júlí 20, 2005
Súkkulaðibann, sultugerð og nætursvefn
Merkilegt nokk, þá á allt ofantalið við um mig. Ég er í ströngu súkkulaðibanni og mun verða þar til Ásdís hættir á brjósti. Búin að prófa nokkrum sinnum og það er hér með orðið vel ljóst að maginn á henni þolir ekki súkkulaði. Ekki einu sinni 2 litla kossa sem ég stalst í hjá Guðbjörgu um daginn! Greyið átti bara mjög bágt nóttina eftir og frameftir degi þ.a. ég var með þvílíkt samviskubit yfir þessum molum.
Fyrir utan hjá okkur eru lengjurnar af rifsberjarunnum og ég búin að vera að gæla við þá hugmynd að búa til rifsberjahlaup úr e-u af þeim. Aldrei áður hef ég gert sultu en þar sem mamma er á staðnum þá hlyti það nú að takast. Eina sem var að tefja mig í sultugerðinni, var að ég nennti takmarkað út að tína berin. Þegar mér datt í hug að fá Agnesi og Hans Adolf til að sækja berin þá ákvað ég að drífa í þessu. Fékk alveg slatta af sultu og Jobbi hafði á orði að við þyrftum að kaupa nýjan ískáp undir alla þessa sultu;)
Með tvö ungabörn á heimilinu þá gat maður alveg eins átt von á mjög svo slitróttum nætursvefni. Það hefur hins vegar sjaldnast verið þannig, einungis komið einstaka nótt þar sem þau hafa verið að vakna mikið en oftast er það eins og síðustu nótt þar sem þau vakna einu sinni yfir nóttina og svo um hálf 7 - 7 og svo er kominn dagur á bilinu 8-9. Það besta er að þau vakna yfirleitt á sama eða svipuðum tíma sem gefur okkur öllu samfelldari svefn en annars.
Að lokum, smá myndafréttir. Þær ERU á leiðinni, koma inn í kvöld:)
júlí 09, 2005
Klúður á klúður ofan
Á okkar heimili er ekki oft eldað eftir uppskrift, eða allavega ekki oft eftir nýjum uppskriftum. Erum meira í að vera oft með það sama... Þegar kjúklingur hefur verið í matinn ansi oft sömu vikuna þá er hins vegar þörf á nýjum uppskriftum til að fá smá fjölbreytni. Við fundum því í dag ansi girnilega uppskrift að kjúklingalærum með appelsínusósu úr grillbók hagkaupa. Áttum næstum allt sem þurfti en það sem vantaði var keypt. Þegar eldamennskan byrjaði, þá fyrst fór að síga á klúðurhliðina. Grilluðu kartöflusneiðarnar brunnu VEL, kjúklingalærin stóðu í ljósum logum og appelsínusósan leit út fyrir að ætla að klúðrast ærlega þegar kaldur appelsínusafi fór út í sykurbráð. Sósan skánaði þó, því bráðin bráðna bara aftur allt leit vel út þar til sósujafnarinn fór útí í lokin. Auðvitað endaði sósan kekkjótt. Í meðlæti var einnig soðið fennel og appelsína og þótti okkur víst að það væri þó allavega ekki klúðrað. Þegar fennelið var skorið í tvennt kom nú samt í ljós að það var SKEMMT!! Eina sem var í lagi voru því appelsínurnar og Jobbi farinn að bjóðast til að skjótast og ná í tilbúinn Cowboy chicken. Ákváðum nú samt að prófa, og merkilegt nokk, þá var þetta bara fínasti matur ef maður valdi að borða ekki mest brenndu kartöflurnar. Meira að segja skrítna sósan var ótrúlega góð. Ég er því hætt við að hætta að prófa nýjar uppskriftir eins og ég var eiginlega farin að lofa sjálfri mér undir lokin;)
Í öðrum fréttum er það helst að Jobbi er farinn að vinna aftur í lokaverkefninu sínu og ég búin að vera ein síðustu viku með Birki og Ásdísi. Hefur gengið alveg ótrúlega vel, og mín farin að vera ótrúlega dugleg í heimilisstörfunum. Ég gleymdi nú bara alveg myndavélinni, þ.a. það voru nú ekki teknar margar myndir í vikunni. Aldrei að vita samt hvort það komi kannski nokkrar inn e-n tímann fljótlega, þó ég lofi nú samt engu;)
Að lokum, þar sem það er nú svo gaman að tala um veðrið, þá er búið að vera þvílíkt gott veður í vikunni og dagurinn í dag þar engin undantekning. Þvílíki hitinn og svitinn. Erum þokkalega ánægð með kaupin á sólhlífinni, því þá getum við setið úti með börnin og verið í skugga.
júlí 02, 2005
Nýjar myndir í albúminu
Við fáum aldrei nóg af því að dást að litlu krúsídúllunum okkar og vonum að sjálfsögðu að þið hin hafið gaman af líka;)
Mánuður frá stærstu breytingu í mínu lífi
Í dag urðu elskurnar okkar, Ásdís og Birkir eins mánaðar gömul. Af því tilefni var ég extra hress í morgun, kom þeim á fætur, gaf þeim að drekka og skellti mér út með vagninn í góða veðrinu. Ákvað að labba niðrí Veðbæk, kíkja í bakaríið og kannski aðeins á barnafatabúðirnar. Þegar niðrí Vedbæk var komið (3km) var ég orðin ansi þreytt og ákvað að taka strætó heim. Eftir að hafa rölt aðeins um og farið að líða að strætótíma, fór ég í sjoppuna að kaupa klippikort en lenti í biðröð þar, þ.a. ég missti af strætó!!! Hvað gera bændur þá... hálftími í næsta strætó og ég ca hálftíma að labba. Jú auðvitað labba líka heim!! Þegar heim var komið var ég þyrst, heitt og þreytt og börnin bæði þyrst og heitt.
Fór aðeins yfir áreynslustrikið við þennan göngutúr, og grindin heldur aum núna. Ætla að fara að vera duglegri að fara með barnavagninn og reyna að losna við afganginn af maganum mínum og koma mér í almennt betra form:)
Verð eiginlega að taka fram að Jobbi fékk að sofa á meðan við vorum úti og svaf meira að segja af sér þegar Fjóla kom, bankaði og hringdi dyrabjöllunni!! E-ð þreyttur drengurinn, þrátt fyrir einstaklega svefngóða nótt;)