ágúst 28, 2005
Barnlausa fólkið ekki mikið lengur svo barnlaust;)
Í dag fórum við og vorum viðstödd þegar nafnið hennar Lilju Ránar var tilkynnt. Fallegt nafn á fallegri stelpu:) Undir lokin sátum við fjögur pör/fjölskyldur sem áttum það sameiginlegt að hafa myndað barnlausa hópinn á kollegíinu sem mætti í matarboð hjá okkur Jobba í október í fyrra. Þá var ég nýorðin ólétt og enginn vissi ennþá. Núna erum við Jobbi komin með börn, Gunni og Nína nýbúin að eignast dóttur, Fjóla og Ingólfur eiga von á sér í október og nýjasta nýtt þá eiga Guðbjörg og Vignir líka von á litlu kríli í febrúar. Eins og það sé nú ekki nóg að barnlausa fólkið sé byrjað að unga út, þá eiga líka Anna Karen og Kári von á barni nr. 2 í lok janúar. Það er s.s. allt að gerast hérna á kollegíinu í barnamálunum:-) Mætti halda að þetta væri bráðsmitandi;)
Skrifaði eyrunl þann 28.08.05 22:17AAAAAAAATSJÚÚÚÚ!!!!!!!! :D
Skrifaði: Fjóla þann 29.08.05 12:48Já þetta er sko þokkalega smitandi. Frétti af barnlausu pari sem er að flytja hingað, við ættum kannski að vara þau við???
Skrifaði: Guðbjörg þann 29.08.05 17:25Já það væri nú kannski rétt að gera það, láta þau allavega vita að barnlaust fólk hérna verði oft ekki mikið lengur barnlaust;)
Skrifaði: Eyrún þann 29.08.05 17:27