júní 10, 2005
Komin heim:)
Kærar þakkir fyrir allar þær góðu kveðjur sem okkur hafa borist.
Síðustu 8 dagar hafa verið mjög svo viðburðarríkir hjá okkur fjölskyldunni. Toppurinn var að sjálfsögðu fæðingin á fimmtudaginn í síðustu viku, eftir það tóku við strangar æfingabúðir að koma börnunum almennilega á brjóstið en þau voru ekki alveg að meðtaka það strax. Skvísan tók síðan enn lengri tíma og þarf ennþá nokkurt aðhald á meðan töffarinn drekkur eins og herforingi og gargar um leið og hann vill fá e-ð að borða. Þegar börnin voru 4ra daga gömul héldu þau uppá afmæli pabba síns á spítalanum þar sem við fengum heimsókn frá fjölskyldu minni sem mættu með afmælisköku með sér. 5 daga gömul áttum við að fá að fara heim og leyfa þeim að halda upp á afmæli mömmu sinnar, en þau vilja greinilega ekki gera upp á milli okkar því í vigtuninni áður en við áttum að fá að fara kom í ljós að stelpan hafði lést aðeins frá deginum áður og við dvöldum því eina nótt lengur. Við skötuhjúin skelltum okkur nú samt út að borða á afmælisdaginn minn þegar einn sjúkraliðinn bauðst til að passa fyrir okkur krílin til að við gætum frekar farið út í staðin fyrir að Jobbi myndi fara að ná í e-n mat (mig langaði ekki í smørrebrød einu sinni enn;))
Á miðvikudaginn komum við svo öll heim og erum núna að venjast hinu nýja fjölskyldulífi. Það gengur nú alveg ótrúlega vel, þau sofa vel á nóttunni (eins og reyndar eiginlega alltaf) og eru mjög vær og góð. Alveg fullkomin bæði tvö að okkar mati:-)
Þar sem brjóstagjöfin tekur töluverðan tíma hjá mér (ekki ennþá farin að drekka bæði í einu alltaf) þá er Jobbi yfirskiptari og því orðinn nokkuð sjóaður í kúkableyjum;) Einnig hefur hann lent í ansi góðum þrumum sem hafa drifið beint á hann eða út á gólf við mikla kátínu áhorfanda;)
Í morgun voru börnin svo látin í pössun í annað skiptið þegar við Jobbi skelltum okkur í Babysam til að kaupa ýmislegt sem vantaði. Amma "gamla" var beðin um að passa og gekk það alveg ljómandi vel. Þau sváfu bara bæði næstum allan tímann og virkuðu ekkert þær bænir og óskir hjá systkinum mínum þegar þau óskuðu þess að þau myndu vakna svo þau gætu knúsað litlu frænku og frænda.
Tölvan er ekki alveg að komast inn á dagskránna hjá mér þ.a. ég veit ekki alveg hversu dugleg ég verð að blogga hérna á næstunni. Munum samt reyna að setja inn myndir reglulega og láta aðeins vita af okkur.
Skrifaði eyrunl þann 10.06.05 11:49Gaman og gott að allt gengur vel hjá ykkur.... Skil það vel að tölvan sé ekki á dagskránni þessa dagana, en ég kíki nú samt reglulega hingað inn ;) Farið vel með ykkur, knús MS
Skrifaði: Matthildur þann 10.06.05 13:45Hjartanlega til hamingju með tvíburana! Frábært að heyra að fæðingin hafi gengið vel, ég átti fullt í fangið með okkar litlu, get ekki ímyndað mér hvernig það er að koma tveimur í einu í heiminn. Gangi ykkur vel næstu daga og vikur með að komast inn í hlutverkin.
Kær kveðja,
Íris, Óli og Emilía Þórný
Sá á óskalistanum "magapokar" var það sett á listann áður en þú fæddir??
Þú ert alla vega með einn ágætan framan á þér elsku Eyrún mín, enn sem komið er ;)
Ég er svooo yndislega illkvittin þessa dagana.
Og, já, ég veit að mér á eftir að hefnast fyrir allt sem ég segi þessa dagana :)
Ekkert svo illkvittin Fjóla, ég hlæ manna hæst að mínum maga!!;) Finnst hann alveg óendanlega fyndinn svona krumpaður;)
Skrifaði: Eyrún þann 14.06.05 15:15