júní 03, 2005
Börnin komin:)
Það eru stoltir foreldrar sem hafa tvo litla unga í vöggu sín á milli þessa dagana á Gentofte spítalanum. Höfum fengið að heyra að það gangi sögur um gangana hérna vegna þess hve fæðingin gekk vel hjá okkur:) Hjúkrunarkonan sagði líka að hún hefði aldrei verið með í tvíburafæðingu sem gekk jafn vel. Belgurinn var sprengdur um 11 leitið og byrjuðu þá verkirnir. Tæpum 7 tímum seinna voru þau bæði fædd.
Stóra systir fæddist 2500gr og 48cm þann 2/6 '05 kl. 17:41 og litli bróðir fæddist 2900gr og 49cm þann 2/6 '05 kl. 17:54.
Myndir berast í myndaalbúmið á morgun þegar Jobbi skreppur heim í almennilega internettengingu.
Uppfært: Myndirnar eru komnar
Skrifaði eyrunl þann 03.06.05 18:23Til hamingju með litlu krílin, get ekki beðið eftir myndunum ;)
Skrifaði: olly þann 03.06.05 18:46Innilega til hamingju með börnin. Það eru allir búnir að vera voða spenntir hér á kollegíinu að fá fréttir :)
Skrifaði: Anna Karen þann 03.06.05 18:52hæ, þetta eru æðislegar fréttir, slappiði nú af eins og þið getið og reynið eftir fremsta megni að stressa ykkur ekki yfir nokkrum hlut :o)
Ástarkveðjur og til hamingju.
Það er búin að vera heilmikil mússí mússí stemming hér á heimilinu eftir að við fórum frá þessum dúllum í gær. Hlakkar mikið til að hitta ykkur öll aftur og fá smá meiri mússí múss fíling.
Og vonandi gengur allt vel eftir að við náðum að redda ykkur manúalnum ;p
Skrifaði: Fjóla þann 04.06.05 08:35Já þessi börn eru ekkert nema sæt. Hlakka rosalega til að hitta ykkur öll aftur. Gangi ykkur vel og hlakka líka til að sjá fleiri myndir. Knús, Guðbjörg.
Skrifaði: Guðbjörg þann 04.06.05 10:12Til hamingju með krílin og hafið það sem allra best.
Kveðja frá fagrabergi 24
Skrifaði: hulda þann 04.06.05 20:48Innilega til hamingju með afmælið Jobbi. En eru ekki að koma fleiri myndir :-), ég býð spennt.
Skrifaði: Ingunn ömmusystir þann 06.06.05 19:36Til hamingju med afmælid i dag Eyrun og tu i gær Jobbi. Hlakka til ad sja ykkur, Gudbjorg.
Skrifaði: Gudbjorg i vinnunni þann 07.06.05 10:58Til hamingju með daginn elsku Eyrún.... Og Jobbi í gær :) Hafið það gott, öll fjögur, saman í dag. Knús MS
Skrifaði: Matthildur þann 07.06.05 12:15Til hamingju með daginn Eyrún og líka með þinn dag í gær Jobbi. Bestu kveðjur frá okkur í Klukkubergi. :)
Skrifaði: Kristjana þann 07.06.05 19:10Elsku Eyrún, innilega til hamingju með daginn.
kv. Ingunn og co.
Álpaðist hérna inn fyrir tilviljun og sá fréttirnir - var reyndar bara nýbúin að frétta að þið ættuð von á ykkur!! Hjartanlega til hamingju með krílin, gangi ykkur rosalega vel í nýju hlutverkunum!!
Skrifaði: Eva þann 08.06.05 15:48Til hamingju með gullklumpana, frábært að allt gekk svona vel.
Skrifaði: Sveinbjörg, Gummi og Ragnhildur þann 09.06.05 12:21