega ekki gera upp á milli okkar því í vigtuninni áður en við áttum að fá að fara kom í ljós að stelpan hafði lést aðeins frá deginum áður og við dvöldum því eina nótt lengur. Við skötuhjúin skelltum okkur nú samt út að borða á afmælisdaginn minn þegar einn sjúkraliðinn bauðst til að passa fyrir okkur krílin til að við gætum frekar farið út í staðin fyrir að Jobbi myndi fara að ná í e-n mat (mig langaði ekki í smørrebrød einu sinni enn;))
Á miðvikudaginn komum við svo öll heim og erum núna að venjast hinu nýja fjölskyldulífi. Það gengur nú alveg ótrúlega vel, þau sofa vel á nóttunni (eins og reyndar eiginlega alltaf) og eru mjög vær og góð. Alveg fullkomin bæði tvö að okkar mati:-)
Þar sem brjóstagjöfin tekur töluverðan tíma hjá mér (ekki ennþá farin að drekka bæði í einu alltaf) þá er Jobbi yfirskiptari og því orðinn nokkuð sjóaður í kúkableyjum;) Einnig hefur hann lent í ansi góðum þrumum sem hafa drifið beint á hann eða út á gólf við mikla kátínu áhorfanda;)
Í morgun voru börnin svo látin í pössun í annað skiptið þegar við Jobbi skelltum okkur í Babysam til að kaupa ýmislegt sem vantaði. Amma "gamla" var beðin um að passa og gekk það alveg ljómandi vel. Þau sváfu bara bæði næstum allan tímann og virkuðu ekkert þær bænir og óskir hjá systkinum mínum þegar þau óskuðu þess að þau myndu vakna svo þau gætu knúsað litlu frænku og frænda.

Tölvan er ekki alveg að komast inn á dagskránna hjá mér þ.a. ég veit ekki alveg hversu dugleg ég verð að blogga hérna á næstunni. Munum samt reyna að setja inn myndir reglulega og láta aðeins vita af okkur.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:49 FH | 4 Ummæli

júní 03, 2005

Börnin komin:)

Það eru stoltir foreldrar sem hafa tvo litla unga í vöggu sín á milli þessa dagana á Gentofte spítalanum. Höfum fengið að heyra að það gangi sögur um gangana hérna vegna þess hve fæðingin gekk vel hjá okkur:) Hjúkrunarkonan sagði líka að hún hefði aldrei verið með í tvíburafæðingu sem gekk jafn vel. Belgurinn var sprengdur um 11 leitið og byrjuðu þá verkirnir. Tæpum 7 tímum seinna voru þau bæði fædd.

Stóra systir fæddist 2500gr og 48cm þann 2/6 '05 kl. 17:41 og litli bróðir fæddist 2900gr og 49cm þann 2/6 '05 kl. 17:54.

Myndir berast í myndaalbúmið á morgun þegar Jobbi skreppur heim í almennilega internettengingu.

Uppfært: Myndirnar eru komnar

Skrifaði eyrunl klukkan 06:23 EH | 13 Ummæli

júní 01, 2005

Komin með nýja síðu!

Hér eftir birtast fréttir af okkar heimili á nýrri síðu, þ.e. http://eyrunl.tkol.dk.


--------

Skrifaði eyrunl klukkan 11:15 EH

Ný bloggsíða

Jæja, þá er maður bara fluttur;) Rétt hafðist áður en börnin láta sjá sig, en er ennþá svona í mótun þ.a. síðan á vonandi eftir að breytast e-ð í framtíðinni þegar tími gefst til (hvenær svo sem það verður með börnin fædd;))

Af okkur er annars bara allt ljómandi fínt að frétta, Jobbi skellti sér í kollegífótbolta svona rétt áður en átökin skella á. Er svo mæting hjá okkur í fyrramálið klukkan hálf 9 og vonandi mun fæðingin ekki taka ár og öld. Er ótrúlega skrítin tilfinning að vita til þess að á morgun (síðasta lagi á föstudaginn) verða börnin fædd og við Jobbi orðnir foreldrar. Orðin fjögurra manna fjölskylda í staðin fyrir par;)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:09 EH | 11 Ummæli