ágúst 28, 2005

Mömmumont

Gleymdi alveg að monta mig á syni okkar. Í morgun var Birkir svo rosalega sperrtur á maganum uppá skiptiborði og virtist líklegur til að geta velt sér þ.a. honum var skellt á gólfið og jújú hann tók sína fyrstu veltu!! Stóri strákurinn okkar gat þetta líka:) Ásdís sem er jú öllu nettari (rúmum 2kg léttari) velti sér í fyrsta skipti fyrir rúmum 3 vikum síðan og hefur gert það ítrekað síðan.

Skrifaði eyrunl þann 28.08.05 12:16
Ummæli

Þau bara munu fermast áður en maður veit af, þetta líður svo hratt og þau stækka svo hratt :(

Skrifaði: Margrét besta frænka þann 28.08.05 18:42
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?