ágúst 28, 2005

Barnlausa fólkið ekki mikið lengur svo barnlaust;)

Í dag fórum við og vorum viðstödd þegar nafnið hennar Lilju Ránar var tilkynnt. Fallegt nafn á fallegri stelpu:) Undir lokin sátum við fjögur pör/fjölskyldur sem áttum það sameiginlegt að hafa myndað barnlausa hópinn á kollegíinu sem mætti í matarboð hjá okkur Jobba í október í fyrra. Þá var ég nýorðin ólétt og enginn vissi ennþá. Núna erum við Jobbi komin með börn, Gunni og Nína nýbúin að eignast dóttur, Fjóla og Ingólfur eiga von á sér í október og nýjasta nýtt þá eiga Guðbjörg og Vignir líka von á litlu kríli í febrúar. Eins og það sé nú ekki nóg að barnlausa fólkið sé byrjað að unga út, þá eiga líka Anna Karen og Kári von á barni nr. 2 í lok janúar. Það er s.s. allt að gerast hérna á kollegíinu í barnamálunum:-) Mætti halda að þetta væri bráðsmitandi;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:17 EH | 3 Ummæli

Mömmumont

Gleymdi alveg að monta mig á syni okkar. Í morgun var Birkir svo rosalega sperrtur á maganum uppá skiptiborði og virtist líklegur til að geta velt sér þ.a. honum var skellt á gólfið og jújú hann tók sína fyrstu veltu!! Stóri strákurinn okkar gat þetta líka:) Ásdís sem er jú öllu nettari (rúmum 2kg léttari) velti sér í fyrsta skipti fyrir rúmum 3 vikum síðan og hefur gert það ítrekað síðan.

Skrifaði eyrunl klukkan 12:16 EH | 1 Ummæli

Fjölskyldan búin að yfirgefa okkur:(

Þá kom að því, þau eru farin frá okkur:( Hef reynt að ýta hugsuninni frá mér í allt sumar að þessi dagur myndi koma en í gær gat ég bara ekki gert það lengur, þau voru komin til að kveðja!! Verð víst samt bara að hugsa jákvætt, ég hafði þau þó hjá mér í allt sumar og þau fengu tækifæri til að kynnast Ásdísi og Birki miklu betur en annars. Þar til við mætum á klakann eftir 12 daga + mánuð (sorrý, taldi vitlaust á bónersíðunni um daginn:/). Jobbi skilar lokaverkefninu sínu í næstu viku, ég ætla að byrja aftur á mínu í þarnæstu viku, eftir 2 vikur koma tengdó í heimsókn og Jobbi þarf að verja verkefnið sitt. Þar að auki líður tíminn alveg ótrúlega hratt hjá mér þ.a. við verðum örugglega mætt á klakann áður en ég veit af.

Í dag á svo að nefna litlu Nínu og Gunnarsdóttir og Guðbjörg og Vignir komu heim frá Íslandi í gærkveldi og ætla að koma við hérna á eftir til að kíkja á okkur (sögðu reyndar e-ð um Ásdísi og Birki, en þau hljóta samt að vera að koma og kíkja á okkur...;)), s.s. bara allt að gerast:)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:11 EH | 0 Ummæli

ágúst 22, 2005

Fjölgar Íslendingum á Trørød kollegíinu

Í gærmorgun fæddist Ninu og Gunna lítil yndisleg stúlka. Við Jobbi fórum í heimsókn upp á spítala í dag til að skoða og hún var ekkert smá lítil og sæt. Ég man ekkert eftir því að okkar börn hafi nokkurn tímann verið svona lítil;) Ásdís og Birkir fæddust nú samt 350 og 750gr minni en nýfædda Gunnarsdóttir.

Annað í fréttum, er að strax eftir spítalaheimsóknina, fórum við Jobbi út að borða á Jensen's bøfhus. Allt á meðan mamma og co. pössuðu Ásdísi og Birki heima hjá okkur. Nóg var til af brjóstamjólk í frystinum en þau eru auðvitað svo fullkomin að þau byrjuðu ekki að kvarta fyrr en akkúrat þegar við löbbuðum inn úr dyrunum, eða svona um það bil. Ég á því bara ennþá næstum fulla frystiskúffa af mjólk;) Ég framleiði svo mikið að ég væri örugglega verðlaunakýr ef ég væri í þeim bransanum;)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:39 EH | 1 Ummæli

ágúst 19, 2005

Nýjar myndir og fleira

Best að byrja á myndunum, var að láta inn myndir frá tíundu og byrjun elleftu viku.

Fórum í gær út að borða á Rungsted havn sem er næsta höfn fyrir norðan Vedbæk. Þar liggja allsvaðalega snekkjur sem er alltaf jafn gaman að skoða:) Var ótrúlega gaman að borða úti niðrá höfn í svona góðu veðri. Birkir þurfti auðvitað að koma með góða þrumu rétt áður en maturinn var borinn á borð og var þá ekki um annað að ræða en að skipta á honum í vagninum í flýti.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:30 FH | 1 Ummæli

ágúst 12, 2005

Langamma komin í heimsókn

Í gærmorgun komu, mamma, krakkarnir og amma til okkar. Magga amma hafði komið til Danmerkur seint kvöldið áður og var því að fá að sjá fyrstu langömmubörnin sín í fyrsta skipti í gærmorgun. Auðvitað féll hún fyrir þeim um leið, hvernig er hægt e-ð annað þegar um svona æðisleg börn er að ræða;)

Í dag fórum við svo saman á Louisiana safnið í Humlebæk. Ásdís og Birkir létu það nú ekki trufla eftirmiðdagslúrinn sinn og sváfu sem fastast í magapokunum. Veðrið hefði nú alveg mátt vera aðeins skárra, því þá hefðum við getað notið þess aðeins meira að vera í garðinum og horfa yfir til Svíþjóðar.

Þvílíkur og annar eins rútínu svefndagur hjá Ásdísi og Birki hefur varla áður sést, sváfu alveg eins og best var á kosið. Birkir svaf í 3 tíma í morgun og Ásdís í 3 og hálfan. Þegar við fórum út í bíl til að fara á Louisiana þá sofnuðu þau aftur og sváfu aðra 3 tíma eftir hádegi. Svo voru þau sofnuð klukkan 20 fyrir nóttina. Spurning hvort maður fái annan svona dag eða hvort þetta hafi verið algjör tilviljun og næstu dagar verði meira vesen... Kemur allt í ljós.

Var að skella inn nokkrum myndum, erum ennþá með fullt fleiri myndir sem eiga eftir að bætast í alla gömlu barnaflokkana, það hefst vonandi fljótlega.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:57 EH | 0 Ummæli

ágúst 10, 2005

Stór og stærri

Í dag heimsótti hjúkrunarfræðingurinn okkur, vigtaði og mældi börnin og spjallaði við okkur foreldrana. Henni leist auðvitað alveg rosalega vel á Ásdísi og Birki, þau brostu til hennar og spjölluðu aðeins við hana. Ásdís var nú ekkert á því að spjalla við hana fyrr en hún var búin að ropa, prumpa og pissa hjá henni bleyjulaus upp á skiptiborði!! Ásdís þyngist alveg mjög vel, hafði þyngst um eitt kíló á 4 vikum og er núna orðin 4600gr og 56cm. Birkir er síðan að þyngjast ennþá meira, hafði þyngst um 1,7kg á 4 vikum og nú orðinn 6500gr og 59cm!! Það eru því tæplega tvö kíló á milli þeirra núna. Enda finnst það sko alveg þegar maður tekur þau bæði upp.

Skrifaði eyrunl klukkan 04:56 EH | 1 Ummæli

ágúst 07, 2005

Á heimleið...

... reyndar ekki alveg strax en samt búin að bóka flugið:) Verðum í 2 og hálfa viku í október, mætum 7. október og förum aftur 25. október. Fljúgum með sömu vél og pabbi þ.a. það verður vonandi ekkert mál að fara með Ásdísi og Birki í flugið.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:20 EH | 3 Ummæli

ágúst 02, 2005

Tíminn líður hratt

Birkir og Ásdís eiga afmæli í dag!! Orðin hvorki meira né minna en 2ja mánaða!!! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Vil varla hugsa til þess að þegar þau verða þriggja mánaða þá verða mamma og krakkarnir farnir heim til Íslands aftur:( Ég skal, ætla og mun verða massadugleg að vinna að lokaverkefninu þ.a. við getum flutt aftur heim næsta vor.

Á þessum tæpum tveimur vikum síðan ég bloggaði síðast er nú ýmislegt búið að gerast. Það stærsta er að börnin fóru í sína fyrstu útilegu, vorum í 3 nætur á Lálandi, fórum í Knuthenborg Safari park og þeir sem máttu fóru í Lalandia. Var ótrúlega vel heppnuð ferð og við mælum sérstaklega með Safari garðinum, hann sló þvílíkt í gegn.

Börnin eru líka að komast í aðeins meiri rútínu, farið að sofa yfirleitt á bilinu 9-10 og svo er kominn dagur um hálf 8 - 8. Þau eru komin út í vagn yfirleitt um 9 og svo er það mamma þrjóska á móti þeim að fá þau til að sofa helst til hádegis og svo aftur langan dúr eftir hádegi. Mega hins vegar ekki vakna seinna en 5 til að fá þau á skikkanlegum í háttinn á kvöldin. Eins og ég get nú verið ansi mikið þrjósk, þá vinna þau nú oft, ef ekki oftast...

Þau stækka og stækka, Birkir kominn með þvílíku lærin og Ásdís reynir sem hún getur að halda í við hann;) Verður forvitnilegt að vita hvað þau eru orðin þung þegar þau verða vigtuð í næstu viku. Hingað til hefur Ásdís verið að þyngjast um ca 250gr á viku og Birkir um 400gr á viku. Bæði eru farin að hjala og brosa sínu breiðasta. Þeim finnst svakalega gaman í baði og kvarta yfirleitt ekkert þó maður vindi blautann þvottapoka yfir andlitinu á þeim:)

Erum á leiðinni í tívolíið með mömmu og krökkunum, pabbi og Jobbi eru að vinna/læra. Það verður þeirra fyrsta ferð í tívolíið.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:32 FH | 3 Ummæli